Leita í fréttum mbl.is

Óvæntur bandamaður

minn er Þorsteinn Pálsson í Viðreisn.

Það er til tíðinda fyrir mig ef við erum sammála um eitthvað. En nú er Þorsteinn á minni línu með að Lífeyrissjóðirnir láni Ríkinu fé til að það ábyrgist Icelandair frekar en að þeir komi að félaginu frekar.

Auðvitað erum við áfram á  algerlega öndverðum meiði hvað varðar WOW og þá endurreistan Skúla með Play  í framhaldi sem við höfum ekkert við að gera núna. 

En ég held að mín tillaga um að Lífeyrissjóðirnir láni Ríkinu 50 milljarða sem það borgi að þeim hluta til baka sem Icelandair getur ekki borgað sjálft á 10 gjalddögum efir 5 ár og Icelandair hefur þá fengið að láni hjá Ríkinu. Enginn lífeyrir í hættu, aðeins þjóðin tekur sjansinn af að halda Icelandair á floti og félagið verður Ríkisins eftir þetta þar sem gamla hlutaféð er koltapað. Almenningur má svo gjarnan fá sinn hlut heimsendann seinna.

Þorsteinn Pálsson er óvæntur bandamaður minn í þessu Icelandairmáli en ekki á öðrum sviðum svo mikið er Viðreisnarvíst.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Hlutafjáraukningin, og samningar við lánadrottna, miðast við að fyrir hendi sé lánsloforð en ekki að verið sé að taka lán til að halda rekstrinum gangandi yfir þessar þrengingar nema í neyð ef þær framlengjast úr hófi. 

...aðeins þjóðin tekur sjansinn af að halda Icelandair á floti og hluthafar, hvort sem það verða þá vogunarsjóðir eða aðrir, hirða gróðann ef vel gengur. Sniðugt.... nema hvað ríkið tekur lán hjá lífeyrissjóðunum, á góðum vöxtum og verðtryggt, Icelandair þarf ekki lán og tekur ekkert lán hjá ríkinu og lífeyrissjóðirnir kaupa hlutabréf í útboðinu. 

Líklegustu útkomur lántöku ríkisins, ríkið borgar vexti og verðtryggðan höfuðstól af láni sem það þurfti ekki að taka og lífeyrissjóðirnir græða  á Icelandair og ríkinu. Eða Ríkið borgar vexti og verðtryggðan höfuðstól af láni sem það tók og tapaði í Icelandair og lífeyrissjóðirnir tapa á Icelandair en græða á ríkinu.

Lántökur ríkisins stöðva ekki hlutafjárútboðið og koma ekki í veg fyrir að lífeyrissjóðir taki þátt í því. Ríkið getur ekki þvingað Icelandair til að taka lán ef samningar við aðra gerir það óþarft.

Vagn (IP-tala skráð) 3.9.2020 kl. 10:00

2 Smámynd: Sigurður I B Guðmundsson

Frændi á sína spretti en í ESB málinu er hann á villigötum. Enda sést það best núna framkoma þeirra gagnvart Bretum.

Sigurður I B Guðmundsson, 3.9.2020 kl. 10:50

3 Smámynd: Halldór Jónsson

Vagn, ég er að tala um að Ríkið taki yfir hlutaféð

Halldór Jónsson, 3.9.2020 kl. 10:52

4 identicon

Ríkið getur ekki tekið yfir neitt hlutafé. Ríkið getur keypt það hlutafé sem þeir sem eiga forkaupsrétt vilja ekki kaupa í útboðinu eða keypt það sem einhverjir vilja selja á markaði. Eins getur ríkið boðið í allt hlutaféð á hærra en markaðsverði og þá ráða hluthafar hvort félagið verði selt. En kaupi ríkið félagið eða hluti á markaði þá eru það aðgerðir sem bæta rekstrarstöðu Icelandair ekkert, peningurinn rennur allur til hluthafa en ekki fyrirtækisins.

Vagn (IP-tala skráð) 3.9.2020 kl. 12:27

5 Smámynd: Halldór Jónsson

Eg gef mér að enginn vilji kaupa neitt í félaginu vegna stöðunnar. Kannski rangt.Þá getur ríkið keypt nýtt hlutafé. Sá peningur rennur í kassa Icelandair en ekki í vasa hluthafa.Það bætir stöðuna.

Halldór Jónsson, 3.9.2020 kl. 17:53

6 identicon

Þú segir samt  "En ég held að mín tillaga um að Lífeyrissjóðirnir láni Ríkinu 50 milljarða sem það borgi að þeim hluta til baka sem Icelandair getur ekki borgað sjálft á 10 gjalddögum efir 5 ár og Icelandair hefur þá fengið að láni hjá Ríkinu."    lánveiting er ekki hlutabréfakaup. Ríkið fær ekkert borgað til baka af hlutabréfakaupum og á enga kröfu í þrotabú sem hluthafi. Láni ríkið Icelandair þá fær það engin hlutabréf, eignast ekkert í fyrirtækinu, en á kröfu í þrotabúið eins og aðrir lánadrottnar. Réttindi lánveitenda og hluthafa eru ekki þau sömu. En Icelandair er ekki að sækjast eftir láni og ríkinu stendur enn ekki til boða að kaupa nýju hlutina.

Staðan er sú að þeir kaupa sem trúa því að bóluefni komi á þessum vetri eða næsta vori. Þá er ekki hægt að tapa á kaupunum. Hinir telja að lengra sé í bóluefni eða að ekkert bóluefni komi og að þá muni flest flugfélög verða gjaldþrota. (Þeir svartsýnustu telja að finnist ekki bóluefni gæti fjórðungur vinnandi fólks hætt að vera greiðendur í lífeyrissjóði og orðið þyggjendur örorkulífeyris úr þeim, sem mundi gera lífeyrissjóðina gjaldþrota.)

Í hruninu töldu margir lánasöfn og skuldabréf föllnu bankanna lítils virði vegna stöðunnar. Og það mat var rétt miðað við það að staðan mundi ekki batna. Hrægammasjóðirnir sáu aðra framtíð og keyptu það sem Íslendingar vildu ekki eiga. Þaim var síðan formælt þegar staðan batnaði og verðmæti eignanna margfaldaðist. Ég reikna með að flestir hjá lífeyrissjóðunum og aðrir eigendur Icelandair muni eftir hruninu og kauptækifærunum sem runnu þeim úr greipum í þeim brunaútsölum. Bankarnir væru ekki að skuldbinda sig til að kaupa um 20% ef þeir teldu ekki meiri líkur á gróða en tapi.

Vagn (IP-tala skráð) 3.9.2020 kl. 20:26

7 Smámynd: Halldór Jónsson

Hluthafar í gjaldþrota félagi hafa ekki um neitt að velja. 50 milljarðar þurfa að vera til reiðu til að halda félaginu í gangi. Hluthafarnir eiga ekki neitt nema ónýta pappíra eins og ég þegar Landsbankinn var sagður gjaldþrota og ég væri búinn að tapa öllu mínu hlutafé. Samt var hann aldrei lýstur gjaldþrota.  Svo hélt bara bankinn áfram með sömu húsin og málverkin og allt í himnalagi bara ég átti ekkert í honum lengur en Bjarni Ben átti allt.

Icelandair verður að fá næga peninga til að komast yfir hjallan og þá er best að það sé klárt að Ríkið eigi allt félagið. Það kostar X krónur á næstu árum og ef við getum bjargað því þá eigum við ríkisflugfélag.

Svo seljum við Samherja og Eimskip það trúlega á slikk eins og trúlegt er í stað þess að afhenda almenningi það.

Svo halda menn að einhver ný Stjórnarskrá sé einhvers virði fyrir almenning? Þvílíkir einfeldningar er þetta lið.Alþingi gerir akkúrat það sem því hentar og allir segja já og amen.

Halldór Jónsson, 3.9.2020 kl. 22:32

8 Smámynd: Halldór Jónsson

Vagn, ég er orðinn nógu gamall til að vita það hvernig ráðamenn fara að þegar þeim hentar. Og fá svo bara Hæstarétt til að stimpla gerðina annars verða dómararnir bara reknir eins og Maggi Thoroddsen.

Halldór Jónsson, 3.9.2020 kl. 22:35

9 identicon

Rök þín eru -Þau voru hvort sem er súr-rök. Lög og reglur heimila ekki þína sviðsmynd og einhverjar fáránlegar samsæriskenningar breyta því ekki. Það gilda engin bankalög um Icelandair, það eru engar Icesave kröfur, engin neyðarlög og Icelandair er með jákvætt egið fé og samninga við lánadrottna þannig að gjaldþrot er ekki yfirvofandi næstu misserin.

Ég reikna með því að ríkið fari að lögum. Ætli það ekki að gera það þá geta þeir eins gert peninga upptæka hjá lífeyrissjóðunum og sparað sér lántökuna eins og að gera eignir eigenda Icelandair upptækar.

Gamli Landsbankinn, sem þú áttir hlut í, er ennþá til og að fást við eignir, að greiða upp skuldir og skila vogunarsjóðunum sem keyptu skuldabréf bankans á brunaútsölu góðum hagnaði. Og þú tapaðir þínum hlut til kröfuhafa, vogunarsjóðanna, en ekki ríkisins. Nýi Landsbankinn er annar banki sem var stofnaður í október 2008 þegar Geir H Haarde var forsætisráðherra en ekki Bjarni Ben. Nýi Landsbankinn þurfti að kaupa það sem hann vildi frá gamla Landsbankanum.

Vagn (IP-tala skráð) 4.9.2020 kl. 01:15

10 identicon

Það gladdi SJÁLFSTÆÐISMENN, þegar Davíð Oddsson tók við Flokknum, sem stækkaði og stækkaði til góðra verka. 

Fáránlegt er að horfa á "sviksemi" þekktra sjálfstæðismanna, sem stofnuðu Viðreisn og dekra við sömu mál og Samfylkingin og VG um að ganga til verka með getulausum evrópu og Loftslags sinnum, sem undirstryka svik við Landið okkar á næstu mánuðum og árum.

Kjósum Evrópusinna út af ALÞINGI og "stjórnleysi" hælisleitenda.  

GÍSLI HOLGERSSON (IP-tala skráð) 4.9.2020 kl. 19:59

11 Smámynd: Halldór Jónsson

„Það er líka annað slæmt í þessu ástandi, eins og kom fram hjá háttvirtum þingmanni Ágústi Ólafi Ágústssyni, að verðmæti félagsins er að fara úr 180 milljörðum niður í 6–7 milljarða. Þetta félag er búið að vera til gífurlega lengi og þarna kemur tap sem lendir á lífeyrissjóðunum. Og hverjir eru það sem tapa? Jú, það er venjulegt fólk, vinnandi fólk, sem á sitt fé í lífeyrissjóðunum. En á móti kemur alltaf spurningin um hversu mikill hagnaður hefur skilað sér inn á öllum þessum tíma. Þetta þarf auðvitað að fara saman,“ sagði Guðmundur Ingi Kristinsson Flokki fólksins."

Þetta hlýtur að hafa áhrif á lífeyrisgreiðslur til lengri tíma Vagn minn góur.

Halldór Jónsson, 5.9.2020 kl. 10:17

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (22.11.): 6
  • Sl. sólarhring: 6
  • Sl. viku: 43
  • Frá upphafi: 3419716

Annað

  • Innlit í dag: 6
  • Innlit sl. viku: 37
  • Gestir í dag: 6
  • IP-tölur í dag: 6

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband