Leita í fréttum mbl.is

Gefið okkur tækifæri

að fá bóluefni á eigin ábyrgð.

Þetta gengur ekki öðruvísi:

"

Heilbrigðisyfirvöld á Indlandi tilkynntu í morgun að yfir 100.000 manns hefðu dáið þar í landi af völdum COVID-19. Indland er þar með orðið þriðja landið, þar sem fleiri en 100.000 dauðsföll hafa verið rakin til heimsfaraldursins með óyggjandi hætti og ekkert lát er á útbreiðslu veirunnar þar eystra.
 

Nær 80.000 smit síðasta sólarhringinn

Í nýjustu tölum heilbrigðisráðneytisins segir að heildarfjöldi látinna sé 100.842 og staðfest smit 6,47 milljónir. Af þeim greindust nær 80.000 síðasta sólarhringinn og fjölgar smitum hraðar á Indlandi um þessar mundir en nokkurs staðar annars staðar.

Verið að aflétta hömlum

Er þetta meðal annars rakið til þess að ríkisstjórn Narendra Modis vinnur nú að því að aflétta hvers kyns hömlum og takmörkunum, sem innleiddar voru í vor vegna farsóttarinnar og voru um hríð með þeim ströngustu sem þekkjast. Þær leiddu af sér feikilegar þrengingar í atvinnu- og efnahagslífi þjóðarinnar, sem stjórnvöldum er mjög í mun að losna úr.

Hátt í helmingur allra COVID-19 dauðsfalla í þremur ríkjum heims

Einungis í Bandaríkjunum og Brasilíu hafa fleiri dáið úr COVID-19 en á Indlandi, og samanlagt hafa hartnær 45 prósent allra dauðsfalla af völdum farsóttarinnar orðið í þessum þremur ríkjum. Dánartíðnin er þó mun lægri á Indlandi en í hinum löndunum tveimur, sem sérfræðingar telja að rekja megi til takmarkaðri skimunar eystra en vestra, í það minnsta að hluta. "

Ég er tilbúinn að borga fyrir að fá mRNA fá Moderna strax. Á eigin ábyrg á afleiðingum. 

Á mínum aldri hef ég engu að tapa en allt að vinna ef ég get sloppið við Kínapestina.

 

Dr. Fauci and Trump. Give us a break!

Gefið mér og öðrum tækifæri til að komast af og deyja ekki úr Kínapestinni án þess að reyna eitthvað.
 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Halldór Jónsson

Óomar Ragnarsson skrifar:

"Nauðsynlegt er að skoða vandann vegna COVID-19 í víðara samhengi en bara því, sem snertir baráttuna á farsóttarvígstöðvunum.  

Meirihluti sjúklinga í heilbrigðiskerfinu, sem verða að treysta á tafarlausar úrlausnir er nefnilega yfirgnæfandi og þar er um að ræða sjúkdóma eins og krabbamein og hjarta- og æðasjúkdóma þar sem biðlistar og tafir geta kostað mun fleiri mannslíf en COVID-19. 

Það er að sjálfsögðu hið alvarlegasta mál að helmingur skurðstofa í Fossvogi sé lokaður vegna farsóttarinnar og stækkandi biðlistar eftir aðkallandi rannsóknum, uppskurðum og lyfjameðferð kostar ekki aðeins mannslíf og óþarfa veikindi og heilsubrest, heldur líka þjáningar þeirra sem verða að bíða eftir úrlausn sinna mála. "

Af hverju ekki að gefa mér og öðrum sem vilja sjans á að fá bóluefni á eigin ábyrgð og kostnað.

Getur ekki Landlæknir  reddað þessu og létta þannig á vanda heilbrigðiskerfisins?

Halldór Jónsson, 3.10.2020 kl. 10:50

2 Smámynd: Þorsteinn Siglaugsson

Miðað við dánarhlutfall á Indlandi hafa nú um 7.700.000 manns látist þar á árinu. Ekki 100.000. Fólk deyr nefnilega úr fleiru en flensu. Hversu margir þeirra dóu úr hungri og sjúkdómum vegna útgöngubanna veit ég ekki. En mér finnst líklegt að það séu umtalsvert fleiri en 100.000.

Þorsteinn Siglaugsson, 3.10.2020 kl. 10:53

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (22.11.): 4
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 41
  • Frá upphafi: 3419714

Annað

  • Innlit í dag: 4
  • Innlit sl. viku: 35
  • Gestir í dag: 4
  • IP-tölur í dag: 4

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband