Leita í fréttum mbl.is

Grunsamleg?

finnast manni tíðindin frá Kína um að þar séu engin vandamál með  útbreiðslu Kínapestarinnar?

Fyrst kemur veiran þaðan og leggur undir sig heimsbyggðina. Allt í fári allstaðar.

Nema í Kína? Þar er ekkert vandamál? Þeir virðast ónæmir? Bara óþekktur hagsvöxtur.

Finnst engum þetta grunsamlegt?


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ómar Ragnarsson

Sem sagt: Viðbót við kenningu Trumps um að Kínverjar hefðu á tilraunastofu búið til skæða drepsóttarveiru í þeim eina tilgangi að koma honum frá völdum. 

Um leið og doctor Fauci upplýsti um tilraunir í mörg ár bæði í Bandaríkjunum, Kína og víðar,  til að vera með viðbúnað gegn hættu af nýrri veiru, sagði Trump að hann væri idíót, alger auli og fífl. 

Og nú kemur kenning um að Kínverjar hafi ekki bara sérsmíða veiru til að koma í veg fyrir endurkjör hans, heldur líka veiru sem er sérhönnuð til þess að hún virki ekki á Kínverja. 

Ómar Ragnarsson, 15.12.2020 kl. 14:57

2 Smámynd: Halldór Jónsson

Þannig lítur það út fyrir mér ef að aðeins eru alls 200.000 virk smit í öllu Kína með 1.5 milljarð af fólki. Þetta segja þeir.

Halldór Jónsson, 15.12.2020 kl. 15:15

3 identicon

Þegar Kínastjórn segir Kínverjum að vera heima, nota grímur og forðast annað fólk þá setja Kínverjar upp grímur, halda fjarlægð og halda sig heima þegar þeir eru ekki í vinnu. Þeir fara ekki grímulausir á næsta stappaða pöbb eins og við, mótmæla sóttvarnaraðgerðum í hópum, rífast við verslunarfólk um grímunotkun eða svindla á sóttkví. Síðan í Apríl má rekja nær öll smit hér til þess að einhver fór ekki að reglum og hundsaði ráðleggingar. Og við eru ekki verst vesturlanda í þessari hegðun.

Vagn (IP-tala skráð) 15.12.2020 kl. 15:47

4 Smámynd: Halldór Jónsson

Mikið er það huggulegt fyrir þig Ómar minn að losna bráðum við þessa Trumpófóbíu sem hrjáir þig svona heltekið.

Halldór Jónsson, 15.12.2020 kl. 18:35

5 Smámynd: Halldór Jónsson

 "sagði Trump að hann væri idíót, alger auli og fífl. "

Viltu vinsmalegast koma með staðfæringar á þessum orðum Trumps Ómar?

Halldór Jónsson, 16.12.2020 kl. 20:25

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (5.6.): 4
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 30
  • Frá upphafi: 3420876

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 26
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband