2.1.2021 | 16:01
Hver þiggur eitrað peð?
í refskák stjórnmálanna.
Andstæðingar Sjálfstæðisflokksins fara mikinn í að reyna að einangra þann flokk á grunni þess að allir sem snerti hann tapi.
G.Tómas Gunnarsson tekur saman staðreyndir málsins:
"Nú eins og oft áður er mikið fjallað um meint fylgistap samstarfsflokka Sjálfstæðisflokksins í ríkisstjórnum.
Það er enda, nú sem endranær, mikilvægt í pólítískri skák að reka fleyga á milli samstarfsflokka.
Jafnvel hefur mátt heyra "virta fræðimenn" taka undir þessa mýtu.
En er hið meinta fylgistap raunverulega til staðar?
Ef sagan er skoðuð er það alls ekki einhlýtt.
1959 byrjuðu Sjálfstæðisflokkur og Alþýðuflokkur í samstarfi, með 39.7 og 15.2% atkvæða á bak við sig. Í kosningunum 1963 vann Sjálfstæðisflokkur á um 1.7% stig en Alþýðuflokkur tapaði 1% stigi.
Aftur var kosið 1967, þá tapaði Sjálfstæðisflokkur 3.9% stigum, en Alþýðuflokkur vann á, 1.5% stig. Þegar hér er komið í sögu Viðreisnarstjórnarinnar hefur Alþýðuflokkur því unnið á um 0.5% stig frá upphafi hennar, en Sjálfstæðisflokkur tapað 2.2% stigum.
Enn er kosið 1971 og þá tapar Sjálfstæðisflokkur 1.3% stigi til viðbótar en Alþýðuflokkurinn tapar 5.2% stigum.
Á meðan þeir tóku þátt í Viðreisnarstjórninni, þá tapar Alþýðuflokkur því 4.7% stigum en Sjálfstæðisflokurrinn 3.5% stigum. Það er allur munurinn. Sé horft til þess að nýr flokkur var kominn fram á sjónarsviðið á vinstri væng stjórnmálanna, Samtök frjálslyndra og vinstrimanna sem fékk 8.9% 1971, þá getur það varla talist stórundarlegt þó að Alþýðuflokkur hafi tapað örlítið meira. Enginn talar þó um að Sjálfstæðisflokkurinn hafi tapað á því að vera í samstarfi við Alþýðuflokkinn.
1974 vinnur svo Sjálfstæðisflokkurinn á um 6.5% stig, en Alþýðuflokkurinn heldur áfram að tapa, þá 1.4% stigi, án þess að hafa verið í stjórn, hvað þá með Sjálfstæðisflokki.
Þá tekur við stjórn Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks.
Þegar kosið er svo 1978, tapar Framsóknarflokkur 8% stium en Sjálfstæðisflokkur tapar 10% stigum. Sjálfstæðisflokkur tapaði sem sé 2% stigum meira heldur en Framsóknarflokkurinn. Samt talar enginn um að Sjálfstæðisflokkurinn hafi tapað á því að sitja í stjórn með Framsókn. Alþýðuflokkurinn vinnur stórsigur, A-flokkarnir leiða Framsókn til öndvegis, vegna þess að þeir geta ekki komið sér saman um hvor þeirra eigi að fá forsætisráðuneytið.
Enn er kosið 1979. Þá tapar Alþýðuflokkurinn 4.6% stigum, en Framsóknarflokkur vinnur á um 8% stig. Engan man þó eftir að hafa talað um að það hafi verið Alþýðuflokknum sérstaklega slæmt að vera í stjórn með Framsókn.
Þá tekur við ríkistjórn Gunnars Thoroddsen. Framsóknarflokkur, Alþýðubandalag og lítill hluti Sjálfstæðisflokks.
Síðan er kosið 1983. Sjálfstæðisflokkur vinnur á, 3.3% stig, en Framsóknarflokkur tapar 5.9% stigum. Þeir mynda saman stjórn.
1987, Sjálfstæðisflokkur tapar 11.5% stigum, en Framsóknarflokkur tapar aðeins 0.1% stigum. Rétt er þó að hafa í huga að í þessum kosningum bauð Borgaraflokkurinn fram og fékk 10.7%. Þó að það sé tekið með í reikninginn, þá tapar Sjálfstæðisflokkurinn meira heldur en Framsóknarflokkurinn.
1991. Sjálfstæðisflokkurinn endurheimtir fyrri styrk og eykur fylgi sitt um 11.4% stig. Framsóknarflokkur stendur í stað og Alþýðuflokkur eykur fylgi sitt um 0.3% stig. Viðeyjarstjórnin er mynduð.
1995. Sjálfstæðisflokkur tapar 1.5% stigi af fylgi sínu en Alþýðuflokkur tapar 4.1% stigi af sínu fylgi. Framsóknarflokkur eykur fylgi sitt um 4.4% stig og fær 23.3% Það verður þó að hafa í huga þegar þessi úrslit eru skoðuð, að Alþýðuflokkurinn hafði klofnað, Jóhanna Sigurðardóttir hafði stofnað Þjóðvaka og fengið 7.2% atkvæða. Tap Alþýðuflokksins hlýtur því frekar að skrifast á Jóhönnu Sigurðardóttur heldur en samstarfið við Sjálfstæðisflokkinn. Það er ekki alls ekki ólíklegt að ríkisstjórnin hefði haldið velli, og haldið áfram samstarfi ef Alþýðuflokkurinn hefði ekki klofnað, en vissulega er engan veginn hægt að fullyrða um slíkt.
Þá hefst langt ríkisstjórnarsamstarf Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks.
Kosið er 1999. Þá vinnur Sjálfstæðisflokkurinn á um 3.6% stig fær 40.7% atkvæða en Framsókn tapar 4.9% stigum og fær 18.4%. Nýtt flokkakerfi er komið til sögunnar, Samfylkingin fær 26.8%, VG 9.1% og Frjálslyndi flokkurinn 4.2%.
Komið er að kosningum 2003. Þá fær Sjálfstæðisflokkur 33.7%, tapar 7% stigum og Framsóknarflokkur 17.8% og tapar 0.6% stigi.
Hvor flokkurinn var að tapa meira?
Og Framsóknarflokkurinn tapaði í kosningum árið 2007. Ef ég man rétt tapaði Framsókn í kringum 6% stigum og Sjálfstæðisflokkurinn vann á í kringum 3% stig. En þá, hafði Framsóknarflokkurinn átt í löngu basli og formannsskiptum sem ekki gengu eða virkuðu vel.
Þá tók við ríkisstjórn Samfylkingar og Sjálfstæðisflokks. Ekki er hægt að segja Samfylkingin hafi riðið lakari hesti en Sjálfstæðisflokkurinn frá þeirri ríkisstjórn í kosningunum 2009. Þá tapaði Sjálfstæðisflokkurinn 12.9% stigum, en Samfylkingin bætti við sig 3. En ég er ekki þeirrar skoðunar að það hafi verið samstarfsflokknum að kenna, hvernig fylgið reittist sf Sjálfstæðisflokknum.
Það er síðan óþarfi að rifja það upp sérstaklega hvernig fór fyrir þeirri ríkisstjórn sem var mynduð 2009, þegar kosið var 2013. Evrópumet í fylgistapi litu dagsins ljós og báðir stjórnarflokkarnir töpuðu gríðarlegu fylgi. Engin talaði um það væri vegna samstarfslokksin, enda held að að báðir flokkarnir hafi átt fylgistapið skilið.
Samfylkingin tapaði ríflega helmingi fylgis síns, eða 16.9% stigum, en VG "aðeins", 10.8% stigum, rétt tæplega helming af fylgi sínu.
Sé aðeins litið til stjórnarsamstarfs, er það því Samfylkingu mun "hollara" að vera í samstarfi við Sjálfstæðisflokk en Vinstri græn, án þess að ég sé sérstaklega að mæla með slíku samstarfi.
Rétt er að hafa í huga að í þessum kosningum bauð Björt framtíð fram, undir forystu fyrrum Samfylkingar og Framsóknarmannsins Guðmundar Steingrímssonar, og hlaut 8.2% atkvæða, sem líklega voru að einhverju marki frá Samfylkingu komin.
En bæði Sjálfstæðisflokkur og Framsóknarflokkur unnu á 2013, sérstaklega Framsóknarflokkurinn sem vann eftirminnilegan kosningasigur og bætti við sig 9.6% stigum.
Þeir mynduðu síðan ríkisstjórn.
Næst var síðan kosið 2016.
Sjálfstæðiflokkurinn vann lítillega á, bætti við sig 2.3% stigum, en Framsóknarflokkurinn, undir nýrri forystu, tapaði stórt, eða 12.9% stigum. En ég held að fæstir sem fylgdust með stjórnmálum telji það að miklu leyti tengt við samstarf við Sjálfstæðisflokk. Innanmein flokksins spiluðu þar líklega stærri rullu.
Samfylking hélt í þeim kosningum áfram að helminga fylgi sitt, og tapaði 7.2% stigum, og það þrátt fyrir að vera í stjórnarandstöðu.
Viðreisn kom í fyrsta sinn til sögunnar og hlaut góðar undirtektir, hlaut 10.5% atkvæða.
Þá var mynduð skammlíf ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks, Viðreisnar og Bjarrtar framtíðar.
Kosið var enn á ný 2017.
Þá tapaði Sjálfstæðisflokkur 3.8% stigum og Viðreisn sömuleiðis 3.8%, stigum, í þeim kosningum undir nýrri forystu.
Björt framtíð tapaði 6% stigum, og náði ekki inn manni á þing og hvarf úr sögunni. Sjálfsagt má skrifa tapið að einhverju marki á ríkisstjórnarþátttöku. Það var enda svo að á köflum var erfitt að sjá hvar BF endaði og Viðreisn byrjaði. Ég hef það einhvern veginn á tilfinningunni að flokkinn hafi jafnframt vantað "undirstöðu".
En sjálfsagt kjósa einhverjir að skrifa þetta alfarið á samstarfið við Sjálfstæðisflokkinn.
Samfylkingin náði ágætri kosningu og tvöfaldaði fylgi sitt, jók það um 6.4% stig undir nýrri forystu.
Miðflokkurinn kom til sögunnar og hlaut góða kosningu, eða 10.9%.
Rikisstjórn Sjálfstæðisflokks, Framsóknarflokks og Vinstri grænna var mynduð.
Við eigum svo eftir að ajá hvernig fer í næstu kosningum.
Meginlínan í Íslenskum stjórnmálum hvað tap varðar, er að ríkisstjórnarflokkar tapa fylgi, stjórnarandstöðu gengur betur. Þó vissulega með athyglisverðum undantekningum, t.d. hjá Samfylkingu árið 2016.
Sé "góðæri" getur það einnig hjálpað stjórnarflokkum.
Samfylking hefur aðeins átt í stjórnarsamstarfi við tvo flokka, Sjálfstæðisflokk og Vinstri græn. Báðir flokkarnir fengu afleita kosningu eftir slíkt samstarf. Sjálfsagt mundu einhverjir draga þá ályktun að samstarf við Samfylkingu væri "eitraður kaleikur", en það er ekki sanngjarnt, það verður eins og í öllum öðrum tilfellum að líta til kringumstæðna.
En það er heldur engin raunveruleg innistæða fyrir því að allir samstarflokkar Sjálfstæðisflokks tapi fylgi, sérstaklega þegar litið er til kringumstæðna, s.s. klofning samstarfslokka, nýrra flokka og annarar "vandræða" sem samstarfsflokkar hafa glímt við.
P.S. Þessi færsla er að stórum hluta byggð á færslum mínum um sama efni, árið 2007 og 2016."
Það er full ástæða til að þakka G.Tómasi Gunnarssyni fyrir þessa samantekt.
Fátt er meira notað til að fæla fólk frá samstarfi við Sjálfstæðisflokkinn en þessi lífseiga lygi um að flokkurinn sé eitraður kaleikur fyrir aðra flokka.Þvert á móti hefur enginn flokkur sýnt af sér meiri ábyrgð og traust í samstarfi heldur en Sjálfstæðisflokkurinn.
Menn beri til dæmis saman Bjarna Benediktsson og og Steingrím J. Sigfússon. Hverjum treysta menn betur til að halda orð sín?
Eða þá Þórhildi Sunnu, Loga Má eða Þorgerði Katrínu?
Þessi fylking fyndist mér vera frekar eitruð peð sem menn skyldu varast heldur en að leita þeirra meðal sameiginlegs höfuðandstæðings allra annarra flokka.
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 16:08 | Facebook
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 6
- Sl. sólarhring: 6
- Sl. viku: 43
- Frá upphafi: 3419716
Annað
- Innlit í dag: 6
- Innlit sl. viku: 37
- Gestir í dag: 6
- IP-tölur í dag: 6
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- Maí 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Ágúst 2021
- Júlí 2021
- Júní 2021
- Maí 2021
- Apríl 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Júlí 2020
- Júní 2020
- Maí 2020
- Apríl 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2020
- Janúar 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Ágúst 2017
- Júlí 2017
- Júní 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
Bloggvinir
- ghe13
- sigurjonth
- andrigeir
- annabjorghjartardottir
- ansigu
- agbjarn
- armannkr
- asdisol
- baldher
- h2o
- bjarnihardar
- dullur
- bjarnimax
- zippo
- westurfari
- gattin
- bryndisharalds
- davpal
- eggman
- greindur
- bjartsynisflokkurinn
- elfarlogi
- eeelle
- sunna2
- ea
- fuf
- fhg
- vidhorf
- gerdurpalma112
- gilsneggerz
- gudni-is
- lucas
- zumann
- gp
- gun
- topplistinn
- tilveran-i-esb
- skulablogg
- gustafskulason
- gustaf
- heimssyn
- diva73
- helgi-sigmunds
- hjaltisig
- minos
- hordurhalldorsson
- astromix
- fun
- jennystefania
- johanneliasson
- johannvegas
- jonatlikristjansson
- fiski
- jonl
- jonmagnusson
- jonlindal
- bassinn
- jonvalurjensson
- jvj
- thjodarskutan
- juliusbearsson
- katagunn
- kje
- ksh
- kristinn-karl
- kristinnp
- kristjan9
- loftslag
- altice
- ludvikjuliusson
- maggij
- magnusthor
- mathieu
- nielsfinsen
- omarbjarki
- huldumenn
- svarthamar
- pallvil
- peturmikli
- valdimarg
- ragnarb
- samstada-thjodar
- fullveldi
- siggus10
- sisi
- siggisig
- ziggi
- siggith
- stjornlagathing
- pandora
- spurs
- kleppari
- saethorhelgi
- tibsen
- ubk
- valdimarjohannesson
- skolli
- valurstef
- vilhjalmurarnason
- vey
- postdoc
- thjodarheidur
- icerock
- steinig
- thorsteinnhelgi
- icekeiko
Athugasemdir
Bara þetta fyrsta, hjá Tómasi um "lítilfjörlegt tap Alþýðuflokks í Viðreisnarstjórninni".
Fylgi flokksins hrundi nefnilega um þriðjung og hann mátti þakka fyrir að fá þennan eina kjördæmakosna þingmann, sem rétt marði að komast á þing til að draga með sér uppbótarmann.
Afleiðingin birtist í straumhvörfum við það að þessi langlífa og að flestu leyti ágæta ríkisstjórn missti þingmeirihluta sinn, hvorki meira né minna.
Ómar Ragnarsson, 2.1.2021 kl. 21:55
Bara þetta fyrsta, hjá Tómasi um "lítilfjörlegt tap Alþýðuflokks í Viðreisnarstjórninni".
Fylgi flokksins hrundi nefnilega um þriðjung og hann mátti þakka fyrir að fá þennan eina kjördæmakosna þingmann, sem rétt marði að komast á þing til að draga með sér fjóra uppbótarmenn.
Afleiðingin birtist í straumhvörfum við það að þessi langlífa og að flestu leyti ágæta ríkisstjórn missti þingmeirihluta sinn, hvorki meira né minna.
Ómar Ragnarsson, 2.1.2021 kl. 22:06
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.