Leita í fréttum mbl.is

Af hverju höldum við í þetta EES?

Erum við bara ekki í sjálfsblekkingu af því að Björn Bjarnason er svo gáfaður að enginn þorir að mótmæla? En er þetta svo?

Ef Bretar geta staðið sjálfstæðir af hverju ekki við?

Páll Vilhjálmsson segir:

"Bretland er Íslendingum mikilvægara í sögulegu og menningarlegu tilliti en Þýskaland og Frakkland, fyrir utan að vera okkar helsta viðskiptaland í Evrópu.

Allt ber að sama brunni. Forgangur utanríkismála okkar næstu ár er þríþættur. Í fyrsta lagi samskiptin við Bandaríkin, í öðru lagi við Bretland og í þriðja lagi að koma okkur undan EES-samningnum."

Af hverju þurfum við að láta fara svona með okkur eins og Svandís og ríkisstjórnin klúðraði með bóluefnissamningunum í slagtogi með EES? Bara samningar um eitthvað magn einhvern tímann. En engin dagsetning.

Hversu vitlaus erum við kjósendur að láta hana og ríkisstjórnina  komast upp með þetta kjaftæði?

Hversu mörg mannslíf mun þessi EES vitleysa kosta okkur? Ef Kári og Þórólfur leysa þá ekki málið óvænt með Pfizer.

Ég held að við þurfum ekki að trúa öllu sem Björn Bjarnason segir um endalausa kosti EES og Schengen.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ingólfur Sigurðsson

Vel mælt. Heimurinn er að breytast og sumir spá því að Evrópusambandið muni liðast í sundur á næstunni. 

Alla vega, vekur upp spurningar hvort hægt sé að gera betri samninga við Evrópusambandið utan EES. Það kann að vera.

Það eru stórir gallar við EES og Schengen. Oft hefur Björn Bjarnason rétt fyrir sér, ekki endilega þarna.

Ingólfur Sigurðsson, 3.1.2021 kl. 04:20

2 identicon

Þeir fá fyrst sem kostuðu rannsóknir og þróun bóluefnisins. Pfizer afgreiðir sína eigendur, kúnna og velgjörðarmenn fyrst og síðan útlendu sérvitringana með klíkukomplexa og stórmennskuæði eins og Kára.

EES tryggir okkur meira bóluefni fyrr en ef við hefðum farið í hina röðina. Þú verður bólusettur vikum eða mánuðum fyrr en ef við stæðum utan við ESB samningana. Nú þegar höfum við bólusett tíu sinnum fleiri en meðaltalið er yfir heiminn og hærra hlutfall þjóðarinnar en Bandaríkjamenn. ESB/EES gæti verið að bjarga lífi þínu.

Vagn (IP-tala skráð) 3.1.2021 kl. 05:24

3 identicon

Nú ef að Bretar geta samið við ESB þá ættum við að geta það líka ef við köstum EES samningnum. En þá er það náttúrulega spurningin. Verður sá samningur eitthvað betri en EES. Þeir eru ekki par hrifnir á bretlandseyjum að ESB er hleypt inn í landhelgina.

Jósef Smári Ásmundsson (IP-tala skráð) 3.1.2021 kl. 07:35

4 identicon

PÉTURSEY er fjallið einstæða niðri á sandium við fljótið KLIFANDA, sem BJÖRN BJARNASON metur mikils vegna fegurðar sinnar, en þar erum við Björn sammála.

Amma mín Oddný og afi Sæmundur áttu heima í Eyjarhólum sunnan við PÉTURSEY frá 1904-1924 og eignuðust 10 börn.

Yfirgefum "ALLT" eins og Bretar varðandi ESB. Yfirgefum EES, SCHENGEN og flestar skammstafanir varðandi Evrópu ráðleysið.

NATO, AMERIKA og BRETAR og Keltarnir er nóg fyrir fámenni ÍSLENDINGA. ÍSLAND nær ofurstærðum með SJÁLFSTÆÐI sínu.

ÍSLAND, fullveldi okkar og sjálfstæði með elsta ALÞINGI veraldar gefur einstæða sýn til HEIMSMÁLA, hér norður í höfum. 

ÍSLAND er EKKI byggt upp af skrælingum heldur "ofurfólki" og BÓKMENNTAFÓLKI með eigið tungumál og ritmál. Við erum VÍKINGAR, SJÓMENN og LANDNÁMSFÓLK.

Höldum virðingu okkar og sjálfstæði og stjórnum okkar fámenna landi fyrir ÍSLENDINGA, en ekki fyrir stjórnleysi embættismanna í Evrópu og ólíka hælisleitendur, sem illa samlagast kristnum siðum.

ÍSLAND og þjóðernissinnaðir ALÞINGISMENN og VÍSINDAMENN verða eftirsóttir álitsgjafar fyrir veika EVRÓPU, ef við yfirgefum allar skammstafanir ESB sinna.

Seljum EKKI einn fermetir af landinu okkar til erlendra auðkýfinga og Kínverja og annara stórþjóða.

GÍSLI HOLGERSSON (IP-tala skráð) 3.1.2021 kl. 11:32

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (22.11.): 6
  • Sl. sólarhring: 6
  • Sl. viku: 43
  • Frá upphafi: 3419716

Annað

  • Innlit í dag: 6
  • Innlit sl. viku: 37
  • Gestir í dag: 6
  • IP-tölur í dag: 6

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband