2.2.2021 | 11:32
Bóluefnisslys Íslendinga
tekur Gunnar Rögnvaldsson fyrir í færslu dagsins:
"Bóluefnaskorts-lest Evrópusambandsins og EES brunar fram af brúninni
Það nýjasta sem gerst hefur í bóluefnaskorts-apparati Evrópusambandsins síðan á sunnudag, er að forseti framkvæmdaleysisstjórnar þess, Ursula von der Lygar, reynir nú að kenna undirmönnum sínum um og hendir þeim hverjum á fætur öðrum undir járnbrautarlest veruleikans sem nú brunar bóluefnislaus fram á egyptalandsteinum Evrópusambandsins, á meðan fólkið fellur, og stefnir þráðbeint í gerræðislegt allsherjar slys sem taka mun allt þetta ár og næsta að hrúgast upp með ærandi hávaða til að byrja með. Síðan mun stund sannleikans taka við og taka ruslahrúgur Evrópusambandsins yfir og snúa það niður. Vonandi, því frá og með nú nú er því algjörlega sjálfhætt. Það sjá allir
Þarna átti að hefja Evrópusambandið á loft og sýna heiminum hversu máttvana sjálfstæð og fullvalda ríki jarðar væru með því að láta umboðslaust fjölþjóðaapparat en ekki ríkin sjálf um að bjarga sér úr verstu áföllum sem dunið hafa á Evrópu síðan 1945
En það fór heldur betur ekki þannig, því nú skín Stóra-Bretland ásamt öðrum vestrænum ríkjum utan sambandsins sem fullvalda, sjálfstæð og fögur borg á hæstu hæð í þessu máli öllu
En við sem hins vegar lutum svo örkumlandi bænaskjals lágt að láta EES-samninginn koma okkur þarna á kaldan og bóluefnislausan klaka Evrópusambandsins, erum varnalaus og munum heldur betur þurfa að éta skít þegar að bata og framförum í efnahagsmálum okkar kemur þetta árið og það næsta, og svo koll af krónískum ESB-kolli eftir það, einungis vegna EES-tengingar okkar við svarthol Evrópusambandsins. Út með þetta lamandi ees-ekkert!
Úr leiðara Morgunblaðsins í dag þriðjudaginn 2. febrúar 2021: Bóluefnastríð ESB
"Eftir á að hyggja hefði sjálfsagt ekki veitt af samkeppni, því Evrópusambandið hefur fullkomlega brugðist á hverju einasta stigi bóluefnisáætlunar sinnar. Fyrir vikið má heita ómögulegt að það náist að bólusetja Evrópubúa að því marki á þessu ári að einhver vörn sé í. Það er hörmulegt fyrir almenning í Evrópu, þar með talið á Íslandi, en íslensk stjórnvöld ákváðu af einhverjum enn ótilgreindum ástæðum að binda trúss sitt við þessa ólánlegu áætlun Evrópusambandsins. Af því súpum við nú seyðið og ríkisstjórn Íslands þarf að gera hreint fyrir sínum dyrum um það." [krækja]
Mætti ég spyrja af hverju heilbrigðismálaráðherra okkar er enn með stól þess almennings sem hún hafði að háði og spotti í þessu máli undir sér? Hvers vegna er hún enn þá í því embætti? Hér ríkir gerræðislegur bóluefnisskortur einungis vegna EES-tengingar okkar við svarthol á meðan ný Oxford/Spitfire æðir um og þekur Stóra Bretland og verndar þjóð þess með bóluefni, til dæmis með 600 þúsund skotum á laugardag
Er ekki komið nóg af engu? Ísland hefur mátt éta skít í bráðum fimmtán ár vegna EES-tengingar við svarthol þjóða."
Bara af því að Björn Bjarnason vill vera í EES þá búum við í Bóluefnisslysi ESB.?
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (23.11.): 0
- Sl. sólarhring: 6
- Sl. viku: 37
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 32
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- Maí 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Ágúst 2021
- Júlí 2021
- Júní 2021
- Maí 2021
- Apríl 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Júlí 2020
- Júní 2020
- Maí 2020
- Apríl 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2020
- Janúar 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Ágúst 2017
- Júlí 2017
- Júní 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
Bloggvinir
- ghe13
- sigurjonth
- andrigeir
- annabjorghjartardottir
- ansigu
- agbjarn
- armannkr
- asdisol
- baldher
- h2o
- bjarnihardar
- dullur
- bjarnimax
- zippo
- westurfari
- gattin
- bryndisharalds
- davpal
- eggman
- greindur
- bjartsynisflokkurinn
- elfarlogi
- eeelle
- sunna2
- ea
- fuf
- fhg
- vidhorf
- gerdurpalma112
- gilsneggerz
- gudni-is
- lucas
- zumann
- gp
- gun
- topplistinn
- tilveran-i-esb
- skulablogg
- gustafskulason
- gustaf
- heimssyn
- diva73
- helgi-sigmunds
- hjaltisig
- minos
- hordurhalldorsson
- astromix
- fun
- jennystefania
- johanneliasson
- johannvegas
- jonatlikristjansson
- fiski
- jonl
- jonmagnusson
- jonlindal
- bassinn
- jonvalurjensson
- jvj
- thjodarskutan
- juliusbearsson
- katagunn
- kje
- ksh
- kristinn-karl
- kristinnp
- kristjan9
- loftslag
- altice
- ludvikjuliusson
- maggij
- magnusthor
- mathieu
- nielsfinsen
- omarbjarki
- huldumenn
- svarthamar
- pallvil
- peturmikli
- valdimarg
- ragnarb
- samstada-thjodar
- fullveldi
- siggus10
- sisi
- siggisig
- ziggi
- siggith
- stjornlagathing
- pandora
- spurs
- kleppari
- saethorhelgi
- tibsen
- ubk
- valdimarjohannesson
- skolli
- valurstef
- vilhjalmurarnason
- vey
- postdoc
- thjodarheidur
- icerock
- steinig
- thorsteinnhelgi
- icekeiko
Athugasemdir
Það hefur verið með ólíkindum að fylgjast með bóluefnastríðinu undanfarna daga, sem náði hámarki á föstudaginn þegar framkvæmdastjórn Evrópusambandsins (ESB) setti útflutningsbann á bóluefni frá ríkjum sambandsins, að því er virðist í bræðiskasti yfir eigin vanhæfni og vanmætti við öflun bóluefnis við kórónuveirunni, sem leikið hefur álfuna svo grátt undanfarið ár.
Framkvæmdastjórnin, í samráði við helstu aðildarríki ESB, tók af skarið og ákvað síðastliðið sumar að annast öflun og dreifingu bóluefnis í öllum aðildarríkjunum, að Evrópusambandið væri sérstaklega vel til þess fallið að taka að sér miðstýringu þessa stærsta og mikilvægasta verkefnis í Evrópu frá lokum seinni heimsstyrjaldar. Að það hefði fullkomna yfirsýn yfir vandann, nyti stærðar sinnar til þess að gera góð innkaup og kæmi í veg fyrir innbyrðis samkeppni Evrópuríkjanna.
Eftir á að hyggja hefði sjálfsagt ekki veitt af samkeppni, því Evrópusambandið hefur fullkomlega brugðist á hverju einasta stigi bóluefnisáætlunar sinnar. Fyrir vikið má heita ómögulegt að það náist að bólusetja Evrópubúa að því marki á þessu ári að einhver vörn sé í. Það er hörmulegt fyrir almenning í Evrópu, þar með talið á Íslandi, en íslensk stjórnvöld ákváðu af einhverjum enn ótilgreindum ástæðum að binda trúss sitt við þessa ólánlegu áætlun Evrópusambandsins. Af því súpum við nú seyðið og ríkisstjórn Íslands þarf að gera hreint fyrir sínum dyrum um það.
Það er þó aðeins á allra síðustu dögum, sem þetta ljós hefur verið að renna upp fyrir almenningi og stjórnmálamönnum í Evrópu, en framkvæmdastjórnin hefur verið í afneitun um þetta vikum og mánuðum saman. Afleiðingar þessarar þrákelkni blasa við, að áfram mun fólk deyja að óþörfu í tugþúsundatali og evrópsk hagkerfi vera hálflömuð fram á næsta ár hið minnsta.
Það var ekki nema vegna þrýstings frá höfuðborgum Evrópu sem framkvæmdastjórnin í Brussel tók loks við sér, en í stað þess að gangast við ítrekuðum mistökum sínum og afleikjum kaus hún að finna aðra sökudólga. Fyrst lyfjafyrirtækið AstraZeneca og svo Breta, að því er virðist aðeins vegna þess að þeim hefur gengið betur við bóluefnisöflun og bólusetningar. Og það segir sína sögu að fyrstu viðbrögð voru hótanir og úrslitakostir, ekki hjálparbeiðni eða samningsumleitanir.
Allt hjalið um alþjóðalög og -rétt fór út um gluggann, eins og ekkert væri. Samningar og viðskiptaréttur skiptu allt í einu engu máli. Hin ófrávíkjanlega krafa um að engin landamæri mættu vera á Írlandi vegna friðarsamninganna þar lifði af hálfu ESB í heila 29 daga, áður en Evrópusambandið sjálft virkjaði þrautavaraákvæði um hörð landamæri þar og það án þess svo mikið sem að bera það undir ríkisstjórnir Írlands og Bretlands! Þar ræddi ekki aðeins um einhverjar girðingar, heldur landamæraeftirlit gagngert til þess að hindra að lífsbjörg kæmist þar yfir, beinlínis til þess fallið að stofna mannslífum í hættu.
Þessi ótrúlegu viðbrögð vöktu að vonum undrun um heim allan. ESB tókst hið ómögulega á Írlandi, að sameina Sinn Fein, DUP, stjórnvöld í Lundúnum og Dyflinni gegn sér. Joe Biden Bandaríkjaforseti, sem sjálfur er írskrar ættar og hefur lagt mikla áherslu á að Brexit mætti ekki trufla friðarferlið á Írlandi, tók sér hiklaust stöðu gegn ESB. Og umfram allt spurðu ríkisstjórnir og fjölmiðlar um Evrópu alla hvort framkvæmdastjórnin væri gengin af göflunum.
Það fór svo að framkvæmdastjórnin sneri skjótt við blaðinu og reyndi að telja fólki trú um að þetta sverðaglamur hefði nú bara verið mistök og misskilningur. Eftir stendur að ESB hefur afhjúpað sig enn frekar en fyrr, veikt trúverðugleika sinn til muna og umfram allt að það standi ekki við gerða samninga eða hirði um nokkuð nema ætlaða eiginhagsmuni Brusselvaldsins. Þar eru a.m.k. ekki hagsmunir evrópsks almennings eða aðildarríkjanna í fyrirrúmi.
Forysta og framkvæmdastjórn Evrópusambandsins er skipuð 3. flokks möppudýrum, sem ekki voru kosin af neinum og því er ekki heldur hægt að kjósa þau burt, sama hversu illa þau kunna að standa sig. Flest eru þau raunar til Brussel komin einmitt vegna þess að kjósendur í heimalöndum þeirra höfnuðu þeim, mörg með spillingarmál á bakinu eða höfðu sýnt af sér þvílíka vanhæfni og vanrækslu, að ekki þótti á það hættandi að hafa þau nærri valdataumunum heima fyrir. Ursula von der Leyen, forseti framkvæmdastjórnarinnar, er fyrirtaksdæmi um þetta, en hún hrökklaðist til Brussel úr embætti varnarmálaráðherra Þýskalands eftir að hneykslismálin höfðu hrannast upp og varnir landsins svo stórlaskaðar eftir, að gantast var með að mannkynssagan væri mun betri hefði hún aðeins verið varnarmálaráðherra um 80 árum fyrr.
Kröfur um að von der Leyen segi af sér hafa orðið æ háværari um helgina og munu tæplega dofna nú í vikunni. Þær eru réttmætar, en vandinn er djúpstæðari, hann felst í Evrópusambandinu sjálfu, lýðræðishalla þess, ábyrgðarleysi helstu stjórnenda og takmarkalausum valdaþorsta og vanhæfni Brusselbáknsins, sem birtist með augljósum og átakanlegum hætti í bóluefnismálunum. Þar þurfa Íslendingar að leita annarra leiða.
Halldór Jónsson, 2.2.2021 kl. 12:13
Þeim bregst ekki bogalistin, Gunnari og Davíð.
Hnitmiðuð skot hjá báðum.
Verri er bogalist Björns Bjarnasonar, talsmanns Gulla og EES/ESB. Hitti ekki belju þó hann héldi í halann á henni, heldur fengi delluna yfir sig. Að ekki sé minnst á delluna sem frá honum sjálfum kemur. Maður gæti hlegið að þessu, ef þetta væri ekki jafn alvarleg aðför að hagsmunum lands okkar og þjóðar og raun ber vitni um.
Símon Pétur frá Hákoti (IP-tala skráð) 2.2.2021 kl. 16:35
Við hefðum getað farið sömu leið og Sviss. Sviss ákvað að standa sjálft að samningum og treysta á eigin getu og styrk til að gera góða samninga og tryggja íbúum sínum bóluefni hraðar og betur en ESB. Og Svisslendingar eru ekki örfáir fullir innræktaðir villimenn étandi úldinn mat upp við heimskautsbaug, engir vitleysingjar sem þarf að setja á hryðjuverkalög svo þeir steli ekki öllu steini léttara, þekkja ESB, hafa staðið á eigin fótum í aldir en ekki áratugi og kunna samningagerð eins og þeir hafi skrifað bókina og sett reglurnar. Hvað gæti klikkað?
Að vísu erum við búin að bólusetja 50% stærra hlutfall þjóðarinnar en Svisslendingar og við eigum von á aukaskömmtum meðan Svisslendingar fá seinkun og 50% skerðingu og búast við að ná 10% hlutfalli bólusettra mánuði á eftir okkur, ef allt gengur upp. En, hey, ESB er svo alslæmt að það má gagnrýna allt sem þar er gert og loka augunum fyrir raunveruleikanum ef það kemur höggi á ESB. Tilgangurinn helgar meðalið og í pólitík er sannleikurinn bara til trafala.
Vagn (IP-tala skráð) 3.2.2021 kl. 01:31
Vagn veit greinilega meira en margir aðrir um innri staðreyndir málsins og pólitíkina á bak við. En ég sé ekki alveg tenginguna við Sviss og Íslendinga eða hvað við getum gert sona mikið betur í ljósi þess.
Halldór Jónsson, 3.2.2021 kl. 05:02
Já Símon Pétur
þetta er ekki alveg ljóst en alvarleikinn af afleiðingunum er ljós
Halldór Jónsson, 3.2.2021 kl. 05:04
Í gamla daga versluðum við mikið við Sovétmenn , þrátt fyrir að vera í NATO og EFTA.Nú væri gott að fá þetta Sputnik bóluefni , sem Lancet(viðurkenndur fjölmiðill) segja að hafi meir en 90 % virkni.
Hörður (IP-tala skráð) 3.2.2021 kl. 10:36
VAGNINN er vel að sér í landsmálum, tilvitnunum og reglugerðum.
Verður hann hugsanlega sendiherra á Grænland?
Gísli Holgersson (IP-tala skráð) 5.2.2021 kl. 15:35
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.