Leita í fréttum mbl.is

A ég að trúa því ?

að Vladimir Pútín sé bara ótíndur glæpamaður og eiturbyrlari. Ofsæki Navalny varnarlausan?

Ég sem alltaf hef trúað því besta um Pútín. Á ég virkilega að fara að skipta um skoðun á honum? Er hann bæði fífl og drullusokkur eins og verstu úrrhrök KGB voru að atvinnu?

Pútín minn, sýndu nú stjórnvisku og bregstu mér ekki svo ég þurfi að fara að trúa því versta um þig. 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Grímur Kjartansson

Það má alltf búa til samskæriskenningar

Rússar eru á undan öðrum í að þróa bóluefni

líklegast er að ESB setji enn eitt viðskiptabannið á Rússa út af Navalny (Þjóðverjar fá þó alltaf undanþágu)

þar með er búið að vernda lyfjafrmaleiðendur annars staðar í heiminum fyrir samkeppni frá bóluefni Rússana - $$$$

Grímur Kjartansson, 3.2.2021 kl. 19:52

2 Smámynd: Þorsteinn Siglaugsson

Bóluefnið hefur víst þau áhrif, Halldór, að fólk missir trú á Pútín.

Þorsteinn Siglaugsson, 3.2.2021 kl. 20:23

3 identicon

Putin fæddist inn í hátind dýrkunarinnar á Stalín og var síðan alinn upp í KGB. Hann öðlaðist frama og stóð sig víst mjög vel í þeim verkum sem KGB stundaði þau 16 mótandi ár sem hann starfaði þar. Siðferði er því eflaust ekkert sem er mikið að trufla hann. Og stjórnviska hans nær ekki mikið lengra en að fá sitt fram með valdbeitingu, ógn og kúgun að hætti Stalíns.

Will no rid me of this troublesome priest. Words spoken by English king Henry II in 1170 which led to murder of Thomas Becket, the Archbishop of Cantebury.   Putin þarf ekki að gefa skipanirnar. Það nægir að vilji hans og óskir séu vitaðar til að einhver taki að sér skítverkin. Og náttúrulega er dómskerfið einnig undir, dómarar eiga ekki von á góðu ef þeir styggja Putin, og dómar miðast frekar við hvort viðkomandi sé vinur eða óvinur Putins heldur en sekt eða sakleysi. Vinir Putins þurfa ekki að óttast fangelsisdóma.

Allt kerfið er gegnsýrt af því að gera Putin til geðs.

Vagn (IP-tala skráð) 3.2.2021 kl. 20:24

4 identicon

Sæll Halldór.

Já, hann er það.

Rök: Lestu Vagn. Skothellt svar þar.

Húsari. (IP-tala skráð) 3.2.2021 kl. 21:59

5 identicon

Siðir þjóða eru ólíkir, góðir eða harðir, en gera mikið gagn í viðskiptum fyrir fámenni ÍSLENDINGA í viðskiptum.

Gleymum ekki mótmælum íslenskra ráðherra og nú síðast Gulla vegna óláta og mótmæla við "unga" manninn, sem "eytrað" var fyrir og var boðin læknismeðferð af Merkel í Þýskalandi.

Þetta ákveður Guðlaugur Þór gegnum vini sína í ESB "fagnaðinum". En skilar þetta einhverju fyrir fámenni okkar í viðskiptum/sölu á sjávarafurðum?

Ég heyrði einhverntíma, að móðir Pútins hefði alið hann upp eftir ströngum Kristnum siðum?  Það var gott samband milli forseta USA og Rússa. Þeir eru mikilvægir fyrir ÍSLAND.

Gísli Holgersson (IP-tala skráð) 4.2.2021 kl. 12:31

6 Smámynd: Halldór Jónsson

Er það virkilega svo Vagn?

Halldór Jónsson, 4.2.2021 kl. 15:22

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (8.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 29
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 24
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband