Leita í fréttum mbl.is

Á að versla við Vðreisn?

Hér fer á eftir ræða Styrmis Gunnarssonar á stofnfundi félags um fullveldi Islands í ágúst 2018.

 

"Hvers vegna að stofna félag um fullveldismál Íslands?

“We’ve learned that quiet isn’t always peace”
Amanda Gorman

 



Flestir Íslendingar telja að Íslandi eigi að vera frjálst og óháð land. Þannig er hagur þjóðarinnar best tryggður og þannig getum við með stolti tekið þátt í alþjóðlegri samvinnu án þess að aðrar þjóðir geti sagt okkur fyrir verkum. Á þann hátt verða tækifæri okkar fleiri bæði heima og að heiman og við getum komið fram við aðrar þjóðir með stolti og virðingu og án þess að vera leppar einhverra annarra ríkja.  Þannig getum við lagt mest að mörkum í síbreytilegum og ótryggum heimi.

Sjálfstæðisflokkurinn var á sínum tíma stofnaður um frelsi þjóðarinnar. Hans aðalstefnumál  var skýr og óumsemjanleg krafa um frjálsa þjóð í frjálsu landi. Fyrsta aðalstefnumálið var „að Ísland taki að fullu öll sín mál í sínar eigin hendur og gæði landsins til afnota fyrir landsmenn“ og hitt var „að vinna í innanlandsmálum að víðsýnni og þjóðlegri umbótastefnu á grundvelli einstaklingsfrelsis og atvinnufrelsis með hagsmuni allra stétta fyrir augum.“ Þessi aðalstefnumál eru enn grunngildi flokksins. Það eru sagnfræðilegar ástæður fyrir því að flestir Íslendingar vilja ekki inngöngu í  Evrópusambandið (ESB). Sumir segja þetta tilfinningar en eins og með margar tilfinningar byggir þessi tiltekna tilfinning á gefinni reynslu.

Í þessu ljósi getur verið að einhverjir hafi orðið hissa þegar fréttist af stofnun sérstaks félags sjálfstæðismanna um fullveldismál 1. desember 2019. Undir öllum venjulegum kringumstæðum stofnun slíks félags innan flokksins að vera óþörf

Í dag er öldin önnur. Nýlega samþykktu allir þingmenn Sjálfstæðisflokksins innleiðingu þriðja orkupakka ESB (OP#3) í íslensk lög, að aðeins einum þingmanni undanskildum (Á.F.). Hvað veldur? Skýringuna er ekki að finna í lögum eða reglugerðum Sjálfstæðisflokksins því í 1. kafla, 7.gt. skipulagsskrár flokksins segir um landsfund:

“Landsfundur hefur æðsta vald í málefnum flokksins. Hann markar heildarstefnu flokksins í landsmálum og setur reglur um skipulag hans.”

Á landsfundi Sjálfstæðisflokksins, haldinn í Laugardalshöll 16. – 18. mars 2018 segir eftirfarandi í Ályktun Atvinnuveganefndar í kaflanum um Iðnaðar- og orkumál:

“Sjálfstæðisflokkurinn hafnar frekara framsali á yfirráðum yfir íslenskum orkumarkaði
til stofnana Evrópusambandsins.”(leturbreyting bloggarans)

Lögfræðingar sem sérfróðir eru um stjórnskipunarrétt og stjórnarskrármálefni hafa lýst áhyggjum af því að Alþingi hafi með innleiðingu OP#3 í íslenskan rétt yfirstigið mörk stjórnarskrárinnar með því að opna fyrir framsal yfirráða yfir orkuauðlindum Íslands til erlends yfirþjóðlegs valds. Mörgum kann að koma þetta á óvart, einkum þar að lýðræðislega kjörnir fulltrúar Sjálfstæðisflokksins stóðu allir sem einn fyrir og stóðu þétt að baki þessum gjörning, sem er framsal á fullveldi landsins í eigin orkumálum. Íslenska þjóðin hefur aldrei verið spurð að því hvort hún er sammála þessum gjörningi.

Félag Sjálfstæðismanna um fullveldismál er stofnað í þeim tilgangi að efla samhug sjálfstæðismanna um fullveldið með því að halda til haga og verja, með fræðslu og upplýsingu, þau grunngildi Sjálfstæðisflokksins sem fjalla um frjálsa og fullvalda þjóð. Ekki er þar vanþörf á."

Margir Sjálfstæðismenn spyrja í dag hver stefna flokksins sé í Evrópumálum.Fá svör fást og ekki hefur Birgir Ármannsson mér vitanlega rætt mikið við Sjálfstæðismenn um þau mál sem þá voru umdeild sem 3.Orkupakkinn var.

Er einhver verslunarsamningur í bígerð við Viðreisn þeirra Þorgerðar Katrínar, Þorsteins Pálssonar og Benedikts Jóhannessonar?


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Halldór Jónsson

Þorsteinn Pálsson heldur áfram að rakka niður íslenska kronuhagskerfið í málgagni ESB á Íslandi í dag. Hann finnur því allt til foráttu að vanda.

Hann trúir á inngöngu Íslands í ESB sem páfinn á biflíuna.

Ég hels að þjóðin sé ekki enn sem komið er sammála þessum ESB prédikurum í Viðreisn og víðar. Ókosin Ursula von der Layen sýndi sig að vera ekki óskeikul í einföldu bólefnismálinu. Verður hún betri næst?

Halldór Jónsson, 4.2.2021 kl. 22:21

2 identicon

ESB og allar skammstafanir frá Brussel gera ÍSLANDI ekkert gagn. Við erum fámenn þjóð, sem eigum að sinna sjálfstæði okkar og fullveldi.

    • Seljum ekki landið okkar. Ekki einn fermetir...

    • Verjum Fossa og Veiðiár og öll annnes...

    • Ég græt yfir sölu jarða umhverfis Vík í Mýrdal...

    • Hjörleifshöfði fyllti mælinn...

    • Setjum LANDSLÖG um fullt NEI við Landasölu...

    • VIÐ VILJUM EKKI VERÐA HÚSKARLAR Í EIGIN LANDI...

    • Ríkið skal FJÁRFESTA í öllum eigum BÆNDA á landsbyggðinni.

    • Orkan, Heita vatnið er okkar eign.

    • Styrkjum sjálfstæði okkar á öllum sviðum.

    Gísli Holgersson (IP-tala skráð) 5.2.2021 kl. 12:19

    3 identicon

    Þeir stjórnmálaflokkar, andsnúnir ESB sinnum verða að birta baráttumálin með heilsíðum í Morgunblaðinu. Fyllið síðuna eða opnuna af óskum ykkar fyrir föðurlandið - EKKI fyrir getulausa flokka og einstaklinga, sem kingja öngþveiti Evrópu. Berjumst fyrir gömlu gildunum, sjálfstæði og fullveldi. Með þessu fækkum við Flokkum og einstaklingum, sem ekkert hafa að gera á virtu ALÞINGI.

    Þið hafið nú byggt "Hreiðrið" á Alþingi. Það er komið að því að vinna fyrir Landið okkar og kjósendur á næstu mánuðum.

    Gísli Holgersson (IP-tala skráð) 6.2.2021 kl. 20:05

    Bæta við athugasemd

    Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

    Höfundur

    Halldór Jónsson
    Halldór Jónsson

    verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

    -ekki góður í neinu af þessu-

    Heimsóknir

    Flettingar

    • Í dag (19.11.): 0
    • Sl. sólarhring: 5
    • Sl. viku: 42
    • Frá upphafi: 0

    Annað

    • Innlit í dag: 0
    • Innlit sl. viku: 35
    • Gestir í dag: 0
    • IP-tölur í dag: 0

    Uppfært á 3 mín. fresti.
    Skýringar

    Eldri færslur

    Innskráning

    Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

    Hafðu samband