Leita í fréttum mbl.is

Sigríður Jónatans

er látin sé ég í blöðunum.

Hún skipar sértakan sess í huga mér því hún er fyrsta stelpan sem ég dansa við á barnaballi frímúrara sem afi Ágúst býður okkur barnabörnunum til einhvern tímann í Sjálfstæðishúsinu við Austurvöll í stríðslok.

Hún kennir mér síðustu smellina í dönsum sem ég læri þarna hjá henni eins og "fyrst á réttunni, Óla Skans og vínerkruzz". Mér þykir rosa gaman að þessu og býð henni ítrekað upp. Strax orðinn kvensamur eða hvað? Svo man ég ekki hvort við dönsuðum meira saman í næstu 75 árin, Hún giftist vini mínum og bekkjarfélaga honum  Þórði Þorbjarnarsyni sem deyr frá henni allt of ungur.

Hún er alltaf mjög prúð í framgöngu og er mikil vinkona frænku minnar Siggu Valfells. En milli okkar er ekkert sértakt samband til þess tíma þegar ég sé dánartilkynninguna.Þetta rifjast allt upp fyrir mér þegar ég sé þessa yndislegu prúðbúnu  krakka á danssýningu í sjónvarpinu í dag.

En hún snertir streng í gömlu brjósti hún Sigga Jónatans fyrir gamlar stundir sem ekki gleymast þó líði ár og öld.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Æsku og unglingsárin voru falleg.

Gísli Holgersson (IP-tala skráð) 8.2.2021 kl. 15:08

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (7.6.): 3
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 35
  • Frá upphafi: 3420882

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 30
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband