12.3.2021 | 10:03
Er Svandís meinvættur?
á stóli heilbrigðisráðherra?
Mér er stundum farið að detta það í hug þegar ég frétti af sumum ráðstöfunm hennar sem ég ekki skil.
Ekki síður eftir að lesa meðfylgjandi grein Villa Bjarna um heilbrigðismál sem er í Mogga á dag. Ég feitletra þær klausur sem mér finnst minningarmerkar fremur en að sleppa almennu kjaftæði um selvfölgeligheder sem þarf þó víst að vera með í hverri grein:
"Það kann að vera óralangur vegur frá fjármálum til heilbrigðismála. Ekki dettur nokkrum sjúkum manni í hug að leita sér lækninga hjá manni eða konu menntuðum í fjármálum. Það er frekar að fólk í vandræðum með fjármál leiti til lækna til að fá ráð í fjármálum. Ekki er víst að það séu hollráð, læknar og heilbrigðisstarfsfólk eru hlutfallslega færari í að laga mannanna mein en sálarmein fjármálanna. Tenging heilbrigði og fjármála er augljósust í kostnaði og ábata af aðgerðum eða lyfjagjöf.
Heilbrigðissýn almennings
Það vakti athygli fyrir nokkrum árum að ríkisstjórnin fékk á sig áskorun í almennri undirskriftasöfnun, að útgjöld til heilbrigðismála skyldu verða 13% af landsframleiðslu.
Sennilega eru útgjöld til heilbrigðismála sem næst 10-11% af landsframleiðslu.
Í þessari undirskriftasöfnun var það ekki útskýrt á hvern veg auknum útgjöldum skyldi ráðstafað og þaðan af síður vissi megnið af þeim sem skrifuðu undir þessa áskorun hvar aukinna fjárveitinga væri þörf.
Áskorunin var í raun sjúkdómavæðing heillar þjóðar. Slíkt er alls ekki sjálfbært. Það má auka útgjöld til heilbrigðismála á ýmsa vegu. Því má ætlast til þess, þegar gerð er krafa um aukin útgjöld, að jafnframt sé gerð grein fyrir þeim ávinningi sem skal ná fram. Það að auka útgjöld til heilbrigðismála til þess eins að bæta launakjör heilbrigðisstarfsfólks eykur ekki velferð skjólstæðinga heilbrigðiskerfisins.
Ef það er markmið í sjálfu sér að auka útgjöld til heilbrigðismála, þá er rétt að gera sér grein fyrir þeim markmiðum sem að er stefnt til að auka velferð notenda heilbrigðisþjónustu. En heilbrigðismál gera huga minn sem ferð villts manns á þokuslungnu fjalli.
Hvernig vegnar með mikil útgjöld
Þau 17% útgjalda af landsframleiðslu sem varið er til heilbrigðismála í Bandaríkjunum skila af sér í þríþættu heilbrigðiskerfi; einu versta heilbrigðiskerfi í iðnvæddu land, einu dýrasta heilbrigðiskerfi í iðnvæddu landi og ef til vill viðunandi heilbrigðiskerfi fyrir hermenn og þá sem látið hafa af herþjónustu.
Eftir stendur að vera kann að þau sjúkrahús, sem þjóna dýrasta hluta kerfisins, séu meðal bestu sjúkrahúsa í heimi og jafnframt með öflugustu rannsóknarsjúkrahúsum í heimi.
Það vill stundum gleymast í umræðu um heilbrigðismál að tilgangurinn með rekstri heilbrigðisstofnana er ekki aðeins að auka velferð í nútíð, heldur einnig og ekki síður að auka velferð í framtíð.
Rannsóknir í heilbrigði
Tilgangurinn með rannsóknum á heilbrigðissviði er að auka velferð mannkyns en alls ekki að auka álit og viðurkenningu þeirra sem rannsóknirnar stunda.
Ég minnist rannsóknar á legutíma á Kleppsspítala á tveimur tímabilum. Tilgangur rannsóknarinnar var að kanna áhrif nýrra lyfja, sem komu fram eftir 1960.
Íslenskir læknar veittu sjúklingum aðgang að þessum lyfjum þegar þau komu fram. Samkvæmt athugun á legutíma voru áhrifin ótvíræð og læknar töldu að velferð sjúklinganna hefði aukist í samræmi við legutímann. Á sama veg má huga að stöðu þeirra sem fengu blæðandi magasár.
Á uppvaxtarárum mínum var slíkt meira áfall fyrir þann sem fyrir varð en tárum tók. Ný lyf hafa komið til og bætt velferð. Það er einfalt að leggja mat á kostnað og ábata af lyfjameðferð. Einföld tenging fjármála og heilbrigðismála.
Hjá þeirri kynslóð, sem kom á undan mér, voru kransæðasjúkdómar faraldur. Það er mjög líklegt að breytt mataræði, hreyfing og lífsstíll, og síðast en ekki síst leit og meðferð við of háum blóðþrýstingi, hafi valdið straumhvörfum, og aukinni velferð. Sennilega hefur rannsóknarstarfsemi Hjartaverndar lagt eitthvað af mörkum til aukinna lífsgæða.
Þá hefur Íslensk erfðagreining aukið velferð þjóðarinnar, fyrir fleiri en stjórnendur og starfsfólk fyrirtækisins í efnislegum gæðum.
Klúður
Það er þyngra en tárum taki að sjá hvernig starfsemi leitarstöðvar Krabbameinsfélagsins hefur fjarað út og ekkert tekið við, að sinni. Prófessor Níels Dungal er sennilega meðal fyrstu manna til að vekja athygli á sambandi reykinga og lungnakrabba.
Með stofnun Krabbameinsfélagsins var lagður grunnur að skrásetningu krabbameina þannig að hægt væri að leggja mat á árangur meðferðar við þeim. Með krabbameinsskrá er í raun hægt að leggja mat á kostnað og ábata af forvirkum rannsóknum í heilbrigðismálum Það hefur mikið verið rætt og ritað um fullveldi. Í huga þess, er þetta ritar, felst fullveldi meðal annars í því að þjóð geti veitt sér grunnþjónustu í heilbrigðismálum og veitt þjónustu á sviði heilbrigðismála með þeim hætti að ekki þurfi að sækja einfalda þjónustu yfir landamæri.
Fullveldi og heilbrigði
Leit og skimun að frumubreytingum í leghálsi kvenna er meðal fyrstu forvirku rannsókna á heilbrigðissviði. Skipuleg leit að brjóstakrabbameini fylgdi í kjölfar leghálsskimunar. Árangur er vel mælanlegur með krabbameinsskránni. Sambandsleysi og klúður hefur leitt til þess að úrvinnsla þessarar leitar og rannsóknir eru færðar til útlanda þegar háværar raddir heyrast um fullveldi. Það er óþarfi að hafa minnimáttarkennd í heilbrigðismálum. Tilkoma opinna hjartaaðgerða hér á landi og árangur þeirra er ekki til að þegja um. Opnar hjartaaðgerðir á Íslandi voru fullveldisþáttur. Það má jafnvel reikna út ábatann af fullveldinu í hjartaaðgerðum.
Annað klúður í uppsiglingu
Það er óþarfi að stofnanavæða alla heilbrigðisþjónustu. Verulegur hluti heilbrigðisþjónustu getur farið fram utan stofnana. Það eru einungis alvarleg tilfelli sem þarfnast aðgerða sem þurfa að fara fram á sjúkrahúsum. Svo virðist sem það sé opinber stefna í framkvæmd að hætta að kaupa þjónustu af sjálfstætt starfandi sérfræðingum.
Í ljósi þess að við búum við opinbert sjúkratryggingakerfi er nauðsynlegt að til sé þekking til kaupa á heilbrigðisþjónustu. Ef slík þekking er ekki til hjá kaupanda þjónustunnar, þá hlýtur að liggja í augum uppi að kaupandinn, ríkið, þarf að afla þekkingar til kaupa á þessari þjónustu.
Í kommúnistaríkjum þykja biðraðir sjálfsagðir hlutir. Á Íslandi þykja biðraðir í heilbrigðisþjónustu alveg sjálfsagður og nauðsynlegur hlutur.
Biðraðir eru vond tæki til að koma í veg fyrir oflækningar. Í biðröðum er horft fram hjá kostnaði af kvölum í biðtíma.
Hugsjón
Því ef hugsjónin er ekki líf og lífið er ekki hugsjón, hvað er þá hugsjónin? Og hvað er þá lífið? Heilbrigðismál eru hugsun um lífið. Það þarf að horfa á heilbrigðismál af djörfum hug en ekki með því hugarfari að bæla eigi niður óþarfa vanda.
Bælingin er vandinn!
Ég þekki dæmi þess að sjúklingur með liðvandamál var tvívegis sendur utan til Svíþjóðar með konu sem fylgdarmann og bílstjóra fyrir svona 15 milljónir þegar fyrir lá að hann gat fengið aðgerðina fyrir 4 á Klíníkkinni. Hann þurfti bara að borga þær sjálfur.
Þekking hans og frúarinnar á Skandínavíu jókst ómetanlega í túrnum og skilar sér kannski einhvern tímann.Hann einhver hælisleitandi hefði kannsli getað þegið 11 milljónirnar.
Og nú ætlar Svandís að skrúfa fyrir sérfræðilækna ofan á bóluefnisklúðrið sem kostar mörg mannslíf.
Heilbrígðisráðherra með svona feril er ekki í hópi minna uppáhaldsráðherra.
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 4
- Sl. sólarhring: 5
- Sl. viku: 41
- Frá upphafi: 3419714
Annað
- Innlit í dag: 4
- Innlit sl. viku: 35
- Gestir í dag: 4
- IP-tölur í dag: 4
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- Maí 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Ágúst 2021
- Júlí 2021
- Júní 2021
- Maí 2021
- Apríl 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Júlí 2020
- Júní 2020
- Maí 2020
- Apríl 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2020
- Janúar 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Ágúst 2017
- Júlí 2017
- Júní 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
Bloggvinir
- ghe13
- sigurjonth
- andrigeir
- annabjorghjartardottir
- ansigu
- agbjarn
- armannkr
- asdisol
- baldher
- h2o
- bjarnihardar
- dullur
- bjarnimax
- zippo
- westurfari
- gattin
- bryndisharalds
- davpal
- eggman
- greindur
- bjartsynisflokkurinn
- elfarlogi
- eeelle
- sunna2
- ea
- fuf
- fhg
- vidhorf
- gerdurpalma112
- gilsneggerz
- gudni-is
- lucas
- zumann
- gp
- gun
- topplistinn
- tilveran-i-esb
- skulablogg
- gustafskulason
- gustaf
- heimssyn
- diva73
- helgi-sigmunds
- hjaltisig
- minos
- hordurhalldorsson
- astromix
- fun
- jennystefania
- johanneliasson
- johannvegas
- jonatlikristjansson
- fiski
- jonl
- jonmagnusson
- jonlindal
- bassinn
- jonvalurjensson
- jvj
- thjodarskutan
- juliusbearsson
- katagunn
- kje
- ksh
- kristinn-karl
- kristinnp
- kristjan9
- loftslag
- altice
- ludvikjuliusson
- maggij
- magnusthor
- mathieu
- nielsfinsen
- omarbjarki
- huldumenn
- svarthamar
- pallvil
- peturmikli
- valdimarg
- ragnarb
- samstada-thjodar
- fullveldi
- siggus10
- sisi
- siggisig
- ziggi
- siggith
- stjornlagathing
- pandora
- spurs
- kleppari
- saethorhelgi
- tibsen
- ubk
- valdimarjohannesson
- skolli
- valurstef
- vilhjalmurarnason
- vey
- postdoc
- thjodarheidur
- icerock
- steinig
- thorsteinnhelgi
- icekeiko
Athugasemdir
Það þarf e.t.v. að skrúfa fyrir sérfræðilækna þegar þeir eru farnir að rukka 102 milljónir fyrir komur 15 sjúklinga á dag alla 365 daga ársins.
Sjúklingur með liðvandamál var tvívegis sendur utan til Svíþjóðar með konu sem fylgdarmann og bílstjóra fyrir svona 15 milljónir þegar fyrir lá að hann gat fengið aðgerðina fyrir 4 á Klíníkkinni og Landspítalinn gat gert aðgerðina fyrir minna en 3 ef fjárveiting hefði verið fyrir hendi. Þannig virkar kerfið þar sem ekki er sami aðili sem sér um að borga fyrir aðgerðir innanlands og þær sem lögin senda úr landi. Fjárlög gera ekki ráð fyrir að þessar aðgerðir séu framkvæmdar innan heilbrigðiskerfisins en lög gera Tryggingastofnun að greiða fyrir þær erlendis. Fjárlög binda hendur heilbrigðisráðherra og alls heilbrigðiskerfisins en ekki Tryggingastofnunar.
Svandís samdi ekki lögin sem henni er gert að fara eftir og fjárlög eru á hendi Bjarna. En fyrir gamlar karlrembur liggur Svandís vel við höggi.
Vagn (IP-tala skráð) 12.3.2021 kl. 12:07
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.