21.5.2021 | 13:09
Áróður gegn bólusetningum
er allmikill úr ýmsum. allir soðbollar á sjó dregnir til að koma fram með vísindalegar aðfinnslur að sínum smekk.
Þórdís Björk Sigurþórsdóttir fer mikinn í þessum áróðri án þess að vitað sé um sérstaka þekkingu hennar á málinu frekar en tilfinningar sem eru miklar.
Hún skrifar svo úi eini færslu:
"
Svíinn Lars Bern sem er með gráðu í verkfræðilegri eðlisfræði frá Chalmers háskóla og doktor í efna(hvarfa)verkfræði varar við Covid bóluefnunum.
Töluverð vinna fór í að þýða viðtalið og vonandi gefa menn sér tíma til að lesa.
Umrædd rannsókn er að sögn Lars Bern birt í áreiðanlegum miðli og ætti að hafa þær afleiðingar að WHO myndi gera alvarlegar athugasemdir við áframhaldandi notkun núverandi bóluefna, en hann er ekki vongóður um að það verði raunin.
Lars byrjar á að fjalla um niðurstöður bandarískra og kínverskra vísindamanna hjá Salk institute i La Jolla í Kaliforníu. Þeir leita svara við því hvers vegna þessi pest er ekki eins og venjuleg flensa sem leggst á öndunarfærin. Covid leggst líka á æðakerfið í sumum tilfellum og það getur valdið alvarlegum veikindum í hjarta, heila, nýrum og fleiri líffærum. Það er talað um langvarandi veikindi af Covid sem geta orðið vegna skemmda á æðakerfinu.
Þegar bóluefnin voru þróuð hafði ekki tekist að einangra veiruna og því einbeittu vísindamenn sér að broddpróteininu á öreindum veirunnar, þ.e. topparnir á veirunni sem hún er nefnd eftir. Talið var að hlutverk broddpróteinanna væri að virka eins og lyklar sem opnuðu fyrir viðtöku veirueindanna í frumur sjúklinganna. Og að ef hægt væri að virkja broddpróteinin kæmi það í veg fyrir að veiran smitaði frumur sjúklingsins.
Staðreyndin er sú að það hefur ekki tekist að einangra veiruna og því hefur ekki verið hægt að búa til hefðbundið bóluefni sem byggir á dauðum veirum sem notaðar eru til að búa til ónæmi hjá sjúklinginum. Þess í stað hefur verið einblínt á að reyna að búa til ónæmi gegn broddpróteinunum sem tekist hefur að einangra og það er sú hugmyndafræði sem öll þessi nýju bóluefni byggja á. mRNA efnin sem koma frá Pfizer og Moderna notast við einfaldan Helix (gormlaga eind), RNA Helix, sem er pakkað inn í lípsóm, sem gengur í samband við frumur sjúklingsins og setur af stað framleiðslu á broddpróteinum í pseudoplasma frumanna. Í svokölluðum Vector bóluefnum er notast við DNA keðju af dauðum Adena veirum og sem gengur í samband við kjarna frumanna hjá sjúklinginum og setur í gang framleiðslu á broddpróteinum.
Þannig að hugmyndafræðin á bak við báðar gerðir bóluefnanna byggir á því að búa til broddprótein og að þá muni ónæmiskerfið ráðast á broddpróteinin sem aðskotaefni og mynda mótefni. Það er þannig sem bóluefnin eiga að virka. Ef maður síðan sýkist af Corona munu mótefnin ráðast á broddpróteinin og varna því að veiran komist inn í frumurnar. Það er hugmyndin bak við bóluefnin.
Vandamálið er aftur á móti, að ef maður sýkist af Corona fær maður fyrst flensu, þ.e. öndunarfærasýkingu en ef maður er óheppinn fer pestin yfir á annað stig og ræðst á æðakerfi líkamans og veldur bólgum í æðakerfinu og stundum blæðingum sem getur valdið blóðtappa í lungum og sjúklingurinn lendir í andnauð. Áður var talið að veiran væri völd að þessu en nú er komið í ljós að það eru broddpróteinin sem valda usla í æðakerfinu. Broddpróteinin hafa tvö hlutverk í þessu samhengi. Annars vegar að aflæsa ACE2 viðtöku í frumunum þannig að veiran kemst inn í frumurnar. Hins vegar ráðast broddpróteinin sjálf á innri vegg æðanna á seinni stigum sjúkdómsins og það er þetta sem getur verið lífshættulegt við þennan sjúkdóm. Það er þetta sem gerir sjúklingana alvarlega veika.
Nú hafa lyfjafyrirtækin ákveðið að framleiða bóluefni með einmitt þetta broddprótein sem er svona hættulegt. Hættulegra en veiran sjálf. Og það eru broddpróteinin sem geta leitt fólk til dauða. Nú mætti ætla að þá yrðu allir fárveikir sem hafa fengið bóluefnin út í blóðrásina en ein skýringin er að broddpróteinin festa sig utan á frumurnar en fara ekki út í blóðrásina og afleiðingarnar verða ekki eins hörmulegar. En í sumum tilfellum sleppa broddpróteinin inn í blóðrásina (bendir einn rannsakandinn á) og að það sé ástæða þess að jafnvel ungt, hraust fólk verður alvarlega veikt og fær blóðtappa eftir að fá í sig bóluefnin. Hann bendir líka á að það er viss hætta á að nálin lendi í æð og þá fer efnið út í blóðrásina og þá er hætt við að broddpróteinin dreifi sér um æðakerfið. Það er þess vegna sem sprautað er í vöðva í upphandlegg þar sem ekki eru stórar æðar. Þetta skýrir hvers vegna þessi efni eru að valda óvenju mörgum alvarlegum aukaverkunum.
Það er hans skoðun að lyfjafyrirtækin hafi þróað efnin á alröngum forsendum, án neins skilnings á tvöföldu hlutverki broddpróteinanna. Það var talið að broddpróteinin væru aðeins meinlausir lyklar" til að opna fyrir viðtöku efnanna en það er rangt. Broddpróteinin sjálf eru lífshættuleg! Þetta hefur verið sannreynt með því að setja broddpróteinin í tóma skel af annarri veiru (þ.e. engin veira, aðeins broddprótein) og gera dýratilraunir. Þetta olli alvarlegum bólgum í æðakerfi dýranna. Það sýndi sig að það voru eingöngu broddpróteinin sem ollu veikindunum. Broddpróteinin reyndust vera afar virk og það er staðreynd að það eru broddpróteinin sem valda seinni stigum Coronasjúkdómsins, ekki veiran.
Þegar vel tekst til, setjast broddpróteinin utan á frumurnar og ónæmiskerfið drepur frumurnar og myndar þannig ónæmi gegn broddpróteinunum og getur varið sjúklinginn ef hann smitast af Coronaveirunni.
Lars Bern er þeirrar skoðunar að það ætti alfarið að hætta að nota þessi efni sem nú eru notuð og þróa önnur hættuminni bóluefni. En óhemju miklum fjármunum hefur verið varið í þróun núverandi efna og það eru ekki miklar líkur á að það verði raunin. Þvert á móti er slegið þagnarmúr um hættu efnanna og það er algert hneyksli.
Samantekt á öðru sem Lars fjallar um:
Það kemur fram að fólk getur áfram smitast af Corona þótt það hafi fengið i sig bóluefnin.
Hann fer líka inn á þöggunina um aukaverkanir efnanna og að það sé staðið slælega að því að fylgjast með aukaverkununum. Aðallega sé vitað um þá sem verða fárveikir eða deyja eftir að fá efnin í sig. Það eru tiltölulega fáir sem fá broddpróteinin út í blóðrásina með þeim hörmulegu afleiðingum sem því fylgir. En enginn veit hversu lengi broddpróteinin verða framleidd í líkamanum og hvaða langtímaafleiðingar verða af efnunum.
Það er hans skoðun að mRNA efnin séu heldur hættuminni en Vector-efnin en hann tekur skýrt fram að það er aðeins hans tilgáta.
Hann getur sér þess til að fólk með lélegt æðakerfi geti varið sig gegn árás broddpróteinanna að einhverju leyti með því að taka inn C-vítamín til að styrkja æðakerfið.
Hann talar líka um að það séu til þekkt lyf, Hydroxychloroquine og Ivermectin sem gera gagn gegn Coronaveirunni en að þeim hafi verið sópað undir teppið til að greiða götu bóluefnanna. Engum hafi hingað til tekist að bjóða lyfjabatteríinu byrginn.
Á síðari stigum sjúkdómsins, ef broddpróteinin hafa ráðist á æðakerfið gera þessi lyf ekki gagn, þar eð þau eru veiruhamlandi. En þá eigi að nota kortison gegn bólgunum sem broddpróteinin valda.
Hann vill ekki mæla með né gegn bóluefnunum. En mælir eindregið með því að fólk kynni sér málið eins ítarlega og það getur og taki síðan upplýsta ákvörðun. Hann ætlar allavega að hinkra með að taka við efninu, þrátt við að vera hátt á áttræðisaldri og þar með í áhættuhópi.
Hann vill ekki taka afstöðu til þeirrar tilgátu að efnin geti breytt erfðaefni viðtakenda varanlega.
Lyfjaiðnaðurinn hefur mikla hagsmuni í húfi og lítill áhugi á að athyglin beinist að alvarlegum aukaverkunum efnanna. Það sé ómögulegt að treysta opinberum tölum. Hvort tveggja sé kerfisbundið staðið að því að ýkja tölur um dauðsföll og smit" vegna Coronaveirunnar og að þagga niður aukaverkanir vegna bóluefnanna. Sömuleiðis bendir hann á hversu óáreiðanleg PCR prófin eru. Það er hægt að handstýra niðurstöðum þeirra og það segir ekkert um hvort fólk er veikt.
Hann bendir líka á nýlegt dæmi um það hvernig tölfræðin er fölsuð. Nú eru sagðar ýktar fregnir um hörmulegt ástand vegna pestarinnar á Indlandi en í raun eru þar svipaðar dánartölur og í Svíþjóð, miðað við fólksfjölda. Dánartíðni var yfir meðallagi í stuttan tíma í fyrra en er nú undir meðallagi og það skýrist af því að margir þeirra sem dóu í fyrra voru veikburða gamalmenni.
Hann þakkar líka því að heilbrigðisstarfsfólki hefur farið mikið fram. Áður hafi meðferðin gengið út á að meðhöndla öndunarfærin en nú sé ljóst að það séu bólgur í æðakerfinu vegna árása broddpróteinanna sem séu vandamálið. Og þá gerir súrefni og öndunarvélar ekkert gagn, heldur þarf að nota kortison t.d. astmalyf. Þetta var þegar komið í ljós í fyrra en var þaggað af lyfjaiðnaðinum til að trufla ekki framvindu bóluefnanna.
Þýðing: Anna Gulla Rúnarsdóttir."
Grundvallar spurning er sú hvort menn vilja heldur hópsýkingar af COVID19 með öllu því sem því fylgir eða að reyna að verjast styrjöldinni.
Það er stríð og í stríði munu einhverjir saklausir falla úr blóðtöppum og öðrum fylgikvillum. En fleiri munu bjargast og það er það sem skiptir máli.
Kallað "Kill Ratio" á stríðsmáli.
Því eru þessi skrif Þórdísar hennar prívat bull sem menn skulu taka sem slík. Hún má auðvitað hafa þá skoðun og reyna að rökstyrðja að hún vilji heldur fá pestina en sprautuna og þá er það bara svo.
Við hin skulum beita skynseminni við okkar val á bólusetningum eða ekki.
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 0
- Sl. sólarhring: 4
- Sl. viku: 37
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 31
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- Maí 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Ágúst 2021
- Júlí 2021
- Júní 2021
- Maí 2021
- Apríl 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Júlí 2020
- Júní 2020
- Maí 2020
- Apríl 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2020
- Janúar 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Ágúst 2017
- Júlí 2017
- Júní 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
Bloggvinir
- ghe13
- sigurjonth
- andrigeir
- annabjorghjartardottir
- ansigu
- agbjarn
- armannkr
- asdisol
- baldher
- h2o
- bjarnihardar
- dullur
- bjarnimax
- zippo
- westurfari
- gattin
- bryndisharalds
- davpal
- eggman
- greindur
- bjartsynisflokkurinn
- elfarlogi
- eeelle
- sunna2
- ea
- fuf
- fhg
- vidhorf
- gerdurpalma112
- gilsneggerz
- gudni-is
- lucas
- zumann
- gp
- gun
- topplistinn
- tilveran-i-esb
- skulablogg
- gustafskulason
- gustaf
- heimssyn
- diva73
- helgi-sigmunds
- hjaltisig
- minos
- hordurhalldorsson
- astromix
- fun
- jennystefania
- johanneliasson
- johannvegas
- jonatlikristjansson
- fiski
- jonl
- jonmagnusson
- jonlindal
- bassinn
- jonvalurjensson
- jvj
- thjodarskutan
- juliusbearsson
- katagunn
- kje
- ksh
- kristinn-karl
- kristinnp
- kristjan9
- loftslag
- altice
- ludvikjuliusson
- maggij
- magnusthor
- mathieu
- nielsfinsen
- omarbjarki
- huldumenn
- svarthamar
- pallvil
- peturmikli
- valdimarg
- ragnarb
- samstada-thjodar
- fullveldi
- siggus10
- sisi
- siggisig
- ziggi
- siggith
- stjornlagathing
- pandora
- spurs
- kleppari
- saethorhelgi
- tibsen
- ubk
- valdimarjohannesson
- skolli
- valurstef
- vilhjalmurarnason
- vey
- postdoc
- thjodarheidur
- icerock
- steinig
- thorsteinnhelgi
- icekeiko
Athugasemdir
Sæll Halldór, takk fyrir að auglýsa viðtalið við Doktor Lars Bern efna(hvarfa)verkfræðing með meir sem er langt í frá að vera bólusetningarandsstæðingur eins og fram kemur í viðtalinu.
Var einmitt að ljúka við einn áróðurspistillinn. Krakkar fá ís ef þau mæta í bólusetningu í USA:
https://thordisb.blog.is/blog/thordisb/entry/2265001/
Þórdís Björk Sigurþórsdóttir, 21.5.2021 kl. 14:32
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.