Leita í fréttum mbl.is

Skínandi skilgreining

á íslenskum stjórnmálum kemur frá Páli Vilhjálmssyni bloggkóngi.Hann skrifar:

"

Samfylkingin var stofnuð um aldamótin til að verða ,,hinn turninn" í íslenskum stjórnmálum. Tveggja turna módelið gerði ráð fyrir að Samfylking og Sjálfstæðisflokkur kepptust um að leiða landsstjórnina.

Til vinstri við Samfylkingu skyldi vera hjáleigan Vinstri grænir, jaðarflokkur sem hirti óánægjufylgi frá höfuðbólinu og yrði þénug hækja með sína fimm til sjö þingmenn.

Vinstri grænir mælast núna þriðjungi stærri en Samfylking. Hvernig varð hjáleigan höfuðból?  Hvers vegna féll Samfylkingarturninn?

Stutta svarið er að Vinstri grænir urðu mannasættir í íslenskum stjórnmálum en Samfylking flokkur uppþota, vantrausts og almennra leiðinda.

Samfylkingin varð turninn í landsstjórninni með kosningasigrinum 2009 og tók Vinstri græna með sér í Jóhönnustjórnina 2009-2013. Slagorð Samfylkingar var ,,ónýta Ísland". Pólitíkin hét ,,stétt gegn stétt"; landsbyggð gegn þéttbýli, launamenn gegn atvinnurekendum, góða fólkið gegn því vonda og svo framvegis. Ónýta Ísland þýddi að krónunni skyldi fargað, stjórnarskrá lýðveldisins sömuleiðis og fullveldið flutt til Brussel með ESB-aðild Íslands.

Þjóðin sagði álit sitt á Jóhönnustjórninni vorið 2013. Samfylkingin fór úr 30 prósent fylgi í 12,9% og Vinstri grænir féllu úr 20% í 10,9%.

Munurinn á höfuðbóli og hjáleigu vinstrimanna eftir kosningarnar 2013 er að Vinstri grænir drógu þann lærdóm að óvinafagnaður er ekki góð pólitík til lengdar. Samfylking, aftur, forhertist, gerði óformlegt bandalag við Pírata um að halda lífi í hugmyndafræðinni um ónýta Ísland. Hagsmunahópurinn á Efstaleiti varð áróðursmiðstöðin og framleiddi fréttaskáldskap er hæfði hugmyndafræðinni. 

Hass-útgáfa Samfylkingar, Björt framtíð, fékk aðild að landsstjórninni með Sjálfstæðisflokki og Viðreisn vetrarnótt í janúar 2017. Hún féll að hausti þegar RÚV spann samfylkingarspuna um að barnaníðingar ættu athvarf í Valhöll.

Haustið 2017 öxluðu Vinstri grænir ábyrgð, sögðu skilið við óreiðuna á höfuðbólinu, og mynduðu sitjandi ríkisstjórn með Sjálfstæðisflokki og Framsókn. Í stað undirmála voru gerðar málamiðlanir. Heimtufrekja vék fyrir sanngirni. En, það sem mest var um vert, þá taldi stjórnarráðið ekki lengur Ísland ónýtt.

Þannig varð hjáleigan höfuðból."

Mér finnst líklegast að þessi ríkisstjórn Katrínar verði endurreist eftir kosningar. Það sem ég ekki skil hinsvegar hvað fær fólk til að kjósa Pírata. Látum vera Sósíalistaflokk leiguþýsins Gunnars Smára Egilssonar.Það verða alltaf til menn sem selja sál sína hæstbjóðanda eins og fjögurrablaða Smárinn úr Arnarsnesvillunni dýru.

Gangi þetta eftir þá held ég að sé nokkuð tryggt að hér verður efnahagsbati ef við náum tökum á faraldrinum. En mér skjátlast yfirleitt alltaf í pólitík og eitthvað óvænt kemur a daginn.

En mér finnst Páll vera með skínandi skilgreiningu á horfunum í dag.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurður I B Guðmundsson

Ef Samfylkingin, VG, Píratar og Viðreisn ná hér meirihluta (sem getur að sjálfsögðu gerst) er Ísland komið í ESB og verður þá ekki aftur snúið. 

Sigurður I B Guðmundsson, 4.7.2021 kl. 12:39

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (22.11.): 4
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 41
  • Frá upphafi: 3419714

Annað

  • Innlit í dag: 4
  • Innlit sl. viku: 35
  • Gestir í dag: 4
  • IP-tölur í dag: 4

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband