Leita í fréttum mbl.is

Það sem við skuldum Afgönunum?

er fyrirsögn á mikilli grein í Mogga í dag.

Ekki er nóg með það heldur eru allar veitur fullar af því að við skuldum Afgönum framfærslu vegna þess að við reyndum að hjálpa þeim og frelsa frá Talibönum en tókst ekki.

Guðni Forseti er meira að segja farinn að senda út opna gestalista.

Manni skilst að allir Afganir sem tóku þátt í hermanginu á þessu tuttugu árum geti átt yfir sér að þola píslir fyrir.

Hér talar því hver uppí annan að bjóða þeim kost og logi á okkar sósíal, helst ótakmarkað svo að Sema Erla þarf ekki einu sinni að segja neitt í yfirboðunum.

Skulda íslenskir hermangarar sem mökuðu krókinn á Keflavík hjá Kananum okkur hinum kannski ekki hlutdeild í gróðanum?

Í ofangreindri Morgunblaðsgrein er lýst hvernig hermangari í Afganistan verður feitur af svindlinu.

Skuldum við honum eitthvað? Eigum við að sjá fyrir honum hér eftir?

Eða á hann ekki að svara til saka hjá Talíbönum? Er hann ekki bara  landráðamaður í þeirra augum?

Af hverju eigum við að fara að borga fyrir afganska svindlara og fjárplóga? Að menn túlkuðu fyrir Ingibjörgu Sólrúnu og fengu greitt fyrir er allt í einu orðið bótaskylt af okkur?

Er ekki nær að þetta fólk greiði skuldir sínar við afganskt land og þjóð og fari að vinna fyrir þetta?

Hversvegna erum við núna upptekin af því að fara að gera eitthvað sérstakt fyrir fólk sem ekki skuldar okkar neitt né við því heldur?

Var það ekki bara statt þarna þegar heimurinn ætlaði að skaffa Afgönum vestrænt frelsi og democrazy sem ekki tókst. Eigum við að fara að borga fyrir Biden og alla þessa Forseta sem gerðu í buxurnar í Afganistan?

Er það eitthvað okkar mál ef Talíbanar ætla að kúga konur? Hafa engir séð hvernig konur eru meðhöndlaðar i öðrum Múslímaríkjum. Nánast umgangast villimennirnir þær eins og skepnur eins og ég hef horft upp á.

Ég legg til að við hættum þessu tali um að við skuldum þessu fólki eitthvað. Það á ekkert hjá okkur og látum það vera heima hjá sér og í þjóðhöllum störfum þar en ekki hér.

Við breytum ekki svartskeggjuðum fávitum og villimönnum úr flokki Talibana né ráðum við nokkru um þeirra ferli. Komum okkur bara sem lengst í burt frá þessu pakki.

Við skuldum því akkúrat ekki neitt og verði það bara um kyrrt heima hjá sér.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Heimir Lárusson Fjeldsted

Sammála.

Heimir Lárusson Fjeldsted, 18.8.2021 kl. 09:58

2 identicon

Við erum hluti af innrásaröflunum. Okkur var ekki boðið og enginn bað um að við kæmum. En með loforðum um framtíðina fengum við ekki alla þjóðina á móti okkur og ekkert flóð flóttamanna. En eins og vesturlöndum er svo tamt, þá hlupum við frá hálfnuðu verki og skiljum stuðningsmenn okkar og samverkamenn eftir til að taka afleiðingunum. Það má leiða líkum að því að sú hegðun hafi skapað megnið af óvildinni gegn vesturlöndum og skarað eld að kökum Isis, Talibana, Al Qaeda og fleiri. Við getum ekki firrt okkur ábyrgð og tökum afleiðingunum af því að hundsa skuldbyndingar okkar og afneita ábyrgð. Má bjóða þér milljón flóttamenn, upprisu Isis og Al Qaeda og nokkrar hryðjuverkaárásir á vesturlönd sem þakklætisvott fyrir svikin?

Vagn (IP-tala skráð) 18.8.2021 kl. 14:17

3 Smámynd: Grímur Kjartansson

Að leysa vandmál í langt í burrtu landi hefur alltaf verið uppáhald stjórnmálamanna og fleiri því þá hafa þeir afsökun fyrir að gera ekkert í vandmálunum fyrir fram nefið á þeim í þeirra eigin landi.

Það virðist enginn Afgani vera tilbúinn að berjast fyrir vestrænum gildum þó þeir eigi allir farsíma og fari í sumarleyfi til Afganistan eftir að hafa fengið íslenskan ríkisborgararétt líkt og þessar 2 íslensku fjölskyldur sem eru nú innlyksa í Afganistan

Grímur Kjartansson, 18.8.2021 kl. 15:26

4 identicon

May be an image of 1 person and text that says 'I remember before the US came came along and gave us freedom I had a home and a bed I also had a mother and father'

Þorsteinn Sch Thorsteinsson (IP-tala skráð) 18.8.2021 kl. 17:59

5 Smámynd: Guðmundur Ásgeirsson

Íslendingar geta ekki borið ábyrgð á uppgjöf afganska hersins og flótta ríkisstjórnar landsins frá valdastólum.

Guðmundur Ásgeirsson, 19.8.2021 kl. 00:28

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (22.11.): 4
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 41
  • Frá upphafi: 3419714

Annað

  • Innlit í dag: 4
  • Innlit sl. viku: 35
  • Gestir í dag: 4
  • IP-tölur í dag: 4

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband