Leita í fréttum mbl.is

Jón Loftsson og Hvamms-Sturla

skildu þannig að Jón hótaði að drepa 3 menn fyrir Sturlu fyrir hvern einn sem hann dræpi.

"

Krefur þýsk stjórnvöld um viðbrögð

Peter Limbourg, forstjóri Deutsche Welle, fordæmir árásirnar og krefst þess að þýsk stjórnvöld grípi til aðgerða. „Morð talibana á nánum ættingja eins af fréttamönnum okkar [á miðvikudag] er óendanlega sorglegt og undirstrikar þá bráðu hættu sem allt starfsfólk okkar í Afganistan og fjölskyldur þess eru í. Það er greinilegt að talibanarnir eru þegar farnir að leita að fréttamönnum með skipulegum hætti, bæði í Kabúl og annars staðar. Við erum að falla á tíma!" skrifar Limbourg.

Í fréttinni kemur fram að talibanar hafi ráðist inn á heimili minnst þriggja fréttamanna Deutsche Welle í Afganistan á síðustu dögum. Þá er sagt frá því að talibanar hafi rænt yfirmanni einkareknu sjónvarpsstöðvarinnar Gargasht TV og skotið útvarpsstjóra einkareknu útvarpsstöðvarinnar Paktia Ghag til bana. Einnig var Amdadullah Hamdard, þýðandi og fréttaritari sem iðulega skrifaði í þýska blaðið Die Zeit skotinn til bana úti á miðri götu í Jalalabad í upphafi þessa mánaðar.

Elta uppi starfsfólk erlendra ríkja og fyrirtækja

Breska ríkisútvarpið BBC greindi frá því í gær að talibanar séu farnir að herða leit sína að fólki sem starfaði fyrir og með Nató og Bandaríkjaher, einkum þeim sem störfuðu í og fyrir lögreglu, her og rannsóknarstofnanir hvers konar.

Sjá líka: Leita fólks sem starfaði fyrir NATÓ og Bandaríkin

Allt er þetta á skjön við hástemmd loforð talibana um sakaruppgjöf og grið þeirra Afgana sem starfað hafa með og fyrir vestræn ríki og fyrirtæki síðustu ár, en í samræmi við varnaðarorð stjórnmálaskýrenda og sérfræðinga í málefnum Afganistans, sem segja lítið mark að yfirlýsingum talibana um að þeir hyggi ekki á hefndir. Líklegra sé að þeir bíði þess eins að erlendir herir og fjölmiðlar hverfi úr landi áður en blóðbaðið hefst fyrir alvöru. "

Af hverju lesa vestræn stjórnvöld ekki Sturlungu? Það er nefnilega til tungumál sem svona skríll eins og Talibanar skilja eitt tungumála. Alveg eins og Hvamms-Sturla skildi á sinni tíð.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Er þetta tungumál sem þú hrífst svo mjög af ekki sama tungumál og Nasistar töluðu og Ísraelsk stjórnvöld tala í dag? Þar sem lofað er viðbrögðum sem eru hörð og í engu samræmi við brotið? Þú væntanlega sparkar þá í krakka sem ulla á gamla fíflið.

Vagn (IP-tala skráð) 20.8.2021 kl. 17:55

2 identicon

Dóri minn

Þá bræður, Trump og Biden, munu iðra svikin þótt síðar verð.

EINAR S HALFDANARSON (IP-tala skráð) 20.8.2021 kl. 21:38

3 Smámynd: Halldór Jónsson

Ekki held ég Einar minn að Trump vilji láta spyrða sig við Biden

Halldór Jónsson, 22.8.2021 kl. 11:11

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (22.11.): 2
  • Sl. sólarhring: 6
  • Sl. viku: 39
  • Frá upphafi: 3419712

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 33
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband