23.8.2021 | 14:06
Bjarni Jónsson
rafmagnsverkfræðingur reknar út á athyglisverðan hátt hvað loforð og slagorð Katrínar Jakobsdóttur kosta.
Hann segir:
"
Það er kunnara en frá þurfi að segja, að íslenzk stjórnvöld hafa sett landsmönnum það markmið að verða kolefnishlutlausir, þ.e. að starfsemi þeirra á landi valdi engri nettó losun gróðurhúsalofttegunda (CO2-ígilda), árið 2040. Árið 2019 (2020 var afbrigðilegt ár) nam jarðefnaeldsneytisnotkun Íslendinga 43,3 PJ (Peta Joule samkvæmt talnaefni Orkustofnunar-OS-2021-T008-01) eða 16,2 % af heildarorkunotkun landsmanna. Mönnum til glöggvunar nam þetta rúmlega 89 % af vinnslu vatnsorkuveranna. Þetta er ekkert smáræði, þótt það að tiltölu sé mun minna en að jafnaði í öðrum löndum.
Það verður að koma sjálfbær orka í staðinn, raforka, og þessi lokarafvæðing orkukerfisins á Íslandi mun nema um 6,7 TWh/ár m.v. stöðuna 2019, og nemur þessi rafvæðing um 34 % af raforkunotkun landsmanna 2019. Gera má ráð fyrir, að uppsett afl slíkra virkjana þurfa að vera um 1000 MW=1,0 GW til að knýja bílaflotann, vinnuvélarnar, skip og báta og innanlandsflugið, og væntanlega tæplega 9 TWh/ár, ef millilandaflugi og millilandasiglingum er bætt við.
(Innskot: Um leið vill VG friða alla virkjunarkosti á hálendinu)
Kostnaður við þessar virkjanir (1000 MW) gæti numið um mrdISK 350 og við flutnings- og dreifikerfið mrdISK 100 að meðtöldum jafnstraumsjarðstreng á milli Norður- og Suðurlands, sem verður að koma samhliða þessari miklu rafvæðingarviðbót, til að tryggja bæði ástæðan og kvikan stöðugleika raforkukerfisins.
Kostnaður við hleðsluaðstöðu í höfnum, á flugvöllum og við vegi ásamt áfyllistöðvum vetnis og lífeldsneytis, gæti numið mrdISK 100. Þá er ótalin vetnisverksmiðja og dreifikerfi vetnis. Alls eru þetta mrdISK 550. Bretar áætluðu fyrir nokkru, að orkuskiptin hjá sér mundu kosta mrdISK 900 á íslenzkan mannfjöldamælikvarða. Á Bretlandi verða orkuskiptin tiltölulega umfangsmeiri en hér, því að þeir þurfa að afnema kolaorkuver og gasorkuver og leysa jarðefnaeldsneyti til húsahitunar af hólmi með rafmagni og/eða vetni eða lífeldsneyti. Kostnaðaráætlunin mrdISK 900 þótti mörgum vanáætluð, svo að kostnaður Breta gæti að tiltölu orðið tvöfaldur kostnaður Íslendinga við orkuskiptin. Kostnaðurinn tæplega 30 mrdISK/ár er ekki óyfirstíganlegur, enda lendir hann að mestu á orkugeiranum og einkageiranum. Orkugeirinn er vel í stakkinn búinn. (Tal um að skipta Landsvirkjun upp er út í hött, því að hún er bundin af samningum um að standa við ákveðið afhendingaröryggi, sem hún getur ekki í bútum.) Svo er mikilli raforkunotkun á íbúa fyrir að þakka (uppsett afl 7,0 kW/íb).
Tvö risavaxin verkefni bíða jarðarbúa. Annað er að draga úr orkufátækt, og hitt eru orkuskiptin. Hvort tveggja er óhugsandi án gríðarlegrar rafvæðingar heimsbyggðarinnar, og þessi gríðarlega rafvæðing er óhugsandi án þess að nýta kjarnorkuna í stórum stíl. Þess vegna var kúvending Angelu Merkel, Þýzkalandskanzlara, 2011, glapræði, en hún fékk Bundestag til að samþykkja það í tilfinningalegu uppnámi í kjölfar Fukushima-áfallsins í Japan að loka öllum kjarnorkuverum Þýzkalands fyrir árslok 2022. Jafnframt á Þýzkaland að verða kolefnishlutlaust 2050. Þetta tvennt fer einfaldlega ekki saman, enda eru Þjóðverjar nú að ræsa kolakynt orkuver til að ná endum saman á milli framboðs og eftirspurnar raforku. Bretar fara þá einu leið, sem fær er í þessum efnum, að reisa kjarnorkuver, sem leysa munu öll kolakynt orkuver Bretlands af hólmi fyrir árslok 2025.
Rannsóknir hafa sýnt, að líkaminn ræður við geislun upp að ákveðnu marki án þess að bíða tjón af. Enginn lézt af völdum "Three Mile Island" kjarnorkuversbilunarinnar í Bandaríkjunum, og heldur enginn af völdum "Fukushima" áfallsins, sem leiddi af náttúruhamförum við Japansstrendur, utan einn, sem lézt, þegar svæðið í grenndinni var tæmt af fólki.
Eftirlitsiðnaðurinn á Vesturlöndum hefur lagt þá röngu forsendu til grundvallar, að öll geislun sé hættuleg og fært sig stöðugt upp á skaptið með kröfugerð, sem leitt hefur af sér stórfelldar kostnaðarhækkanir við að hanna og reisa kjarnorkuver. Þetta hefur t.d. leitt af sér aukningu rafstrengja úr 600 km árið 1973 í 1140 km árið 1978 í jafnstórum kjarnorkuverum. Kostnaðurinn við kjarnorkuver var u.þ.b. 3,0 USD/W, þegar uppsafnað uppsett afl þeirra hafði náð 2,0 GW og lækkaði niður í 1,0 USD/W við 32 GW uppsafnað afl um 1970, en þá tóku kröfur eftirlitsiðnaðarins að vaxa.
Afleiðingin af sívaxandi öryggiskröfum, sem eru komnar fram úr öllu hófi og skynsemi, er, að kostnaðurinn við kjarnorkuver er nú um 6,0 USD/W, þegar uppsafnað uppsett afl þeirra nemur um 256 GW. Kjarnorkuver framleiða nú aðeins um 10 % raforku heimsins. Til þess að íbúar jarðarinnar, sem hafa aðgang að minna rafafli en íbúar ESB (að meðaltali 0,7 kW/íb), nái ESB-meðaltalinu, þarf að bæta við uppsettu afli, sem nemur 5,0 TW. Þannig þrefaldast núverandi uppsett afl. Hvaðan á slíkt afl að koma ?
Til þess að leysa allt jarðefnaeldsneyti af hólmi þarf raforkuvinnsla úr kolefnisfríum orkulindum að koma frá 25 TW af virkjuðu afli, sem jafngildir tíföldun á núverandi raforkuvinnslu. Geta vindmylla og sólarsella virkar eins og krækiber í helvíti hjá þessari miklu þörf.
Aðeins kjarnorkan getur annað henni, en þá stendur heimurinn frammi fyrir því, að hræðsluáróður græningja og annarra slíkra hefur sett þessa tækni sums staðar í skammarkrókinn, og opinberir eftirlitsaðilar á Vesturlöndum hafa með óraunhæfum og öfgafullum hönnunarkröfum gert kjarnorkuverin ósamkeppnisfær við jarðgasorkuver og kolakynt orkuver. Hvernig á þá að verða við kröfum IPCC um að ná kolefnisjöfnuði sem allra fyrst til að bjarga jörðunni ? Eina sjáanlega úrræðið er að draga saman seglin, fara úr hagvexti í samdrátt hagkerfanna samkvæmt ráðleggingum græningja og höfunda "Endimarka vaxtar" og áhangenda þeirra, en hversu mikinn samdrátt þarf ? Sú hugmynd er endileysa og gengur alls ekki upp, enda næst engin samstaða um hana á heimsvísu, og þar með fellur hún um sjálfa sig.
(Mannfækkun verður að koma til ef bjarga á jörðinni Innsk)
Kostnaður við raforkuvinnslu í jarðgasknúnum orkuverum er 70-80 USD/MWh og í kolaorkuverum 50 USD/MWh. Ef hægt er að reisa kjarnorkuver á 2,50 USD/W, þá verður raforkukostnaður þeirra 35-40 USD/MWh. Suður-Kóreumenn geta þetta með skynsamlegum og nægum gæða- og öryggiskröfum, og ekki er ólíklegt, að Kínverjar séu á svipuðum slóðum, en á Vesturlöndum hefur hinn opinberi eftirlitsiðnaður hert eftirlitskröfurnar með hverju tæknilegu framfaraskrefi, sem kjarnorkuiðnaðurinn hefur stigið, svo að kostnaðurinn hefur 2-3 faldazt, gjörsamlega að óþörfu.
Með raforkukostnaði nýrra kjarnorkuvera yfir 120 USD/MWh hefur eftirlitsiðnaðurinn kyrkt kjarnorkuiðnaðinn og þannig girt fyrir, að orkuskiptin geti farið fram í löndum, sem að mestu eru háð jarðefnaeldsneyti við raforkuvinnslu og háð eru þessum sjálfseyðandi reglum.
Þegar svona er í pottinn búið, er ástæða til að spyrja að hætti Rómverja: "cuo bono" eða hverjum í hag ? Svarið liggur í augum uppi. Þeir, sem hagnast á, að orkuskiptin geti ekki farið fram samhliða eðlilegri efnahagsþróun og hagvexti, eru jarðefnaeldsneytisiðnaðurinn og samdráttarsinnarnir, sem hafa lengi þann steininn klappað í fávísi sinni, að eina ráðið til að bjarga jörðunni sé "að pakka í vörn", stöðva hagvöxtinn og minnka neyzluna á öllum sviðum, sem leiða mun til fjöldaatvinnuleysis, fjöldagjaldþrota og ríkisgjaldþrota.
Þetta er algerlega vanheilagt bandalag. Það er kominn tími til að leiða sannleikann fram í dagsljósið. Hver er hin raunverulega hitastigshækkun lofthjúpsins, reist á dæmigerðum gervihnattamælingum hitastigs í mörgum sniðum í mörgum hæðum frá jörðu, en ekki bara yfirborðsmælingum, sem þar að auki eru háðar ýmsum skekkjuvöldum.
Það þarf að veita leyfi til að reisa kjarnorkuver í lítilli stærð, eins konar líkan, sem gera má tilraunir á, til að komast til botns í því, hvaða öryggiskröfur eru nauðsynlegar, og hverjar er skynsamlegt að afnema. Grundvallarspurningin er þessi: hversu mikil má geislun á tímaeiningu verða áður en hún verður skaðleg (það hefur alltaf verið ákveðin geislavirkni í náttúrunni og er jafnvel í banönum, sem innihalda geislavirkt kalíum).
Það þarf að afnema núverandi viðmið eftirlitsyfirvalda: "As low as Reasonably achievable"-ALARA, því að hún er ekki reist á neinum leyfilegum geislunarþröskuldi og eyðileggur alla möguleika kjarnorkuiðnaðarins til að geta keppt við eldsneytisiðnaðinn.
Yfirlýsingar stjórnmálamanna sem hæst gjalla eru því miður ekki í tengslum við raunverulega fjarhags-eða tæknigetu þjóðarinnar.
Bjarni Jónsson er með fingurinn á púlsinum. Skrifaði hann fleiri greinar og styttri hverja yrðu skrif hans aðgengilegri í orkumálum heimsins.
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 0
- Sl. sólarhring: 4
- Sl. viku: 37
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 31
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- Maí 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Ágúst 2021
- Júlí 2021
- Júní 2021
- Maí 2021
- Apríl 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Júlí 2020
- Júní 2020
- Maí 2020
- Apríl 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2020
- Janúar 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Ágúst 2017
- Júlí 2017
- Júní 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
Bloggvinir
- ghe13
- sigurjonth
- andrigeir
- annabjorghjartardottir
- ansigu
- agbjarn
- armannkr
- asdisol
- baldher
- h2o
- bjarnihardar
- dullur
- bjarnimax
- zippo
- westurfari
- gattin
- bryndisharalds
- davpal
- eggman
- greindur
- bjartsynisflokkurinn
- elfarlogi
- eeelle
- sunna2
- ea
- fuf
- fhg
- vidhorf
- gerdurpalma112
- gilsneggerz
- gudni-is
- lucas
- zumann
- gp
- gun
- topplistinn
- tilveran-i-esb
- skulablogg
- gustafskulason
- gustaf
- heimssyn
- diva73
- helgi-sigmunds
- hjaltisig
- minos
- hordurhalldorsson
- astromix
- fun
- jennystefania
- johanneliasson
- johannvegas
- jonatlikristjansson
- fiski
- jonl
- jonmagnusson
- jonlindal
- bassinn
- jonvalurjensson
- jvj
- thjodarskutan
- juliusbearsson
- katagunn
- kje
- ksh
- kristinn-karl
- kristinnp
- kristjan9
- loftslag
- altice
- ludvikjuliusson
- maggij
- magnusthor
- mathieu
- nielsfinsen
- omarbjarki
- huldumenn
- svarthamar
- pallvil
- peturmikli
- valdimarg
- ragnarb
- samstada-thjodar
- fullveldi
- siggus10
- sisi
- siggisig
- ziggi
- siggith
- stjornlagathing
- pandora
- spurs
- kleppari
- saethorhelgi
- tibsen
- ubk
- valdimarjohannesson
- skolli
- valurstef
- vilhjalmurarnason
- vey
- postdoc
- thjodarheidur
- icerock
- steinig
- thorsteinnhelgi
- icekeiko
Athugasemdir
Við verðum bara að fara að kynda með eldiviði og drífa bíla og skip þannig líka. Samkæmt loftslagskirkjunni er það í finu lagi. Timur og annað lifrænt er kallað Kolefnahlutlaust (carbon neutral) og því undanþegið.
Rökin fyrir þessari flokkun er sú að tré og gróður séu búin að bæta fyri allt með því að taka kolefni úr andrúmsloftinu.
Þetta verður ekki hægt að banna heldur, því með því dræpust íbúar þróunarlanda úr kulda og hungri. Tveir þriðju hlutar heimsins eiga allt sitt undir þessari frumstæðu orku.
það er því hægt að skipta út kolum fyrir timur. Kol eru úr sama efni, en líklega of aldurhnigin til að fá þessa undanþágu.
Svona spænuvitlaust er þetta í alvöru.
Jón Steinar Ragnarsson, 23.8.2021 kl. 17:04
Kolefnishlutleysi er hægt að ná þó ekki sé að öllu leiti skipt yfir í sjálfbæra orku. T.d. með skógrækt, repjuolíu og niðurdælingu co2. Og hann sleppir alveg að draga frá þann kostnað sem nú fer í kaup á jarðefnaeldsneyti og væntanlega mundi hverfa nær alveg. Ágiskanir, vafasamar framtíðarspár og samsæriskenningar eru svo settar í pottinn og klikkt út með hættuleysi kjarnorku og ósk um nokkur slík. Típískur málflutningur þeirra sem afneita áhrifum manna á veðurfar og umhverfi sitt.
Vagn (IP-tala skráð) 23.8.2021 kl. 17:24
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.