Leita í fréttum mbl.is

Brotasilfur

var spilað í RÚV fyrir hádegið.

Satt að segja er mjög fallið á þetta Silfur Egils án þess að það sé honum endilega að kenna. Áberandi var að flokkur fólksins og Miðflokkurinn voru fjarverandi og einhverjir fleiri smáflokkar líka.

Broslegt er í raun að sjá þennan grímuballsklædda próletarara Gunnar Smára Egilsson úr Arnaranesvillunni vera að þvæla fram og aftur um hluti sem hann hefur næsta lítið efnislegt  skynbragð á utan slagorð um stéttahatur. Þetta gamla auðvaldsþý með fjögur gjaldþrot á bakinu talar um það froðufellandi af vandlætingu að að lagfæra heilt þjóðfélag samkvæmt einhverjum gömlum formúlum sem fáir skilja nema þeir Sovétlærðu og Madúróaðdáendur.

Eitt sem allir nema Diljá áttu sameiginlegt var að sækja skuli  peninga til útgerðarinnar til að deila út í góðverkin. Enginn segir neitt um það hvernig eigi að fara að því að afla meiri tekna. Loftslagsvá  fær meiri athygli heldur en framleiðniaukning. 

Samfylking og Viðreisn forðast að nefna aðalmálin sín sem er afsal fullveldis landsins , innganga i ESB upptaka í Evru og innganga í Evrópuherinn væntanlega. Samfylkingin ætlar að leggja á stóreignaskatt til að gera góðverk fyrir handa völdum hópum. 

Eini snefill af viti sem bærist kemur frá Diljá Mist.Hún er á móti eignaskattinum eins og auðlegðarskattinum hjá Jóhönnu.  Hitt er eiginlega tóm froða sem ekki verður séð að neinu skili.

Það gleður mig framhjá þessu öllu ómálefnatengt er að Egill sjálfur er snyrtilega klæddur með slifsi sem er sannarlega upplyfting frá því sem sem oft áður var.

Þó að Kristrún Frostadóttir sé froðufellandi mælsk og eiginlega yfirkjaftar sjálfan Gunnar Smára sem sem ásakar Sjálfstæðisflokkinn um að hafa brotið niður tekjuöflunarkerfi ríkisins með skattaafsláttum til hinna ríku þá varð ég engu nær hvernig þetta fólk eða flokkar ætlar að skapa einhverjar lausnir sem almenningi gagnast á komandi tíð.Gunnar Smári  heimtar valdið tekið af auðvaldinu og líklega fengið sér til ráðstöfunar.

Þetta brotasilfur Egils og boðuð Sjálfstæðisflokksfóbía 3/4 fundarmanna hafði lítinn ljóma meðferðis fyrir hugann eða bjartssýni á kosningaúrslitin. 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (22.11.): 4
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 41
  • Frá upphafi: 3419714

Annað

  • Innlit í dag: 4
  • Innlit sl. viku: 35
  • Gestir í dag: 4
  • IP-tölur í dag: 4

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband