14.9.2021 | 14:24
Góð grein Ingibjargar
Gísladóttur um Loftslagsmálin.
"Var júlímánuður 2021 sá hlýjasti frá upphafi mælinga? Getur það verið? Allir helstu fjölmiðlar heims virtust sammála þeirri niðurstöðu IPCC en af því að við erum á sólarskeiði 25 og sérfræðingar NASA og fleiri höfðu spáð óvenju lítilli útgeislan sólar næstu tíu árin þá leyfi ég mér að efast.
Gervihnattastöðin í Huntsville, Alabama hefur mælt innrauða geislun frá jörðinni frá 1979 og nær að mæla næstum því alla jörðina, fyrir utan svæði næst pólunum, öfugt við hefðbundna mæla sem finnast helst á þéttbýlissvæðum. Það var vegna gagna frá stöðinni sem menn hættu að tala um hlýnun jarðar og fóru að tala um loftslagsbreytingar í staðinn því mælingar stöðvarinnar sýndu pásu frá 1998-2012 og viti menn, á þeim tiltölulega stutta tíma er þær mælingar hafa staðið yfir hafa margir júlímánuðir mælst heitari.
Sjá má nýjustu tölur hverju sinni (latest global temps) hjá Roy Spencer.
Með reglulegu millibili gera fjölmiðlar heims (sem flestir eru í eigu auðkýfinga) átak í því að sannfæra okkur um nauðsyn þess að grípa til róttækra aðgerða svo veröld okkar líði ekki undir lok sakir hamfarahlýnunar af mannavöldum. Það er fólk sem hefur takmarkaða þekkingu á loftslagsvísindum sem fræðir okkur. Fyrst varð það áberandi með mynd Als Gores, An Inconvenient Truth (2006), og gengu stórstjörnur á borð við Leonardo DiCaprio til liðs við hann. Graf er sýndi að hlýnun jarðar og CO2- magn í lofthjúpnum færi saman síðustu 1.000 árin var kynnt sem fullgild sönnun.
Ég samþykkti þessar hugmyndir um hlýnun jarðar af mannavöldum og las bækur um efnið, m.a. bók James Hansens, The Storms of My Grandchildren, en það var hann sem vitnaði fyrstur vísindamanna fyrir Bandaríkjaþingi og kom þar með lífi í loftslagsbaráttuna. Sama hvað ég las vildi dæmið ekki ganga upp. Samkvæmt James fylgdi hækkun CO2 hækkun á lofthita gegnum jarðsöguna en ekki öfugt og á grafið sem Al Gore sýndi vantaði bæði Landnámshlýskeiðið okkar og Litlu ísöldina sem gerði landið okkar nær óbyggilegt.
Ég las mér til um hvernig hokkíkylfugrafið hans Michaels Manns var tilkomið og sá að það byggðist á gögnum um trjávöxt, sem eru ekki örugg fræði, því þurrkar hafa áhrif á trjávöxt rétt eins og hitastig. Enn þann dag í dag hefur Mann ekki fengist til að veita fræðimönnum aðgang að rannsóknum sínum og í Climategate-hneykslinu kom í ljós að loftslagsvísindamenn eyddu frekar gögnum sínum en að veita aðgang að þeim. Menn áttu bara að trúa á þá og trúa þeim.
Ég las mér einnig til um IPCC og komst að því að Landnámshlýskeiðið og Litla ísöldin voru í skýrslu þess 1990 og talin ná yfir allan heiminn. Vísindamenn IPCC leggja ekki fram neinar sannanir, bara mismunandi spár, sem fjölmiðlar semja hræðsluáróður upp úr, og að baki þessu öllu standa peningamenn sem ætla sér að hagnast á grænu byltingunni, Kyoto-aflátssölunni og sektum vegna Parísarsamkomulagsins auk hugsjónamanna sem vilja koma kapítalismanum á kné og dreifa veraldlegum auði jafnar um heiminn.
Já, en þetta er á vegum SÞ segja sumir en Mannréttindaráðið (þar sem helstu mannréttindabrjótarnir ráða ríkjum) og WHO er það líka. Þar er við stjórnvölinn maður sem þaggaði niður kólerufaraldra í landi sínu og vildi gera þrjótinn Mugabe að góðgerðarsendiherra.
Vísindamenn eru ekki allir sammála um að hlýnun jarðar frá Litlu ísöld hafi eitthvað með CO2 að gera en það er reynt að þagga niður í þeim og gera þá tortryggilega sem leyfa sér að efast, rétt eins og í þeim sem leyfa sér að efast um að bólusetningar og örvunarskammtar séu eina leiðin til að fást við Kóvid 19. Jafnvel dr. Satoshi Ömura fær ekki að tjá sig um lyfið sem hann fékk Nóbelsverðlaunin fyrir að þróa. Okkur er sagt að niðurstaðan sé komin og hún sé endanleg. Slík hugsun er ekki vísindaleg, heldur í anda kaþólsku kirkjunnar á miðöldum skylt er að trúa á kenningar sem ekki má vefengja. Hvert er annars eðlilegt hitastig jarðarinnar?
Vita menn það nokkuð? Hefði ekki haldið áfram að hlýna eftir 1850 án viðbætts CO2? Er það öruggt að við séum ekki að styrkja auðugustu aðila heimsins vegna misskilinnar ábyrgðar á hækkuðum gildum CO2, sem reyndar valda því að allur gróður vex betur og jörðin grænkar, sem sjá má af gervitunglamyndum, og plöntur verða ekki eins viðkvæmar fyrir þurrki því þær missa ekki eins mikinn raka út um loftaugun í CO2-ríku umhverfi? James Hansen hafði áhyggjur af því að með stöðugt auknu magni CO2 myndi jörðin ofhitna og verða eins og Venus en ýmsir sérfræðingar mótmæla því; áhrif CO2 til hlýnunar séu lógaritmísks eðlis.
Nefna má William Happer prófessor við Princeton og með því að gúgla The Logarithmic Effect of Carbon Dioxide má sjá skýringamyndir á www.wattsupwiththat.com. Ekki hefur þó tekist að þagga niður í öllum.
Nýlega birtist í raajournal grein tuttugu og þriggja vísindamanna, þar á meðal Connolly-feðganna og Willies Soons, þar sem þeir veltu fyrir sér áhrifum sólarinnar á hitastig á norðurhveli og báru saman niðurstöður mismunandi rannsóknaaðferða. Þeir líta ekki svo á að málið sé útkljáð."
Sífellt fjölgar í athugunum hugsandi fólks sem vill ekki gleypa fullyrðingar loftslagskirkjunnar hráar. Enn frekar mega skattgreiðendur á Íslandi því fyrir sér til hvers þeir séu að þrengja mittisólar sínar þegar Kínverjar með alla sína milljarða ætla ekkert að gera um næstu ár til að draga úr sinni mengun.
Það er vel að hugsandi fólki eins og Ingibjörgu Gísladóttur sé ofboðið gagnrýnileysi kolefniskirkjunnar.
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 4
- Sl. sólarhring: 5
- Sl. viku: 41
- Frá upphafi: 3419714
Annað
- Innlit í dag: 4
- Innlit sl. viku: 35
- Gestir í dag: 4
- IP-tölur í dag: 4
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- Maí 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Ágúst 2021
- Júlí 2021
- Júní 2021
- Maí 2021
- Apríl 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Júlí 2020
- Júní 2020
- Maí 2020
- Apríl 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2020
- Janúar 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Ágúst 2017
- Júlí 2017
- Júní 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
Bloggvinir
- ghe13
- sigurjonth
- andrigeir
- annabjorghjartardottir
- ansigu
- agbjarn
- armannkr
- asdisol
- baldher
- h2o
- bjarnihardar
- dullur
- bjarnimax
- zippo
- westurfari
- gattin
- bryndisharalds
- davpal
- eggman
- greindur
- bjartsynisflokkurinn
- elfarlogi
- eeelle
- sunna2
- ea
- fuf
- fhg
- vidhorf
- gerdurpalma112
- gilsneggerz
- gudni-is
- lucas
- zumann
- gp
- gun
- topplistinn
- tilveran-i-esb
- skulablogg
- gustafskulason
- gustaf
- heimssyn
- diva73
- helgi-sigmunds
- hjaltisig
- minos
- hordurhalldorsson
- astromix
- fun
- jennystefania
- johanneliasson
- johannvegas
- jonatlikristjansson
- fiski
- jonl
- jonmagnusson
- jonlindal
- bassinn
- jonvalurjensson
- jvj
- thjodarskutan
- juliusbearsson
- katagunn
- kje
- ksh
- kristinn-karl
- kristinnp
- kristjan9
- loftslag
- altice
- ludvikjuliusson
- maggij
- magnusthor
- mathieu
- nielsfinsen
- omarbjarki
- huldumenn
- svarthamar
- pallvil
- peturmikli
- valdimarg
- ragnarb
- samstada-thjodar
- fullveldi
- siggus10
- sisi
- siggisig
- ziggi
- siggith
- stjornlagathing
- pandora
- spurs
- kleppari
- saethorhelgi
- tibsen
- ubk
- valdimarjohannesson
- skolli
- valurstef
- vilhjalmurarnason
- vey
- postdoc
- thjodarheidur
- icerock
- steinig
- thorsteinnhelgi
- icekeiko
Athugasemdir
Ég set alltaf fyrirvara við málflutning fólks sem handvelur ártöl og tímabil. Eðlilegast væri að velja tölur sem eru á heilum eða hálfum tug, 1995, 2000, 2005 o.s.frv og 5, 10, 15 ára tímabil. 1998 til 2012, undarlegt val, eru 14 ár.
Og þegar frum gögnin voru svo skoðuð reyndist pistill Ingibjargar vera vel framsett bull og vitleysa, rangfærslur og þvæla. Það gengur ábyggilega vel í marga sem njóta þess að láta blekkja sig og vilja bara þægilega sögu.
Vagn (IP-tala skráð) 14.9.2021 kl. 16:48
Við þurfum ekki á loftslagshlýnun að halda til þess að hraða orkuskiptum eins og við gerðum við húsahitun hér um árið þegar við hættum að mestu að nota kol og olíu til hitunar og notuðum jarðhitann í stað.
Næg ástæða liggur í því að nýta orkugjafa okkar eigin lands og losa okkur við gjaldeyriseyðandi mengandi og óendurnýjanlega orkugjafa á borð við olíu.
Ómar Ragnarsson, 14.9.2021 kl. 18:23
Þessum áróðri er reglulega hellt yfir fólk þegar enn ein loftslagsráðstefnan er á leiðinni, sem er nú á næstunni.
Enn er verið að kenna hlýnun fellibyli og skógarelda, þótt hvorugt sé algangara en áður. Færri hamfarir í raun, auk þess sem IPCC hefur ítrekað gefið út að þetta sé enginn faktor.
Endalaust er talað um mesta og stærsta þetta og hitt í fimmtíu ár eða sjötíu ár eða þá "frá því mælingar hófust", sem er öld eða svo.
Verst er þó logið með þögninni. (Lie by omission)
Jón Steinar Ragnarsson, 15.9.2021 kl. 07:30
Ekki orð í rökstuðningi frekar en oft áður frá Kerruunni heldur slagorð
Halldór Jónsson, 17.9.2021 kl. 14:47
Ég gef frat í orkuskipti og myndi fá mér dísilbíl.84 % af heildarorkunotkun jarðarbúa kemur úr jörðinni. Að ætla að búa til vetni með rafmagni til að brenna er hlægilegt
Halldór Jónsson, 17.9.2021 kl. 14:48
Þvílíkt bull er í Kerrunni
g set alltaf fyrirvara við málflutning fólks sem handvelur ártöl og tímabil. Eðlilegast væri að velja tölur sem eru á heilum eða hálfum tug, 1995, 2000, 2005 o.s.frv og 5, 10, 15 ára tímabil. 1998 til 2012, undarlegt val, eru 14 ár.
Og þegar frum gögnin voru svo skoðuð reyndist pistill Ingibjargar vera vel framsett bull og vitleysa, rangfærslur og þvæla. Það gengur ábyggilega vel í marga sem njóta þess að láta blekkja sig og vilja bara þægilega sögu.
Vagn (IP-tala skráð) 14.9.2021 kl. 16:48
Halldór Jónsson, 17.9.2021 kl. 15:00
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.