19.9.2021 | 10:49
Á að múra Ísland inni?
í afturhaldssömu tollabandalagi fárra ríkja gegn afganginum af veröldinni?
Hversvonar þröngsýni ríkir hjá þeim sem hæst tala um frjálslyndi þegar í raun er verið að tala um að reisa múra?
Eru Ole Bieltvedt, Þorsteinn Pálsson, Þorgerður Katrín og Logi Már orðnir boðberar víðsýninnar sem nær aðeins til 27 ríkja heimsins og einnar myntar? Sundurlauss ríkjabandalags sem virðist eiga erfitt með alla alþjóðlega ákvarðanatöku?
Páll Vilhjálmsson bloggakóngur veltir þessu fyrir sér:
"Samfylkingin og Viðreisn telja Íslendinga eiga meiri samleið með Evrópusambandinu en Bendaríkjunum og Bretlandi. Á milli ESB og enskumælandi þjóða ríkir stríðsástand, segir Telegraph.
Macron Frakklandsforseti talar um hníf í bakið og að Biden-stjórin í Washington fylgi Trump-stefnu í utanríkismálum.
Hvað er á seyði?
Jú, Bandaríkin, Bretland og Ástralía opinberuðu í vikunni samning sín á milli um uppbyggingu kafbátaflota til að verjast ágengni Kína. Samtímis riftu Ástralir samningi við Frakka sem ásamt Þjóðverjum ráða öllu í ESB.
ESB lítur á sig sem stórveldi á pari við Bandaríkin og Kína. Niðurlægingin í Ástralíu er til marks um að enskumælandi þjóðir telji ESB standa á brauðfótum.
Afturköllun Frakka á sendiherrum í Washington og Canberra er stórpólitísk yfirlýsing um að kalt stríð sé á milli Frakka/ESB annars vegar og hins vegar engilsaxa. Með því að kalla ekki sendiherrann heim frá London eru Frakkar að segja Breta hjálendu Bandaríkjanna.
ESB-sinnar á Íslandi, Samfylking og Viðreisn, eru útsendarar Brusselvaldsins. Atkvæði greidd þessum flokkum eru yfirlýsing um að Íslendingar ættu að slíta sig frá vinaþjóðum okkar, Bandaríkjamönnum og Bretum, og taka upp þykkjuna fyrir hönd Evrópusambandsins.
Á meðan pólitík á Íslandi snýst um blóðgjöf homma, fornöfn, dygðaskreytni á Hellisheiði og Thunberg-ráðuneyti gerast stórpólitískir atburðir á heimsvísu sem fara ofan garð og neðan.
En, auðvitað, þegar heilir níu stjórnmálaflokkar á Fróni ætla að breyta heiminum er ekki við því að búast að stóru málin þvælist fyrir þeim."
Af hverju skyldu Ástralir kaupa gamaldags dísilknúna kafbáta af Frökkum þegar kjarnorkuknúnir eru í boði? Er reiði Macrons ekki ýkt og vanstillt? Með hverjum standa Samfylkingarflokkarnir og Pírata hérna?
Á endilega að múra Ísland inni með þröngsýnum Frökkum og Þjóðverjum?
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 1
- Sl. sólarhring: 5
- Sl. viku: 38
- Frá upphafi: 3419711
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 32
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- Maí 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Ágúst 2021
- Júlí 2021
- Júní 2021
- Maí 2021
- Apríl 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Júlí 2020
- Júní 2020
- Maí 2020
- Apríl 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2020
- Janúar 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Ágúst 2017
- Júlí 2017
- Júní 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
Bloggvinir
- ghe13
- sigurjonth
- andrigeir
- annabjorghjartardottir
- ansigu
- agbjarn
- armannkr
- asdisol
- baldher
- h2o
- bjarnihardar
- dullur
- bjarnimax
- zippo
- westurfari
- gattin
- bryndisharalds
- davpal
- eggman
- greindur
- bjartsynisflokkurinn
- elfarlogi
- eeelle
- sunna2
- ea
- fuf
- fhg
- vidhorf
- gerdurpalma112
- gilsneggerz
- gudni-is
- lucas
- zumann
- gp
- gun
- topplistinn
- tilveran-i-esb
- skulablogg
- gustafskulason
- gustaf
- heimssyn
- diva73
- helgi-sigmunds
- hjaltisig
- minos
- hordurhalldorsson
- astromix
- fun
- jennystefania
- johanneliasson
- johannvegas
- jonatlikristjansson
- fiski
- jonl
- jonmagnusson
- jonlindal
- bassinn
- jonvalurjensson
- jvj
- thjodarskutan
- juliusbearsson
- katagunn
- kje
- ksh
- kristinn-karl
- kristinnp
- kristjan9
- loftslag
- altice
- ludvikjuliusson
- maggij
- magnusthor
- mathieu
- nielsfinsen
- omarbjarki
- huldumenn
- svarthamar
- pallvil
- peturmikli
- valdimarg
- ragnarb
- samstada-thjodar
- fullveldi
- siggus10
- sisi
- siggisig
- ziggi
- siggith
- stjornlagathing
- pandora
- spurs
- kleppari
- saethorhelgi
- tibsen
- ubk
- valdimarjohannesson
- skolli
- valurstef
- vilhjalmurarnason
- vey
- postdoc
- thjodarheidur
- icerock
- steinig
- thorsteinnhelgi
- icekeiko
Athugasemdir
Sæll Halldór,
Hinn leynilegi Bilderberg hópur sem kenndur er við hótel í Hollandi kom fyrst saman 1954, einn af upphafsmönnum hópsins var Joseph Retinger, og síðan kom þessi leynilegi hópur sér saman um að skapa Evrópska Efnahagsbandalagið. Árið 1957 var Rómarsáttmálinn svo undirritaður er skapaði grundvöllinn fyrir Evrópska Efnahagsbandalagið og arkitektinn á bakvið hann var enginn annar en Bilderbergerinn Joseph Retinger, síðan komu allar hugmyndir að Evrópusambandinu (ESB) frá Bilderberg hópnum, þeas. Maastricht sáttmálinn, Evrópska myntbandalagið og ásamt ESB Banka (The Global Economic Crisis eftir Michel Chossudovsky og Andrew G. Marshall, bls 267-269). Í gögnum sem opinberuð voru 2001 frá fimmta og sjötta áratugnum kemur fram að stórar fyrirtækjasamsteypur ásamt Ford og Rockefeller stofnunum hafi staðið fyrir fjárhagslegum stuðningi við að koma á Evrópu þingi og sameiginlegri mynt. Formaður Bilderbergs hópsins Etienne Davignon viðurkenndi í EU Observer 16. mars 2009, að Evran hafi verið rædd á fundum Bilderbergs allt frá miðjum fimmta áratugnum og menn hafi ákveðið að koma Evrunni á sem sameiginlegri mynt, en hún komst svo á 1998. Lissabon Sáttmálinn öðru nafni Stjórnarskrá ESB frá 2004 var reyndar í aðalatriðum rituð af Bilerbergernum og fyrrum forseta Frakklands Valéry Giscard d’Estaing er lýsti því yfir í Independent. Það er reyndar haft eftir honum, að Evrópuráðið breytti upprunalegu Stjórnarskrá ESB yfir í þennan Lissabon sáttmála með því að skipta öllu efninu niður í aðskilda kafla (Independent 30 okt. 2007). Þannig var reynt að koma öllu efninu inn aftur svo ESB fengi frekari völd yfir fullveldi aðildarríkja. Í þessum sáttmála kemur fram að ESB eigi að hafa forseta og ekki leið á löngu uns hann var skipaður á bakvið tjöldin því að eftir Bilberbergfundinn 2009 er Hermann Van Rumpuy sótti reyndar var hann svo skipaður sem forseti ESB. Fyrsta ræða hans sem skipaðs forseta ESB fjallaði um, að loftslagsráðstefnan í Kaupmannahöfn væri fyrsta skrefið fram á við í átt til Heimsríkisstjórnar. Það er hins vitað að menn eru ekki kosnir í þessa strengjabrúðu Framkvæmdarstjórn ESB heldur skipaðir á bakvið tjöldin, og mikið af þeim ef ekki allir hafa sótt Bilderberg fundi, eins og t.d. þá José Manuel Barroso og Peter Mandelson svo einhver nöfn séu nefnd. Þrátt fyrir að það muni kosta talsvert mikið að vera í ESB þá skiptir það Evrópusinnum hér engu máli. Því að aðalatriðið er bara að komast inn sama hvað svo hægt sé að byrja á því að greiða til báknsins og öllum þessum skipuðum strengjabrúðum elítunnar svo og skipuðum mönnum í ESB banka, ESB dómstóla og hvað eina. Lokatakmarkið er Fabianiskt Alræði, nú og það kæmi mér alls ekki á óvart að einhverjir erlendir útsendarar væru hér á landi til að leðbeina og styðja Samfylkinguna og Viðreisn.
Þrátt fyrir að vitað sé til þess að elítan sé á bakvið ESB þá er það almennt vitað að elítan heldur uppi ýmsum öðrum félögum og samtökum öðrum en Bilderberg hópnum eins og td. Trilateral Commission og Council of Foreign Relation (CFR) er vinna einnig að því koma á þessu Fabianiska Alræði. Gordon Brown fyrrum forsætisráðherra hefur reyndar talað um að umbreyta Sameinuðu þjóðunum, Alþjóðabankanum, Alþjóðagjaldeyris-sjóðinum og öllum G7 ríkjunum yfir í Nýja Heimsskipulagið (New World Order, NWO) og fleiri ESB sinnar eins og td. fyrrum forseti Frakklands Sarkozy karlinn hefur talað um að koma á Heimsríkisstjórn á sömu nótum og Gordon Brown karlinn. Gideon Rachman yfir Financial Times hefur reyndar óskað eftir því að ESB fyrirkomulagið færi yfir á heimsvísu ('go global').
Í fréttum frá því mars 2005 lýstu forsetar Mexico, Kanada og Bandaríkjanna yfir að koma á Norður Ameríku efnahags og öryggis samfélaginu 2010 (2001-2009.state.gov/p/wha/rls/prsrl/2005/69850.htm). Síðan gaf CFR út skýrsluna “Building a North American Community” en í henni kemur fram að unnið skuli að ‘dýpri aðlögun’ að myndun Norður Ameríku Samfélagsins (cfr.org/canada/building-north-american-community/p8102). Í Ameríku ráðinu (Council of the Americas) vinna stjórnarmenn stórfyrirtækja að þessari aðlögun. Á þessu að dæma þá virðist sem þetta lið stefni að þessu Norður Ameríku Sambandi (NAU) sem reyndar fyrrum seðlabankastjóri Kanada hefur mælt með. Í bókinni Union Now eftir Clearence K. Streit frá árinu 1939 er mælt með að koma á Trans- Altanshafsráði áður svo hægt sé að koma á Heimsríkisstjórn. Þegar þetta er skrifað er ekki vitað hvernig þetta á eftir að þróast með öll þessi sambönd Evrópusambandið, Afríkusambandið og Asíusambandið, en þann 20. apríl 2007 undirrituðu þau Angela Merkel kanslari Þýskalands og forseti Evrópuráðsins, Barroso forseti framkvæmdarstjórnar ESB og Bush karlinn fyrrum forseti samkomulag milli Bandaríkjanna og ESB um að koma á Trans-Altanshafs efnahagsaðlögun og ráði. Það má því segja að spádómur munksins Paisios frá Athos hafi komið fram með að Zíonista banka- og viðskipta elíta stjórni ESB á bakvið tjöldin. Vonandi kemst þessi Heimsríkisstjórn Nýja Heimsskipulag (NWO) aldrei á þar sem að banka- og fyrirtækja elítur eða fyrirtækjaismi (Corporatism) hefur öll völdin.
KV.
Þorsteinn Sch Thorsteinsson (IP-tala skráð) 19.9.2021 kl. 21:27
Takk fyrir þetta fróðlega yfirlit Þorsteinn Sch.hvað svo sem rétt er í því öllu?
Lokatakmarkið er Fabianiskt Alræði, nú og það kæmi mér alls ekki á óvart að einhverjir erlendir útsendarar væru hér á landi til að leðbeina og styðja Samfylkinguna og Viðreisn.
Halldór Jónsson, 20.9.2021 kl. 13:45
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.