Leita í fréttum mbl.is

Sæstrengurinn

 kemur í land í  Þorlákshöfn frá Írlandi. Eða svo segir Moggi og ekki lýgur hann. 

Það er gott að menn eru komnir að niðurstöðu. Þá er bara eftir að gylla hagkvæmnina fyrir almenningi og verður Biggi Ármanns varla í vandræðum með það eftir að byrjað er að tala um stórar vatnsvirkjanir á nýjan leik. Spurning í mínum haus er hvað Kata Jakobs  er tilbúin í í skiptum fyrir hálendisþjóðgarð og  nýja kokefnisskatta á auðvaldið?

Aðalatriðið er að sæstrengur tengir okkur við umheiminn og alþjóðlegt orkuverð og meiri mengandi stóriðju innanlands þar með afstýrt.

 

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

Þú gleymir að kaupverð orkunnar til okkar verður að stemma við það sem Evropubúar borga,það verður margfalt hærra en nú,svo oft er búið að klifa á því.

Helga Kristjánsdóttir, 10.10.2021 kl. 00:20

2 identicon

Sæstrengurinn kemur í land í Þorlákshöfn frá Írlandi og olíuhreinsistöð rís í Arnarfirði. Eða svo sagði Moggi og ekki lýgur hann. En spádómsgáfa Moggans er samt ekki hátt skrifuð.

Vagn (IP-tala skráð) 10.10.2021 kl. 00:23

3 Smámynd: Grímur Kjartansson

Það hefur varla farið fram hjá þér að EF lagður verður rafmagnssæstrengur (stærðin á honum skiptir engu máli) héðan til ESB þá eru við almenningur skylduð til að borga smakeppnisverð fyrir rafmagnið.
Fólk víða í Norgi hefur undanfarið verið að kvarta yfir okurverði sem þau þurfa að greiða fyrir rafmagnið. Jafnvel þau sem búa skammt frá vatnsaflsvirkjunum og spennuvirkjum sem er upphaf flutnings á rafmagninu niður til Brussel þar sem það er verðlagt.

Grímur Kjartansson, 10.10.2021 kl. 10:06

4 Smámynd: Jónatan Karlsson

Ertu að grínast, eða ertu orðinn umskiptingur?

Auðvitað á að virkja og rafvæða allar samgöngur, gagnaver, ræktun og auðvitað framleiðslu á léttmálmum og mögulega vetni, en að öðru leyti er allur svikaáróður í þágu fjórða orkupakkans og sæstrengja ógeðfelldur og vindmyllur eiga aldrei að fá að skemma ásýnd Íslands.

Jónatan Karlsson, 10.10.2021 kl. 10:14

5 Smámynd: Jónatan Karlsson

P.S.

Mér þykir það enn undir virðingu þinni að leyfa athugasemdum lesenda þinna (alla vega sumum) ekki að birtast fyrr en eftir dúk og disk, þegar fæstir eða enginn sér þær.

Þú villt kannski forðast neikvæða vibra og einungis jákvæðni eins og sumir?

Jónatan Karlsson, 10.10.2021 kl. 10:42

6 Smámynd: Halldór Jónsson

ér þykir það enn undir virðingu þinni að leyfa athugasemdum lesenda þinna (alla vega sumum) ekki að birtast fyrr en eftir dúk og disk, þegar fæstir eða enginn sér þær.

Þú villt kannski forðast neikvæða vibra og einungis jákvæðni eins og sumir?

Jónatan Karlsson, 10.10.2021 kl. 10:4

Mótmæli hástöfum Jónatan, það er þá bara þessvegna að ég hef trassað að slá þessu upp. Alls ekki viljandi tafir

Halldór Jónsson, 10.10.2021 kl. 22:35

7 identicon

Allt tal um sæstreng til ESB er, og var, blekking og bull eftir að Bretar, þeir sem mest hafa sóst eftir streng og viðræður farið fram við, sögðu sig úr ESB. Sæstrengur til Skotlands mundi ekki setja neinar kvaðir á verð hérlendis. ESB reglur gilda ekki um þau viðskipti. En það vissu náttúrulega allir sem vildu vita þegar skrifað var undir þriðja orkupakkann. Og að hann væri bara merkingarlaust plagg meðan hagstæðari kostir stæðu til boða og enginn áhugi á sölu til ESB landa. En eins og Sigmundur segir "Betra er að veifa röngu tré en öngu þegar sverta skal ESB og skora prik", og skynsemi þjóðarinnar rís ekki hærra en svo að margir trúa. Lýðskrum og populismi virkar á ótrúlega marga.

Vagn (IP-tala skráð) 12.10.2021 kl. 02:09

8 identicon

Og fyrir þá sem ekki þekkja annað en það sem sumir sögðu um orkusamninginn,: Ef lagður verður sæstrengur héðan til ESB þá eru það heildsalarnir sem allir fá rafmagnið á sama verði frá sama framleiðenda, og ekkert endilega markaðsverði. Aðrir framleiðendur ákveða sín verð til sinna heildsala, og þurfa ekkert að miða sig við þann sem selur úr landi á hæsta verði sem þar býðst.

Heildsöluverð Landsvirkjunar er ákvörðun Landsvirkjunar, sama hvort þeir noti núverandi viðmið eða ákveði á morgun að nota meðal heildsöluverð í ESB sem viðmið eða eitthvað annað. Engan rafstreng hefur nokkurn tíman þurft til og rafstrengur breytir þar engu. Nema því að heildsölum fjölgar eitthvað sem vilja glaðir borga meira en núverandi verð. Og ef Landsvirkjun selur þeim allt sitt rafmagn, 100% af öllu rafmagni sem Landsvirkjun framleiðir, nægir það til að fullnægja um 10% af raforkuþörf Skotlands (til að setja stærð okkar og hvað við höfum að bjóða í samhengi).

Noregur er ekki samanburðarhæft vegna þess að rafmagnsverð þar fer meira eftir því hvort búið er í þéttbýli eða landsbyggð, iðnaðar eða landbúnaðarsvæði, fiskveiði eða verslunarbæ, kuldanum fyrir norðan eða ylnum sunnar. Rafmagnsverð hefur verið umkvörtunarefni í Noregi lengur en ESB hefur verið til og skýrist aðallega af skattlagningu sem stýrist af byggðarsjónarmiðum.

Og kaup og sala Norðmanna á rafmagni eru meira í ætt við skipti. Norðmenn fá rafmagn þegar notkun minnkar í ESB og ESB fær rafmagn þegar notkun minnkar í Noregi. Þannig jafnast framleiðsla þeirra orkuvera sem tengjast þeim skiptum og ekki er eins mikið um að þau þurfi að framleiða meira en markaðir kalli á. Túrbínur snúast í Noregi og lýsa upp Varsjá þó Norðmenn sofi. Og kjarnorkuver í Frakklandi elda grauta og steikja fisk í Noregi meðan Þjóðverjar lyggja á meltunni. Og verðin eru ekki ákveðin í Brussel frekar en verð á kartöflum, bensíni eða bjór.

Vagn (IP-tala skráð) 12.10.2021 kl. 03:32

9 Smámynd: Halldór Jónsson

Keran kemur mér enn á óvart fyrir að vita meira en maður býst við,Það var gagnlegt að fá þetta.

Halldór Jónsson, 12.10.2021 kl. 13:17

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (22.11.): 4
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 41
  • Frá upphafi: 3419714

Annað

  • Innlit í dag: 4
  • Innlit sl. viku: 35
  • Gestir í dag: 4
  • IP-tölur í dag: 4

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband