18.11.2021 | 11:11
Það hlaut að hafa verið eitthvað
sem lét mig kjósa Þorstein Pálsson ítrekað á sínum tíma.Jafnvel á móti Davíð í eitt sinn.
Þorsteinn skrifar snilldargrein í málgagn ESB í dag af því sem honum finnst vera Kögunarhóll en mér frekar malargryfja sem maður spólar í.
Þar sýnir hann samt hvað hann er ennþá fær um að gera í málflutningi sínum þó málstaðurinn vondur sé.
Þessi grein er svohljóðandi:
"Straumur vatnsfalla getur breyst frá einum tíma til annars. Stundum færist þungi straumsins frá öðrum bakka yfir á hinn. Breytingar af því tagi geta haft mikil áhrif á umhverfið.
Ég minnist samtala á bökkum Markarfljóts við bændur í Landeyjum og undan Eyjafjöllum. Þeir þekktu þessa miklu krafta náttúrunnar, sem brutu niður gróið land og eyðilögðu landnytjar.
Flökt eða vísir að öðru meira?
Allir vildu draga úr sveiflum straumsins. Bændurnir vildu stöðugleika. Þeir sem bjuggu austan megin gátu að vísu verið rólegir meðan fljótið djöflaðist vestan megin. En þeir vissu að eftir einhverja áratugi myndi straumurinn sveiflast yfir á bakkann þeirra megin. Þess vegna höfðu allir sömu sýn.
Oftast er erfitt að greina fyrstu vísa að slíkum breytingum. Lítið frávik getur verið flökt, en líka upphaf að meiri varanlegum breytingum.
Þessi gömlu samtöl við bændur um lögmál Markarfljóts komu upp í hugann síðasta laugardag þegar ég las sameiginlega grein Árna Sigurjónssonar formanns Samtaka iðnaðarins og Friðriks Jónssonar formanns BHM í Morgunblaðinu.
Grein þeirra ber yfirskriftina: Sókn nýsköpunar og hugverkaiðnaðar þar getum við verið sammála. Hún virkar í fyrstu eins og klisja úr kosningabaráttunni. En það er tvennt í greininni, sem bendir til þess að hún gæti verið eitthvað meira en klisja eða flökt í straumfalli dægurumræðu, jafnvel vísir að öðru meira.
Greining vandans
Fyrra atriðið er sameiginleg sýn þeirra á eðli efnahagsvandans. Þeir byrja greinina á að skilgreina kjarna hans á mjög einfaldan og skýran hátt:
n Á þessari öld hefur íslenska hagkerfið sveiflast þrisvar sinnum meira en Evrópulöndin að meðaltali.
n Ísland hefur auk þess gengið í gegnum mun dýpri og langvinnari efnahagslægðir á síðustu 12 árum, en þau lönd sem við berum okkur helst saman við.
n Nú, á árinu 2021, benda nýjustu spár greiningaraðila til þess að Ísland nái framleiðslustigi fyrir heimsfaraldur um ári á eftir helstu viðskiptalöndum.
Okkar hagkerfi sveiflast margfalt meira en önnur, sem við jöfnum okkur til. Kreppurnar verða dýpri. Og við erum lengur en aðrar þjóðir að ná okkur á strik. Erum við sátt við þetta?
Þögnin rofin
Annað er að báðir eru höfundar nýir forystumenn á vinnumarkaði. Þeir virðast báðir skilja að grundvallarbreytinga er þörf og eru líklegir til að hafa metnað til þess að sjá þær gerast.
Síðastliðin fimm ár hafa forystumenn SA og ASÍ haft mjög lítinn áhuga á að ræða grundvallarviðfangsefnið varðandi sveiflurnar í þjóðarbúskapnum. Nú segja þessir tveir nýju forystumenn: Þar getum við verið sammála.
Sameiginleg sýn á hindrunum, sem ryðja þurfti úr vegi, var kjarninn í þjóðarsáttinni fyrir þrjátíu árum. Þessi hugsun var komin aftur á flug en var svo kæfð á ný fyrir nokkrum árum. Skammtíma sérhagsmunir hafa trúlega ráðið því beggja vegna.
Pólitíkin vildi líka losna við umræður um grundvallarviðfangsefni. Síðustu fjögur ár hefur hún verið of veik til að takast á við þau.
Þessir tveir nýju forystumenn á vinnumarkaðnum eru ekki að segja eitthvað, sem enginn hefur sagt áður. En þeir eru að endurvekja sameiginlega sýn á vanda, sem legið hefur í þagnargildi um hríð.
Einn græðir annar tapar
Það er margt líkt með kröftum stórfljótsins og lögmálum efnahagslífsins.
Rétt eins og straumskipti fljótsins brýtur nytjaland til skiptis beggja vegna, valda sveiflur efnahagslífsins því að einn hluti hagkerfisins græðir í skamman tíma meðan annar tapar. Launþegar í einn tíma og fyrirtækin í annan. Svo snúast leikar við.
Það vantar þá sem tala af hyggindum bændanna við Markarfljót. Grein formanna SI og BHM er tilraun til að fylla upp í tómarúm. Svo reynir á úthaldið, og ekki síður á hitt, að fá fleiri til að ganga með.
Ríkisstjórnin tekur örugglega undir fyrirsögn þeirra félaga í nýrri stefnuyfirlýsingu. Hún hefur hins vegar í fjögur ár verið í afneitun gagnvart grundvallarviðfangsefninu. Hætt er því við að alvara greinarinnar verði ekki nefnd.
Það er því brekka fram undan."
Það hlaut að hafa verið eitthvað við hann Þorstein Pálsson sem getur skrifað svona ennþá.
Hvað er það þá sem okkur að skilur?
Jú, ég held að við höfum enn snertiflöt.Við viljum báðir stöðugleika á gjaldeyrismarkaði. Nema það, að Þorsteinn vill fórna of miklu að mínum smekk fyrir hann. Hann einblínir á að Evra sveiflist minna en krónan að jafnaði.
Fullveldið megi víkja fyrir verðlagi á gjaldeyrismarkaði.
En af hverju bara Evra spyr ég?
En eru allar sveiflur vondar?
2009 og það sem á eftir kom?
Við vitum báðir til hvers skyndilegar verðhækkanir leiða. Til dæmis bara á olíu. Hún hefur áhrif á kjör allra um borð í bátnum.
Sjómannaverkfall og skattahækkanir líka. Hækkun á auðlinda(markaðs)gjaldi?
Getum við ekki reiknað aftur í tímann hvenær taxtahækkun tapaðist í verðbólgu eða gengisfalli? Er ekki stundum hægt að skipta á gengisfalli og verðlækkun?
Erum við ekki a upplifa breytingar á gengi Evrunnar ítrekað til blessunar eða bölvunar fyrir verðlagið í landinu.
Til dæmis í verði á göturum eins og ritstjórinn lýsir í leiðaranum? Þar er eins og hann hafi aldrei heyrt orðið Amazon sem selur líka gatara frá Leitz eða jafngóða?
Hvort viljum við heldur að stóraukið aðflæði ferðamanna frá Ameríku færi Íslendingum bullandi eftirspurn eða hér ríki hollenskt atvinnuleysi borgað í Evrum?
Sagði ekki Tómas að eiginlega væri ekkert bratt, aðeins mismunandi flatt?
Það hlaut að hafa verið eitthvað sem tengdi okkur Þorstein á sinni tíð eins og snefill af skynsemi hér og þar en kannski ekki allsstaðar?
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 0
- Sl. sólarhring: 4
- Sl. viku: 37
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 31
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- Maí 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Ágúst 2021
- Júlí 2021
- Júní 2021
- Maí 2021
- Apríl 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Júlí 2020
- Júní 2020
- Maí 2020
- Apríl 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2020
- Janúar 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Ágúst 2017
- Júlí 2017
- Júní 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
Bloggvinir
- ghe13
- sigurjonth
- andrigeir
- annabjorghjartardottir
- ansigu
- agbjarn
- armannkr
- asdisol
- baldher
- h2o
- bjarnihardar
- dullur
- bjarnimax
- zippo
- westurfari
- gattin
- bryndisharalds
- davpal
- eggman
- greindur
- bjartsynisflokkurinn
- elfarlogi
- eeelle
- sunna2
- ea
- fuf
- fhg
- vidhorf
- gerdurpalma112
- gilsneggerz
- gudni-is
- lucas
- zumann
- gp
- gun
- topplistinn
- tilveran-i-esb
- skulablogg
- gustafskulason
- gustaf
- heimssyn
- diva73
- helgi-sigmunds
- hjaltisig
- minos
- hordurhalldorsson
- astromix
- fun
- jennystefania
- johanneliasson
- johannvegas
- jonatlikristjansson
- fiski
- jonl
- jonmagnusson
- jonlindal
- bassinn
- jonvalurjensson
- jvj
- thjodarskutan
- juliusbearsson
- katagunn
- kje
- ksh
- kristinn-karl
- kristinnp
- kristjan9
- loftslag
- altice
- ludvikjuliusson
- maggij
- magnusthor
- mathieu
- nielsfinsen
- omarbjarki
- huldumenn
- svarthamar
- pallvil
- peturmikli
- valdimarg
- ragnarb
- samstada-thjodar
- fullveldi
- siggus10
- sisi
- siggisig
- ziggi
- siggith
- stjornlagathing
- pandora
- spurs
- kleppari
- saethorhelgi
- tibsen
- ubk
- valdimarjohannesson
- skolli
- valurstef
- vilhjalmurarnason
- vey
- postdoc
- thjodarheidur
- icerock
- steinig
- thorsteinnhelgi
- icekeiko
Athugasemdir
Blessaður Halldór.
Þessi snefil að skynsemi sem þú vísar í, átti sér ekki sömu tímalínu og atlögu Davíðs að Þorsteini.
Réttlæting þín að hafa kosið Þorstein er yfirklór, það er eins og að þú hafir haldið að Davíð hafi ekki haft stefnu.
Það byrjaði sem sagt snemma Halldór minn að þú yrðir svag fyrir föðurlandssvikum frjálshyggjunnar, þar sem öll rök lágu í ESB.
Nema þú spáðir ekki í það, Steini lofaði þér gróða á kostnað almennings, og fyrst þú játar, þá skaltu líka játa aðför þína að sjálfstæðisstefnunni, að Jóni Þorlákssyni, Óla Thors, Jóhanni og Geir, ert þú virkilega orðinn svo ósamkvæmur sjálfum þér Halldór, að þú munir ekki skítaatlögu frjálshyggju ESB að Geir Hallgrímssyni, einum að ykkar merkilegasta stjórnmálamanni??
Steini Páls og þú Halldór, engin tilraun verður gerð með ykkur báða á sama augnabliki, þegar ykkur er blandað saman, þá springur tilraunaglasið.
Þér til vorkunnar, þá vissir þú það ekki þá.
Svo skaltu virða Davíð.
Kveðja að austan,
Ómar Geirsson, 18.11.2021 kl. 16:32
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.