18.11.2021 | 13:35
H.....og harkan sex!
eru jafngildi svara Ragnars Þórs og verkalýðsforkólfanna við hagstjórnartilraunum seðlabankastjórans Ágeirs.
Svo segir á RÚV:
Mikil áhersla var lögð á lækkun stýrivaxta við gerð kjarasamninga á almennum vinnumarkaði fyrir tveimur árum. Samningarnir renna út í haust og viðbúið að hækkanir síðustu mánaða hafi áhrif á komandi kjaraviðræður.
Drífa Snædal forseti Alþýðusambandsins segir að vaxtahækkunin í morgun þurrki út kjarasamningsbundnar launahækkanir.
Það er ágætt að tala mjög skýrt, að Seðlabankinn tekur þá ákvörðun í morgun að hafa af launafólki svona eins og eina umsamda launahækkun á kjarasamningstímabilinu. Það er mjög alvarlegt mál. Seðlabankinn fór mjög bratt í að lækka vexti, gaf væntingar um það að fólk gæti endurfjármagnað og gæti nýtt aukið svigrúm þannig. Síðan hefur fólk gert ráðstafanir út frá því. Hugsanlega endurfjármagnað til þess að koma til móts við tekjutap út af atvinnuleysi eða einhverju slíku. En síðan þessar bröttu vaxtahækkanir sem við erum að sjá núna munu að sjálfsögðu kalla á það að við förum með töluvert meiri hörku inn í kjarasamningana næstu en við var búist, segir Drífa.
Friðrik Jónsson formaður BHM telur að þessi hækkun bitni verst á ungu fólki og dugi lítið til að vinna gegn verðbólgu.
Við erum í hagkerfi sem er mjög viðkvæmt fyrir vaxtahækkunum. Þetta mun skila sér beint út í verðlag má gera ráð fyrir. Þorri fyrirtækja á Íslandi eru lítil og meðalstór sem eru með háa skuldsetningu þannig um leið og þú hækkar þeirra lánskostnað þá ertu að hækka rekstrarkostnað og hann skilar sér út í verðlag. Ég hef áhyggjur af því hvaða áhrif þetta hefur á ungt fólk sem er skuldsett og tiltölulega nýkomið út á fasteignamarkað. Þetta er ekki jákvætt inn í kjaraumhverfið, segir Friðrik.
Seðlabankinn hækkaði í morgun stýrivexti um 0,5 prósentustig, upp í tvö prósent. Þetta er fjórða stýrivaxtahækkunin frá því í maí. Í yfirlýsingu peningastefnunefndar bankans kemur fram að verðbólguhorfur hafi versnað meðal annars út af auknum launakostnaði.
Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri sagði í hádegisfréttum útvarps að launahækkanir á almennum vinnumarkaði væru ekki í takt við efnahagslegan veruleika.
Ragnar Þór Ingólfsson formaður VR gagnrýnir þennan málflutning.
Hann er einfaldlega ekki boðlegur, að reyna að skella skuldinni á aðra fyrir eigin mistök og í rauninni þá ábyrgð sem að seðlabankastjóri hefur, og Seðlabankinn sem ber ábyrgð á því að halda hér verðstöðugleika en hefur algjörlega brugðist hlutverki sínu og ætlar núna að fara að skella skuldinni á vinnandi fólk. Hér er verið að keyra upp meðal annars stýrivexti og hækka vexti út af ytri áhrifum. Út af hrávöruverðshækkunum, olíuverði og ýmsum öðrum þáttum sem stýrivaxtahækkanir hafa ekkert nema verri áhrif á, segir Ragnar.
Hann segir að bankinn hafi ekki nýtt sín tól og tæki til að bregðast við miklum hækkunum á fasteignamarkaði þegar vaxtalækkunarferlið hófst á sínum tíma. Þetta hafi haft mikil áhrif á verðbólguþróun.
Seðlabankinn hafði öll þau tól til þess að bregðast við þessu ástandi sem hann er núna að kenna verkalýðshreyfingunni um, segir Ragnar.
Hann segir viðbúið að húsaleiga og afborganir af fasteignalánum hækki á komandi mánuðum, jafnvel um tugi þúsunda króna á mánuði.
Við munum sækja hverja einustu krónu sem er búið að leggja núna á okkar félagsmenn í næstu kjarasamningum. Það eru skilaboðin og það er svar okkar við þessum endalausu hótunum sem við erum að fá frá Seðlabankanum og seðlabankastjóra, segir Ragnar."
Hvað skyldi hann gera ef hann réði hér öllu ? Lækka vexti og hækka kaupið?
Ragnar Þór er líklega hagspekingur á heimsmælikvarða og ekki klikkar klappliðið að baki honum. Þetta er allt svo gegnsósa af góðmennsku og greiðasemi við unga fólkið að það má ekkert vera að því að hugsa um eigin hag.
En að hugsa um unga fólkið og hvernig verðbólgan fer með það er en anden sag. Unga fólkið er ekki búið að borga upp lánin sín eins og þetta gamla sett sem stjórnar kröfugerðinni af tómri fórnfýsi. Bara ekki að beita skynsemi eða reynslunni á neitt.
H....og harkan sex !
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 15:05 | Facebook
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 0
- Sl. sólarhring: 4
- Sl. viku: 37
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 31
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- Maí 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Ágúst 2021
- Júlí 2021
- Júní 2021
- Maí 2021
- Apríl 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Júlí 2020
- Júní 2020
- Maí 2020
- Apríl 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2020
- Janúar 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Ágúst 2017
- Júlí 2017
- Júní 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
Bloggvinir
- ghe13
- sigurjonth
- andrigeir
- annabjorghjartardottir
- ansigu
- agbjarn
- armannkr
- asdisol
- baldher
- h2o
- bjarnihardar
- dullur
- bjarnimax
- zippo
- westurfari
- gattin
- bryndisharalds
- davpal
- eggman
- greindur
- bjartsynisflokkurinn
- elfarlogi
- eeelle
- sunna2
- ea
- fuf
- fhg
- vidhorf
- gerdurpalma112
- gilsneggerz
- gudni-is
- lucas
- zumann
- gp
- gun
- topplistinn
- tilveran-i-esb
- skulablogg
- gustafskulason
- gustaf
- heimssyn
- diva73
- helgi-sigmunds
- hjaltisig
- minos
- hordurhalldorsson
- astromix
- fun
- jennystefania
- johanneliasson
- johannvegas
- jonatlikristjansson
- fiski
- jonl
- jonmagnusson
- jonlindal
- bassinn
- jonvalurjensson
- jvj
- thjodarskutan
- juliusbearsson
- katagunn
- kje
- ksh
- kristinn-karl
- kristinnp
- kristjan9
- loftslag
- altice
- ludvikjuliusson
- maggij
- magnusthor
- mathieu
- nielsfinsen
- omarbjarki
- huldumenn
- svarthamar
- pallvil
- peturmikli
- valdimarg
- ragnarb
- samstada-thjodar
- fullveldi
- siggus10
- sisi
- siggisig
- ziggi
- siggith
- stjornlagathing
- pandora
- spurs
- kleppari
- saethorhelgi
- tibsen
- ubk
- valdimarjohannesson
- skolli
- valurstef
- vilhjalmurarnason
- vey
- postdoc
- thjodarheidur
- icerock
- steinig
- thorsteinnhelgi
- icekeiko
Athugasemdir
Hver er afstaða Ragnars Þórs til ávöxtunar lífeyrssjóðs Verslunarmanna? Vill hann hana bara niður fyrir núll eða upp á við?
Eða er hann bara glamrari fyrir eigin reikning?
Halldór Jónsson, 19.11.2021 kl. 19:36
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.