Leita í fréttum mbl.is

Vandamál fjölmenningarinnar

"Enn eitt morðið í indó-kanadíska samfélaginu

Fyrir rúmri viku var skólastjóri hér á Vancouver-svæðinu drepinn á heimili sínu. Eiginmaður hennar gaf þá skýringu að þrír menn hefðu brotist inn á heimili þeirra hjóna, lamið sig og drepið konuna. Í rúma viku hefur lögreglan leitað að mönnunum þremur en ekkert virðist styðja sögu eiginmannsins. Fyrir nokkrum dögum komu svo fram upplýsingar um að fyrir nokkrum árum hafi eiginmaðurinn ráðist á þáverandi fyrrum kærustu sína á heimili hennar svo varð að setja á hann nálgunarbann. Í dag var eiginmaðurinn svo handtekinn og er nú sá eini sem grunaður er um ódæðið. Þau hjón höfðu verið gift í viku.

Þetta er enn eitt morðið innan indó-kanadíska samfélagsins. Í apríl var 32 ára gamall Vancouver maður ákærður fyrir morðið á konu sinni, í febrúar fannst 33 ára kona stungin til bana á heimili sínu í Surrey og lítil dóttir hennar sat hjá. Enginn hefur verið ásakaður í því máli. 29. október var enn ein kona drepinn og eiginmaður hennar hefur verið ákærður um annarrar gráðu morð. Sex dögum áður fannst ófrísk kona brennd í Suður Delta. Eiginmaður hennar hefur verið ákærður fyrir morðið. Og 19. október í Port Coquitlam skaut maður konu sína í andlitið og sjálfan sig á eftir. Konan lifði af árásina en er nú blind. Í öllum tilfellum er hinn grunaði indó-kanadískur. Flestar konurnar eru það líka en í þessu síðasta tilfelli var eiginkonan múslimi. 

Það er ekkert skrítið þótt maður hafi lítinn áhuga á því að giftast inn í sum samfélög. Það hefur ekkert með rasisma að gera heldur hreinlega almenna skynsemi. "


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Bjarni Kjartansson

Sjáðu nú til.

Ofurbjartsýni, sem jaðrar við trúgirni og heimsku, er helsti meðreiaðrsveinn fjölmenningartrúarbragðanna. 

Þetta vita Danir nú.

Þetta vita Bretar nú.

Þetta vita Norðmenn nú.

Þetta vitta Þjóðverjar nú (þó svo þeir vilji ekkert viðurkenna það)

Frakkar viðurkenna vandann og jafnvel Spánverjar.

Ítalir eru í stórfelldum vandræðum og svona má auðvitað lengi telja.  Fer ekkert út í stöðuna í BNA.

Semsagt, fljótum sofandi að feigðarósi og höldum kjafti, líkt og ætlaste r til af okkur.

Það er ekki pólitískur rétttrúnaður, að andæfa í þessum málum.  Sjáðu bara viðbrögð Íhaldsins fyrir síðustu kosningar.  Mann velgir af því.  Þaðe r eins og menn kjósi að loka kyrfilega augunum fyrir öllu, sem ekki passar inn í fyrirfram ákveðna staðlaða sýn á ,,góðmennsku".

Miðbæjaríhaldið

Bjarni Kjartansson, 4.9.2007 kl. 09:20

2 Smámynd: Halldór Jónsson

Já satt segirðu Bjarni, þú skilur þessi mál talsvert  betur en flugvallarmálið að minnsta kosti.

Hver ræður ferðinni í þessum innflytjendamálum Íslendinga.? Er það einhver maður útí bæ ? Það sverja allir pólitíkusar af sér ábyrgð . Það séu einhverjir aðrir sem hafi ákveðið þetta. 

Halldór Jónsson, 4.9.2007 kl. 10:07

3 Smámynd: Sigurður Þórðarson

Þið eruð ágætir félagarnir og ég er svo sem innilega sammála ykkur.  Vissulega er þörf á hugarfarsbreytingu en varðandi spurninguna Halldór, þá held ég að Brussel ráðu miklu um þetta eins og svo margt annað.

Sigurður Þórðarson, 4.9.2007 kl. 23:36

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.3.): 0
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 43
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 40
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband