20.2.2008 | 14:54
Össur og framtíð Gísla Marteins
Það er ástæða fyrir vini Reykjavíkurflugvallar að taka eftir því, að Össur Skarphéðinsson spáir heldur illa fyrir pólitískri framtíð Gísla Marteins.Gísli er í flokki höfuðandstæðinga vallarins þannig að það er ástæða til þess að lesa hvað Össur segir. Mér finnst ástæða til að skeyta pistli Össurar inní hér á síðuna fyrir þá sem ekki lesa kannske Össur :
Össur skrifar:
"Byltingin étur börnin sín. Það sannast á Gísla Marteini. Hann var í lykilstöðu þegar hann hóf byltinguna gegn Vilhjálmi Þ. Vilhjálmssyni. Gísli var nýbúinn að fá fleiri þúsund aktvæði í slag um efsta sætið við Villa – og var sannarlega hinn smurði kandídat heimastjórnarvængsins til íhaldsþinga. Topparnir elskuðu hann, og litu á frægt sjónvarpsandlit sem tryggingu um atkvæði og vissa greind götustráksins.
Strax þegar í fyrsta meirihlutann kom fóru að vakna efasemdir um Gísla. Hann átti erfitt með að tjá sig æsingalaust, var linur í þáttum, og í starfinu sjálfu fékk hann undarlega djúpan áhuga á að drepa máva á tjörninni.Hvað lá eftir Gísla Martein þegar kom að atburðarrásinni kringum REI? Ekkert, nema hræin af mávunum sem hann lét embættismenn skjóta og stillti sér svo upp hjá einsog Rambó sjálfur. Þetta verkaði hálfhjákátlegt og á þessu stigi var stjarna hans þegar tekin að hníga. Æstur gjallandi í stað glaðrar raddar sjónvarpsbarnsins, tindrandi augu spámannsins sem var eins og að koma úr langri föstu utan af eyðimörkinni – þetta varð að myndinni af hinum unga stjórnmálamanni, sem minnir í dag óþægilega á framkomu nýja borgarstjórans. Það rímaði alls ekki við myndina af hinum sterka unga leiðtoga sem maskinan reyndi að breiða út. Ég sá þetta sjálfur í þáttum, þar sem við sátum og Gísli var einsog festur upp á þráð.REI málið hamfletti hann svo einsog lundann, sem sjávarúvegsráðherrann veiðir árvisst án leyfis. Allir vissu, að hann var operatörinn í árásunum á Vilhjálm, beinlínis til að klekkja á manni sem sat í stöðu, sem hann girntist. Gísli lék rulluna svo illa, að engum duldist að hann var maðurinn sem stýrði aðförinni að borgarstjóranum, missti atburðarrásina úr höndum sér af pólitískum barnaskap, og var því gerður ábyrgur fyrir missi meirihlutans og mestu niðurlægingu Sjálfstæðisflokksins í áratugi..Í flokknum er honum kennt um ófarir flokksins, auk Villa sjálfs. Það kom augljóslega fram í könnun Capacents í kvöld, sem var í senn krýning Hönnu Birnu og pólitísk fall Gísla Marteins.Mér er til efs að hann fari aftur í prófkjör. Asnaðist hann til þess er líklegt að hann fái mjög veika kosninga, og endi sem liðið lík í pólitísku tilliti. Ég dreg því þá ályktun af þróun mála í borginni, að Gísli sé eitt þeirra tveggja fórnarlamba sem liggja í slóð REI. Hitt er Vilhjálmur sjálfur - amk. einsog sakir standa.Tragikómedían í atburðarrásinni er sú, að hinn örvumprúði bardagamaður sem ætlaði reka Vilhjálm Þ. Vilhjálmsson ofan ætternisstapa, og taka þá orkubræður Hjörleif Kvaran og Guðmund Þóróddsson í bókstaflegt slátur – er sjálfur fyrsta vegna fórnarlamb REI málsins. Eftir könnunina í kvöld er ferill Gísla Marteins í raun búinn. Hann á engan séns í leiðtogasætið, og fær að híma í nefndum fram að prófkjöri, sem hann verður varla svo vitlaus að fara í til þess eins að hrynja niður listans í stöðu hins dauða hross sem allir munu beita svipu sinni og pískum á. Gísli Marteinn er búinn sem stjórnmálamaður af stærð, meðan Hanna Birna er að vaxa upp í verulega öflugan stjórnmálamann, og mun auðvitað taka sviðið.Og meðan Villi þraukar sem borgarfulltrúi – sem ég vona hann geri – er útilokað að setja byssuna á Hjörleif og Guðmund, hversu hrokafullir þeir kunna að hafa verið gagnvart særðu stolti Júróvisjónstjörnurnar. Það er einfaldlega ekki hægt að reka þá ef enginn borgarfulltrúi axlar ábyrgð með svipuðum hætti og Björn Ingi, sem endurheimti æru sína.Hinn grátlegi gamanleikur atburðarrásarinnar er sá, að maðurinn sem startaði henni og ætlaði að láta hana lyft sér til æðstu metorða í borginni – þvi auðvitað var plott Gísla Marteins að veikja Villa nóg til að hann sjálfur fengi oddvitastöðuna – liggur í pólitísku blóði sínu fyrir eigin tilverknað og á sér varla afturkvæmt hema kraftaverk gerist. Hann klúðraði fyrsta sandkassaleiknum sínum.Biblían segir að vísu að kraftaverkin gerist á morgnana, en þá er Gísli yfirleitt sofandi – meðan götustrákar einsog ég blogga á örmiðli mínum og Þorsteinn dómari Oddsson á Vef-Þjóðviljanum sínum."
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (29.5.): 6
- Sl. sólarhring: 10
- Sl. viku: 32
- Frá upphafi: 3420846
Annað
- Innlit í dag: 4
- Innlit sl. viku: 26
- Gestir í dag: 4
- IP-tölur í dag: 4
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- Maí 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Ágúst 2021
- Júlí 2021
- Júní 2021
- Maí 2021
- Apríl 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Júlí 2020
- Júní 2020
- Maí 2020
- Apríl 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2020
- Janúar 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Ágúst 2017
- Júlí 2017
- Júní 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
Bloggvinir
-
ghe13
-
sigurjonth
-
andrigeir
-
annabjorghjartardottir
-
ansigu
-
agbjarn
-
armannkr
-
asdisol
-
baldher
-
h2o
-
bjarnihardar
-
dullur
-
bjarnimax
-
zippo
-
westurfari
-
gattin
-
bryndisharalds
-
davpal
-
eggman
-
greindur
-
bjartsynisflokkurinn
-
elfarlogi
-
eeelle
-
sunna2
-
ea
-
fuf
-
fhg
-
vidhorf
-
gerdurpalma112
-
gilsneggerz
-
gudni-is
-
lucas
-
zumann
-
gp
-
gun
-
topplistinn
-
tilveran-i-esb
-
skulablogg
-
gustafskulason
-
gustaf
-
heimssyn
-
diva73
-
helgi-sigmunds
-
hjaltisig
-
minos
-
hordurhalldorsson
-
astromix
-
fun
-
jennystefania
-
johanneliasson
-
johannvegas
-
jonatlikristjansson
-
jonl
-
jonmagnusson
-
jonlindal
-
bassinn
-
jvj
-
jonvalurjensson
-
thjodarskutan
-
juliusbearsson
-
katagunn
-
kje
-
ksh
-
kristinn-karl
-
kristinnp
-
kristjan9
-
loftslag
-
altice
-
ludvikjuliusson
-
maggij
-
magnusthor
-
mathieu
-
nielsfinsen
-
omarbjarki
-
huldumenn
-
svarthamar
-
pallvil
-
peturmikli
-
valdimarg
-
ragnarb
-
samstada-thjodar
-
fullveldi
-
siggus10
-
sisi
-
siggisig
-
ziggi
-
siggith
-
stjornlagathing
-
pandora
-
spurs
-
kleppari
-
saethorhelgi
-
tibsen
-
ubk
-
valdimarjohannesson
-
skolli
-
valurstef
-
vilhjalmurarnason
-
vey
-
postdoc
-
thjodarheidur
-
icerock
-
steinig
-
thorsteinnhelgi
-
icekeiko
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.