14.10.2008 | 11:08
www.pallvil.blog.is
Ég held að ofangreint blogg séu orð í tíma töluð til að reyna að sjá í gegnum það sem er að gerast núna í sambandi við fjörbrot Baugsveldisins og Björgólfs líka. Ég pasta eftirfarandi texta Páls sem lýsir mínum hugrenningum líka hvað varðar fjölmiðlun á Íslandi, nú þegar allt stefnir í alþýðulýðveldið Ísland, með Alþingisvæddum ríkisbönkum, ný Fjárhagsráð og Planökonómí, gjaldeyrisnefndir og endalok almenningshlutafélaga og Kauphallarviðskipta.
Páll segir:
" Blaðamenn Morgunblaðsins geta hrundið atlögu tveggja helstu skúrka útrásarfirringarinnar, Björgólfs Guðmundssonar og Jóns Ásgeirs Jóhannessonar, að faglegri blaðamennsku á Íslandi. Í nafni borgaralegrar óhlýðni ættu blaðamenn Morgunblaðsins að neita gefa út blaðið fyrr en sameining Árvakurs og 365 miðla hefur verið afturkölluð.
Á Morgunblaðinu starfa blaðamenn sem alla starfsævi sína hafa byggt upp trúnaðarsamband við lesendur blaðsins. Trúnaðurinn byggir á því að vinna að faglegri fréttaöflun með hagsmuni almennings í fyrirrúmi.
Sameining Árvakurs, útgáfufélags Morgunblaðsins, við lygamaskínu Baugs sem heitir 365 miðlar er blaut tuska framan í andlit allra blaðamanna Morgunblaðsins, lífs og liðinna.
Helsti eigandi Morgunblaðsins, Björgólfur Guðmundsson, fer í sögubækurnar sem maðurinn er tók íslenska þjóðarbúið í gíslingu innlánsreikninga Landsbankans í Bretlandi. Björgólfur er rúinn æru og trausti heiðvirðra manna. Sameining Morgunblaðsins við lygaverksmiðju Baugs sýnir svo ekki verður um villst að dýpt spillingareðlisins á sér engin takmörk.
Blaðamenn Morgunblaðsins ættu að leggja niður vinnu þangað til sameiningin hefur verið afturkölluð. Björgólfur er ekki í neinni stöðu til að standast samtakamátt blaðamanna.
Þegar búið er að hrinda atlögunni ættu blaðamenn að stofa almenningshlutafélag um kaup á hlut Björgólfs í Árvakri. Maðurinn til að leiða það félag heitir Styrmir Gunnarsson, fyrrum ritstjóri Morgunblaðsins. "
Ég held nú að Styrmir sé nú engin forsenda fyrir því að Morgunblaðið geti starfað áfram sem objektívt blað þó að vissulega sé eftirsjá í brotthvarfi hans úr röðum blaðamanna. Hvort að Árvakur lifir af veit ég ekki en sumir segja að fjárhaguinn sé erfiður.. En hitt veit ég að Fréttablaðið er miðill sem ég mun aldrei sakna ef það hætti að koma út og því fyrr því betra. Blaðið er bara hundleiðinlegt og hefur aldrei staðið Mogganum á sporði. Þeir sem vaða uppi í Fréttablaðinu eru menn sömu skoðana og Jón Ásgeir hvað varðar ráðstafanir á framtíð Íslands. Ég deili ekki þeim skoðunum. Þó að þær séu svosum líka á síðum Mogga þá eru þær ekki beinlínis ritsjórnarstefna heldur tekur blaðið þátt í umræðum þjóðar í vanda.
Lesið endilega bloggið hans Páls Vilhjálmssonar blaðamanns
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.12.): 2
- Sl. sólarhring: 6
- Sl. viku: 30
- Frá upphafi: 3419867
Annað
- Innlit í dag: 2
- Innlit sl. viku: 27
- Gestir í dag: 2
- IP-tölur í dag: 2
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- Maí 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Ágúst 2021
- Júlí 2021
- Júní 2021
- Maí 2021
- Apríl 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Júlí 2020
- Júní 2020
- Maí 2020
- Apríl 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2020
- Janúar 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Ágúst 2017
- Júlí 2017
- Júní 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
Bloggvinir
- ghe13
- sigurjonth
- andrigeir
- annabjorghjartardottir
- ansigu
- agbjarn
- armannkr
- asdisol
- baldher
- h2o
- bjarnihardar
- dullur
- bjarnimax
- zippo
- westurfari
- gattin
- bryndisharalds
- davpal
- eggman
- greindur
- bjartsynisflokkurinn
- elfarlogi
- eeelle
- sunna2
- ea
- fuf
- fhg
- vidhorf
- gerdurpalma112
- gilsneggerz
- gudni-is
- lucas
- zumann
- gp
- gun
- topplistinn
- tilveran-i-esb
- skulablogg
- gustafskulason
- gustaf
- heimssyn
- diva73
- helgi-sigmunds
- hjaltisig
- minos
- hordurhalldorsson
- astromix
- fun
- jennystefania
- johanneliasson
- johannvegas
- jonatlikristjansson
- fiski
- jonl
- jonmagnusson
- jonlindal
- bassinn
- jonvalurjensson
- jvj
- thjodarskutan
- juliusbearsson
- katagunn
- kje
- ksh
- kristinn-karl
- kristinnp
- kristjan9
- loftslag
- altice
- ludvikjuliusson
- maggij
- magnusthor
- mathieu
- nielsfinsen
- omarbjarki
- huldumenn
- svarthamar
- pallvil
- peturmikli
- valdimarg
- ragnarb
- samstada-thjodar
- fullveldi
- siggus10
- sisi
- siggisig
- ziggi
- siggith
- stjornlagathing
- pandora
- spurs
- kleppari
- saethorhelgi
- tibsen
- ubk
- valdimarjohannesson
- skolli
- valurstef
- vilhjalmurarnason
- vey
- postdoc
- thjodarheidur
- icerock
- steinig
- thorsteinnhelgi
- icekeiko
Athugasemdir
Syrgi minn elskaða Mogga.
Kaupi blaðið afar sjaldan.
Ólst upp með hann á hverjum morgni.
Var áskrifandi mjög lengi og síðar blaðberi, með dóttur minni og svo konu minni.
Nú er komin sambúðaslit hjá okkur mér og Moggatetri.
Samfylgd í hartnær 57ár er lokið.
Kaupi það örsjaldan í lausasölu.
Miðbæjaríhaldið
Bjarni Kjartansson, 14.10.2008 kl. 17:32
´Takk fyrir Bjarni minn. Ég hætti að kaupa Mogga þegar hann hætti alveg að taka skrif frá mér eftir 40 ára samband. Hann birti að vísu miningargreinar en annað ekki. ég sendi held ég 4 greinar í Baugstíðindi og þeir birtu 2 með semingi. Ég nennti ekki að elta ólar við svoleiðis.
Eftir að þeir ráku Svein Guðjónsson vin minn hafði ég tvöfalda ástæðu til að vera í fýlu útí Moggann og kaupa hann ekki. Svo hætti Styrmir og ég sendi þá 2 greinar til prufu og þær hafa komið bara fljótt þannig að Mogginn getur orðið mitt blað aftur ef hann leggur mig ekki í einelti vegna skoðana mina sem eru sjálfsagt ekki réttar á þeim bæ.
Ég les Moggann samt oftlega en er ekki áskrifandi aftur- ennþá. En ég er í raun farinn að sakna blaðsins Allt efnisvalið þar og layoutið er hinu svo miklu fremra. Og hún Agnes Braga er líka frábær og fleiri blaðamenn eru þar góðir. Ef ég gerðist áskrifandi aftur Þá gæti ég sett gulan miða á lúguna sem ætti að spara þeim Bónusfeðgum að troða þessu hundleiðinlega blaði sínu inná mig. En maður fer auðvitað með það á kamarinn hafi maður ekki annað blað.
.
Halldór Jónsson, 14.10.2008 kl. 21:50
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.