18.11.2008 | 17:16
Gunnar Rögnvaldsson og myntbandalög
Mér barst eftirfarandi bréf frá Gunnari Rögnvaldssyni. Mér finnst ég verði að birta það hér þannig að hans hugsun varðandi myntbandalög fái sem víðustu dreifingu:
Gunnar Rögnvaldsson, 17.11.2008 kl. 23:06 "
Ég vil þakka Gunnari sérstaklega fyrir þetta skrif til mín. Þó að ég hafi ekki fengið leyfi hjá honum til að pósta þetta hér, þá vona ég að hann fyrirgefi mér framhleypnina.En þetta geta líka allir lesið á hans heimasíðu .
Mér finnst að í þessu svari hans felist mörg rök, sem við verðum að svara áður en við bara æpum á Evrópusambandið og evruna. Eins og báðir Samfylkingarflokkarnir, annar með kindur, kýr og krata og hinn bara með krata, gera núna. O g væntanlega bráðum hálfur Sjálfstæðisflokkurinn líka.
En ég get ekki orða bundist, þegar maður skoðar þetta í kjölinn. Það verða allir að hugleiða hvað þetta og hitt þýðir. Eigin mynt er auðvitað alltaf sú nauðvörn sem hverri þjóð er tiltæk í neyð, sbr. Þýzkaland eftir Versalasamningana og óðaverðbólgan síðar. Og saga lýðveldisins Íslands.
Maður sér Spán, Lettland , Ítalíu og Írland engjast núna sundur og saman af evrukvölum. Þjóðverjar eru stífir á því að þeirra kassi sé ekki fyrir aðra meðlimi bandalagsins heldur þá sjálfa. Þeirra evrur séu betri en hinna. Ætli við gætum ekki orðið uppiskroppa með evrur einhverntímann ef við til dæmis tvöfölduðum kaupið hjá þeim verðugu í næstu aflahrotu, sem tæki skyndilega enda eins og núna ? Ef einhver heldur öðru fram þá svari hann því hversvegna við setjum ekki dollarann bara núna aftur í 60 kall og lækkum vextina í 4 %. Yrði það allra meina bót ?
Ég vil undirstrika það sem ég hef áður sagt um krónuna, að hún er bara við sjálf og hvernig við förum með hana. Við höfum bókstaflega traðkað á henni alla tíð með óskynsamlegum kjarasamningum í góðærum fyrst og fremst. Af því að við fórum sjálf svona illa með hana þá rjúkum við upp núna og ætlum að kenna henni um okkar eigin misgerðir og fíflaskap. Slík er örvænting okkar og fjallheimska, að við leitum að öllum öðrum leiðum nema þeirri að horfast í augu við okkur sjálf. Átsandið er ekki mér að kenna heldur öðrum. Þetta segjum við öll þó að við vitum betur innst inni. Önnur mynt er auðvitað fær leið eins og þeir Ársæll og Heiðar hafa bent á. En hún er heldur ekki gallalaus þó að maður sé stundum uppgefinn þegar þjóðargjaldþrot blasir við.
Það verður alltaf stærri sveifla í litlu hagkerfi en stóru. Stórt kerfi dregur þá bestu niður en tosar eitthvað í þá sem verr gengur. Litla kerfið er fljótara að svara áreiti, bæði upp og niður en getur verið mun skilvirkara til hagsældar eins og við þekkjum. Þessvegna er hugsanlegt að Ísland verði fyrr til að rífa sig uppúr hjólfarinu en margir aðrir. Af hverju gengur Spánverjum svona illa núna þrátt fyrir evruna ? Það er aðeins af því að þeir hafa fengið og mikið af auðfengnu fé túristanna og búið til spennu í kringum það. Verð á þjónustu gleðipinnanna og meyjanna hefur rokið upp. En allt fer í klessu um leið og andar á móti. Alveg eins og hjá okkur í kringum fjármálaútrásina, Kárahnjúkavirkjunina og Fjarðarálið, byggt með flýtiKínverjum að stórum hluta. Alltaf smi gusugangurinn hjá Íslendingum.
Það hlaut að koma krass eftir svona veizlu. Spánverjar þyrftu að fella gengið til að berja ofan í kollinn á liðinu, sem er búið að hækka standardinn hjá sér uppúr þakinu. Þeir bara geta það ekki og nú súpa þeir beizkara seyðið í framhaldi. Við erum búnir að því svo um munar.
Ég man, þegar Ludwig Erhard þrumaði alltaf til Þjóðverja frá 1957 -1962 þegar "das Wirtschaftswunder" (þýzka efnahagsundrið) var í fullum gangi. "Masshalten " - Hófstilling og meinti eyðslu og launakröfur. Það var nefnilega svo mikið af þenslugjöfum í umferð eins og alltaf er þegar vel gengur og mikið aflast að kallinn var sífellt á verði og Adenauer líka. En á þann virðulega gamla mann trúðu Þjóðverjar á þessum tíma miklu heitar en á Hitler á sínum tíma.
Í slíku ástandi mikils hagvaxtar þarf að hækka skatta eða "kajólera" eða "hrósþvinga" almenning til sparnaðar sem er auðvitað betri leið á endanum. Allstaðar voru Bausparkassen, hvetja fólk til eignamyndunar en ekki eyðslu. Auðvitað laut Erhard í lægra haldi fyrir Hannesönum. Bjórinn kostaði 50 pfenniga þegar ég kom en held ég 1 mark þegar ég fór og miklu meira núna. En ég sá þýzka efnahagsundrið innanfrá, sem var svo stórt að gömlu nasistarnir hristu hausinn og sögðu, þetta getur ekki gengið svona áfrram, þetta hlýtur að enda með ósköpum. Núna syrgja Þjóðverjar markið sitt gamla og myndu henda evrunni strax ef þeir fengju að greiða atkvæði. En það fá þeir bara ekki frekar en fyrir hjá Hitler fyrir heimstyrjöldina síðari, sem hefði auðvitað verið felld. En það var eitt sem skildi okkur og Þjóðverja að. Þýzk bankahefð krefst þess að vextir séu greiddir í reiðufé á hverjum mánuði- ekki bætt ofana á skuldina NB Engin vaxtagreiðsla-engin framlenging.
Auðvitað veit maður ekki allt og sumt af því sem maður er að hugsa gengur ekki eftir nánari athugun . En mér dettur í hug að sé hugsanlega hægt að sigrast fljótar á kreppunni hér núna eftir einhverjum af eftirtöldum leiðum. Sumir liðir eru kannske barnaleg mýrarljós sem standast ekki nánari skoðun, annað myndi virka :
1. Taka stóru lánin og líka þennan milljarð dollara sem þeir tala núna um að sé of mikið.
2. Skammta gjaldeyrir strangt til að byrja með og stýra genginu niður á við til að bremsa verðbólguna. Ná þjóðarsátt um launastopp í 1 ár og passa að opinberir aðilar hækki ekki nema miklu minna en þeir vilja.
3. Kyrrsetja jöklabréfin á háum vöxtum í ríkisbréfum og tilkynna um að ca. 10-20 % geti verið greidd út á næstu 5 -10 árum þeim sem um það sækja á hverju ári. Þeir sem það ekki vilja verði að greiða sérstakt sólarlagsyfirfærslugjald vegna neyðarástandsins núna. Vera kann að þetta sé ófær leið vegna EES þannig að aukamilljarðurinn gæti farið í þetta gengisskot, sem þá er óhjákvæmilegur forleikur að endurreisninni.
4. Taka upp verðtryggingar og lága vexti á öll lengri lán t.d. sem ná lengra en 1 ár. Og borga auðvitað verðtryggingu á altl sparifé til sama tíma.
5. Taka aftur upp verðbólgureikningsskil fyrirtækja.
6. Kreppa er huglæg að uppruna . Hún byrjar sem skortur á trausti og tiltrú á náunganum. Þessi tortryggni fer stigmagnandi og versnar með degi hverjum þangað til að allir eru uppgefnir á að hata.
Sem flestir finni sér vin til að lána fimm, tíu, fimmtíu, eða hundraðþúsundkall til að lána gegn löggiltum verðtryggðum kreppuvíxli með lágum %u vöxtum til eins árs. Þennan víxil má leggja í bankann sem greiddi hann út til innleggjandans með sérstöku lánsfé úr Seðlabankann, segjum kannske 80 % til baka strax. Bankinn innheimti svo kreppuvíxilinn ef lántakandinn þá getur borgað. Sem eigandinn hefur jú áður valið að hætta á með persónugreiningu sinni.
Þúsund manns, sem lána náunganum fimmtíuþúsund hafa bæði gert góðverk við núverandi aðstæður og örfað efnahagslíf landsins um 50 milljónir í fyrstu umferð og nærri 200 milljónir ef þeir endurtækju leikinn nokkrum sinnum . Tíuþúsund manns gætu gert mjög mikið fyrir fólkið og efnahagslífið á þennan smáa hátt í stað þess að láta nýju kommissarana í ríkisbönkunum bara lána Jóni Ásgeiri sömu peningana í milljarðaformi til að hefta samkeppni á fjölmiðlamarkaði.
7. Fyrirtæki gætu á sama hátt valið sér einhvern álitlegan aðila til að taka við láni eftir öðrum reglum en þau nota venjulega. Selja kreppuvíxlana á sama hátt. Leita að trausti og gera eitthvað til að byggja persónuleg tengsli við valinn nýjan viðskiptavin. Allt þetta þyrfti kannske aðeins að standa í stuttan tíma eða þar til að lifnað hefði yfir landinu.
Lesendur fyrirgefi mér að ég set þennan spuna svona fram kannske meira til gamans í fyrstu lotu. En orð eru til alls fyrst og það er svo mikið sagt af óyfirveguðu máli á blogginu að ég bara skelli þessu svona fram og lofa að ég mun taka öllum skömmum af stóískri ró.
En meginmálið og kvekjan að þessu skrifi er að hvetja menn til að lesa blog Gunnars Rögnvaldsonar og kynna sér hvað hann hefur að segja um ESB og evruna. Það verður enginn verri maður af þeim lestri.
Honum sendi ég bestu kveðjur.
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt 20.11.2008 kl. 23:30 | Facebook
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.12.): 1
- Sl. sólarhring: 8
- Sl. viku: 29
- Frá upphafi: 3419866
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 26
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- Maí 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Ágúst 2021
- Júlí 2021
- Júní 2021
- Maí 2021
- Apríl 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Júlí 2020
- Júní 2020
- Maí 2020
- Apríl 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2020
- Janúar 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Ágúst 2017
- Júlí 2017
- Júní 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
Bloggvinir
- ghe13
- sigurjonth
- andrigeir
- annabjorghjartardottir
- ansigu
- agbjarn
- armannkr
- asdisol
- baldher
- h2o
- bjarnihardar
- dullur
- bjarnimax
- zippo
- westurfari
- gattin
- bryndisharalds
- davpal
- eggman
- greindur
- bjartsynisflokkurinn
- elfarlogi
- eeelle
- sunna2
- ea
- fuf
- fhg
- vidhorf
- gerdurpalma112
- gilsneggerz
- gudni-is
- lucas
- zumann
- gp
- gun
- topplistinn
- tilveran-i-esb
- skulablogg
- gustafskulason
- gustaf
- heimssyn
- diva73
- helgi-sigmunds
- hjaltisig
- minos
- hordurhalldorsson
- astromix
- fun
- jennystefania
- johanneliasson
- johannvegas
- jonatlikristjansson
- fiski
- jonl
- jonmagnusson
- jonlindal
- bassinn
- jonvalurjensson
- jvj
- thjodarskutan
- juliusbearsson
- katagunn
- kje
- ksh
- kristinn-karl
- kristinnp
- kristjan9
- loftslag
- altice
- ludvikjuliusson
- maggij
- magnusthor
- mathieu
- nielsfinsen
- omarbjarki
- huldumenn
- svarthamar
- pallvil
- peturmikli
- valdimarg
- ragnarb
- samstada-thjodar
- fullveldi
- siggus10
- sisi
- siggisig
- ziggi
- siggith
- stjornlagathing
- pandora
- spurs
- kleppari
- saethorhelgi
- tibsen
- ubk
- valdimarjohannesson
- skolli
- valurstef
- vilhjalmurarnason
- vey
- postdoc
- thjodarheidur
- icerock
- steinig
- thorsteinnhelgi
- icekeiko
"Sæll Halldór og þakkir fyrir góð orð og innlitið.
Þegar Seðlabankinn flytur úr landi þá flytst einnig hagstjórnin með til útlanda og stór hluti möguleika þjóðarinnar á að skapa velmegun til handa þegnum sínum. Þetta er kallað nýlendustjórnun. Hagstjórn, sjálfsbjargarviðleitnin, frelsið og sjálfsábyrgð flytst úr landi. En frelsið og sjálfstæðið er stærsta auðlind Íslands.
Þegar myntin er ekki þín þá ertu ofurseldur mynt annarra og hagstjórn annarra. Til dæmis þá væri ríkisgjaldþrot eina leiðin í núverandi ástandi Íslands, þ.e. ef Ísland hefði ekki sína eigin mynt - því þá hefðir þú ekkert gengið til að vinna þig út úr vandamálunum.
Ríki með eigin mynt geta ekki farið á hausinn. Þau fella bara gengið. Einu ríkin sem raunverulega geta orðið gjaldþrota eru ríki í myntbandalögum og ríki með mynt annarra. Þau geta farið á hausinn og munu fara á hausinn og hafa farið á hausinn.
Það hafa víst fáir tekið eftir því en það er búið að loka á fjármögnun til spánskra bankageirans núna - mitt ínni í galdra gjaldmiðlinum henni evru. Það standa núna 1.000.000 tómar fastiegnir á Spáni. Spánverjar bíða, - þeir bíða og vona og geta ekkert gert. Sama með Lettland. 15% verðbólga þar og 4% stýrivextir. Reyndu að geta þér til hvernig þeir ætla að ná þessari verðbólgu niður, lausnarorðið er auðvitað atvinnuleysi og félagslegar hörmungar, hvað annað!
Myntbandalög og mynt annarra tryggir EKKI fjármagn. Það gerir hinsvegar góð og hófsöm hagstjórn. Þetta hefur Seðlabanki Íslands margoft bent á í ræðu og riti. En enginn hlustar.
Haldór - það þýðir ekkert að skipta um áfengistegund eða fá einhvern annan til að halda á flöskunni fyrir sig. Góð hagstjórn er forsenda alls.
Núna er búið að sólunda auðæfum Íslands í holu ofaní jörðina í útlöndum. Er ekki kominn tími til að halda áfram með uppbyggingu landsins? Hvað er eiginlega að mönnum? Eru menn búnir að gleyma gömlum og góðum gildum? Það þarf að framleiða framleiða og selja og selja og byggja upp. Það er svo auðvelt að vera alltaf kaupandi, kaupandi af drasli, það krefst nefnilega engra hæfileika - maður eyðir bara.
Bestu kveðjur