22.7.2009 | 20:33
Hverjir stjórna fjölmiðlunum?
Um þessar mundir er Mogginn með ESB, áður á móti. Nú er hann með kvótanum en áður á móti. Nú er hann líka að túlka skoðanir ritstjórans og pabba ritstjórans í ESB málum. og svo eigendanna Samherjafrændanna, og ekkju Sigurðar í Eyjum, þess afbragðsmanns. Allt sjávarútvegsfólk sem ekki púkkar uppá ritstjóra sem er á móti þeim.
Þorsteinn Már var með Jóni Ásgeiri í Sjóð9 dæminu og Glitni þannig að ekki fer nú Mogginn að gera annað en Þorsteinn Már og því ekki einkavinurinn Jón Ásgeir vilja. Þannig ræður Jón Ásgeir líklega bæði Mogganum og Fréttablaðinu hvað meginlínur snertir. Og DV ræður hann líka í gegnum kumpán sinn Hrein Loftsson til margra verka og Tortóla. Og stöð 2 stjórnar hann víst líka.
Þorsteinn Pálsson í Fréttablaðinu dásamar það af Kögunarhól sínum hvernig Ragnheiður Ríkharðs og Þorgerður klufu Sjálfstæðisflokkinn í ESB málinu. Þetta sé nú aldeilis fínt að hafa sjálfstæða þingmenn. Mér skilst helst á Þorsteini að stjórnmálaflokkar eigi ekki að vera til og helst alls ekki ef þeir heita Sjálfstæðisflokkur og heldur landsfundi um stefnumál sín. Þorsteinn kommenteraði ekkert á VG í þessu sambandi eða Samfylkinguna, sem hafa stefnu að hans hatti.
Mér fannst hann sjálfur nú heldur fúll þegar Albert fór á sínum tíma vegna þess að Þorsteinn hafði aðrar skoðanir en Albert og ætlaði að berja þær oní hann, en uppskar Borgaraflokkinn í staðinn.Þá var nú talað um skort á samheldni í Sjálfstæðisflokknum þó að nú sé öldin önnur.
Eftir þá atburði alla sáu nú margir að það væri betra að fá annan formann í Sjálfstæðisflokkinn, nema auðvitað ég bjálfinn, ég sem stóð með Þorsteini því hann var jú formaður og ég tryggur flokksmaður. En ég held nú eftirá séð, að það hafi verið gott að hvíla hann og fá Davíð. Enda kaus ég Davíð alla tíð síðan sem ég gat. Ég kaus líka Þorgerði á síðasta landsfundi en er ekki eins viss um að ég geri það aftur. Og ég hef heyrt af Ragnheiður Ríkharðs sé af krataættum eins og Þorgerður, þannig að það er margt að athuga þegar kemur að kjörborðum næst.
Jón Ásgeir stjórnar ekki Moggablogginu ennþá, sem mér finnst vera orðið eini frjálsi miðillinn í landinu að frátalinni ÍNN hans Ingva Hrafns, sem er eins og eldstólpi í eyðimörkinn og ég bæði tek ofan fyrir Ingva Hrafni og segi bravó fyrir honum. Kall sem kveður að. Arnþrúður á Sögu gapir uppí Bónusfeðga, af því að Jói lánaði henni víst pening og hún virðist vera hans bandingi síðan. Annars er hún oft skemmtileg hún Arnþrúður, þó viðmælendur stöðvarinnar séu nú misjafnir.
Það eru stundum einn og einn að spyrja mig af hverju ég skrifi aldrei í Moggann eins og ég gerði í gamla daga. Þeir hættu bara, í tíð Styrmis, að birta greinar eftir mig nema líkræður og stofnuðu fyrir mig bloggsíðu sem þeir sögðu mér að ég mætti skrifa á mér til dundurs og það hef ég gert mér til ánægju og veri þeir margblessaðir fyrir þessi almennilegheit við gamalt fífl.
Ég prófaði Fréttablaðið líka, fékk eina eða tvær birtar gegn ESB en svo hættu þeir alveg líka að birta tilsendar greinar frá mér svo ég hætti að angra þá líka. Enda finnst mér það blað hundleiðinlegt, illa uppsett og einsleitt áróðursblað, með litaðar fréttir og þjónkunin við Baugsveldið og skoðanir þeirra og hagfræði Þorvaldar Gylfasonar er oft yfirþyrmandi. Annars er Þorvaldur stundum ágætur þegar hann getur hamið hatrið á Sjálfstæðisflokknum, sem er nú ekki oft. Maðurinn er fjandi vel að sér og glöggur.
Þegar þið farið að hugsa um það, þá er ekki í nein hús að venda fyrir margt venjulegt fólk eins og mig en Bloggið og Facebook. Hún Fésbók finnst mér hinsvegar svo leiðinleg og vitlaus, fólk talar bara um sig sjálft og nærbuxurnar sínar, hver nennir því til lengdar ?
Hvaða tilgang hefur það þá að senda svona smáblaði eins og Mogginn er orðinn, sem varla helmingur þjóðarinnar les , grein sem kemur eftir mánuð þegar hún er orðinn úrelt.En Agnesi og fleiri góða blaðamenn Mogga reyni ég að lesa hvenær sem ég get. Erlendis eru blöð yfirleitt skrifuð af blaðamönnum og birta ekki greinar eftir nöldrara nema í mýflugumynd. Kannski er það sem koma skal.
Alveg er þetta eins með Fréttablaðið, greinar koma seint eða aldrei ef innihaldið er Bónusi ekki þóknanlegt. Og ég held að það sé nú farið að gilda líkt með Moggann, að menn nenna ekki að vera senda því greinar. Ég kaupi ekki Mogga og nenni lítið að fletta honum, en fæ Fréttablaðið innum lúguna. Þó er Mogginn miklu skemmtilegri en Fréttablaðið í mínum augum, sem er svo leiðinlega uppsett, margar leiðinlegar greinar eftir kommúnista eða krata, sem er enn verra fyrir mitt sálartötur, auglýsingar um hvað Bónus sé góður og svo gagnlegar smáauglýsingar. Það er heldur skárra en ekkert blað á morgnana og svo er það frítt en Mogginn ekki. Líklega á hann enga framtíð nema að lækka áskriftargjöldin. Það er öðruvísi að handleika blað en að sitja alltaf vil helvítis tölvuna, sem maður fær nóg af öðru hverju.
Bloggið virkar strax og þeir lesa sem vilja. Maður ræður náttúrlega ekkert við smekk lesendanna, enda gerir það ekkert til. Fólkið er ófeimið og lætur skoðanir sínar í ljós. Því stjórnar enginn ennþá. En kannski kemur að því ?
Kannski endar þessi nútíma líberalismi með því að hver þingmaður er orðinn að eigin stórveldi og engum háður. En ég held að það gangi ekki til lengdar. Menn þurfa félagsskap til að vinna saman.Stjórnmálaflokkar eru nauðsynlegir og menn eiga að bera virðingu fyrir þeim. Og það læra þeir ekki nema að taka þátt í störfum þeirra.Fólkið á að stjórna flokkunum.
En mér finnst að þingmenn eigi að fylgja stefnu flokksins sem þeir létu kjósa sig fyrir. Og þingflokkar eiga að starfa þannig, að hafi menn einhverja algera tilfinningalega sérstöðu í einhverju máli, þá eiga þeir að kalla inn varamann til að greiða atkvæði, sem þarf þá að vera til lipurt kerfi utanum.
Það er hinsvegar nokkuð greinilegt, að einhver sjálfstæð ritstjórnarstefna fjölmiðla er ekki til lengur. það eru eigendurnir sem ráða sér leigupenna að sínum smekk. Þeir ráða fjölmiðlunum, ekki kannski daglega en í lengdina gera þeir það. Þessir voldugu kallar eru hinsvegar líka farnir að seilast inná svið stjórnmálaflokka, með því að arga og garga á fólkið að fyrirlíta flokkana. Menn eigi að hafa sjálfstæðar skoðanir og láta ekki segja sér fyrirverkum. Talla um flokkseigendafélög og svo framvegis.
Allt þetta er ekki æskilegt. Auðvaldið stjórnar fjölmiðlunum. Nema Ríkisútvarpinu, sumir segja að því stjórni pólitískir fréttamenn, enda fara þeir furðu oft inn í pólitík til vinstri.
En auðvaldið á ekki að geta keypt allt og alla, alltaf. Það er ekki endilega best eins og dæmin sanna.
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.12.): 1
- Sl. sólarhring: 8
- Sl. viku: 29
- Frá upphafi: 3419866
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 26
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- Maí 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Ágúst 2021
- Júlí 2021
- Júní 2021
- Maí 2021
- Apríl 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Júlí 2020
- Júní 2020
- Maí 2020
- Apríl 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2020
- Janúar 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Ágúst 2017
- Júlí 2017
- Júní 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
Bloggvinir
- ghe13
- sigurjonth
- andrigeir
- annabjorghjartardottir
- ansigu
- agbjarn
- armannkr
- asdisol
- baldher
- h2o
- bjarnihardar
- dullur
- bjarnimax
- zippo
- westurfari
- gattin
- bryndisharalds
- davpal
- eggman
- greindur
- bjartsynisflokkurinn
- elfarlogi
- eeelle
- sunna2
- ea
- fuf
- fhg
- vidhorf
- gerdurpalma112
- gilsneggerz
- gudni-is
- lucas
- zumann
- gp
- gun
- topplistinn
- tilveran-i-esb
- skulablogg
- gustafskulason
- gustaf
- heimssyn
- diva73
- helgi-sigmunds
- hjaltisig
- minos
- hordurhalldorsson
- astromix
- fun
- jennystefania
- johanneliasson
- johannvegas
- jonatlikristjansson
- fiski
- jonl
- jonmagnusson
- jonlindal
- bassinn
- jonvalurjensson
- jvj
- thjodarskutan
- juliusbearsson
- katagunn
- kje
- ksh
- kristinn-karl
- kristinnp
- kristjan9
- loftslag
- altice
- ludvikjuliusson
- maggij
- magnusthor
- mathieu
- nielsfinsen
- omarbjarki
- huldumenn
- svarthamar
- pallvil
- peturmikli
- valdimarg
- ragnarb
- samstada-thjodar
- fullveldi
- siggus10
- sisi
- siggisig
- ziggi
- siggith
- stjornlagathing
- pandora
- spurs
- kleppari
- saethorhelgi
- tibsen
- ubk
- valdimarjohannesson
- skolli
- valurstef
- vilhjalmurarnason
- vey
- postdoc
- thjodarheidur
- icerock
- steinig
- thorsteinnhelgi
- icekeiko
Athugasemdir
Takk fyrir þennan skemmtilega og áhugaverða pistil Halldór. Þú ert ómissandi Moggabloggari. Flestu er ég sammála. Orð í tíma töluð.
Jón Baldur Lorange, 23.7.2009 kl. 11:24
Tek undir með síðasta ræðumanni.
Er samt ekki frá því að ég greini mismunandi handtök rómanna í Hádegismóum. Ekki veit ég hvort það tengist vaktaskiptum en greinilegt er að Ólafur ritstjóri er ekki lengur einráður um EB línu. Ég þori líka að fullyrða að Agnes Braga fengi ekki að skrifa um pólitík í Fréttablaðið undir stjórn Þorsteins.
Sigurður Þórðarson, 23.7.2009 kl. 12:04
Sammála nánast öllu en bæði Ferdinant og kóngulóamaðurinn er í Mogganum það er nú eitthvað
Ragnar L Benediktsson, 23.7.2009 kl. 14:31
Takk fyrir áhugaverða grein Halldór. Ég tek undir hvert orð Jóns Baldurs.
Tómas Ibsen Halldórsson, 23.7.2009 kl. 15:24
Skemmtileg grein hjá þér.
Sigurbjörn Svavarsson, 23.7.2009 kl. 17:02
Takk fyrir þetta oflof Jón Baldur, þó mér þyki auðvitað gott að lesa svona orð, þau lyfta manni vissulega upp.
Sigurður, síðasta setning hjá þér er stórisannleikur og sönnun sem allir skilja.
Ragnar, þetta er ma. það sem gerir Moggann betri en Fréttablaðið. Ferdínand er mér meira að skapi en margir þeir sem skrifa leiðara í Fréttó.
Takk fyrir Tómas Ibsen, það er gott til að vita ef við Jón Baldur eru ekki einir eftir af risaeðlukynslóðinni, sem nefndist Sjálfstæðismenn.
Sigurbjörn reynslubolti, takk fyrir þetta.
Spurning hvort þessum fjölmiðlamálum verður nokkurntíma hróflað öðruvísi en að frjálst bloggið eflist. Þó finnst mér einhvernvegin allt öðruvísi fréttaumhverfið í USA en hér. Það sást einginlega hver er munur á þjóðunum þegar rabbínarnir voru leiddir til réttarþings. Þeir fá ekkert að vera í jarðálfatreyjum með hettuna yfir, þeir eru með hendur fyrir aftan bak. Réttvísin er sýnileg og fer ekkert ímanngreinarálit.
Menn komast ekkert upp með því að ljúga þar í pólitík. Menn geta ekkert svarað aðspurðir, hversvegna þeir hafi logið: ¨Það var þá "; "Það var undirliggjandi halli" osfrv. Allar þessar lygar þrífast á því að fjölmiðlun er ekki frjáls. Berlusconi getur þvælst lengi með því að etja sínum hundum á hina. En varla endalaust. Í USA væri hann löngu farinn.
Halldór Jónsson, 24.7.2009 kl. 11:37
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.