5.10.2009 | 23:28
Bjarni góður!
Ég var ánægður með minn formann í eldhúsdagsumræðunum í kvöld. Bjarni Benediktsson flutti skilmerkilega ræðu af sannfæringarkrafti og þrótti. Það fer ekki á milli mála að þar fer forystumaður sem veit hvað hann er að tala um. Og þjóðin er sammála honum, það má glöggt sjá af allri umræðunni í öllum hornum þjólífsins. Nema í því sem opinberlega eru leifarnar af ríkisstjórnarherbúðunum.
Jóhanna var ósköp umkomulaus þar sem hún stautaði sig í gegnum stílinn sinn, vitandi að herinn hennar er flúinn. Ekki var boðskapurinn uppörvandi, meiri skattar, meiri píslir AGS, meira Icesave, meira Evrópubandalag. Henni er auðvitað vorkunn að standa þarna og tala um stefnu ríkisstjórnar sem er orðin þátíð. Það er ekki nein samstaða í stjórninni þar sem ljóst er að allmargir þingmenn VG ætla ekki að kyngja hverju sem er og láta handjárna sig við siglutré ríkisstjórnar SteinHönnu og sökkva með skipinu.
Hvað er í stöðunni ?
Á þingi sitja 12xVG, 15xD, 9xB og 4xfríliðar fyrir utan 23xS. Jafnvel þó að Sari gengi til liðs við D og B til að verja minnihlutastjórn Ögmundar og 3xVG þá gengur það ekki upp, til þess þyrfti alla hreyfinguna og þann óháða líka. Aðrar kombínasjónir er búið að prófa. Það er því stjórnarkreppa.
Svarið er þá kosningar ekki seinna en strax. Miðað við þá gjaldeyriseyðslu sem fyrir höndum er við umsóknina að ESB, þá er innlendur kostnaður við kosningar hverfandi. Það þarf því ekki að koma með kostnaðarrök á móti kosningum.
Ný ríkisstjórn myndi áreiðanlega láta verða sitt fyrsta verk að draga umsóknina um EB aðild til baka, fresta Icesave málum, en endurnýja viljayfirlýsingu um álver á Bakka, stækkun í Straumsvík og Helguvík. Gera eitthvað meira en bara tala um framkvæmdir og erlent fjármagn inn í landið. Gera eitthvað í bankamálunum og greiðsluvanda heimilanna. Hækka ekki skattana eins og SteinHanna boðar.
Það er lífsnauðsynlegt að reyna að gangsetja atvinnulífið. Bjarni Benediktsson bendir á leiðir sem eru mun líklegri til að verða léttbærari fyrir almenning en útópískar skattahugmyndir Steingríms og hugmyndasmiðsins Indriða, sem leiða beint til þess að drepa allt atvinnulíf niður í landinu, sökkva því í skuldir og skatta og fara endanlega með tiltrú viðskiptaheimsins á því, að hægt sé að fjárfesta á Íslandi til lengri tíma litið.
Áfram Bjarni ! Fólkið heyrir til þín og Sjálfstæðisflokksins!
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 2
- Sl. sólarhring: 6
- Sl. viku: 39
- Frá upphafi: 3419712
Annað
- Innlit í dag: 2
- Innlit sl. viku: 33
- Gestir í dag: 2
- IP-tölur í dag: 2
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- Maí 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Ágúst 2021
- Júlí 2021
- Júní 2021
- Maí 2021
- Apríl 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Júlí 2020
- Júní 2020
- Maí 2020
- Apríl 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2020
- Janúar 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Ágúst 2017
- Júlí 2017
- Júní 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
Bloggvinir
- ghe13
- sigurjonth
- andrigeir
- annabjorghjartardottir
- ansigu
- agbjarn
- armannkr
- asdisol
- baldher
- h2o
- bjarnihardar
- dullur
- bjarnimax
- zippo
- westurfari
- gattin
- bryndisharalds
- davpal
- eggman
- greindur
- bjartsynisflokkurinn
- elfarlogi
- eeelle
- sunna2
- ea
- fuf
- fhg
- vidhorf
- gerdurpalma112
- gilsneggerz
- gudni-is
- lucas
- zumann
- gp
- gun
- topplistinn
- tilveran-i-esb
- skulablogg
- gustafskulason
- gustaf
- heimssyn
- diva73
- helgi-sigmunds
- hjaltisig
- minos
- hordurhalldorsson
- astromix
- fun
- jennystefania
- johanneliasson
- johannvegas
- jonatlikristjansson
- fiski
- jonl
- jonmagnusson
- jonlindal
- bassinn
- jonvalurjensson
- jvj
- thjodarskutan
- juliusbearsson
- katagunn
- kje
- ksh
- kristinn-karl
- kristinnp
- kristjan9
- loftslag
- altice
- ludvikjuliusson
- maggij
- magnusthor
- mathieu
- nielsfinsen
- omarbjarki
- huldumenn
- svarthamar
- pallvil
- peturmikli
- valdimarg
- ragnarb
- samstada-thjodar
- fullveldi
- siggus10
- sisi
- siggisig
- ziggi
- siggith
- stjornlagathing
- pandora
- spurs
- kleppari
- saethorhelgi
- tibsen
- ubk
- valdimarjohannesson
- skolli
- valurstef
- vilhjalmurarnason
- vey
- postdoc
- thjodarheidur
- icerock
- steinig
- thorsteinnhelgi
- icekeiko
Athugasemdir
Það þarf ekki mikið til að gera þig ánægðann, og ekki eru nú kröfurnar miklar..
hilmar jónsson, 5.10.2009 kl. 23:52
Sæll Hilmar,
Viltu heldur borga Icesave,stóriðjustopp og hærri skatta?
Halldór Jónsson, 6.10.2009 kl. 07:53
Helst ekki Halldór ef hjá verður komist.
Hinsvegar vil ég alls ekki aftur þá stjórn D og B sem upphaflega kom okkur í vandann.
hilmar jónsson, 6.10.2009 kl. 08:14
Stóriðjan bjargar okkur ekki, við erum að borga fúlgur fjár með hverju starfi þar með virkjunum og erlendum lántökum.
Jóhannes Birgir Jensson, 6.10.2009 kl. 10:00
Sæll Halldór, Ögmundur er við 5. mann, því Atli fylgir honum samkvæmt nýjustu fregnum. Þá eru þetta 32 þingmenn en það eru veikir hlekkir svo sem Þorgerður, Ragnheiður og enn veikari hjá Framsókn eru Siv og Guðmundur Steingrímsson. Steingrímur er ólíkindatól en tekur þó þann stól sem honum þykir bestur.
Sigurður Þórðarson, 6.10.2009 kl. 10:21
varla trúir þú að sjálfstæðismenn ætli sér að breyta af stefnunni-stefnunni sem skilað hefur okkur á leiðarenda,eða er eitthvað eftir af landinu sem þeir geta stolið ? sjálfstæðismenn hafa nú hingaðtil grímulaust ráðist á heimilin,selt landið og miðin glæpamönnum í "talsambandi við FLokkinn" og farnir að sýna andlitið aftur,samanber áðurnefndan Bjarna N1,Tryggva askar og Guðlaug Þór sem nú trompast yfir að komið hafa upp hugmyndir að stóriðjan greiði einsog aðrir við þessar aðstæður eitthvað til samfélagsins-það hugnast ekki sjálfstæðismönnum sem ekki hafa samúð með heimilinum,nei bara halda áfram að higla vinunum.landráðamenn.
zappa (IP-tala skráð) 6.10.2009 kl. 10:31
Það er skrýtið að fólk haldi að það sé hætta á að árið 2000 renni upp aftur, eins og Hilmar segir!
Það er að vísu ekkert nýtt undir sólinni. Þess vegna þarf að læra af mistökunum. Verstu mistökin eru í uppsiglingu núna. Hve margar ríkistjórnir hafa ekki leitt þegna sinna til örbirgðar með þeim aðferðum sem Jóhanna og Steingrímur eru að reyna núna?? Ég kann ekki einu sinni að telja það. Kanski Hilmar kunni að telja svo hátt?
Jón Ásgeir Bjarnason, 6.10.2009 kl. 10:38
Kanski Zappa kunni að telja svo hátt!
Jón Ásgeir Bjarnason, 6.10.2009 kl. 10:40
Jóhanna las sína ræðu eins og venjulega. Enginn leikaraskapur og ekki mjög áheyrilegur flutningur. Ræða Bjarna var hinsvegar eins og þaulæfður leikþáttur og tilþrifin ekki lítil. Greinilega fengið góða þjálfun fagmanns/manna. Gallinn var bara sá að innihaldið var upphitaður vellingur. Annars var þetta bara gott , - á ytra byrði.
Eiður Svanberg Guðnason, 6.10.2009 kl. 11:59
Eiður Svanberg
Fékkstu ekkert út úr innihaldinu hjá Bjarna? Heyrðirðu ekki hvað hann sagði um atvinnulífið?Heyrðirðu ekki hvað hann sagði um skattana?
Framkoman er ekkert sviðsett. Bjarni er bara svona í ræðustól. Svona var hann líka á fundi með okkur íKópavogi. Hann er bara eðilegur og meinar það sem hann er að segja.
Zappa, þú notar dulnefni til að skrifa skít um menn og málefni. Vinsamlega skrifaðu eins og maður og undir nafni ef þú þarft að skrifa á mína síðu.
Halldór Jónsson, 6.10.2009 kl. 13:01
Hilmar, nýir menn eru komnir fram í flestum flokkum. Flokkar eru ekki ábyrgir fyrir því sem einstakir flokksmenn afreka. Flokkar eru fjöldahreyfingar, þar í eru misjafnir sauðir.
Halldór Jónsson, 6.10.2009 kl. 13:03
Jóhannes Birgir,
Þú ert þá fylgjandi kílówattskattinum ?
Vinsmalega legðu fram þína útreikninga sem sanna að við borgum með stóriðjunni.
Halldór Jónsson, 6.10.2009 kl. 13:04
Hilmar,
Vinsamlega upplýstu mig um það hver ræðumanna var þá betri og bestur.
Halldór Jónsson, 6.10.2009 kl. 13:05
Svandís bar af að mínu mati..
hilmar jónsson, 6.10.2009 kl. 13:56
Kosningar? Hvað sérðu fyrir þér að komi upp úr kjörkössunum. Hverju munu kosningar breyta? Kannski engu og hvað gerum við þá? Við erum nýbúin að kjósa. Stjórnin er ekki fallin - hún tórir enn.
Björn Birgisson, 6.10.2009 kl. 14:04
Þeir sem vilja send IMF heim til EU eru mínir menn [af báðum kynjum].
Burt með einokun Bólgu vísitölu. Sparfjáreigendur sem fá greitt vexti vegna bólguvístölu geta hirt bólguvísutöluvexti af samsvarandi skammtíma bólguvísitöluvöxtum útlána.
Ég vil innleiða hér aftur langtímaverðtryggingar vísitölu stöðuleika miðað við gengi fasteignaverðs. Að hætti USA og EU.
Til þess að hægt sé að láta gengið falla og lækka stýrivexti í nokkra mánuði án þess að almenningur missi þakið yfir höfuðið.
M.ö.o. Almenningur á Íslandi búi við sömu aðstæður og sá í USA og EU.
Mér skilst að þjónustu orkuver í Frakklandi séu skuldbundin að skila arði í formi lægra orkuverðs til þess að framleiðslufyrirtækin geti skilað meiri hagnaði og borgað almenningi lægri laun. Rafmagns reikningar þar eru 3 til 8 sinnum lægri en á Íslandi. Þetta mætti gagna yfir alla þjónustugeirann hér. Ábyrgð stjórnenda þjónustugeirans gæti verið fólgin í því að halda embætti og fá bónus í hvert sinn sem lækkun á kostnaði [verðskrá] sannast.
Ef auka á hér ferðamanna iðnað þá markaðasetja Ísland m.t.t. hátekjuferðamanna. Halda almennum lífskjörum uppi á Íslandi.
Skera þjónustukostnaðarfjármálageirann niður um 60%. Ekki endurreisa.
Ekki verður sleppt og haldið. Fylkingaríhaldið.
Júlíus Björnsson, 6.10.2009 kl. 14:48
Björn, kosningar breyta öllu. Þá hverfa þessir hreyfingarmenn og dreifast á gömlu flokkanna, VG tapar og Samylkingin líklega líka, íhaldið styrkist og líka framsókn. Þá koma fleiri kaplar upp en er núna þegar enginn kostur er góður.
Halldór Jónsson, 6.10.2009 kl. 21:08
Hvað ræðumennsku Sjálfstæðismanna snerti fannst mér Þorgerður Katríin reyndar betri en formaðurinn.
Ómar Ragnarsson, 6.10.2009 kl. 21:28
Hvorki Bjarni Ben, Steingrímur J eða nokkur annar geta kjaftað niður skatta eða skuldir.
Kokhreysti ver okkur kannski fyrir hálsbólgu og flensu, en það hefur sýnt sig í gegnum tíðina að það er akkúrrat ekkert að marka það sem stjórnmálamenn segja.
Og Sjáfstæðisflokkurinn er því miður ekki stjórntækur með öll sína hagsmunatengs. Tími hans er útrunninn að sinni og hann á að hafa vit á að halda sig til hlés meðan hann byggir sig upp aftur með nýju óspilltu fólki.
Þjóðin vill hann ekki við völd meðan hún man enn eftir einkavinavæðingunni.
Þá fyrst þegar búið verður að dæma og loka nokkra af lykilmönnum að einkavæðingu bakanna og hruninu inni getur Sjálfstæðisflokkurinn farið að rífa kjaft og hafa sig í frammi.
Annars er eina von Sjálfstæðisflokksins hið vel þekkta gullfiskaminni þjóðarinnar....!
Ómar Bjarki Smárason, 6.10.2009 kl. 21:31
Mikil skelfing er að heyra þetta hjá þér Omar Bjarki. Gamli Bjarni Ben sagði eitt sinn: "Munið þið piltar, þó við séum vondir þá eru aðrir verri."
Sjálfstæðisflokkurinn er auðvitað bestur. Hann ber sem slíkur engá ábyrgð á hruninu. Hann er fjöldahreyfing, hugsjónabandalag ekki í eigu einstakra manna. Einstaklir félagsmenn geta hafa komið meira við sögu í hruninu en aðrir. Hvar eru þeir núna? Á AlÞingi ? Eða við völd ? Nýjir menn komnir.
Framsóknarflokrinn ber enga ábyrgð á misgerðum Sigurðar Einarssonar og Ólafs Ólafssonar eða Finns Ingólfssonar. Þessir menn fara einhverntímann í steininn og þá kemur það Framsóknarflokknum ekkert við.
Mér alveg ofbýður að heyra fólk tala svona eins og þú og það veldur mér vonbrigðum að heyra það frá jafn greindum manni og þú ert hversdagslega.
Þú verður að hugsa þetta uppá nýtt jarðfræðingur góður. En ykkur er kannske vorkunn að vera eins og þið eruð, Steingrímur J. er líka jarðfræðingur og það slær nú heldur betur útí fyrir honum.
En þetta með spakmæli Bjarna. Ef þú horfir á VG, eða Borgaraflokkinn eða hvað hann heitir, eða Samfylkinguna, þá sérðu hvað Bjarni meinti. Þessvegna geturðu ekki kosið neitt annað en Sjálfstæðisflokkinn af því að hann er þó alltaf skárri en hinir . Q.E.D.
Halldór Jónsson, 6.10.2009 kl. 22:26
Þú verður nú að horfa raunsætt á ástandið í þjóðfélaginu, Halldór, því Sjálfstæðisflokkurinn á í viðlíka tilvistarkreppu hjá þjóðinni og forsetinn hjá Sjálfstæðisflokknum. Þannig er þetta bara og hvorki ég né félagi Steingrímur J getum nokkuð við því gert.....
Ómar Bjarki Smárason, 6.10.2009 kl. 22:47
Halldór minn varstu ekki flokks-munaðarlaus?
Ég ber mikla virðingu fyrir öllum sjjónarmiðum (þó ég missi mig stundum í reiði vegna minnar eigin vanþekkingar).
Bjarni Ben er með gott hjarta en það er ekki vegna þess að hann sé í sjálfsflokknum heldur vegna hans eigin innri styrks og sannfæringu
Framtíð Íslands stjórnast ekki af flokkaklíku. Miklu frekar af heimsklíku. Kær kveðja frá einni óháðri í flokkapólitík Íslands.
Anna Sigríður Guðmundsdóttir, 7.10.2009 kl. 00:56
Hvernig getur þú fullyrt það Ómar að fjöldahreyfing sem þú þekki er ekki sé í tilvistarkreppu ?
Ég efast um að þú vitir hvað sjálfstæðisstefnan sé ? Lestu hana fyrst.Áróður og álygar eru ekki tilvistarkreppa fyrir þann sem í því lendir. Persóna Óla forseta, orð, gerðir hegðun er það sem veldur áliti hans hjá þjóðinni. Þetta er gerólíkt.
Anna mín, ertu enn ekki búin að kynna þér sjálfstæðisstefnuna ? Hvað hefur landið uppúr því að þú sért óháð? Eða ertu bara svona feimin ?
Halldór Jónsson, 7.10.2009 kl. 07:45
Maður þarf greinilega að leggjast í lestur, Halldór. En það er ekki nóg að hafa stefnu, ef þjóðin treystir ekki þeim sem eru við völd í flokknum vegna tengsla þeirra við hagsmunahópa og fortíðina. Stundum þarf nefnilega að taka til og það er það sem þarf að gera í Sjálfstæðisflokknum til þess að hann verði trúverðugur. Þetta þurfa menn að þora að ræða og gera svo eitthvað í málum. Þetta verður hins vegar ekki gert með frekju og yfirgangi þeirra sem hafa best tengsl í hagsmunahópana og gömlu ræturnar.
Ég styð margt í stefnu Sjálfstæðisflokksins, en mér geðjast ekki að nánum tengslum valdaklíkunnar við þá sem komu okkur í þau vandræði sem þjóðin er í núna. Það hefur hins vegar ekkert með stefnu flokksins að gera.
Ómar Bjarki Smárason, 7.10.2009 kl. 12:48
Halldór minn. Ég hef mína eigin skoðun á sjálfstæðisstefnunni. Mín skoðun um sjálfstæðisstefnuna samræmist ekki svika-sjálfstæðisstefnunni sem hefur viðgengist hér á landi.
Landið hefur engu að tapa á því að ég sé óháð eins og það er kallað á pólitísku máli. Landið getur hins vegar tapað á sérhagsmuna samtökum hverju nafni sem þau nefnast.
Ég held einmitt að ég hafi endanlega sigrast á feimninni og það er ég þakklát fyrir. Óska öllum kjark til að standa fyrir sínum skoðunum óháð flokkastuðningi. Styrkur hvers og eins er ekki raunverulegur nema hann komi frá kjarna einstaklingsins.
Anna Sigríður Guðmundsdóttir, 7.10.2009 kl. 16:42
Ómar, hvaða helvítis valdaklíku ertu að þvæla um? Ertu að tala um Bjarna Ben? Þingmenn Sjálfstæðisflokksins í dag? Ertu að tala um Davíð á Mogganum? Eða mig?
Anna, hvaða svika sjálfstæðisstefnu ertu að tala um? Glæpi bankastrákanna? Er það sjálfstæðisstefna ? Færðu rök fyrir því.
Halldór Jónsson, 7.10.2009 kl. 17:52
Með illu skal illt út reka.....!!!
Ómar Bjarki Smárason, 7.10.2009 kl. 21:21
Það er þá annarsstaðar en í Sjálfstæðislfokknum sérstaklega Ómar Bjarki. Icesave var ekki á ábyrgð flokksins, Heldur ekki einstakir ráðamenn sem klikka í starfi. Reyndu að greina á milli hugsjóna og einstakra manna.
Halldór Jónsson, 7.10.2009 kl. 22:57
Þú ert kominn á fjandi gott flug, Halldór minn! Þú endar í ritstjórninni á Mogga
Ómar Bjarki Smárason, 9.10.2009 kl. 00:36
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.