.....Og fyrst lág skólagjöld eru efst í huga ungra Evrópusinna, mætti í því samhengi rifja upp að Ísland myndi alltaf borga meira til samneyslu og styrkjakerfis ESB en það fengi frá ESB, væri Ísland þar inni. Þetta er vegna þess að framlög miðast við þjóðartekjur á mann - og á Íslandi eru þær langt yfir meðallagi innan ESB. .....
Hversu miklu þurftum við að fórna fyrir inngönguna í »fyrirheitna landið« sem Eiríkur Bergmann og félagar lofuðu okkur? Fiskurinn í sjónum er ekki lengur okkar - heldur kvóti í eigu sjómanna í Bretlandi, Portúgal, Spáni og víðar, allar landbúnaðarvörur koma aðsendar frá Evrópu því það eru engir bændur á Íslandi lengur, Alþingi er að mestu leyti valdalaust og við erum ennþá að bíða eftir evrunni þar sem við uppfyllum ekki ennþá Maastricht-skilyrðin. Og hvað fengum við í staðinn?
Unga fólkið greiðir lægri skólagjöld en áður en það skiptir engu máli því það fær enga vinnu. Atvinnuleysið er 8,3%, tvöfalt hærra hjá ungu fólki en samt er það undir meðaltali innan Evrópusambandsins. Við eigum þrjú atkvæði af 350 í ráðherraráðinu sem er innan við 1% og 5 atkvæði af 750 á Evrópuþinginu í Brussel sem er um 0,6% atkvæða. Við erum langminnsta ríkið í Evrópufjölskyldunni - en við erum ekki einu sinni litli bróðir heldur bara litli puttinn á litla bróður.Við hugsum kannski oft til þess hvernig það væri að vera komin út úr sambandinu en leiðin þangað út er svo torveld og löng að við nennum því ekki. Að auki hefur ríki sem segir sig úr sambandinu enga milliríkjasamninga og það tekur mörg ár að koma þeim á aftur. Við einfaldlega þorum ekki.
Hver er svo staðan í dag? Það er staðreynd að fjöldi ungs fólks íhugar landflótta - ef það er ekki farið nú þegar. Með öðrum orðum er gríðarlegur spekileki yfirvofandi. Ef þetta burðuga unga fólk flýr land í unnvörpum er okkur mikill vandi á höndum.Til eru stjórnmálamenn - æðstu ráðamenn þessa lands - sem halda því fram að aðild að Evrópusambandinu sé lausnin á vandamálum okkar og muni tryggja að unga fólkið haldist heima. Þeir ýta undir ýmsar mýtur sem eiga sér litla stoð í raunveruleikanum.
Þeir vilja halda því fram að Ísland muni ná góðum samningum við sambandið - að viðræðurnar verði bara eins og hlaðborð sem hægt er að velja girnilegustu réttina og sleppa hinum. Í sögu ESB hefur engin þjóð hlotið heiðursaðild að bandalaginu nema kannski gamla Kola- og stálbandalagið (sem við tilheyrum að sjálfsögðu ekki).Engin smáríki hafa fengið að beygja, hvað þá brjóta reglur ESB og það er óskhyggja að halda að Ísland fengi varanlegar undanþágur frá sameiginlegu fiskveiðistefnunni, landbúnaðarstefnunni, tollastefnunni eða öðru reglugerðafargani. Það verður ekki samið - ESB er heilsteyptur pakki sem þjóðir taka við í heild sinni eða sleppa með öllu.
Ástæðurnar fyrir því að ganga ekki í ESB eru svo margar og veigamiklar að hvorki evrurökin, lág skólagjöld né loforð jafnaðarmanna um ódýrar kjúklingabringur duga til að réttlæta aðild.Erum við virkilega tilbúin að fórna fullveldinu, fæðuöryggi, samningsfrelsi og umráðum yfir auðlindunum fyrir þetta ? Ég á mjög bágt með að trúa því.
Ef það er einlægur ásetningur ráðamanna okkar að ganga inn í Evrópusambandið, myndi ég heldur vilja vera níræð en nítján ára svo ég þyrfti að horfa sem styst upp á Ísland sem sjávarþorp í Evrópu.Framundan er löng og ströng barátta. Lýðræðislega kjörnir fulltrúar okkar kusu að sækja um aðild að Evrópusambandinu, þvert á þjóðarvilja; við töpuðum kannski orrustunni en stríðið en ennþá í fullum gangi. Sjáum nú til þess að þjóðin kjósi rétt loksins þegar samningurinn verður lagður fyrir hana. Það gerum við með upplýstri umræðu því vel upplýst þjóð kýs gegn ESB-aðild. Gerum það fyrir unga fólkið og komandi kynslóðir því það eru þau sem erfa landið."
Maður fyllist von um að þjóðin eigi möguleika á að átta sig á Vefurum Keisarans í Samfylkingunni þegar maður les svona skrif frá ungri konu. Við hinir eldri, sem eigum að geta áttað okkur á sögulegu samhengi Evrópusögunnar sjáum í hendi okkar hvert stefnir með Evrópusambandið. Það fer um það eins og breska heimsveldið, það deyr innanfrá.
Látum ekki kratana blekkja okkur með fagurgala. Við erum ríkasta þjóð í Evrópu ef rétt er á haldið og eyðileggjum það ekki eins og margar Evrópuþjóðirnar hafa gert með óhóflegum innflutningi óskylds fólks.
V.Kratahjalið er bull og blekking. Eins og Birna Björg segir er langt í Evruna hjá okkur fyrr en við erum búin að borga Icesave fyrir Steingrím. Hver vill skipta sínu fé núna á 300 krónum fyrir Evru ef það væri í boði ? Og ef ekki nún, þá hvenær? Og á hvaða gengi ?
Við Íslendingar eigum langtum meiri möguleika einir og sér heldur en verða nýlenda Þýskalands
Athugasemdir
Takk fyrir að vekja athygli mína á þessari fínu grein Halldór.
Hér er smávegis með kvöldmatnum, þetta var að gerast rétt í þessu:
WSJ; Austria Nationalizes BayernLB Unit
Þetta er frétt úr evruríkinu Austurríki sem liggur umvafið fjallagörðum Skjaldborga Brussel. MYNT AUSTURRÍKIS ER EVRA
Tralla lalla la.
Góðar kveðjur
Gunnar Rögnvaldsson, 14.12.2009 kl. 14:01
Gunnar linkurin virkar ekki....
og já frábær grein hjá þessari stúlku...svona gerist þegar fólk leitar sér upplýsinga um málefnin en lætur ekki mata sig af matreiddum staðreyndavillum
Karen Elísabet Halldórsdóttir (IP-tala skráð) 14.12.2009 kl. 17:26
Ef þetta er sama stúlkan og ég heyrði flytja kröftuga ræðu í nóvember, sem ég tel nokkuð víst, þá heitir hún Brynja (ekki Birna). Hún er með eigin bloggsíðu þótt hún skrifi ekki um Evrópuríkið þar, a.m.k. ekki ennþá.
Haraldur Hansson, 14.12.2009 kl. 18:01
Já Karen. rétt. WSJ hefur flutt síðuna
Hér er Bloomberg: Bloomberg: Austria Decides to Nationalize Hypo Alpe-Adria Bank (Update3)
Og Reauters
MUNICH, Dec 14 (Reuters) - German Landesbank BayernLB [BAYLB.UL] said it did not need additional capital to shoulder writedowns from the nationalisation of its Austrian unit Hypo Group Alpe Adria.
BayernLB, on Monday said it would sell its 67 percent stake in HGAA to Austria for one euro, a move that will lead to writedowns of 2.3 billion euros ($3.37 billion) for the Munich-based lender.
BayernLB's core capital ratio will take only a marginal hit from HGAA writedowns, a source familiar with the matter said.
Its core capital ratio was 10.7 percent as of end of June.
BayernLB, which is owned by Bavaria, will give an additional 825 million euros in capital, and leave 3 billion euros of liquidity in HGAA.
Hypo, Austria's sixth-biggest bank, which is also a major lender in the former Yugoslavia, needed a bailout after requiring up to 1.7 billion euros for writedowns and loan losses which threatened to wipe out a large part of its capital.
Austria is taking over 100 percent of Hypo from BayernLB [BAYLB.UL], insurer Grawe and the Austrian state of Carinthia, after shareholders agreed to inject around 1 billion euros in capital.
Gunnar Rögnvaldsson, 14.12.2009 kl. 18:04
Fín grein og ekki verra að stúlkan bendir á flækjustigið sem þátttaka í ESB leiðir af sér. Þegar þjóð afsalar þér réttinum til að semja um málefni sín við aðra, þá er það nánast ókleifur hamar að vinna markaði á ný.
Viðkvæði þeirra sem reka ESB áróðurinn er að líki manni ekki vistin í sæluríkinu, þá geti menn bara gengið út. En eins og Brynja Björg bendir á þá er það hægara sagt en gert.
Ísland er ekki á flæðiskeri með svona ungmenni.
Ragnhildur Kolka, 14.12.2009 kl. 19:16
Framtíðin er björt.
Takk fyrir þetta Halldór
Guðmundur Jónsson, 14.12.2009 kl. 22:09
Flott grein og gott að vekja athygli á henni.
Stórveldi rísa og hníga. Það er þeirra eðli og náttúra.
Sama gerðist með íslenska viðskiptastórveldið. Það reis hratt og hneig enn hraðar í fjálsu falli og er enn á niðurleið.....
Vonandi verður það okkar gæfa til lengri tíma litið að blómatími auðvisanna stóð ekki allt of lengi.....
Ómar Bjarki Smárason, 14.12.2009 kl. 23:01
Það var verra að nafnist skyldi skolast til hjá mér, hvernig sem það nú gerðist. Það er gaman fyrir okkur , aðra en Steingrím J. að vita til þess að svona skoðanir er að finna innan flokksins hans. Ekki veit ég hvað Steingrímur gerir til þess að þagga niður í Brynju, en Steingrímur vill sjálfsagt að VG syngi eina rödd með sér í hallelújakafla Evrópukórsins svo hann fái að vera ráðherra enn um stund.
Halldór Jónsson, 14.12.2009 kl. 23:39
Vg liðar eru nú bara sendir í frí þegar mikið liggur við, Halldór. Það þarf ekki að koma á óvart þó Ásmundur Einar þurfi að fara að undirbúa sauðburðinn eða sinna öðrum meira áríðandi málefnum þannig að hægt verði að kalla inn mann eða konu með rétta skoðun á Icesave og ESB málum. Og kannski fellur ESB afgreiðslan saman við sauðburðinn í vor....? Og það er heilmikið bókhald í tegslum við búskapinn og svo fæðast börn í sveitinni flest vor, bara spurning um hvar og nákvæmlega hvenær.....!
Ómar Bjarki Smárason, 14.12.2009 kl. 23:57
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.