30.12.2009 | 15:13
Á mér að finnast þetta í lagi ?
Að hugsa sér !
Þeir Svavar Gestsson og samverkamenn hans leyndu ráðherran þeim upplýsingum sem þeim fannst vera truflandi fyrir Icesave samninginn með glæsilegu niðurstöðunni.
"Í trúnaðarbréfi lögmannsstofunnar Mishcon de Reya, undirrituðu af Mike Stubbs, frá í gær til fjárlaganefndar Alþingis segir fyrst að stofan sé að fara vandlega yfir öll skjöl sín sem snerti Icesave-málið og bera þau saman við það sem birt hafi verið á vefsíðunni www.island.is, bæði þau sem séu öllum opin og einnig þau sem falli undir gr. 82 og Alþingi haldi leynilegum. »Þetta mun taka nokkurn tíma en við getum strax afhent ykkur eftirfarandi skjöl sem ekki virðast vera tilgreind á vefsíðunni www.island.is: 1. Athugasemd frá Matthew Collings lögmanni þar sem fjallað er um hugsanlega málshöfðun vegna aðgerða bresku ríkisstjórnarinnar, afhent hr. Svavari Gestssyni, formanni Icesave-nefndarinnar, dagsett 25. mars 2009. 2. Icesave - málefni og lausnir, kynning frá Mishcon de Reya til hr. Svavars Gestssonar, formanns Icesave-nefndarinnar, dagsett 26. mars 2009. 3. Þriðja leiðin, athugasemd til bráðabirgða sem fylgiskjal með kynningu frá Mishcon de Reya til hr. Össurar Skarphéðinssonar utanríkisráðherra, dagsett 31. mars 2009. Við höfum ennfremur fundið fjölda annarra skjala sem ekki virðast heldur vera tilgreind á vefsíðunni www.island.is, þ. á m. (i) innanbúðarminnisblað fyrri ríkisstjórnar Íslands um Icesave, (ii) bréfasendingar til alþjóðlegra stofnana eins og Eftirlitsstofnunar Efta og Ecofin, (iii) nokkur skjöl viðvíkjandi Landsbankanum og tillögur hans um Þriðju leiðina, og (iv) bréfasamskipti okkar við Icesave-nefndina og fjármálaráðuneytið, þ. á m. tölvuskeyti.« Búist sé við að hægt verði að senda þessi gögn og önnur til þingsins síðar sama dag [þriðjudag]. Minnt er á að ráðgjöf lögmannsstofunnar hafi tekið mið af þeim markmiðum sem Icesave-nefndin hafi kynnt stofunni, það er að gera sem auðveldast að ná samningi við Breta og Hollendinga sem þjóðin réði við fjárhagslega og hægt væri að fá hana til að samþykkja. Pólitískt viðkvæm málshöfðun fyrir Breta Mishcon de Reya segir að í áðurnefndum skjölum sé minnst á hugsanlega málshöfðun vegna aðgerða breskra stjórnvalda. »Eins og við sögðum Icesave-nefndinni og fjármálaráðuneytinu um þetta leyti gæti slík málshöfðun gegn FSA [breska fjármálaeftirlitinu] verið pólitískt viðkvæm fyrir bresku ríkisstjórnina og gæti því ef til vill orðið gagnlegt tæki til að ná viðspyrnu gagnvart breskum stjórnvöldum í endanlegum samningum um Icesave. Þessi viðkvæma staða olli því að formaður Icesave-nefndarinnar ákvað að þetta atriði í kynningu okkar frá 26. mars 2009 yrði ekki með í seinni kynningu okkar frá 29. mars til hr. Össurar Skarphéðinssonar en hann fékk hana afhenta 31. mars á fundi í London. Þar sem formaður Icesave-nefndarinnar var skjólstæðingur okkar var það að sjálfsögðu hans að ákveða hvaða fyrirmæli við fengjum um innihald kynninganna. Urðum við og hr. [Svavar] Gestsson sammála um að meðhöndla skyldi þetta atriði málsins með geysilegri varúð og gæta algers trúnaðar þar sem það gæti dregið úr gildi hugsanlegrar viðspyrnu sem [málshöfðunin] gæti haft í för með sér í samningaviðræðum síðar við bresku stjórnina ef innihaldið læki út. Við vitum að sjálfsögðu ekki hvort þessi viðspyrna var í reynd notuð í samningaviðræðum síðar um Icesave þar sem við tókum ekki þátt i þeim. Við vitum ekki heldur hvort gerð var einhver efnahagsleg eða fjárhagsleg greining eða hún notuð af hálfu Icesave-nefndarinnar í tengslum við þessar samningaviðræður og sú spurning er auðvitað býsna mikilvæg þegar túlka skal ráðgjöf okkar til fjárlaganefndar frá 19. desember 2009. Ef umrædd viðspyrna var ekki notuð á sínum tíma og sé það enn vilji Alþingis að hefja aftur viðræður við Breta, eins og við fjöllum um hér á eftir, myndum við sem fyrr mæla sterklega með því að þessar upplýsingar yrðu áfram trúnaðarmál. En ef Alþingi hins vegar vill ekki hefja aftur samningaviðræður við Breta og vill samþykkja Icesave-samninginn eins og hann liggur fyrir er það Alþingis að ákveða hvort það vill aflétta leynd á þessum upplýsingum.«Lögmannsstofan segir að gagnlegt geti verið að fresta niðurstöðu í málinu um hríð »innan hóflegra takmarka« til að ná fram »-samningsins sem lagalegri fullvissu um nákvæma og merkingu og áhrif Icesavevið álítum sem stendur að sé óskýr« og kanna til hlítar hve mikill sveigjanleiki sé fyrir hendi til að semja á ný. "
Breytir engu segir Steingrímur J.
Hverra erinda gengur þessi maður ?
Á mér bara að finnast þetta í lagi ?
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.12.): 1
- Sl. sólarhring: 8
- Sl. viku: 29
- Frá upphafi: 3419866
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 26
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- Maí 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Ágúst 2021
- Júlí 2021
- Júní 2021
- Maí 2021
- Apríl 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Júlí 2020
- Júní 2020
- Maí 2020
- Apríl 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2020
- Janúar 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Ágúst 2017
- Júlí 2017
- Júní 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
Bloggvinir
- ghe13
- sigurjonth
- andrigeir
- annabjorghjartardottir
- ansigu
- agbjarn
- armannkr
- asdisol
- baldher
- h2o
- bjarnihardar
- dullur
- bjarnimax
- zippo
- westurfari
- gattin
- bryndisharalds
- davpal
- eggman
- greindur
- bjartsynisflokkurinn
- elfarlogi
- eeelle
- sunna2
- ea
- fuf
- fhg
- vidhorf
- gerdurpalma112
- gilsneggerz
- gudni-is
- lucas
- zumann
- gp
- gun
- topplistinn
- tilveran-i-esb
- skulablogg
- gustafskulason
- gustaf
- heimssyn
- diva73
- helgi-sigmunds
- hjaltisig
- minos
- hordurhalldorsson
- astromix
- fun
- jennystefania
- johanneliasson
- johannvegas
- jonatlikristjansson
- fiski
- jonl
- jonmagnusson
- jonlindal
- bassinn
- jonvalurjensson
- jvj
- thjodarskutan
- juliusbearsson
- katagunn
- kje
- ksh
- kristinn-karl
- kristinnp
- kristjan9
- loftslag
- altice
- ludvikjuliusson
- maggij
- magnusthor
- mathieu
- nielsfinsen
- omarbjarki
- huldumenn
- svarthamar
- pallvil
- peturmikli
- valdimarg
- ragnarb
- samstada-thjodar
- fullveldi
- siggus10
- sisi
- siggisig
- ziggi
- siggith
- stjornlagathing
- pandora
- spurs
- kleppari
- saethorhelgi
- tibsen
- ubk
- valdimarjohannesson
- skolli
- valurstef
- vilhjalmurarnason
- vey
- postdoc
- thjodarheidur
- icerock
- steinig
- thorsteinnhelgi
- icekeiko
Athugasemdir
Sæll frændi.
Ég hef eins og flestir verið að furða mig á því hvers vegna svona mikið liggur á að samþykkja lögin frá Alþingi fyrir áramót.
Mér datt í hug ein hugsanleg skýring áðan:
Forseti Íslands flytur sitt áramótaávarp annað kvöld. Það mun hann væntanlega útskýra afstöðu sína, og ef að líkum lætur, hvers vegna hann hafi undirritað lögin fyrr um daginn.
Það er nokkuð víst að ávarp forseta sé tekið upp fyrirfram, þ.e. ekki er um beina útsendingu að ræða. Þess vegna er forsetinn nú þegar búinn að semja sína ræðu og flytja hana fyrir framan myndavélarnar. Ræðunni verður því ekki auðveldlega breytt. Því þykir ríkisstjórninni og forsetanum mikilvægt að raunveruleikinn verði í samræmi við áramótaávarpið sem þegar hefur verið samið og tekið upp.
Af þessum sökum er mikilvægt að ljúka málinu í dag að mati ríkisstjórnarinnar.
Þetta er auðvitað bara tilgáta...
Ágúst H Bjarnason, 30.12.2009 kl. 16:55
Góð tilgáta, Ágúst. Kannski er Ólafur farinn af landi brott og búinn að flytja sitt ávarp.... og svo er kannski búið að skrifa ræðunar fyrir forsætisráðherra einnig og ræðuritarinn farinn í frí... það er að mörgu að huga í þessu....
En það getur auðvitað líka verið að það sé gert ráð fyrir því í Áramótaskaupinu að það sé búið að semja um Icesave, sem er auðvitað miklu alvarlegra mál.....!!!
Ómar Bjarki Smárason, 30.12.2009 kl. 17:32
Halldór minn. Þér og öllum öðrum Íslendingum á að finnast það sem verður til í þeirra huga og hjarta. Við erum skyldug til að mynda okkur skoðun út frá okkar eigin hjarta og persónuleika en ekki svikulum fréttaflutningi þessa lands. M.b.kv. Anna
Anna Sigríður Guðmundsdóttir, 30.12.2009 kl. 18:10
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.