31.12.2009 | 00:00
Icesave í höfn !
Þá höfum við Icesave að hætti Svavars,Indriða og Steingríms afgreitt. Þeir sem vilja taka þátt í greiðslunni geta verið hér áfram. Hinir geta farið annað, ef þeir geta og nenna.
Mikið var annars ömurlegt að horfa á málfundaræfinguna í Gaggó Austurvöllur þega atkvæðagreiðslan fór fram. Mér fannst Ögmundur samt fyllstur af ábyrgðinni sem ætlaði að sliga suma uppi i pontunni sem meintu auðvitað ekkert annað en að sýna kjósendum sínum að þeir væru þarna og talsvert allsgáðir eins og Sigmundur Ernir. Mín vegna gátu þeir sleppt þessari sýningu. Spilið var fyrirfram tapað og þessa flugeldasýningu þurfti alls ekki. Samspil Kratanna og Kommatittanna var algert.
Nú tekur veruleikinn við hjá þjóðinni. Eitt skemmtiatriðið er eftir og það er nýjársávarp okkar ástsæla Forseta, mannsins sem Pétur Blöndal og Ásmundur Daði setja traust sitt á til að hafa vit fyrir þeim sjálfum. Ég skammast mín núna innst inni djúpt fyrir það að hafa sett nafn mitt á listann um að biðja þennan mann um að vísa málinu til þjóðarinnar. En París var mér þá þó einnar messu virði eins og Henrik Prins sagði, og minnugur þess setti ég nafn mitt á lista InDefence. En það breytir ekki því að af Forseta Íslands vil ég ávallt sem minnst vita þessa heims héðan af sem hingað til. svo mjög sem ég fyrirlít þetta embætti og allt sem því tengist. Mér er ekkert illa við fólkið sem hefur gengt því og haft af því lifibrauð, en það breytir minni skoðun á embættinu ekki hætishót.
Nú er kaldur vetur framundan hjá hnípinni þjóð. Fjárhagsleg framtíð hennar er á þunnum Ice. Stundum verður skamma stund hönd höggi fegin.
Icesave er í höfn !
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.12.): 1
- Sl. sólarhring: 8
- Sl. viku: 29
- Frá upphafi: 3419866
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 26
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- Maí 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Ágúst 2021
- Júlí 2021
- Júní 2021
- Maí 2021
- Apríl 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Júlí 2020
- Júní 2020
- Maí 2020
- Apríl 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2020
- Janúar 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Ágúst 2017
- Júlí 2017
- Júní 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
Bloggvinir
- ghe13
- sigurjonth
- andrigeir
- annabjorghjartardottir
- ansigu
- agbjarn
- armannkr
- asdisol
- baldher
- h2o
- bjarnihardar
- dullur
- bjarnimax
- zippo
- westurfari
- gattin
- bryndisharalds
- davpal
- eggman
- greindur
- bjartsynisflokkurinn
- elfarlogi
- eeelle
- sunna2
- ea
- fuf
- fhg
- vidhorf
- gerdurpalma112
- gilsneggerz
- gudni-is
- lucas
- zumann
- gp
- gun
- topplistinn
- tilveran-i-esb
- skulablogg
- gustafskulason
- gustaf
- heimssyn
- diva73
- helgi-sigmunds
- hjaltisig
- minos
- hordurhalldorsson
- astromix
- fun
- jennystefania
- johanneliasson
- johannvegas
- jonatlikristjansson
- fiski
- jonl
- jonmagnusson
- jonlindal
- bassinn
- jonvalurjensson
- jvj
- thjodarskutan
- juliusbearsson
- katagunn
- kje
- ksh
- kristinn-karl
- kristinnp
- kristjan9
- loftslag
- altice
- ludvikjuliusson
- maggij
- magnusthor
- mathieu
- nielsfinsen
- omarbjarki
- huldumenn
- svarthamar
- pallvil
- peturmikli
- valdimarg
- ragnarb
- samstada-thjodar
- fullveldi
- siggus10
- sisi
- siggisig
- ziggi
- siggith
- stjornlagathing
- pandora
- spurs
- kleppari
- saethorhelgi
- tibsen
- ubk
- valdimarjohannesson
- skolli
- valurstef
- vilhjalmurarnason
- vey
- postdoc
- thjodarheidur
- icerock
- steinig
- thorsteinnhelgi
- icekeiko
Athugasemdir
Æi já, í dag er gott að vera gamall maður og í þann mund að deyja.
Baldur Hermannsson, 31.12.2009 kl. 00:28
Afskaplega tilfinningaþrungin stund að sjá "jáarana",næstum klökka eða ögrandi eins og Sigmund Erni,guð minn góður þetta lið er að stjórna landinu.
Helga Kristjánsdóttir, 31.12.2009 kl. 01:20
Það ætti að beita hér gömlu, góðu ráði: að gera þá útlæga, sem greiddu atkvæði með þessu, og eignir þeirra upptækar. Eða hefurðu betri hugmynd, Halldór minn?
Það var allsendis óþarfi af Ögmundi að bera lof á Róbert Marshall. Það er hægt að gera sig dapran í framan og svíkja síðan þjóð sína. Í þann pyttinn féllu sumir, en hinir voru þó furðanlegri, sem gengu til síns jásvars með fítons-formælingar eða sjálfsréttlæti á vörunum.
Jón Valur Jensson, 31.12.2009 kl. 02:15
Það er eftir ykkur aftaníossum gæsalappa að koma með þessa tillögu sem Jón Valur er með.
Það á að stinga slökkviliðinu í steininn og gera eignir slökkviliðsmanna upptækar, en sleppa útrásarglæponunum og jafnvel heiðra þá.
Gott hjá ykkur fyrrverandi nemendum súpergaggó á melonum
Ragnar L Benediktsson, 31.12.2009 kl. 11:02
Íslenski þrælinn stígur ekki í vitið, og það sama má nú segja um flesta kjósendur VG. Sá FL-okkur hefur aldrei gáfulegar lausnir fram að færa, í raun bara drasl. Samspillingin er svo bara stórhættulegur EB flokkur. Formaður VG talaði allt öðru vísi fyrir hrun, en snérist svo eins og VINDHANNI 360 gráður, í flest öllum málum, það er afrek út af fyrir sig. Þjóðin & alþingi hefur sýnt fram á vilja í sumar að við viljum greiða tengt Icesave þó okkur beri í raun ekki lagaleg skylda til þess, þá viljum við axla "pólitíska & siðferðislega ábyrgð á okkar glæpamönnum" - en SteinFREÐUR & Svavar sömdu svo illa af sér að hér verður "frostavetur næstu 20 árin með tilheyrandi fátæk" - svo kalla þessir aular sig "Norræna velferðastjórn" - klækastjórn hjá vinstri mönnum, það liggur við að maður æli, aulaskapur þessa liðs er ótrúlegur. Þráinn Bertelsson talaði um fyrir rúmu ári síðan að það væri aumingjarskapur hjá ríkisstjórninni að vera á hjánum fyrir nýlenduveldum UK & Hollendinga. Svo segir hann nú (á hnjánum) að lengra verði ekki komist. Þetta lið er óborganlegt og leiksýningar þær sem þeir setja upp á alþingi eru yfirleit til háborinnar skammar.
Óli grís kan "klækastjórnmál & lýðskrum" enda vinstri maður í húð & hár. Óli var UMBOÐSMAÐUR útrásarskúrkanna og það fer vel á því að maður með "skítlegt eðli" samþykki þessi (ó)lög, gegn 70% vilja þjóðarinnar, það er ekki gjá, bilið er of stórt til að vera gjá, í raun bara "himinn & haf milli þings & þjóðar" enda skilur ekki þjóðin þá ÖMURLEGU verkstjórn Jóhönnu & SteinFREÐS í þessu skelfilega máli. Geta íslenskra stjórnmálamanna er til skammar, ef þetta lið væri að vinna fyrir einkafyrirtæki þá væri búið að reka það á staðnum. Óli grís á að SAMEINA þjóðina, en leppalúði er snillingur í að SUNDRA þjóðinni. Ég segi nú bara um okkar skítapakk - sorry - okkar stjórnmálamenn "helvítis fukking fukk".
kv. Heilbrigð skynsemi (fun.blog.is)
Jakob Þór Haraldsson, 31.12.2009 kl. 12:40
Kæri Ragnar að ofan: Steingrímur J. Sigfússon hefur logið og logið og svikið: Steingrímur J. í janúar sl.:
Eins og undirritaður lýsti yfir við atkvæðagreiðslu um málið í þinginu 5. desember síðastliðinn lítur þingflokkur Vinstri grænna á samninginn sem riftanlegan eða ógildanlegan nauðungarsamning:
http://www.amx.is/adgerd.php?adgerd=pdf&id=7628
Hlustaðirðu á ræðurnar hans og lygarnar síðan hann varð að undirlægju Samfylkingar Jóhönnu??? Núna er Icesave ekki lengur Samfylkingunni að kenna samkvæmt lygunum í honum og Jóhönnu. Það er nú samt þannig að ICESAVE-STJÓRN Jóhönnu og Steingríms á Icesave og er eina stjórnin sem hefur samþykkt Icesave-kúgun. Og ég kaus VG: Í SÍÐASTA SINN.
Elle_, 31.12.2009 kl. 15:58
Ragnar, þú ert grófur að kalla mg og fleiri hér "aftaníossa gæsalappa". Þú minnist hér á útrásaglæpona, en við höfum ekkert verið að verja þá, hins vegar vilt þú greinilega (ekki sízt samkvæmt innleggi þínu á minni Þráins-skamma-síðu) borga fyrir skuldir þeirra!!! Björgólfur Thor og faðir hans Björgólfur eru ábyrgir fyrir þessum Icesave-skuldum Landsbankans, og bæði þú og þeir viljið velta þeim yfir á þjóðina! Kanntu ekki að skammast þín?
Á unga kynslóðin í landinu að borga einkaskuldir útrásarauðkýfinga? – manna sem eru ekki einu sinni búnir að borga kaupverð Landsbankans til ríkisins og hafa til að bera þá ótrúlegu óskammfeilni, að fyrir fáeinum mánuðum óskuðu þeir eftir helmings-afslætti á Kaupþingsláninu sem þeir tóku til kaupanna á Landsbankanum! - "bara" þriggja MILLJARÐA króna afslátt!! - sem er þó brotabrot af því, sem þú og þínir líkar, gersamlega fáfróðir eins og þið eruð, viljið þvert gegn lögum láta ÞJÓÐINA taka á sig af skuldum þessa prívatbanka!
Á meðan styður þú sennilega Samfylkinguna, flokk bankamálaráðherrans fyrrverandi Björgvins G. Sigurðssonar, sem flokkurinn treystir nú til að vera sinn þingflokksformaður! Allur og óskiptur kýs sami flokkur með þessum þjóðsvikalögum í gær, en ekki nóg með það, heldur er iðnaðarráðfreyja flokksins, Katrín Júlíusdóttir, nýbúin að samþykkja, að sami vanskilamaður, útrásarvíkingurinn Björgólfur Thor, fái að kaupa vænan hlut í orkufyrirtæki hér á landi, án þess að hafa staðið í skilum við ríkið vegna Landsbankans!
Hvað er að í þessu þjóðfélagi? Af hverju er ekki allt vitlaust út af þessu öllu? Hvaða heybrækur eru þeir, sem vita þetta allt, en gera EKKERT í því?
Eruð þið búnir að skrifa ykkur inn á lista InDefence-hópsins, lesendur góðir? Smellið ykkur inn á hann hér ofar til að skoða ykkur um. Þetta er í raun og veru bænarskrá til forsetans, að hann leyfi þjóðinni að ráða í þessu alvarlega máli hennar. Þjóðin þekkir málið. Hún á að ráða.
Spennandi frétt: Nú hafa 49.962 skrifað undir áskorun þessa til forseta Íslands. Hver vill verða nr. 50.000?
Jón Valur Jensson, 31.12.2009 kl. 17:15
Lesið þið nú lögin í rólegheitum. ´Þegar Sjálfstæðisflokkurinn kemur aftur til valda verður allt þetta mál tekið upp og samningamenn með viti sendir á fund Breta og Hollendinga sem munu semja um málið uoppá nýtt. Það eru allar gáttir opnar. En auðvitað verður að velja samningamennina betur en síðast var. gert.
Upp með húmorinn Jón Valur, þetta er ekki búið enn. Nú skulum við njóta þess að sjá Óla forseta sprikla á milli eigin yfirlýsinga og kommasálarinnar sinnar.
Halldór Jónsson, 31.12.2009 kl. 17:40
Ykkur til gamans:
Pressan: http://www.pressan.is/Frettir/Lesafrett/eirikur-gudna-um-gagnryni-a-vedlan-sedlabankans-um-samantekin-politisk-rad-ad-raeda
31. des. 2009 - 16:00
Eiríkur Guðna um gagnrýni á veðlán Seðlabankans: Um samantekin pólitísk ráð að ræða
Eiríkur Guðnason fyrrverandi Seðlabankastjóri segir gagnrýni veðlán Seðlabankans árið 2008 dæmigerða eftiráskýringu og telur hann að um samantekin ráð hafi verið að ræða þegar gagnrýnin komst á flug aftur um mánaðamótin september-október síðastliðnum. Eiríkur gagnrýnir jafnframt lánshæfismats fyrirtækin sem hann segir hafa farið offari.
Jóhanna Sigurðardóttir gerði veðlán Seðlabankans að umtalsefni í ræðustól í gær og hafa þekktir Pressupennar deilt um málefni Seðlabankans undanfarnar vikur.Þetta kemur fram í viðtali við Eirík í áramótablaðið Viðskiptablaðsins. Segir hann að talsverðs misskilnings gæta í gagnrýninni og bendir hann á að rannsókn hljóti að beinast að eignum og framsetningu reikninga viðskiptabankanna. Áberandi í gagnrýni á veðlánin hafa verið athugasemdir um að bankinn hefði átt að taka veð í eignum bankanna en ekki einungis skuldabréfunum, Eiríkur segir bréfin sem Seðlabankinn tók sem veð hafi útgefin af bönkum með viðunandi lánshæfismat og eiginfjárstöðu á þeim tíma og því hefði mátt ætla að þetta væru góð veð. „Reynist þau verðlítil hefur eitthvað verið stórlega athugavert við mat á eignum og framsetningu reikninga hjá hlutaðeigandi fjármálafyrirtækjum.“
Eiríkur segist sannfærður um að gagnrýnin á Seðlabankann hafa verið af pólitískum toga og mótaðist af miklum fordómum gagnvart Davíð Oddssyni. „Það sem Seðlabankinn gerði hér var viðleitni til að mæta vanda sem steðjaði, auðvitað í þeirri von að aðstæður myndu lagast aftur, millibankamarkaðir tækju að mikðla fé á ný og alþjóðakreppan að ganga til baka. Það tókst því miður ekki“.
Baldur Hermannsson, 31.12.2009 kl. 17:45
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.