13.5.2019 | 09:24
CO2 dellan
birtist í töflu https://wattsupwiththat.com/2013/11/13/why-and-how-the-ipcc-demonized-co2-with-manufactured-information/https://wattsupwiththat.com/2013/11/13/why-and-how-the-ipcc-demonized-co2-with-manufactured-information/
Það r löngu vitað að það er vatnsgufan í andrúmsloftinu sem hefur mest áhrif á endurkast sólarljóss í lofthjúpnum. Þess í stað tala AlGore söfnuðurinn og fjörtíuþúsund Parísarfíflin um CO2 sem óvin mannkyns.
Hvað eiga kolefnisjöfnunartréin að éta þegar þau stækka? Eitthvað annað en CO2, pizzur eða svoleiðis?
13.5.2019 | 09:11
Allt nema sprinkler
virðist koma til greina hjá vinstra liðinu þegar hugsanlega einhverjir kveikja í skólunum sínum eins og virðist gerast ítrekað í Seljaskóla.
Það er æpt á úttektir og nefndaskipanir til að finna út hvernig eigi að slökkva bál sem kviknar.
Þar sem er sprinkler brennur yfirleitt ekki.
12.5.2019 | 21:24
Reginskandall
var áróðursmynd sem RÚV dembdi yfir landsmenn á kostnað okkar skattgreiðenda um loftslagsmál.
Algerlega óðvísindalegt bull er borðið á borð án þess að nokkur vísindaleg staðreynd sé lögð til grundvallar fullyrðingunum.
Jörðin er að hlýna vegna útblásturs manna á CO2 er sett fram sem stóri sannleikur.
Allt er á hraðri leið til andskotans að mati Andra Snæs Magnasonar sem löngu er þekktur fyrir öfgasjónarmið sín í umhverfismálum. Hvaðan kemur honum öll þessi viska?
Hvar var minnst á vísindamennina Judith Curry, Sally Balunas og hvað þeir heita allir sem hafa lagt vísindalegt mat í fullyrðingar heimsendaspámannanna? CO2 hefur ekki verið lægra í andrúmslofti jarðar í 600 milljón ár eða 400 ppm. Halda menn virkilega sem hæst gala, að sólin hafi engin áhrif á hitastiga jarðar?
Hver leyfir Herði Arnarsyni forstjóra Landsvirkjunar til að tala gegn hagsmunum fyrirtækisins með þeim hætti sem hann gerir? Auðlindir Íslands eru virkjanir fallvatnanna. Heiminn vantar orku og sem mest af vistvænni og endurnýjanlegri orku
Þessi mynd er einhliða móðursýki og rórökstutt trúboð á hæsta stigi sem er óundirbyggt vísindalegu rökum með öllu. Allri skuld er skellt á ósannaðar fullyrðingar um manngerða hlýnun lofthjúpsins án þess að nokkur vísindalegar efasemdir séu leiddar fram á móti þessum fullyrðingum.
Hið raunverulega vandamál er offjölgun jarðarbúa. Allt er tilgangslaust sem menn reyna að gera til að takmarka losun CO2 í iðnaðarríkjum ef ekki tekst að ná tökum á vitfirringslegri fjölgun fólks sem er sérstaklega mikil í þeim ríkjum þar sem menningin og þekkingin er á lægsta stigi.
Mannkynið er 7.7 milljarðar og hefur þrefaldast á 70 árum. Það verður að stöðva stjórnlausa fjölgun Afríkubúa og sumra Asíulanda á einhvern hátt ef komast á hjá sjálfsmorði jarðarbúa.
Fjölgun Vesturlandsbúa er að stöðvast af sjálfu sér auk þess að við Íslendingar förum að eyða fóstrum okkar í þessu skyni sem aldrei fyrr.Fram nú allir í röð segir Svandís Svavarsdóttir.
En að æsa börnin okkar upp í órökstuddri móðursýki fyrir opinbert fé á sama tíma sem þau virðast kveikja ítrekað í sprinkler-lausum skólunum sínum tekur ekki nokkru tali.
Trump Bandaríkjaforseti virðist vera einn af þeim óbrjáluðu leiðtogum heimsins sem er með nokkurn veginn fullu viti og lætur ekki áróðursmaskínu IPCC og og olíuspekúlantinn AlGore villa sér sýn. Okkar íslensku leiðtogar gapa hinsvegar gagnrýnilaust allir sem einn upp í gervivísindin hvar sem þau birtast.
Þessi mynd RÚV var reginskandall í einhliða áróðri og móðursýki hvernig sem á það er litið.
11.5.2019 | 12:22
Fyrri orkupakkar ESB
færðu landsmönnu hærra raforkuverð sem eina af fyrstu blessunum EES samningsins.
Uppskipting RARIK og fleiri framleiðenda í sölu og dreifingarfyrirtæki færði almenningi ekkert nema auknar byrðar.
Gunnar Rögnvaldsson orðar þetta svo:
"Með orkupökkum 1+2 var mörgum skipum sleppt lausum til að elta eina og sama kílóvattið í orkulandhelgi Íslands. Þeir pakkar voru nefnilega fyrst og fremst einkavæðingarpakkar. Þeir eru algerlega og fullkomlega gagnslaust gerpitrýni embættismannaaðals ESB, á kostnað íslensks almennings. Alger plága fyrir allan almenning. Algjört þvaður frá upphafi til enda fyrir okkur hér á Íslandi.
Síðan hvenær varð það stefna Sjálfstæðisflokksins að þúsund orku(dreifingar, ha ha)fyrirtæki elti sama kílóvattið af rafmagni í orkulandhelgi Íslands?
Ég spyr.
Var það ekki þetta sem var röksemdin fyrir kvótakerfinu: að þúsund skip eltu ekki sama fiskinn í fiskveiðilandhelgi Íslands? Að allir ynnu ekki við að koma öllum á hausinn og sjálfum sér líka?"
Uppskipting í sölu og dreifingu hækkaði allt raforkuverð í landinu EES til dýrðar. Fleiri forstjórajeppar, fleiri fótboltalið til að styrkja, stærri skrifstofur, meira bókhald. Í Kaupmannahöfn má kaupa samskonar kílowatt úr tengli af fjölda einkafyrirtækja. Hérlendis einnig að einhverju leyti.
Annað fékkst nú ekki út úr þeirri fyrstu lotu einkavæðingar orkulindanna sem yfir okkur gekk þá.
Var þetta sú fyrsta af mörgum blessunum EES samningsins?
11.5.2019 | 11:56
Fram nú allir í röð
er efni umfjöllunar Reykjavíkurbréfs um helstu baráttumál Sjálfstæðisflokksins í seinni tíð.
Einn kaflinn hljóðar svo:
...."Seinni afmælisgjöfin
Á sama tíma og flokkurinn engist út af ónýtum málatilbúnaði um orkupakka hefur hann óvænt stillt sér upp undir kjörorðinu fram nú allir í röð fyrir aftan Svandísi Svavarsdóttur til að samþykkja að nú megi af nokkurri léttúð fremja fóstureyðingar þótt barn sé orðið 22 vikna gamalt í móðurkviði, sem er hið næsta því að geta lifað og þroskast eftir að hafa öðlast líf, án
Engin umræða, sem nær máli, hefur farið fram í flokknum um svo viðkvæmt mál. Það er ekki líklegt að flokksmenn taki almennt og því síður allir sem einn undir fram nú allir í röð undir þessari leiðsögn.
Það eru til rök með og á móti flestum málum og einnig þessum, sem eru þó á meðal þeirra sem snerta tilfinningarnar mjög. Sumir sækja þá skýringu sem dugar þeim í heilaga ritningu. Fráleitt er að gera lítið úr því.
En horfast verður í augu við það að fyrir alllöngu ákvað löggjafinn með mjög afgerandi meirihluta að mannalög ættu ein að gilda um þessi atriði og hefur sú orðið raunin og er áþekkt því sem gerist í flestum löndum sem við eigum helst samleið með. Því er trúarlega prinsippið að þessu leyti ekki til umræðu nú, þótt það hafi ríkulegt gildi fyrir mjög marga."...
Gömul ummæli sorgbitins manns,um að ógæfu Íslands yrði allt að vopni, rifjast óvart upp fyrir manni þegar maður hugleiðir útbreiðslumál Sjálfstæðisflokksins um þessar mundir.
En segir ekki líka hið fornkveðna að hver sé sinnar gæfu smiður? Er það nokkur annar en þingflokkurinn sem mótar gæfu og gengi Sjálfstæðisflokksins fremur en hin 90 ára gamla Sjálfstæðisstefnan?
10.5.2019 | 14:18
Kommarnir á Kjarnanum
bíða með kjaftinn opinn eftir því að Lilja Alfreðsdóttir ráðherra í ríkisstjórn með Sjálfstæðisflokknum þar sem Óli Björn er innanborðs, fari að henda í þá ríkisþjósum til að "styðja við ritstjórnarlegt sjálfstæði fjölmiðla" eins og mér heyrðist hún kalla það.
Hvert erum við komin þegar menn geta hlaupið til að stofna einhver fyrirtæki í útgáfubransanum, gera 50 milljóna fallítt og geta svo sent ríkinu reikninginn með stuðningi Sjálfstæðisflokksins?
Ég hef gefið út blaðið Sám fóstra(www.samurfostri.is) í 4 ár. En aldrei hefur mér dottið í hug að það ævintýri sé svo þjóðhagslega nauðsynlegt eins og til dæmis WOW Air var sagt vera, að mig hafi dreymt um ríkisstyrk. Tapið yrði alfarið mitt.
Þar áður kom ég að útgáfu blaðsins VOGAR fyrir Sjálfstæðisflokkinn í Kópavogi í ein 17 ár held ég. Við böluðum mestan part með sjálboðastarfi og velvilja auglýsendanna og styrktaraðila flokksins.
Mér finnst að útgáfustarfsemi, hvaða nafni sem nefnist eigi að standa undir sér. Skuldir Kommanna á Kjarnanum, á Fréttablaðinu og þeirra sem eiga Morgunblaðið eiga að vera alfarið eigendanna en ekki ríkisins.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 14:22 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
10.5.2019 | 13:18
Shangríla
Borgarráð Reykjavíkurborgar samþykkti í gær meginlínur og samningsmarkmið í viðræðum við olíufélögin, sem miða að því að fækka bensínstöðvum í borginni um helming.
Bensínstöðvar á höfuðborgarsvæðinu eru 75 en á landinu öllu eru þær 250. Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri í Reykjavík, greindi frá þessu á Facebook-síðu sinni.
Þar segir hann að í stað bensínstöðvanna komi íbúðauppbygging, verslanir eða önnur starfsemi. Skilgreindir hafa verið hvatar fyrir olíufélögin til að hraða þessari umbreytingu í samvinnu við borgina í græna átt, ritar Dagur.
Loftslagsáætlun Reykjavíkurborgar gerir ráð fyrir því að bensínstöðvum verði fækkað um helming fyrir árið 2030. Nú brá svo við að borgarráði leist svo vel á uppleggið að það sameinaðist um að herða á markmiðinu og stefna á að ná því fyrir árið 2025, ritar Dagur og bætir við: Og allir með.
Loftslagsáætlun borgarinnar gerir ráð fyrir að bensínstöðvar verði að mestu horfnar árið 2040 og að bílaumferð og almenningssamgöngur verði laus við losun gróðurhúsalofttegunda sama ár. Árið 2030 er stefnt að því að hlutdeild bílaumferðar verði 58 prósent, almenningssamgangna verði 12 prósent og gangandi og hjólandi 30 prósent."
Af hvað öld er þetta fólk? Heldur það virkilega að fólk sé að hætta að nota bíla og bensín? Þetta er bara ekki að gerast.
Hvað með bensínstöð eins og í Hamraborg í Kópavogi? Er hún ekki inni í prívat húsi auk þess að vera ekki í Reykjavík?
Geta menn ekki keypt sér fasteignir í Reykjavík og sett upp bensínsölu með stjórnarskrárvarinni athafnafrelsisheimild án þess að Dagur fái rönd við reist.
Ólíklegt er talið að þessi 2 milljarða á mánuði skuldasöfnunar meirihluti verði við völd lengur en út þetta kjörtímabil.Það er því líklega verið að tala um hluti sem aldrei koma til framkvæmda frekar en Borgarlína og lestir til Keflavíkur.
Shangríla er land sem aldrei verður að veruleika.
10.5.2019 | 12:34
Borgarstjóri í Bandaríkjunum
myndi hvergi finnast sem kæmi fram með yfirlýsingu um að útrýma bensínstöðvum eða .
Svo stendur í Morgunblaðinu:
"Ég verð að viðurkenna að þegar sagt er við mig að fækka eigi þessum útsölustöðum um helming á næstu sex árum þá verð ég aðeins hugsi yfir því og þá kannski ekki síst yfir því hvernig borgin ætli að þjóna sínum íbúum.
Þetta segir Jón Ólafur Halldórsson, forstjóri Olís, í samtali við mbl.is en Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri Reykjavíkur, greindi frá því í gær að samþykktar hefðu verið á fundi borgarráðs meginlínur og samningsmarkmið í viðræðum við olíufélögin með það að markmiði að fækka bensínstöðvum í Reykjavíkurborg um helming."
Bandaríska efnahagsundrið í því víðlenda ríki gengur á bílnum. Bensínlítrinn kostar 70 krónur og þykir dýrt.Bílar kosta helmingi minna nýir en hérlendis. Notaðir enn minna.
Ég velti fyrir mér skilningi íslenskra ráðamanna á undirstöðum efnahagslífsins. Darios Persakonungu sagði fyrr þúsundum ára: Þjóð mín er ekki svo rík að hún hafi efni á lélegum samgöngum. Hann lét leggja vegi um allt Persaveldi.
Íslenskir ráðamenn líta á samgöngur sem skattstofn. 100 krónur af hverjum bensínlítra renna til góðgerðamála og gæluverkefna. Helmingur af verði bíla sömuleiðis.
Það er Borgarstjóri í Reykjavík sem ég velti fyrir mér af hvaða öld sé? Hann lýsir því yfir að tími mislægra gatnamóta í Reykjavík sé liðinn. Og íbúar eigi að reiðhjóla en ekki aka í bílum.Helsti ráðgjafinn hans segir að tilgangslaust sé að fjölga akreinum, þær fyllist bara af bílum.
Hvernig á einstæð móðir að koma einu barni á leikskólann að morgni, öðru í skólann, fara í vinnuna sjálf,fara heim úr vinnunni, sækja barnið á leikskólann, skutla barni í íþróttir, heimsækja gönlu múttu?
Á hjóli? Í Borgarlínu?
Næði slíkur maður einhversstaðar kjöri? Í víðri veröld?
Dagur B. og Hjálmar voru líka kosnir frá í síðustu kosningum. Annar flokkur lét kaupa sig til að setja þá aftur til valda. Þeir hafa 3 ár enn til að torvelda samgöngur í Borginni enn frekar með hugsunum sínum. Sjálfir hjóla þeir ekki heldur keyra bíla svipað og AlGore berst við mengunina á einkaþotu sinni.
Sú nýjasta kenning þeirra er að bensínstöðvar skuli flytja í nágrannabyggðarlögin.
Hvernig væri að Dagur B. og Hjálmar færu í bíltúr á Florida? Þeir gætu horft út um bílgluggann og kannski gætu þeir fengið viðtal hjá borgarstjóranum í Orlando og spurt hann um Borgarlínur, gangandi og hjólandi umferð og mislæg gatnamót.Það mætti efna til samskota meðal Sjálfstæðismanna í Borginni fyrir farareyri þar sem 25 milljarða skuldaukning Borgarinnar leyfir varla slíkan spandans með skattfé.
Hlytu þeir ekki að sjá eitthvað sem þeim kæmi á óvart í samtímanum?
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 12:39 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
10.5.2019 | 11:24
Villi Bjarna
klikkar ekki að vanda í Mogganum í dag þar sem hann minnir okkur á hvílík lyftistöng það var fyrir bændur landsins að komast í gúmmístígvéli í stað vosbúðarinnar og heilsuleysis sem síbleytu fótanna fylgdi.
Hann hefði mátt minnast á tilkomu Íslandsúlpunnar hans Valfells og vinnuvettlingana hans sem hann Guðmundur Jaki vinur minn mat að verðleikum fyrir sitt fólk. Nú og svo má ekki gleyma penisíllíninu hans Alexanders Flemings sem útrýmdi berklunum og lungnabólgunni til sjávar og sveita þegar blessað stríðið kom til Íslands og Marshallhjálpin svo.
En Vilhjálmur Bjarnason segir í dag í grein sem hann nefnir:
Rafmagn,fjarskipti og gúmmístígvél:
"Ísland fór að mestu á mis við gufuvélina í landi. Þegar vindorku skútualdar þraut, þá kom ventlavél í bátaflotann, en vissulega voru gufuvélar í togurum og farskipum fram til þess að Rudolf Diesel var notaður í skip.
Bændur varðaði lítt um vélvæðingu, þar til Marshallaðstoðin færði þeim dráttarvélar. Áður urðu mestar framfarir í bændastétt með tilkomu gúmmístígvéla.
Af einhverjum ástæðum voru bændur á móti lagningu Landssíma en sögðu síðar að þeir hefðu viljað loftskeyti Marconis.
Búnaðarsamband Kjalarnessþings var á á móti aðild Íslands að EFTA árið 1969, vegna þess að aðildin gæti stuðlað að þéttbýlismyndun. Hér má hafa í huga að afurðir bænda eru seldar í þéttbýli þegar sjálfsþurftarbúskap lýkur.
Aðild að EFTA var sennilega næstmesta framfaraspor í utanríkisviðskiptum, á eftir aðild Íslands að Evrópsku efnahagssvæði.
Aðild felld í þjóðaratkvæði
Það er skoðun mín að aðild Íslands að NATO, EFTA og EES hefðu allar verið felldar í þjóðaratkvæðagreiðslum. Ástæður fyrir andstöðu var ímyndað afsal fullveldisréttar því talsvert skortir á þann skilning á fullveldisrétti að fullveldisréttur er réttur til samninga við önnur ríki á jafnréttisgrundvelli.
Með aðild að NATO getur Ísland farið í stríð án hers. Þann skilning skorti ekki árið 1944 þegar Ísland, að nýfengnu sjálfstæði, gerðist aðili að Alþjóðabankanum, Alþjóðagjaldeyrissjóðnum og Alþjóðaflugmálastofnuninni.
Það var of mikið að gerast stofnaðili að Sameinuðu þjóðunum, til þess þurfti stríðsyfirlýsingu gagnvart öxulveldunum. Aðild Íslands að Sameinuðu þjóðunum var samþykkt árið 1946 og þar með að lúta samþykktum Öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna. Ísland hefur aldrei átt sæti í Öryggisráðinu.
EES-samningurinn
Sennilega er samningur Íslands við Evrópusambandið um aðild Íslands að Evrópsku efnahagssvæði einn afdrifaríkasti samningur sem Ísland hefur gert.
Höfuðþættir samningsins eru frjálst flæði vöru, þjónustu, fjármagns og vinnuafls um evrópskt efnahagsvæði. Þess sér helst stað á Íslandi að Íslendingar geta keypt fasteignir og verðbréf utanlands, án þess að bera slíkt undir ráð og nefndir. Skipafélög geta keypt skip án þess að leita til langlánanefndar með beiðni um leyfi.
Samhliða afnámi leyfisveitinga hafa orðið stórstígar framfarir í fjarskiptum, þar sem síminn frá 1906 er grundvöllur þess sem síðar kom. Sennilega eru lausnir fjarskiptafyrirtækja meira framfaraskref við fulla nýtingu framleiðsluþátta en tilkoma vélvæðingar bátaflotans tæpri öld fyrr.
Einingakostnaður hefur hríðfallið, auk þess sem nýjar lausnir hafa skapað ný tækifæri. Viðskiptakostnaður á fjármálamörkuðum er brot af því sem áður var, en jafnframt hafa fjármálafyrirtæki hannað banvæn vopn fyrir samfélög. Sem leiðir til aukins eftirlitskostnaðar!
Nú er kvartað yfir of miklum ferðalögum. Ástæðan er sú að verð á flugfarseðlum hefur lækkað mikið vegna mjög virkra bókunarkerfa. Lágur einingakostnaður við farseðlabókanir leiðir til aukinna ferðalaga
Mæling á virkni samnings
Það er hægt að mæla virkni alþjóðasamninga. Hvernig hafa samningar þróast á samningstímabilinu? Það er erfitt að mæla virkni vegna samkeppni, svo og vegna aukinnar framleiðni. Samkeppni hefur komið í stað samráðs. Ekki er víst að ASÍ hafi áttað sig á því.
Nærtækast er að rannsaka kaupmátt launa á Íslandi. Frá ársbyrjun 1994 til mars á þessu ári hefur kaupmáttur launa vaxið um 2,5% á ári. Sennilega er þetta mesta hagsældartímabil sem yfir landið hefur gengið. Þrátt fyrir böl og alheimsstríð í milli.
Auðvitað má spyrja hvað sé EESsamningnum að þakka og hvað sé samningnum að kenna. Að auki hafa stjórnvöld afnumið vörugjöld og tolla af mörgum vöruflokkum.
Eftir standa vörugjöld á bíla og eldsneyti. Ekki hefur náðst að afnema viðskiptahindranir á nokkrum tegundum landbúnaðarafurða. Þá má nefna að verð á hlaupaskóm á Íslandi er tvöfalt hærra en í Bandaríkjunum. Sömu skór, framleiddir í Kína.
Orkupakki
Nú um stundir eru harðvítugar deilur um orkupakka. Sá er þetta ritar hefur lagt á sig að kanna innihald pakkans og stofnanauppbyggingu vegna eftirlits með virkri samkeppni á raforkumarkaði.
Rétt er að taka fram að það er ekkert í pakkanum um einkavæðingu Landsvirkjunar. Þar er ekkert að finna sem leggur skyldur á hið opinbera að heimila lagningu rafstrengs frá landinu til inn- eða útflutnings á raforku. ASÍ sem er í miklu stuði virðist hafa misskilið eitthvað þegar ályktun um orkupakka var samþykkt.
Samkeppni skilar meiri kjarabótum en kjarasamningar. Meginefni þessara tilskipana er að auka samkeppni í framleiðslu og dreifingu á raforku. Það eru ekki allir sem átta sig á þeim stórveldum sem starfa á íslenskum raforkumarkaði. Stórveldi á íslenskan mælikvarða.
Svo er aðallega einn stórflytjandi á raforku, einn stórdreifandi á Suðvesturlandi og smáir framleiðendur og dreifendur á landsbyggðinni. Það er sennilegt að Orkustofnun fái hlutverk eftirlitsaðilans, til hagsbóta og verndar fyrir neytendur. Það eru fáir neytendur, sem skilja rafmagn. Nema þeir sem eru í stuði!
Í því einfalda stofnanaumhverfi sem er sameiginlegur vettvangur þeirra ríkja sem ekki eiga aðild að Evrópusambandinu en eiga aðild að EES og eru í EFTA þá er ESA eftirlitsstofnunin fyrir EFTA-ríkin. Til að skera úr um ágreiningsmál milli ríkja er hægt að bera ágreiningsmálin undir EFTAdómstólinn.
Málsaðilar fyrir innlendum dómstólum geta óskað eftir ráðgefandi áliti EFTA-dómstólsins ef innlendir dómstólar heimila það. Með sameiginlegum dómstól ríkja samningsins er jafnræði með deilendum.
Ekki verður séð að umgjörð orkumála sé á neinn hátt frábrugðin málsmeðferð í öðrum málaflokkum, eins og í málefnum fjármálamarkaða, samkeppnismálum. Schengen-málum og persónuverndarmálum.
Þó er einn munur á. Hann er að raforka er ekki til útflutnings, eins og á við um viðskipti með vöru og þjónustu. Hvað sem síðar kann að verða um raforku og það er viðfangsefni annarra samninga.
Rakarafrumvarp
Það er margt í umræðu um orkupakka sem svipar til umræðu um rakarafrumvarpið árið 1924 og 1928. Átti að þolast bæjarfélaginu að rakarastofum væri lokið upp á morgnana klukkan sex eða sjö og síðan haldið áfram að raka fólk þángað til um miðnætti?
Um rakarafrumvarpið sagði Skáldið mörgum árum síðar: Mig minnir að deilan hafi staðið um það, klukkan hvað ætti að loka rakarastofum á kvöldin. Ýmsir smápólitíkarar og kleyfhugar lögðu þetta mál fyrir sig sem sérfræðigrein, eða kannski maður ætti að segja rórill. Á einum æsingafundi um málið í Barnaskólaportinu, þar sem líka voru krakkar, heyrði ég og sá þektan borgara æpa undir einni ræðunni: Hér skal blóð mæta blóði. Er ekki nær að ræða grundvallaratriði samnings um Evrópskt efnahagssvæði og stofnanauppbyggingu þess og dómstóla."
Hinn óbærilegi léttleiki tilverunnar
Til viðbótar við þann óbærilega léttleika tilverunnar sem oft birtist í skrifunum hans Villa, þá má benda á að það er frelsið sem hefur bæst við á viðskiptasviðinu sem mestum framförum hefur valdið. Ekki bara trúarbrögð á paragröf einhverra samninga. Það er viðskiptafrelsi Íslendinga sem Jón Sigurðsson sjálfur þreyttist ekki á að verja sem öllu máli skiptir fyrir okkar þjóð. Ekki orkupakkar eða deilur um keisarans skegg fyrir dómstólum.
Mér finnst menn gleyma því að ESB er ekki frelsisbandalag heldur tolla-og þvingunarbandalag sem er stofnað til að rýra kjör annarra jarðarbúa.
Ég er ekki hrifinn af slíkum apparötum. Þau eru ekki í anda Bastians sem segir að Lögin eigi bara að þjóna réttlætinu en ekki öðru.ESB stendur ekki fyrir réttlæti heldur kúgun þeirra sem utan standa.Lög þess eru lög skálksins sem notar þau í eigin þágu til að stela af öðrum.
Mé kemur í hugann þegar Ingimundur vinur minn í Heklu sagði mér frá því að einn forystumaður Sjálfstæðisflokksins hefði spurt hann að því þegar kaupin höfðu verið gerð á Bifröst, sérhæfðu bílaflutningaskipi,sem Ingimundur hafði keypt með öðrum í óþökk Eimskips: Hvar fenguð þið eiginlega leyfi fyrir þessu?
Ingimundur sagðist hafa haft ánægju af því að geta svarað: Við þurftum bara ekkert leyfi frá neinum. Stjórnmálamaðurinn varð dálítið klumsa við.
Það voru nefnilega að koma aðrir tímar.Það var að bjarma af dagrenningu nýrra tíma. Tímar viðskiptafrelsisins voru að renna upp.
Mér finnst að Villi og aðrir vísir menn eigi að fara sér hægar í að vegsama kárínu-og klásúlubandalög á kostnað frelsisins.
10.5.2019 | 10:40
Katrín og Konráð
frá Viðskiptaráði tiltaka 10 punkta í sögu þjóðarinnar sem verðir eru þess að velta fyrir sér í síbylju kvartana og kveinstafa sem sérhagsmunafélög syngja daginn út og daginn inn.
" 1. Lífskjör á Íslandi hafa á flesta mælikvarða batnað á undanförnum árum og áratugum. Til að mynda er landsframleiðsla á mann um 18-falt meiri en hún var fyrir 100 árum síðan.
2. Vextir á Íslandi hafa sjaldan verið lægri og ef horft er á vexti á fjármálamarkaði hafa þeir aldrei verið lægri. Seðlabanki Íslands er í dauðafæri til að lækka vexti enn frekar og koma þeim þannig í samkeppnishæft horf.
3. Útflutningur Íslands hefur margfaldast síðustu áratugi og þar á meðal aukist um um 269% á árunum 25 frá inngöngu í EES, samanborið við 131% árin 25 á undan.
4. Á sama tíma, eða frá 1994, hefur kaupmáttur landsmanna aukist um 86% og hefur aldrei verið meiri.
5. Jafnvel þó að spádómar svartsýnisradda verði ofan á er staða Íslands til að takast á við efnahagslega erfiðleika sterkari en nokkru sinni fyrr. Enn er hér viðskiptaafgangur og Ísland er hreinn lánveitandi við útlönd.
6. Skuldastaða er almennt hófleg og sögulega lítil, hvort sem horft er á atvinnulífið, heimili eða hið opinbera sem eykur getuna til að takast á við áföll.
7. Lágmarkslaun á Íslandi voru meðal þeirra hæstu í heiminum áður en lífskjarasamningarnir voru samþykktir.
8. Þrátt fyrir áföll svo sem loðnubrest og samdrátt í ferðaþjónustu var atvinnuleysi í mars einungis 2,9%.
9. Ferðamönnum í apríl fækkaði aðeins um 6 prósentustigum meira en spá Isavia gerði ráð fyrir, þrátt fyrir fall Wow air.
10. Ísland er í 2. sæti af 146 á lista yfir félagslegar framfarir, mælikvarða sem ...endurspeglar hæfni samfélags til að mæta grunnþörfum borgaranna, stuðla að og viðhalda lífsgæðum þeirra og skapa hverjum tækifæri til betra lífs.
Íslendingum er hollt að staldra við og rifja upp þennan árangur sem náðst hefur á síðustu áratugum.
Síbylja kveinstafa einstakra hópa mega ekki byrgja fólki almenna sýn.
Lífskjör allra hafa stórbatnað á undaförnum áratugum og viðskiptaumhverfið hefur stórbatnað.
Ég man glöggt hvernig var að reka viðskipti í peningaleysinu frá 1950 og langleiðina til aldamóta. Allt gekk á víxlum og slætti og keðjuverkanir voru daglegt brauð. A. gat ekki borgað og víxillinn féll. Bankinn dró víxilinn út af launareikningnum kortéri fyrir útborgun hjá B. sem hafði lánað A. og hann gat ekki borgað út kaupið þann daginn, launþeginn átti ekki fyrir mat og gat ekki borgað kaupmanninum vikuúttektina, A. var þar með stopp, B líka, börnin sultu og allt var í klessu í viðskiptaheiminum og einkalífinu.
Menn þræluðu samt myrkranna á milli við að byggja yfir sig og fluttu inn í hurðarlaust.Hvergi lán að fá nema með kunningsskap. Vaskur hjá Norðmann, rör hjá Ísleifi, steypa á víxli. Svona var ástandið í byggingariðnaðinum. Stöðugur bardagi á síðustu krónunum, allt á yfirdrætti og í skuldum. Basl og stress frá morgni til kvölds og hnútur í maganum þegar gjalddagar nálguðust og menn deyfðu sumir með helgarbrennivíninu.
Núna eru aðrir tímar. Sparnaður almennings í peningum er að vísu fyrir bí með lækkandi vöxtum. Mér finnst vanta tilfinnanlega verðtryggða hlaupareikninga þar sem fólk getur geymt launin sín frá mánuði til mánaðar þó vaxtalaust væri í stað þess að heimta áralanga bindingu eins og nú er. Er ekki mögulegt að finna upp einhverskonar leið til slíks með gulrótum eða pipar?
Það er þarft að líta yfir farinn veg og telja blessanir sínar í stað bölvanirnar. Þetta allt hefur náðst með íslensku krónunni. Hefði það náðst betur með Evrunni? Sumir halda því fram. En Grikklandsleiðin og Icesave benda nú varla í þá áttina.
Lífskjarasamningarnir voru kraftaverk í mínum augum og mér finnast þeir benda til þess að við séum að byrja á því að hugsa örlítið áður en við rjúkum upp til handa og fóta í byltingar og bardaga og mála skrattann á alla sálarveggi sína.
Katrín og Konráð eiga þakkir skildar fyrir þessa samantekt.
9.5.2019 | 21:41
Ég er víst asni
og læt teyma mig á eyrunum þegar forysta Sjálfstæðisflokksins og Björn Bjarnason vita betur,
Líklega þurfa þeir ekki á flokki að halda þegar sannleikurinn er svona augljós.
Björn segir í dag:
"Þegar látið er eins og einsdæmi sé að fá álit sérfróðs erlends manns á máli sem er til umræðu á íslenskum stjórnmálavettvangi hljóta menn að tala gegn betri vitund. Hitt er einkennilegast að slík viðhorf séu kynnt til sögunnar af O3-andstæðingum sem hafa látið norskan minnihlutahóp leiða sig í ógöngur í málinu svo að ekki sé sagt, draga sig á asnaeyrunum."
Takk fyrir skilgreininguna Björn. Nú veit ég betur að ég er bara asni sem kannski á ekki skilið að fá að kjósa næst.
9.5.2019 | 10:46
Hrólfur Þ. Hraundal
veltir upp spurningu á sínu bloggi sem ég hef heyrt margt fólk velta fyrir sér varðandi þennan Orkupakka3.
Hrólfur spyr:
"4.2019 | 08:09
segði okkur þessu almúgafólki sem höfum asnast til að kjósa þá og borgum þeim laun, hvað það er raunverulega sem þeir ágirnast svo að fá með þessum þriðja orkupakka, en er svo mikið leyndarmál að enn hefur engin af okkur þessum vesalingunum sem stöndum á gólfinu og bíðum skíringa fengið að heyra það.
Eru þetta kannski bara gæði handa sérstökum, eða er líklegt að einhver afgangur yrði eftir handa okkur vesölum? Eða verða þessi svör kannski bara sett í salt og geymd í hundrað ár, eru ekki fyrir því til dæmi?"
Hrólfur er greinilega ósáttur við skýringar flokkforystunnar. Sem bendir til þess að henni hafi mistekist að leiða óbreyttum flokksmönnum eins og honum og mér þetta fyrir sjónir eða hvað?
Prófessorarnir Stefán og Friðrik telja verulegan vafa á friðsælu samlífi O3 og stjórnarskrárinnar. Betri leið hefði verið að láta reyna á greinar Orkupakkans í sameiginlegu nefndinni áður en farið væri með málið fyrir Alþingi og byrjað á að taka á sig dómstólaáhættu og öllu því rifrildi sem fylgt hefur. Ætli sé ekkert hægt að bakka með málið í þá veru svona til að lægja öldurnar með þennan sæstreng sem á sér marga fylgismenn N.B.?
Og þegar minnst er á sæstreng, hefur enginn athugað hvort væri hægt að blasa vetni í gegn um rör frá Íslandi til Evrópu í samkeppni við rafsæstreng? Bandamenn dældu öllu eldsneyti fyrir innrásina í Þýskaland um rör undir Ermasund án þess að Þjóðverjar hefðu hugmynd um það.
Vegalengdir eru að sönnu miklar yfir Atlantshafið frá Íslandi til Evrópu. Ef menn muna gömlu veðurskipin Alfa og Bravo þá getur maður spurt sig hvort hægt sé að stytta höfin með fljótandi punktum sem gætu samnýst sem veður-eða björgunarmiðstöðvar? Færeyjar, jafnvel Rockall geta líka verið millilendingar.
Kosti alþjóðlegrar samvinnu og frjálsrar verslunar meta allir mikils. En allir hafa sína einkahagsmuni líka og það er ekki bara einangrunarhyggja að spyrja slíks þegar fjórfrelsið ber á góma. Hvað er inni í þessu fyrir mig? Er það ekki einhver fyrsta spurning kjósandans á kjörstað?
En finnst Hrólfi honum hafa verið svarað svo vel sé af flokksforystunni hans?
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (4.8.): 0
- Sl. sólarhring: 6
- Sl. viku: 27
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 27
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- Maí 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Ágúst 2021
- Júlí 2021
- Júní 2021
- Maí 2021
- Apríl 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Júlí 2020
- Júní 2020
- Maí 2020
- Apríl 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2020
- Janúar 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Ágúst 2017
- Júlí 2017
- Júní 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
Bloggvinir
-
ghe13
-
sigurjonth
-
andrigeir
-
annabjorghjartardottir
-
ansigu
-
agbjarn
-
armannkr
-
asdisol
-
baldher
-
h2o
-
bjarnihardar
-
dullur
-
bjarnimax
-
zippo
-
westurfari
-
gattin
-
bryndisharalds
-
davpal
-
eggman
-
greindur
-
bjartsynisflokkurinn
-
elfarlogi
-
eeelle
-
sunna2
-
ea
-
fuf
-
fhg
-
vidhorf
-
gerdurpalma112
-
gilsneggerz
-
gudni-is
-
lucas
-
zumann
-
gp
-
gun
-
topplistinn
-
tilveran-i-esb
-
skulablogg
-
gustafskulason
-
gustaf
-
heimssyn
-
diva73
-
helgi-sigmunds
-
hjaltisig
-
minos
-
hordurhalldorsson
-
astromix
-
fun
-
jennystefania
-
johanneliasson
-
johannvegas
-
jonatlikristjansson
-
jonl
-
jonmagnusson
-
jonlindal
-
bassinn
-
jvj
-
jonvalurjensson
-
thjodarskutan
-
juliusbearsson
-
katagunn
-
kje
-
ksh
-
kristinn-karl
-
kristinnp
-
kristjan9
-
loftslag
-
altice
-
ludvikjuliusson
-
maggij
-
magnusthor
-
mathieu
-
nielsfinsen
-
omarbjarki
-
huldumenn
-
svarthamar
-
pallvil
-
peturmikli
-
valdimarg
-
ragnarb
-
samstada-thjodar
-
fullveldi
-
siggus10
-
sisi
-
siggisig
-
ziggi
-
siggith
-
stjornlagathing
-
pandora
-
spurs
-
kleppari
-
saethorhelgi
-
tibsen
-
ubk
-
valdimarjohannesson
-
skolli
-
valurstef
-
vilhjalmurarnason
-
vey
-
postdoc
-
thjodarheidur
-
icerock
-
steinig
-
thorsteinnhelgi
-
icekeiko