Leita í fréttum mbl.is

Til hamingju með Kára

Stefánsson íslenska þjóð vegna kjörs hans í vísindaakademíu Bandaríkjanna.Stórkostlegur heiður og sá mesti sem íslenskum vísindamanni hefur hlotnast.

James A. Watson gefur dr. Kára tvær síður í bók sinni DNA sem segir sitt um það álit sem hann hafði á Kára fyrir nær tuttugu árum síðan.

Kári hefur marga fjöruna sopið á sínum ferli og seint verður hann talinn við alþýðuskap. En það eina sem skiptir máli er að hann hefur lagt mikið af mörkum til að bjarga mannslífum með vísindarannsóknum.

Mér finnst líka persónulega gaman að lesa það sem hann skrifar fyrir alþýðu og vona að hann haldi áfram að gera slíkt öðru hverju.

En að öðru leyti óska ég þjóðinni til hamingju með Kára Stefánsson og hans störf og hann lengi lifi húrra!


Að lokum um O3

vil ég aðeins segja þetta.

Gulli minn og þið hinir. Gerið það sem ykkur finnst rétt.

En þið þurfið hugsanlega að læra  það að maður strýkur hundi venjulega með hárunum en ekki á móti þeim.

Það er eiginlega affarasælast að fara þannig að í pólitík og jafnvel á Landsfundum Sjálfstæðisflokksins þó að ýmsir fari ekki alltaf þannig að.

Ómar geirsson orðar þetta svo í tilskrifi til mín:

"Því þeir sem eru frjálsir eins og langfrændi minn Bjartur í Sumarhúsum, þeir eru ekki kommar, þó þeir geti vissulega verið kommatittir enda það allt önnur ella, og þeir eru ekki frjálshyggjumenn, því það er enginn munur á alræði öreiganna eða alræði auðsins.

Hvoru tveggja er alræði.

En það er grundvallarmunur á borgarlegum kapítalisma sem viðurkennir gildi kristinnar vestrænnar siðmenningar og ræningjakapítalisma frjálshyggjunnar sem viðurkennir engan sið.

Sá fyrri á rætur í þróun siðmenningarinnar, sá seinni í villidýrinu sem siðmenningin reynir að beisla svo mannkynið fái lifað og þróast, og lifað af.

En við erum sjálfsagt ekki sammála um þetta frekar en margt annað, en það er rétt Halldór, í vissum grundvallarmálum erum við alveg sammála.

En engu þjóðfélagi er hollt að allir séu sammála í öllu.

Kveðja að austan."

Ég svaraði honum svo:

"Þakka þér fyrir þessa kynningu Ómar. Ég skil þig mun betur eftir þetta. Og viti menn, við erum sammála um margt mun meira en ég hélt áður.

Jónas var mikill hugsjónamaður en líklega skorti hann mannúð og mildi.Hann virtist ekki vita hvenær hann átti að hætta og slá af.Og því fór sem fór að hann einangraðist.

Til eru þeir sem álíta mig nasista og rasista. Ég tel mig hinsvegar lausan við alla isma nema Trumpisma. Ég styð einstaklingsfrelsið sem endar þar sem það er að ganga á frelsi annarra einstaklinga.

Ég las bókina The Law efir einhvern löngu dauðan fransmann,Frédéric Bastiat.. Hann segir að lögin noti skálkar til að skerða réttindi fólksins. Lögin eigi hinsvegar að tryggja réttlætið og ekkert annað.

Þess vegna styð ég ekki ofbeldi þingmanna Sjálfstæðisflokksins sem birtist í kröfu um að við almennir flokksmenn beygjum okkur undir þeirra dómgreind og samþykkjum O3.

Ég geri það ekki."

Ég ætla svo ekki að þrasa meira um O3 sem segir beinlínis að aðilar eigi að greiða fyrir viðskiptum með orku yfir landamæri eins og aðra vöru og þjónustu.

Það má reikna það út að þjóðin græði meira á að hækka rafmagnið innanlands til almennra notenda, einhvern fimmtung heildarorkunnar,  um leið og Landsvirkjun fær miklu meira á samkeppnismarkaði fyrir hinn hlutann sem þá má nota til félagslegra þarfa og innviða.

En að leggja þann gróða í einhvern þjóðarsjóð finnst mér fráleit hugmynd því þá sé verið að skattleggja fólkið til að eyða í annað. Skera rófuna af hundinum til að gefa honum að éta eins og myndin hans Storm P. sýnir.

Þar sem eru peningar eru afætur. Þess vegna á að láta hagnaðinn renna strax beint til innviða en ekki til einhverra ókominna áfalla sem kannski koma aldrei og alla vega ekki á minni vakt.

Þess vegna læt ég ekki einhverja forystusveit Sjálfstæðisflokksins leiða mig eins og sauð til slátrunar bara af því að ég kaus þá einhvern tímann.

Að svo mæltu legg ég málið um O3 í dóm.

 


Tengsli RÚV og Kjarnans

hins mikla málgagns vinstri manna koma skemmtilega fram í grein Sigurðar Más Jónsssnar í Þjóðmálum.

Aðstandendur ritsins heyja nú harða baráttu við að koma uppsöfnuðum taprekstri um 50 milljónum yfir á almenning í landinu. Sem sagt einkavæða gróðann en þjóðnýta tapið eins og þeir hafa lengi sagt hægri menn gera.

RÚV hefur ítrekað verið látið taka við starfsmönnum af Kjarnanum á sína launaskrá þegar ekki var til fyrir launum þeirra á þeim bæ án þess að þeir hafi hætt öllum störfum fyrir Kjarnann.

Vilhjálmur Þorsteinsson, bróðir Viðars gullkistuvarðar Eflingar, sem er verulegur leyniþáttakandi í Tortóla- félögum jafnframt gjaldkerastörfum fyrir Samfylkinguna og tunnuberjari á Austurvelli í mótmælum gegn aflandsfélögum með þeim Birnu Þórðar og Illhuga Jökulssonar, kemur á óvart í fjölhæfni sinni. 

Sömuleiðis tengist Ágúst Ólafur Kjarnanum fjárhagslega í fjölþreifnimálum sínum sem tengjast Kjarnanum beint  en kemur nú á ný til starfa á Alþingi fyrir okkar minnstu bræður.Ennfremur er Fanney Birna á vinstra-Silfrinu meðal hluthafa Kjarnans

 

Ó þú mikla villta vinstri á RÚV og Kjarnanum frá Sigfúsarsjóði og til vorra daga. 


Hvernig væri?

að formaður Sjálfstæðisflokksins og forystan samanlögð færi að skipta sér af fólkinu í landinu og því sem á því brennur í stað þess að stýra þingflokkinum í umræðunni um O3 og EES samstarfið?

Ómar Ragnarsson segir m.a. á bloggi sínu:

"

....Og brýnir "lífskjarasamningar" fyrir alla aðra en þetta fólk, gera þennan stóra þjóðfélagshóp að lítilsvirtri afgangsstærð, sem hann hefur reyndar tilheyrt undanfarin ár og áratugi. 

Ef þetta fólk reynir að brjótast út úr fátækt er því haldið kyrfilega í henni með sérsniðnum ólögum, sem rænir það í raun lífeyri, sem það var búið að vinna sér inn. 

Fátæktargildran verður sífellt að stærri höfnun á rétti þess til lífs og lífsviðurværis, sannkallaðri lífskjarasviptingu á meðan aðrir fá kjarabætur í lífskjarasamningum. 

Athyglisvert var að sjá í sjónvarpsþættinum Kveik, að um það bil helmingur þeirra, sem verst fara út úr því að taka svonefnd smálán, er einmitt þetta illa stæða fólk, sem reynir í örvæntingu að grípa til örþrifaráða til að brjótast út úr fátæktarfangelsi, sem verður líka að ógeðslegu skuldafangelsi...."

Hvernig væri að Sjálfstæðisflokkurinn færi að spá í fólkið í landinu og því sem á því brennur? Hvernig væri að flokkurinn færi að minnast Ólafs Thors og Bjarna Ben sem ávallt voru  nátengdir almenningi í landinu og reyna að þurrka framan úr sér bara glóbalismann ?

 

 


Það var líf fyrir EES

vekur Ómar Geirsson athygli á í sínu skrifi í dag.

Hann segir m.a.:

"Íslendingar menntuðu sig og ferðuðust milli landa fyrir EES samstarfið og stunduðu frjáls viðskipti, fáar þjóðir höfðu eins mikil utanríkisviðskipti en Íslendingar, fáar þjóðir áttu hlutfallslega fleiri námsmenn í erlendum háskólum hlutfallslega en við Íslendingar. 

Og lífskjör þjóðarinnar á öllum mælikvörðum voru á við það besta sem gerðist í heiminum.

Svisslendingar sem er í EFTA en utan EES samstarfsins eru ekki að gera það síður en við Íslendingar á þeim tíma sem þjóðin hefur verið aðili að EES. 

Sú þróun að losa um höft og hömlur var hafin áður en þjóðin gekk í EES og hefði örugglega haldið áfram því það er enginn eyland í heiminum.

 

Áslaug segir að gjaldeyrishöftin hafi horfið við aðildina að EES; " EES-sam­starfið veitti okk­ur aðgang að innri markaði Evr­ópu og færði okk­ur úr gjald­eyr­is­höft­um sem höfðu þá varað í rúm 60 ár.".

Gjaldeyrishöftin voru afleiðingin hjá þjóð sem bjó við einhæft atvinnulíf og þurfti að nota mikinn hluta af útflutningstekjum sínum við að byggja upp innviði og fjárfesta í atvinnutækjum því hér var byggt upp úr engu í allt.

Í dag standa fleiri stoðir undir gjaldeyrisöfluninni, sérstaklega vegur þar þungt uppbygging stóriðju sem var löngu hafin áður en landið gekk í EES og ferðamannaiðnaðurinn, og hvað sem sagt verður um hinn innri markað, þá blómstrar ferðamannaiðnaður á fleiri svæðum í heiminum.

En eins og játendur Stalínsátrúnaðarins sögðu; "þið vitið ekki", og gátu alveg haft rétt fyrir sér.  Til dæmis var lítið um þungaiðnaði í Kongó eða Afganistan og í þeim samanburði komu Sovétríkin vel út.

En það var iðnaður í Rússlandi fyrir byltingu Kommúnistanna og það var líf á Íslandi fyrir EES.  Það var ákaflega líklegt að þróun hafi átt sér stað í Rússlandi þrátt fyrir byltingu bolsévika og eitthvað grunar mig að áratuga uppbygging Íslands hefði haldið áfram þó þjóðin hefði ekki undirgengist regluverk ESB.

Maður veit svo sem ekki, en ein vísbending ætti að gefa manni hint, sólin hélt áfram að koma upp í Sovétríkjunum eftir daga Stalíns, og það er líf á þessu svæði eftir hrun kommúnismans."

 

Gjaldeyrishöftin voru mikið til farin fyrir EES. Frelsið var mikið til  komið fyrir þann tíma að ég og mínir jafnaldrar voru aufúsugestir í Þýskalandi þótt við þyrftum "Aufenthaltserlaubnis" og yfirfærslu  öðru hverju fyrir fasta búsetu.

Það er sjálfsagt auðveldara fyrir Samherja og slíka  að flytja út eftir EES kom . En varð það ekki líka á kostnað sjávarútvegsviðskipta við USA þar sem við erum víst  búnir að selja vörumerkið Icelandic til einhverra Asíubúa og Coldwater og Samaband eru svipur hjá sjón ef ekki horfin.

Við eigum ekki að blása þennan EES samning út úr öllu samhengi. ESB er tollabandalag gegn restinni af heiminum.

Það er hinsvegar viðskiptafrelsið sem Íslendingar hafa mest gagn af allt frá því að Jón Sigurðsson barðist fyrir því okkur til handa fyrir margt löngu. Ekki frelsi frá einhverju síbreytilegu regluverki sem Brussel setur heldur frelsi frá einangrun sem birtist í stórskaðandi refsiaðgerðum gegn Rússlandi vegna innlimunar Krímskagans sem er búið spil.Gulli utanríkis heldur þeim ótrauður áfram þótt tilgangslausar séu með öllu og Þjóðverjar séu löngu hættir þeim nema í orði en ekki á borði.

Áslaug Arna og fleiri eyrnablautir nýþingmenn  þurfa að athuga hlutina í hinu stóra samhengi, ekki bara trúa á kennisetningar um ágæti EES sem þó sjálfsagt er að nýta meðan við höfum af því beinan hag.


Ljósin á Dettifossi

-Örlagasaga, er nafn á bók sem ég var að ljúka við að lesa.

Höfundurinn, Davíð Logi Sigurðsson skrifar örlagasögu afa síns Davíðs Gíslasonar stýrimanns og skipstjóra og óblíðum æviraunum hans og baráttu á meistaralegan hátt.

Davíð Logi er sannarlega rithöfundur með mikla hæfileika við ritun þessarar þungu örlagasögu, hérlendis og erlendis,af   íslensku alþýðufólki í fátækt og heilsuleysi fyrri tíma á Íslandi og þeirrar heimildaöflunar sem býr að baki þessu frábæra verki. Þetta er bók sem vart á sinn líka að allri gerð.

Þessi bók lætur engan ósnortinn sem les.Svo lifandi er frásögnin  og gusturinn af hrammi örlaganna sem slær þá sem síst skyldi né við því mega, er slíkur að maður prísar sig sælan fyrir eigin heppni í lífinu.

Tvímælalaust er bókin, "Ljósin á Dettifossi", bók sem mæla má með við hvern sem vill kynna sér staðreyndir um líf fólksins á fyrri öld tveggja heimsstríða.


Þá kemur nýtt fyrir umhverfissinna

sem vilja sæstreng umfram allt í stað innlendra verksmiðja.

Það eru nefnilega mikil umhverfisáhrif af sæstrengjum.

https://www.hakaimagazine.com/news/brown-crabs-are-attracted-to-undersea-power-cables/

Brown Crabs Are Attracted to Undersea Power Cables

Electromagnetic fields have complex and possibly harmful effects on the valuable brown crab.

Authored by

by Ramin Skibba 

Wordcount

July 30, 2018 | 850 words, about 4 minutes

Share this article

Share this:

   

Article body copy

Over the past 10 years, Scotland has installed thousands of offshore wind turbines in the North Sea and is starting to deploy marine energy devices that generate power from tides and waves. It’s a green energy push that is slowly being replicated in coastal areas the world over. Though these installations are reducing coastal threats such as oil spills, they have the potential to cause other, more subtle, problems for marine life.

From each offshore wind and tidal turbine, power cables snake to shore, connecting to power banks, converters, and the wider electrical grid. But these electrified cables could have odd and unexpected effects on seafloor life. According to new research, these electrical cables may be upsetting the behavior of the commercially valuable brown crab, otherwise known as the edible crab.

Kevin Scott, a marine biology doctoral candidate at Heriot-Watt University in Scotland, is concerned about the potential cumulative effects of electromagnetic fields on marine life. In recent research, Scott and his colleagues at the St. Abbs Marine Station on the Scottish coast obtained dozens of crabs from local fishermen and exposed them to electromagnetic fields in the lab. The fields didn’t directly harm the animals; physiological responses such as respiration rate remained normal, for instance. However, the fields had a distinct effect on the crabs’ behavior.

Upon being exposed to electromagnetic fields, the crabs stopped what they were doing and were attracted to the plastic containers housing the equipment that generated the electromagnetic field, replicating what a power cable would do in the ocean. This distracting effect occurred roughly 70 percent of the time, while the crabs mostly ignored similar containers without electromagnetic fields.

construction crew laying cable for an offshore power rig

Power cables are a necessary component of any power generating infrastructure, but new research suggests they may be having unintended effects on marine life. Photo by Avalon/Construction Photography/Alamy Stock Photo

Scott says the research suggests that if crabs are similarly distracted in the wild—drawn toward the electromagnetic fields stemming from subsea power cables—they might forgo their usual feeding, mating, and shelter-finding activities.

Electromagnetic fields dissipate within a few meters of power cables, so an animal would have to be close by to be affected. But Scott believes the effect could add up, especially for crabs that are tending eggs, which they can do for months at a time in the same spot. Cladding cables with metal sheaths only stops the emitted electrical fields, not the magnetic ones. And burying the cables just moves the problem to the habitat of organisms living in the seafloor sediment.

The potential behavioral effect of power cables is an understudied issue, Scott says. “It’s hard to get funds for this research because [offshore electromagnetic fields are] a relatively new and invisible stressor. It’s not like oil [spills], where you can take pictures and spread the word.”

He says the effects of electromagnetic fields need to be studied further, before more subsea power cables are deployed, potentially threatening key commercial species such as the brown crab.

Andrew Gill, an environmental consultant formerly at Cranfield University in England who was not involved in the new research, says the problem may go beyond brown crabs.

“There’s a huge number of organisms, from bacteria to whales, that apparently use Earth’s magnetic fields for movement,” Gill says. Caribbean spiny lobsters use magnetic fields to guide their long-distance migration, he says. When they are subjected to magnetic pulses they get disoriented and change direction. Sharks, rays, and skates also appear to sense electromagnetic fields, although it’s not yet clear whether subsea power cables would bother them.

Yet Gill thinks Scott and his colleagues may be overstating the threat. “They’ve shown that there’s an effect, but they’ve gone too far saying it’s something to worry about with marine energy,” he says.

“If one bird flies into a turbine, for example, is it something to worry about? More birds fly into glass buildings,” says Gill. But the research, he says, shows that the potential effects of subsea power cables warrant further scrutiny.

Recent research by Milton Love and Mary Nishimoto, biologists at the University of California, Santa Barbara, adds more nuance to the field of study. The pair have examined the effects of electromagnetic fields on rock crabs in California’s Santa Barbara Channel and Dungeness crabs near the San Juan Islands in Washington State, and unlike Scott and his colleagues, they found no effect on the crabs’ behavior. Nishimoto cautions that it’s difficult to compare experiments with different methods and species, but she welcomes new experiments, especially more fieldwork and real-world observations.

Scott appreciates the benefits of these field experiments, but he says tests in the lab allowed him and his team to control other variables that could make a difference, such as the presence of predators and prey, noise, weather, sea state, and changes in salinity. They’re now performing lab experiments to study whether the offspring of brown crabs and European lobsters incubated in the vicinity of electromagnetic fields are affected.

Scott doesn’t think the offshore energy industry is sufficiently considering the complex and subtle effects it may be having on such valuable wildlife, including how it will impact the well-established fishing industry. Livelihoods that go back hundreds of years are going to be potentially affected by this, he says."

 

Alla Malla! Aumingja brúnkrabbinn sem við drepum með sæstrengnum væntanlega.

Nú kemur nýtt fyrir umhverfissinnana til að hafa áhyggjur af!


Viðreisn ver Sjálfstæðisflokkinn

í vandanum við O3.

Einstakir þingmenn Sjálfstæðisflokksins geta sprellað sig í sérstöðu telji þeir sig græða eitthvað á því. Fyrrum formaður og varaformaður standa sem klettur að baki þeim Gulla, Þórdísar og Bjarna.

Það er forystunnar að leiða flokkinn sagði Þórdís Kolbrún Reykfjörð. Ég á því að vera leiðitamur og treysta forystunni í flestum málum.

Gott er að eiga Hauk í Horni og helst í öllum flokkunum á þingi. Það er gott að vita til þess að Viðreisn stendur óbifanleg að baki Bjarna með Samfylkingunni og jafnvel Pírötum  í þessu andsk....  orkupakkamáli þrjú.


Er einhver áætlun til?

um þann fjölda hælisleitenda  sem hingað munu koma í ár? Og næsta ár? Og hvar þeir eigi að búa á meðan mál þeirra eru athuguð?

Í grein Einars S. Hálfdánarsonar í Morgunblaðinu nýverið kom eftirfarandi fram:

"...Fyrstu tvo mánuði ársins sóttu 146 manns (svokallaðir hælisleitendur) um alþjóðlega vernd á Íslandi. Ef fram fer sem horfir verða það því nálægt þúsund manns sem hingað koma, flestir í heimildarleysi.

Þetta samsvarar því að meir en 14 þúsund hælisleitendur kæmu til Danmerkur á ári. En raunin er sú að til Danmerkur hafa „aðeins“ komið tvö til þrjú hundruð manns á mánuði síðan 2016 og eitthvað rúmlega þrjú þúsund manns allt árið 2018...."

"...Ofan í kaupið neita Danir að taka við kvótaflóttamönnum og hafa gert í mörg ár.  .."

"... Veit dómsmálaráðherrann ekki af vandanum? Er þá ekki ráð að kynna sér hvað nágrannaþjóðirnar hafa gert?.."

"..Nýjasta krafan er að geðveilum umsækjendum verði ekki vísað úr landi, en útveguð spítalavist..."

Mér fannst Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir aðspurð í Silfrinu ekki hafa mörg svör fram að færa um málefni hælisleitenda önnur en þau að vandinn væri mikill og margt þyrfti að skoða í hverju tilviki. Sjálfsagt allt rétt.

En sagði ekki Ása-Þór: "Á skal að ósi stemma." Og eigi missti hann þess sem hann kastaði til segir sagan.

Er byrjað á réttum enda hér á Íslandi?

Mér fannst að ekki væri von á hraðari afgreiðslu í þessu málaflokki á næstunni né það að unnið væri að því að fækka umsóknum hælisleitenda sem hingað koma.

Og sem N.B. koma hingað aðeins frá öðrum Evrópulöndum sem eiga að afgreiða mál þeirra en ekki við skv. Dyflinnarreglugerð.

Sem sagt við værum ekki að nálgast Dani og þeirra vinnubrögð.

Mér skilst að von sé á hópi kvótaflóttamanna innan tíðar ef hann er þá ekki bara kominn.

Er það okkar djúpríki sem er að stefna okkur í svipað ástand hér og einn í athugasemdum á þessu bloggi lýsti sporvagnsferð í Svíþjóð, að hann hefði ekki getað giskað á hvort hann væri í Tyrklandi eða Írak eða Afríku frekar en þarna í Svíþjóð?

Það hlýtur að vera eitthvað í okkar stjórnkerfi sem mótar stefnuna í hælisleitendamálum því enginn ráðherra málaflokksins virðist ráða við að breyta ástandinu með neinum afgerandi hætti.

Og hælisleitendur eru farnir að hafa í hótunum við okkar yfirvöld með auknum þunga og stuðningi góða fólksins.

Það virðist allavega bara ekki batna neitt sérstaklega  ástandið í málaflokknum í seinni tíð miðað við tölur Einars S..

Er einhver áætlun til um hver staðan verður í árslok eða síðar? 

 


Hvað ef?

að það er sólin sem ræður einhverju um hlýnun jarðar eða kólnun  en ekki stórkostlegur útblástur raforkuveranna í nágrannalöndunum? Sem við keyptum  losunarheimildir af fyrir WOW Air og Skúla sem svo seldi þær aftur fyrir hundruð milljóna?

Höfum við ekki verið að leggja óþarfa kostnað á okkar minnstu bræður fyrir hugsjónir pólitískra sérviskuriddara eins og okkar umsvifamikla umhverfisráðherra sem enginn kaus þó yfir sig.

Getum við stjórnað stærð jöklanna með skattlagningum? Er stærð þeirra einhver áminning til mannkynsins eins og þessi ráðherra okkar  segir?

Hversvegna breyttist Klofajökull í Vatnajökul? Stjórnuðum við því eitthvað?

Af hverju flúði fjórðungur þjóðarinnar landið á ofanverðri nítjándu öld.Vantaði þá eitthvað CO2 í andrúmsloftið?

Eða hafði sólin eitthvað með hitastigið á jörðinni meðan á Maunder Minimum stóð með hörmungum um aldir?

Hvað ef loftslagið kólnar nú aftur?

Koma peningarnir vegna kolefnisgjaldanna brottköstuðu eitthvað aftur?  Trump áttar sig hinsvrgar á því að svo er ekki og tekur ekki þátt í Parísarbulli hinna fjörtíuþúsund fífla AlGore.

Hvað ef?


Um hælisleitendur

skrifar vinur minn Einar S. Hálfdánarson, hæstaréttarlögmaður og löggiltur endurskoðandi í Morgunblaðið dag.

Mér finnst ástæða til að vekja athygli á grein hans og geri það hér með því ekki lesa allir Mogga:

"Ólöglegur innflutningur fólks er kominn úr böndunum. Fyrstu tvo mánuði ársins sóttu 146 manns (svokallaðir hælisleitendur) um alþjóðlega vernd á Íslandi. Ef fram fer sem horfir verða það því nálægt þúsund manns sem hingað koma, flestir í heimildarleysi.

Þetta samsvarar því að meir en 14 þúsund hælisleitendur kæmu til Danmerkur á ári. En raunin er sú að til Danmerkur hafa „aðeins“ komið tvö til þrjú hundruð manns á mánuði síðan 2016 og eitthvað rúmlega þrjú þúsund manns allt árið 2018.

Ásóknin hingað er þannig margföld á við ásóknina í að flytjast til Danmerkur. Ofan í kaupið neita Danir að taka við kvótaflóttamönnum og hafa gert í mörg ár.  koma. Það þarf ekkert að skoða Danir hafa ekki fjármuni í að taka við öllum hælisleitendum sem þangað vilja. En þá hafa Íslendingar!

Landamæravarsla

Þegar Danir hófu landamæravörslu síðla árs 2015 var staðan ekkert ósvipuð því sem hún nú er á Íslandi. Staðreyndin er sú að mjög stór hluti umsækjenda um vernd kemur frá löndum þar sem engin ástæða er að óttast að verða ofsóttur vegna kynþáttar, trúarbragða, þjóðernis o.s.frv. og getur ekki fært sér í nyt vernd heimalands síns.

Þessa umsækjendur langar að setjast að þar sem kjörin eru betri en heima og misnota kerfið til að koma því í kring. Umsækjendur eru meir að segja frá Evrópu og tiltölulega friðsælum Asíu- og Afríkuríkjum. Flestar slíkar umsóknir væri hægt að afgreiða á Ódagsparti.

Sumir aðrir, svo sem Nígeríumenn, geta fært sér í nyt vernd heimalands síns. Ef starfsfólk Útlendingastofnunar ræður ekki við verkið vegna álags, þá þarf að fá lögfræðinga sem verktaka að borðinu.

Hvers vegna beita Íslendingar ekki sömu ráðum og annars staðar hafa gefist vel til að koma í veg fyrir misnotkun útlendinga á velferðarkerfinu. Lögreglan veit hvaðan þeir koma.

Það þarf ekkert að skoða hvert einasta vegabréf. Í öðrum löndum eru vegabréf skoðuð við útganginn úr flugvélinni þegar sérstök ástæða þykir til. Veit dómsmálaráðherrann ekki af vandanum? Er þá ekki ráð að kynna sér hvað nágrannaþjóðirnar hafa gert?

Vandinn er heimatilbúinn að mestu

Stærsti vandi Íslendinga er skortur á heilbrigðri skynsemi í bland við barnaskap. Þegar við bætist alger skortur á rökhugsun verður til illviðráðanleg blanda.

Logi Einarsson er lifandi dæmi um einstakling sem hefur allt framangreint til að bera og meira til. Hann lætur sig ekki muna um að styðja lögbrot, en atyrða lögregluna fyrir að framfylgja lögunum. Hvergi í heiminum myndi ábyrgur flokksleiðtogi haga sér þannig. – Nýjasta krafan er að geðveilum umsækjendum verði ekki vísað úr landi, en útveguð spítalavist.

Hvernig mundi sú vegferð enda ef hún spyrðist út? Svarið við spurningunni gerir að vísu kröfu um getu til rökhugsunar.

Stjórnvöld verða að hafa mannafla til að skoða bakgrunn allra sem hér sækja um vernd og eru ekki frá öruggum löndum. Og dæmin sýna að meir að segja lífsnauðsynlegar sóttvarnir hafa verið vanræktar á stundum með hörmulegum afleiðingum.

Undir engum kringumstæðum má svo mafíustarfsemi ná að skjóta hér rótum. Okkar eigin handrukkarar eru hreinir kórdrengir í samanburði við glæpasamtök eins og albönsku mafíuna."

Að vísu veit ég ekki hvort Einar Sveinn gefur mikið eða lítið fyrir mínar skoðanir í hælisleitendamálum. En í þessu tilviki fara þær mjög saman við þær lýsingar og skoðanir sem fram koma hér að ofan.

Ég hef lengi undrast hversvegna yfirvöld skrúfa ekki fyrir aðstreymið til Keflavíkurflugvallar. sem þeim er í lófa lagið að gera með því að stjórna aðgangi í flugvélar á leið til landsins?

Sömuleiðis hversvegna hælisleitendum er ekki komið fyrir í afgirtum fangabúðum á Keflavík meðan mál þeirra eru fyrir tekin, (sem væri nánast óþarfi ef aðganginum væri stýrt með vegabréfum.) Þess í stað er þeim hleypt óskoðuðum á almenning í landinu.

Ekki fæ ég að fara úr landi eða koma heim um Keflavík  án þess að hafa minn íslenska passa á lofti. Öfugt við hvaða geðveikan eða öfugan Sómalíumann sem hingað kemur og vill dvelja hér frítt sem hælisleitandi eins lengi og verkast vill á okkar kostnað.

Hvað er eiginlega að hjá þessari Útlendingastofnun?

Eru það hinir vösku lögfræðingar eins og Helga Vala Helgadóttir sem verjast svo fimlega fyrir hönd þessa aðkomufólks að okkar djúpríki getur ekki borið hönd fyrir okkar höfuð?

Mér ofbýður hvernig við látum fara með okkur í málefnum hælisleitenda.

 

 

 


Tómas Ingi Olrich

tekur til máls um áhrif O3 í Morgunblaðinu í dag.

Niðurlag greinar hans er svofelld:

"Þess er með ýmsum hætti freistað að gera lítið úr málflutningi þeirra sjálfstæðismanna, sem vara við því að samþykkja þriðja orkupakkann.

Það vekur hins vegar athygli hve mikil þögn ríkir af hálfu forystu flokksins um fögnuð þeirra, sem klufu Sjálfstæðisflokkinn vegna andstöðu hans við inngöngu í ESB.

Þó ganga þessir síðastnefndu lengst í að bera lof á Sjálfstæðisflokkinn fyrir framgöngu hans í málinu og lofa fullum stuðningi við afgreiðslu orkupakkans.

Þeir fagna hækkuðu orkuverði til almennings og atvinnulífs.

Einn þeirra gengur jafnvel svo langt að bera lof á utanríkisráðherra Íslands fyrir að draga, með rökum Björns Bjarnasonar, gervallan þingflokk Sjálfstæðisflokksins eins og hverja aðra kanínu upp úr töfrahatti loddarans.

Fagnar Þorsteinn Pálsson þessum meintu töfrabrögðum og lofsyngur þingflokk Sjálfstæðisflokksins fyrir að auðvelda eftirleikinn fyrir þeim sem berjast fyrir aðild Íslands að ESB.

Óljóst er enn þegar þetta er ritað, hvort drengskapur fyrrverandi formanns Sjálfstæðisflokksins auðveldar þingflokki Sjálfstæðisflokksins að standa sem einn maður að innleiðingu orkupakka ESB.

Lokaorð

Það er sannarlega kominn tími til að Íslendingar sæki fram í stað þess að hörfa. Það er mikill misskilningur að það skapi okkur skjól og auki virðingu viðsemjenda okkar að hörfa sífellt og fara með veggjum, hlýðnir og auðmjúkir.

Það hlutverk var okkur ætlað í Icesave-málinu. Það vannst vegna þess að einarður málflutningur fór fram gegn uppgjöf ríkisstjórnar Jóhönnu Sigurðardóttur og forsetinn vísaði málinu til þjóðarinnar."

Jæja, þá er maður kominn aftur í einn sameinaðan flokk, Sjálfstæðisflokkinn sinn gamla, aftur. Viðreisn er komin heim og við sameinuð í ESB afstöðunni aftur. Og eiginlega búnir að innbyrða Samfó tæknilega líka.

Lof og dýrð sé stjórnvisku okkar forystufólks.

Þökk sé Tómasi Inga Olrich fyrir að ljúka svona upp augum vorum


« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (4.8.): 0
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 27
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 27
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband