Leita í fréttum mbl.is

Um hælisleitendur

skrifar vinur minn Einar S. Hálfdánarson, hæstaréttarlögmaður og löggiltur endurskoðandi í Morgunblaðið dag.

Mér finnst ástæða til að vekja athygli á grein hans og geri það hér með því ekki lesa allir Mogga:

"Ólöglegur innflutningur fólks er kominn úr böndunum. Fyrstu tvo mánuði ársins sóttu 146 manns (svokallaðir hælisleitendur) um alþjóðlega vernd á Íslandi. Ef fram fer sem horfir verða það því nálægt þúsund manns sem hingað koma, flestir í heimildarleysi.

Þetta samsvarar því að meir en 14 þúsund hælisleitendur kæmu til Danmerkur á ári. En raunin er sú að til Danmerkur hafa „aðeins“ komið tvö til þrjú hundruð manns á mánuði síðan 2016 og eitthvað rúmlega þrjú þúsund manns allt árið 2018.

Ásóknin hingað er þannig margföld á við ásóknina í að flytjast til Danmerkur. Ofan í kaupið neita Danir að taka við kvótaflóttamönnum og hafa gert í mörg ár.  koma. Það þarf ekkert að skoða Danir hafa ekki fjármuni í að taka við öllum hælisleitendum sem þangað vilja. En þá hafa Íslendingar!

Landamæravarsla

Þegar Danir hófu landamæravörslu síðla árs 2015 var staðan ekkert ósvipuð því sem hún nú er á Íslandi. Staðreyndin er sú að mjög stór hluti umsækjenda um vernd kemur frá löndum þar sem engin ástæða er að óttast að verða ofsóttur vegna kynþáttar, trúarbragða, þjóðernis o.s.frv. og getur ekki fært sér í nyt vernd heimalands síns.

Þessa umsækjendur langar að setjast að þar sem kjörin eru betri en heima og misnota kerfið til að koma því í kring. Umsækjendur eru meir að segja frá Evrópu og tiltölulega friðsælum Asíu- og Afríkuríkjum. Flestar slíkar umsóknir væri hægt að afgreiða á Ódagsparti.

Sumir aðrir, svo sem Nígeríumenn, geta fært sér í nyt vernd heimalands síns. Ef starfsfólk Útlendingastofnunar ræður ekki við verkið vegna álags, þá þarf að fá lögfræðinga sem verktaka að borðinu.

Hvers vegna beita Íslendingar ekki sömu ráðum og annars staðar hafa gefist vel til að koma í veg fyrir misnotkun útlendinga á velferðarkerfinu. Lögreglan veit hvaðan þeir koma.

Það þarf ekkert að skoða hvert einasta vegabréf. Í öðrum löndum eru vegabréf skoðuð við útganginn úr flugvélinni þegar sérstök ástæða þykir til. Veit dómsmálaráðherrann ekki af vandanum? Er þá ekki ráð að kynna sér hvað nágrannaþjóðirnar hafa gert?

Vandinn er heimatilbúinn að mestu

Stærsti vandi Íslendinga er skortur á heilbrigðri skynsemi í bland við barnaskap. Þegar við bætist alger skortur á rökhugsun verður til illviðráðanleg blanda.

Logi Einarsson er lifandi dæmi um einstakling sem hefur allt framangreint til að bera og meira til. Hann lætur sig ekki muna um að styðja lögbrot, en atyrða lögregluna fyrir að framfylgja lögunum. Hvergi í heiminum myndi ábyrgur flokksleiðtogi haga sér þannig. – Nýjasta krafan er að geðveilum umsækjendum verði ekki vísað úr landi, en útveguð spítalavist.

Hvernig mundi sú vegferð enda ef hún spyrðist út? Svarið við spurningunni gerir að vísu kröfu um getu til rökhugsunar.

Stjórnvöld verða að hafa mannafla til að skoða bakgrunn allra sem hér sækja um vernd og eru ekki frá öruggum löndum. Og dæmin sýna að meir að segja lífsnauðsynlegar sóttvarnir hafa verið vanræktar á stundum með hörmulegum afleiðingum.

Undir engum kringumstæðum má svo mafíustarfsemi ná að skjóta hér rótum. Okkar eigin handrukkarar eru hreinir kórdrengir í samanburði við glæpasamtök eins og albönsku mafíuna."

Að vísu veit ég ekki hvort Einar Sveinn gefur mikið eða lítið fyrir mínar skoðanir í hælisleitendamálum. En í þessu tilviki fara þær mjög saman við þær lýsingar og skoðanir sem fram koma hér að ofan.

Ég hef lengi undrast hversvegna yfirvöld skrúfa ekki fyrir aðstreymið til Keflavíkurflugvallar. sem þeim er í lófa lagið að gera með því að stjórna aðgangi í flugvélar á leið til landsins?

Sömuleiðis hversvegna hælisleitendum er ekki komið fyrir í afgirtum fangabúðum á Keflavík meðan mál þeirra eru fyrir tekin, (sem væri nánast óþarfi ef aðganginum væri stýrt með vegabréfum.) Þess í stað er þeim hleypt óskoðuðum á almenning í landinu.

Ekki fæ ég að fara úr landi eða koma heim um Keflavík  án þess að hafa minn íslenska passa á lofti. Öfugt við hvaða geðveikan eða öfugan Sómalíumann sem hingað kemur og vill dvelja hér frítt sem hælisleitandi eins lengi og verkast vill á okkar kostnað.

Hvað er eiginlega að hjá þessari Útlendingastofnun?

Eru það hinir vösku lögfræðingar eins og Helga Vala Helgadóttir sem verjast svo fimlega fyrir hönd þessa aðkomufólks að okkar djúpríki getur ekki borið hönd fyrir okkar höfuð?

Mér ofbýður hvernig við látum fara með okkur í málefnum hælisleitenda.

 

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jónatan Karlsson

Mögulega getur hugsast að Helga Vala fái mjög rausnarlega greitt fyrir umstangið,án þess að ég þori að fullyrða neitt frekar um það.

Hugsanlega þiggur hún þó ekki laun af mannúðarástæðum.

Jónatan Karlsson, 27.4.2019 kl. 16:21

2 identicon

Gulli glóbalisti fékk nú heldur betur að heyra það frá vinum sínum hælisleitendum í Salnum í Kópavogi í dag. Varstu þar Halldór? Bráðum verður ekki þorandi fyrir ráðamenn í þessu landi að halda stjórnmálafundi af ótta við að þessir þakklátu gestir okkar troði upp með óvænt númer og hleypi öllu í bál og brand. 

Hermann Jónsson (IP-tala skráð) 27.4.2019 kl. 17:34

3 Smámynd: Valdimar Samúelsson

Það er óskiljandi hve stjórnvöld eru óviljug að vera samstíga fólkinu í landinu.

Við þurftum aldrei að taka þessar skuldbindingar á okkur og engin alþjóðastofnun var að þvinga okkur til þess en þessir háu herrar vildu sína hvo mikil góðmennska er hjá þegnum elítunnar.

Við getum líka haft landamærastöðvar á flugvöllum og höfnum sem skip fara frá.

Ef við tölum un atvinnuleyfi þá á að selja þau eitt ár í senn hálft ár utan Íslands og svo aftur ef persónan vill koma aftur. Þarna geta þeir rukkað fullan skatt ásamt leyfinu og ef persónan er brotleg þá bara beint frá Íslandi.

Valdimar Samúelsson, 27.4.2019 kl. 18:56

4 Smámynd: Halldór Jónsson

Fæstir af þessum kvótaflóttamönnum fara vist nokkru sinni í vinnu, læra ekki málið né gera neitt fyrir okkur.Ómenntað múslímafólk er sagt hafa forgang þegar valið  er í kvótann vegna mannúðarástæðna.

Halldór Jónsson, 27.4.2019 kl. 19:36

5 Smámynd: Halldór Jónsson

Hermann, þeir vilja fá aðráða ferðinni og góðafólkið og Samfylkingin styður það auðvitsð

Halldór Jónsson, 27.4.2019 kl. 19:38

6 Smámynd: Halldór Jónsson

"Stærsti vandi Íslendinga er skortur á heilbrigðri skynsemi í bland við barnaskap. Þegar við bætist alger skortur á rökhugsun verður til illviðráðanleg blanda.

Logi Einarsson er lifandi dæmi um einstakling sem hefur allt framangreint til að bera og meira til. Hann lætur sig ekki muna um að styðja lögbrot, en atyrða lögregluna fyrir að framfylgja lögunum. Hvergi í heiminum myndi ábyrgur flokksleiðtogi haga sér þannig. – Nýjasta krafan er að geðveilum umsækjendum verði ekki vísað úr landi, en útveguð spítalavist."

Mikið finnst mér þetta vera vel mælt. Ég vporkenni Íslendingum æ meira eftir því semég er lengur erlendis fyrir hvað þeir eru vanþróaðir og vesælir.

Halldór Jónsson, 27.4.2019 kl. 19:41

7 identicon

Engin undur eru að enn er ég sammála Halldóri,  í þessu máli sem mörgum, en hitt teljast undur að í þetta sinn, í þessu máli er ég einnig sammála Einari S. Hálfdánarsyni. 

Um að gera að skamma hriplekan dómsmálaráðherrann sem kemur úr hans eigin flokki, Þórdísi Kolbrúnu Rekfjörð.  Megi nú armur Einar snúast til vitrænnar skoðunar eins og við Halldór höfum á þriðja orkupakkanum og afneita honum, ÞKRekfjörð og Gulla glóbalista

Símon Pétur frá Hákoti (IP-tala skráð) 27.4.2019 kl. 20:20

8 Smámynd: Valdimar Samúelsson

Halldór ætli maður elti þig ekki en hef ætlað mér að kaupa góðan Húsbíl og krúsa um gamlar slóðir í Alaska svo Coco Beach á veturna.

Ég er oft á fremsta hlunn með að komast frá þessu oft rotna stjórnarfari og stjórnskipulagslausa þjóðfélagi þetta en hvað gerir maður með 10 barnabörn.

Ég hef komin nokkrum sinnum á slóðir Afa þína sem er norðan inn fjörðinn ekki langt frá Homer Alaska. Mikið fallegt land. 

Hafðu gott í Trump landi.

Valdimar Samúelsson, 27.4.2019 kl. 20:52

9 Smámynd: Merry

Sælir Halldór

Er í sviðjóð núna og fór á sporvagn um daginn - ef ég hefði precis vaknað gæti ég ekki giskað hvaða land ég hafði komið til - Tyrkland - Írak - Sómalía eða hvað - örugglega ekki Svíþjóð. Það hefur farið út ur kontrol.

Merry, 28.4.2019 kl. 08:31

10 Smámynd: Sigurður I B Guðmundsson

Bíð spenntur eftir athugasemd frá "góða fólkinu"!!!

Sigurður I B Guðmundsson, 28.4.2019 kl. 09:50

11 identicon

Ekki gleyma að Siðfræðideild H.Í. telur að hælisleitendur hafi siðferðilegan rétt til að ljúga öllu sem þeir skrá á umsóknir sínar m.a. því að þeir séu börn þó þeir líti út fyrir að vera yfir fertugt

Grímur (IP-tala skráð) 28.4.2019 kl. 11:06

12 identicon

KAPPAR Halldórs fóru geyst um helgina varðandi stöðu ÍSLANDS í VISTINNI með ESB. Ferðalangur í SVÍÞJÓÐ vissi ekki í hvaða landi hann var?. Er STAÐAN svipuð í öðrum ESB löndum, þar sem hugsun HEIMAMANNA er að ALVARLEGA að breytast á stjórnmálasviðinu ?.

MORGUNBLAÐIÐ á blaðsíðum 22-27 og "KAPPAR" HALLDÓRS tala einum rómi um sömu vandamál á Landinu okkar. Er fólkið, sem yfirgaf heiðurspall FULLVELDISINS á Þingvöllum vegna PIU KJÆRSGAARD, að taka við stjórnun "ÚTLENDINGAMÁLA". 

GÍSLI HOLGERSSON - ICELAND (IP-tala skráð) 28.4.2019 kl. 11:21

13 identicon

Hver beindi hælisleitendum á fund Sjálfstæðisflokksins um orkupakka 3 ?

Voru það samantekin ráð Vilhjálms Þorsteinssonar og ráðherra flokksins, Gulla glóbalista og ÞKRekfjörð, svo hleypa mætti upp fundinum ?

Símon Pétur frá Hákoti (IP-tala skráð) 28.4.2019 kl. 11:33

14 identicon

Mæta þeir ekki næst á ríkisstjórnarfund?

Hörður Þormar (IP-tala skráð) 28.4.2019 kl. 12:41

15 identicon

Tilgangurinn var augljós:

Að hleypa upp fundinum 

og dreifa athyglinni frá orkupakkanum.

Hverjir hafa hag af því?

Vilhjálmur sem var mættur til að taka upp upphlaupið, eins og papparazzi fyrir ráðherrana tvo.

Símon Pétur frá Hákoti (IP-tala skráð) 28.4.2019 kl. 12:55

16 identicon

Gísli! "Kappar," Halldórs eru þegar sagðir hafa "...tekið herskyldi Þingvöllu alla". Vikings, warrior, battle, artwork Wallpaper Fyrir flokki fer drottning reiðareksliðs ríkisstjórnarinnar: Vikings Wallpaper - WallpaperSafari Halldór er sagður hafa farið í leyfi um stundarsakir vegna óþekktar: 10 Fascinating Viking Religious Beliefs that Make Them Even More Badass

Húsari. (IP-tala skráð) 28.4.2019 kl. 13:02

17 identicon

Frábæri HÚSARI.

Þessar ofurmyndir lýsa betur "ástandinu og skipulagsleysi" ESB landa. Þetta táknar ÚTLENDINGAEFTIRLIT ÍSLENDINGA við Miðjarðarhafið samkvæmt SCHENGEN samningi við ESB.

Ráðherra ferðamála á að setja þessa mynd til kynningar á ÍSLANDI. Sjómenn,Víkingar,Landnámsmenn og Rithöfundar og gestrisnir ÍSLENDINGAR í ÖRUGGU fámennu Landi selja BEST.    

GÍSLI HOLGERSSON - ICELAND (IP-tala skráð) 28.4.2019 kl. 14:58

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (26.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 49
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 47
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband