22.5.2010 | 13:46
Auvidað Gnarrinn ma..r !
Lifandis eru allskyns fræðingar orðnir vitrir eftir að svokallaðar skoðanakannanir sýni vaxandi fylgi við fíflaflokk Jóns Gnarr. Ég er ekki augnablik í vafa um að Jón Gnarr er jafnoki allra þeirra sem eru í framboði fyrir hina flokkana. Þetta er eldklár náungi og yrði áreiðanlega fínn borgarstjóri þó svo að hann myndi líklega breyta stefnunni örlítið.
En svo koma svona hrútfúlar og seríösar manneskjur eins og Stefanía Óskarsdóttir og taka það sem gefið að enginn geti gert að gamni sínu nema Jón Gnarr. Hún heldur virkilega að enginn svari nema í alvöru þegar spyrlarnir hringja um hvað viðkomandi ætli að kjósa. Er ekki alkunna að Danir eru drengir góðir og vinfastir og veita jafnan þeim sem betur mega sín ?
Stefanía segir:
"Staða stjórnmálaflokkanna er svo slæm að jafnvel margir stuðningsmenn þeirra eiga í erfiðleikum með að halda uppi merkjum þeirra, svo rúnir trausti eru flokkarnir eftir hrunið. Þetta er mat Stefaníu Óskarsdóttur stjórnmálafræðings sem telur óþol gagnvart flokkum rótina að vinsældum Besta flokksins."
- Svo við tökum dæmi þá leið langur tími þar til Ingibjörg Sólrún Gísladóttir og Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir báðust afsökunar á þætti þeirra í hruninu, auk þess sem Halldór Ásgrímsson þótti ekki ganga fram af eftirsjá vegna meints þáttar hans í hruninu í nýlegu Kastljósviðtali. "
Blaðamaður spyr: "Telurðu að ef stjórnmálamenn hefðu gengið fram af meiri auðmýkt að andrúmsloftið væri hugsanlega öðruvísi?"
Stefanía hugsar sig þá um og kveðst svo hallast að því að svarið sé já. Hún rifjar svo upp að fjöldi þingmanna hafi strax farið í skotlínuna vegna hrunsins. Sumir hafi dregið sig í hlé en aðrir sitji áfram og njóti stuðnings vina sem telji illa að þeim vegið. Hún víkur svo að málefnastöðu flokkanna.
Það er svo óþægilegt fyrir stuðningsmenn flokka að geta ekki varið stefnuna, að geta ekki eytt sínu púðri í að verja stefnuna og tala upp frambjóðendur. Í staðinn þurfa þeir að afsaka það sem gerðist í fortíðinni og bera í bætiflóka fyrir fólk sem víkur ekki til hliðar.
Í Bretlandi og víða annars staðar er miklu meiri hefð fyrir því að fólk víki af sviðinu um leið og það koma upp smávægilegar efasemdir um heiðarleika eða hvað það er. Það er gert vegna þess að menn þekkja að það er miklu vænlegra til árangurs fyrir heildina til að halda áfram að þurfa ekki að vera fastur í sporinu og afsaka einhverja tiltekna einstaklinga.
Hérna hjá okkur er þjóðfélagið svo lítið að einstaklingarnir verða svo fyrirferðamiklir, segir Stefanía og bendir á að mál Sigrúnar Bjarkar Jakobsdóttur, formanns bæjarstjórnar á Akureyri og oddvita sjálfstæðismanna þar í bæ, hafi orðið til að styrkja í sessi þá útbreiddu skoðun að stjórnmálamenn ætluðu ekki að læra af reynslunni."
Mikið endemis gufurugl er í þessum annars laglega stjórnmálafræðing !. Þeir láta auðvitað alltaf mest af Ólafi kóngi sem hvorki hafa heyrt hann né séð. Allskyns fólk þykist vita allt um Sjálfstæðisflokkinn sem hefur aldrei komið þar inn fyrir dyr.Ekkert af þessu bulli í Stefaníu á við þann flokk. Stefna flokksins hefur ekkert breyst og enginn flokksmaður á í erfiðleikum með að hefja hana á loft.
Hinsvegar mætti þessi aumingjans alvörukona hugsa sér að einhver hringi í mig þegar ég er búinn að heyra að Jón Gnarr sé í stórsókn. Þarf hún endilega að búast við því að ég segi satt og rétt frá því hvernig ég ætli að kjósa ? Bara af því að einhver Gallup er í símanum að pirra mig á matmálstíma ? Af hverju skyldi ég endilega setja mig í stellingar og segja með áhersluþunga og mikilli alvöru: " Sjálfstæðisflokkinn eins og ég hef alltaf gert, pabbi minn á undan mér og afi minn á undan honum."
Af hverju bregð endilega ég ekki á kreik og segi í Gnarrískum stíl:
"Auðvidað Gnarrinn ma..r !"
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 4
- Sl. sólarhring: 4
- Sl. viku: 42
- Frá upphafi: 3419710
Annað
- Innlit í dag: 3
- Innlit sl. viku: 35
- Gestir í dag: 3
- IP-tölur í dag: 3
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- Maí 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Ágúst 2021
- Júlí 2021
- Júní 2021
- Maí 2021
- Apríl 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Júlí 2020
- Júní 2020
- Maí 2020
- Apríl 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2020
- Janúar 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Ágúst 2017
- Júlí 2017
- Júní 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
Bloggvinir
- ghe13
- sigurjonth
- andrigeir
- annabjorghjartardottir
- ansigu
- agbjarn
- armannkr
- asdisol
- baldher
- h2o
- bjarnihardar
- dullur
- bjarnimax
- zippo
- westurfari
- gattin
- bryndisharalds
- davpal
- eggman
- greindur
- bjartsynisflokkurinn
- elfarlogi
- eeelle
- sunna2
- ea
- fuf
- fhg
- vidhorf
- gerdurpalma112
- gilsneggerz
- gudni-is
- lucas
- zumann
- gp
- gun
- topplistinn
- tilveran-i-esb
- skulablogg
- gustafskulason
- gustaf
- heimssyn
- diva73
- helgi-sigmunds
- hjaltisig
- minos
- hordurhalldorsson
- astromix
- fun
- jennystefania
- johanneliasson
- johannvegas
- jonatlikristjansson
- fiski
- jonl
- jonmagnusson
- jonlindal
- bassinn
- jonvalurjensson
- jvj
- thjodarskutan
- juliusbearsson
- katagunn
- kje
- ksh
- kristinn-karl
- kristinnp
- kristjan9
- loftslag
- altice
- ludvikjuliusson
- maggij
- magnusthor
- mathieu
- nielsfinsen
- omarbjarki
- huldumenn
- svarthamar
- pallvil
- peturmikli
- valdimarg
- ragnarb
- samstada-thjodar
- fullveldi
- siggus10
- sisi
- siggisig
- ziggi
- siggith
- stjornlagathing
- pandora
- spurs
- kleppari
- saethorhelgi
- tibsen
- ubk
- valdimarjohannesson
- skolli
- valurstef
- vilhjalmurarnason
- vey
- postdoc
- thjodarheidur
- icerock
- steinig
- thorsteinnhelgi
- icekeiko
Athugasemdir
http://juliusbearsson.blog.is/blog/juliusbearsson/entry/1051303/
"Ég biðst afsökunar á hruninu" er ekki fyndið. Að stjórna þroskuðu siðmenntuðu ríki þarf áttvísi [strategiu] minnst víðsýni ekki stefnu mótunnar. Siðmenningu er alda gömul og flesta stefnur komnar fram og flesta úreltar.
Það er ekki félagsleg eða hægri stefna að tengja hornasteina Íslands verðtryggðum verðbóta [e.dirty prize ] nafnvöxtum, sem eru óverðtryggðir á kúlulánum lánsýslu Ríkisins. Hinsvegar gildur það um raunávöxtun slíkra vaxta að hana þarf að reikna sérstaklega með tölfræðilegri ítrun sem hér fer ekki nánar út í hér.
Þess auka verðtryggða raunvöxtum eru um 10 ára að koma fram á íbúðlánum ef verðbólga er ekki meiri en 2,5 % á mánuði og 2,5% á ári. Um fjögur ár ef verðbólga er 5%. Biðtími lántaka frá 2003 til 2007.
Nálgunar formúlan á markaði miðast við um 20% hækkun raunvaxta eftir um 5 ár.
Ég mun fara betur út í dirty prize: verðbætur síðar í pistlinum hér að ofan sem byrjaði með kostum verðtryggingar svo á spari fé undanfara íbúðakaupa eða til að sleppa við að láta fíkla hirða það í lífeyrissjóð með lögum.
Júlíus Björnsson, 22.5.2010 kl. 16:28
Sæll Halldór,Jón Gnarr er svar fólksins í landinu við fjórflokknum,ef hann vinnur fjóra menn er það sigur, og þá kemur nýtt afl fyrir alþingiskosningar.
Settið sem situr nú á þingi er 50% mjög lélegt þrátt fyrir mikla endurnýjun við
hverja þingkosningar.
Við erum að verða á eftir í svo mörgu, m.a. er þetta jafnréttiskjaftæði sem er að verða siðlaust hér á land, þjóðin þarf að skammast sín.
Bernharð Hjaltalín, 22.5.2010 kl. 23:57
Minnihluti þjóðarinnar er ekki hluthafi í séreignarfjármálgeira með Ríkisábyrgð. Facto þeir sem ekki skilja þetta hugsa eins og hreinir yfirstéttar kommar og forgangraða í samræmi við sínar stefnumótanir. Víðsýni eða áttvísi er Íslenska.
Horsteinar þjóðarinnar eru grunnur og uppspretta jafnra tækifæra án tillits til stöðu, litarháttar eða kynferðis til að auka samkeppni og skuldleysi þar af leiðandi arðsemi allra [minnst hundrað svo viðurkenndar hagfræðikenningar gildi pro sent] tækni og fullvinnslu rekstrarfyrirtækja sem standa undir græðandi geirum líkama og huga og fyrsta flokks þjónustu geirum, sem lækkar skatta og og eykur almenna eftirspurn eftir virðisaukandi neyslu.
Betra er Dauður en Rauður. Rauður ráðgjafi fer í sauðagæru til að næra sig. Það koma allir upp sig þegar þeir opna munninn.
Júlíus Björnsson, 23.5.2010 kl. 01:51
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.