7.6.2010 | 21:02
The buck stops here !
Truman Bandaríkjaforseti hafði skilti á borðinu hjá sér þar sem þetta stóð.Það þýðir einfaldlega að hér enda málalengingarnar og afgreiðsla fer fram.
Berum þetta saman við forsætisráðherra Íslands sem lét sérhanna sérstaka leiksýningu um að öllum væri frjálst að sækja um eina stöðu seðlabankastjóra fyrir ári síðan. Hún var þá þegar búin að ákveða þann sem átti að ráða á bak við tjöldin þegar búið væri að reka Davíð, sem var í framhjáhlaupi sýknaður af meintu misferli í embætti í dag.
Farsinn um gegnsæið marglofaða sem þessi ríkisstjórn þykist viðhafa í mannaráðningum var hinsvegar settur á svið í venjulegum blekkingastíl. Fosætisráðherrann æpti bara á Sigurð Kára að honum færist nú ekki að vera að spyrja sig jafn Baugspilltur og hann væri nú.
Hún var svo í sjónvarpinu hjá Sigmari í kvöld sem þráspurði um launakjörin á þessum eina manni sem heyrir beint undir forsætisráðherra og hún réði beint til landsins úr himinhárri stöðu í Sviss. Hún hélt því blákalt fram að hún vissi ekki neitt um hvaða kaup maðurinn hefði eða hefði átt að fá og setti á langar ræður um laun ríkisforstjóra almennt. Og slapp með það!
Hún var ekki spurð um það hvort hún hefði lesið tölvupóstinn frá manninum sem um ræðir til hennar sjálfrar þar sem hann spurði um kaupið sitt eða af hverju hún svaraði honum ekki skriflega eða öðruvísi. Hvernig væri að Már yrði spurður hvort hann hefði engin viðbrögð fengið við sínu erindi ? Hvorki munnlega né á annan hátt ?
Jóhanna slapp því með að halda því fram að hún vissi ekkert um málið, það kæmi henni ekki við. Hugsið ykkur, þetta er forsætisráðherra Íslands sem talar og kemst upp með að bera þetta á borð fyrir þjóð sína !
Makalaust hvernig þetta Samfylkingarfólk sleppur með að meðhöndla okkur öll sem fífl sem trúum öllu sem rétt er að okkur. "Það var þá" dugar Samfylkingarfólki til að útskýra svikin loforð. Kannski erum við bara öll fífl og eigum ekki betra skilið ?
Af hverju eru engar kröfur gerðar til stjórnmálamanna af þessum vinstri kanti ? Þeir fá að bulla og þvæla alveg eins og þeir vilja og það er bara allt í lagi. Þeir kunna ágætlega "Pass the buck" eins og lágt settra kontórísta er háttur sem benda hver á annan. Hér ber enginn úr ríkisstjórninni ábyrgð á nokkrum sköpuðum hlut. Það er tönnlast á sömu slagorðunum um gagnsæi og opið ferli í þessu og hinu aftur og aftur. Bílalánin eru alveg að leysast og skjaldborgin um heimilin er alveg að rísa meðan fógetarnir bóka uppboðsdagana. Sem betur fer er stöðugleikasáttmálinn enn í lagi hjá ASÍ af því að ríkisstjórnin er úr réttum flokkum að mati spíssanna sem halda þá friðinn á meðan.
En bukkurinn stoppar bara hvergi !
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 2
- Sl. sólarhring: 6
- Sl. viku: 39
- Frá upphafi: 3419712
Annað
- Innlit í dag: 2
- Innlit sl. viku: 33
- Gestir í dag: 2
- IP-tölur í dag: 2
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- Maí 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Ágúst 2021
- Júlí 2021
- Júní 2021
- Maí 2021
- Apríl 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Júlí 2020
- Júní 2020
- Maí 2020
- Apríl 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2020
- Janúar 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Ágúst 2017
- Júlí 2017
- Júní 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
Bloggvinir
- ghe13
- sigurjonth
- andrigeir
- annabjorghjartardottir
- ansigu
- agbjarn
- armannkr
- asdisol
- baldher
- h2o
- bjarnihardar
- dullur
- bjarnimax
- zippo
- westurfari
- gattin
- bryndisharalds
- davpal
- eggman
- greindur
- bjartsynisflokkurinn
- elfarlogi
- eeelle
- sunna2
- ea
- fuf
- fhg
- vidhorf
- gerdurpalma112
- gilsneggerz
- gudni-is
- lucas
- zumann
- gp
- gun
- topplistinn
- tilveran-i-esb
- skulablogg
- gustafskulason
- gustaf
- heimssyn
- diva73
- helgi-sigmunds
- hjaltisig
- minos
- hordurhalldorsson
- astromix
- fun
- jennystefania
- johanneliasson
- johannvegas
- jonatlikristjansson
- fiski
- jonl
- jonmagnusson
- jonlindal
- bassinn
- jonvalurjensson
- jvj
- thjodarskutan
- juliusbearsson
- katagunn
- kje
- ksh
- kristinn-karl
- kristinnp
- kristjan9
- loftslag
- altice
- ludvikjuliusson
- maggij
- magnusthor
- mathieu
- nielsfinsen
- omarbjarki
- huldumenn
- svarthamar
- pallvil
- peturmikli
- valdimarg
- ragnarb
- samstada-thjodar
- fullveldi
- siggus10
- sisi
- siggisig
- ziggi
- siggith
- stjornlagathing
- pandora
- spurs
- kleppari
- saethorhelgi
- tibsen
- ubk
- valdimarjohannesson
- skolli
- valurstef
- vilhjalmurarnason
- vey
- postdoc
- thjodarheidur
- icerock
- steinig
- thorsteinnhelgi
- icekeiko
Athugasemdir
Halldór minn. Viltu fá Davíð Oddson eða Geir Haarde? Eða kannski Gunnar á Kópavogs-skútunni í stólinn?
Allir eru þeir líklega velviljaðir menn, en slysast áfram í röngum flokki og hafa svo sannarlega verið á rangri starfs-hillu í lífinu eins og svo mörg okkar hafa verið.
En ég er þakklát fyrir að við höfum öll leyfi til að vera mannleg og gölluð? Hvernig hefði nú annars verið hægt að lifa í þessu rugli? M.b.kv.
Anna Sigríður Guðmundsdóttir, 8.6.2010 kl. 01:46
Já Anna mín, ég og þriðjungur þjóðarinnar að minnsta kosti viljum fá Davíð aftur. SJáðu bara skoðanakönina hérna til hliðar. Fólkið treystir Davíð þrisvarsinnum meira en það treystir þeim sem næst koma. Hv að flokkinn varðar eru allir í röngum flokki sem ekki eru í Sjálfstæðisflokknum að minnsta kosti lía. En eins og þú veist þá er ég í honum og líka Framsóknarflokknum og stefni á Samfylkinguna þegar prófkjör verða næst. Því það er alls ekki hægt að láta yfir sig ganga að hafa ekki áhrif á hvaða fólk er kosið til áhrifa í öðrum flokkum.
Halldór Jónsson, 8.6.2010 kl. 07:42
Ég er hissa á þér Halldór að gagnrýna ráðningarferlið eftir að hafa horft á hana skýra frá því í Kastljósi í gær að það hafi aldrei verið jafn fagmannlega staðið að ráðningu á Íslandi.
Ég er líka hissa, jafnvel ekki síður, á þjóðinni sem lætur þessa lygaþvælu dynja á sér dag eftir dag og jafnvel ver afglapaháttinn.
Þetta er ný gerð "stórmenna" sem hefur geð í sér til að koma fram í sjónvarpi allra lands-manna og segja nánustu samstarfsmenn sína lygara og lögbrjóta. Ég held að þetta lið hljóti að vera að kalla á besta flokkinn til stjórnar landsins. Ég ekki séð að þar séu innanborðs verri dusilmenni en liðið sem er við stjórn-völinn í dag.
Kjartan Sigurgeirsson, 8.6.2010 kl. 09:55
Kjartan,
Pallivil segir svo á bloggi sínu:
..."Jóhanna Sig. og Steingrímur J. voru búin að semja um að Már fengi starfið. Már var í stöðu til að setja skilyrði og það gerði hann.
Efnisatriðin sem skipta máli koma fram í frétt Mbl.is
Már segir Jóhönnu að ,,miklar líkur" séu á að hann hætt við ef hann fær ekki hærri laun og að hann muni auglýsa það rækilega í útlöndum. Jóhanna mátti ekki við frekari leiðindum í stjórnsýslu fjármála og fól Láru V. Júlíusdóttur formann bankaráðs Seðlabanka að koma til móts við kröfur Más.
Vandamál Jóhönnu er að hún laug upp í opið geðið á þjóð og þingi. "
Þarf einhver að efast um að forsætisráðerran er staddur á sínu "Másgate" eins og Nixon í Watergate á sínum tíma ?
Halldór Jónsson, 8.6.2010 kl. 12:07
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.