16.6.2010 | 20:01
Kratarnir í Kópavog karpa
Ekki byrjar það vel hjá krötunum í Kópavogi að vera komnir í alvöru pólitík eftir 20 ára hvíld. Það gengur nú hinsvegar oft til svona þegar á á að herða og meirihlutinn er tæpur.Kannski hefðu þeir átt að taka Framsóknarmanninn með svona til þess að hafa borð fyrir báru. Því nú eiga þeir við þrjá aðra flokka til viðbótar eigin varabæjarfulltrúa. Það má ólíklegt telja að enginn þeirra hafi sérþarfir sem verði að uppfylla áður en lengra sé haldið.
Elfur Logadóttir segir á síðu sinni, að aðalkosningamál Samfylkingarinnar um ágæti þess að kaupa íbúðir af bönkunum og leiga út á félagslegum grunni, sé stórkostlegt fjárhagslegt feigðarflan. Samylkingin hélt þessarri áætlun mjög á lofti fyrir kosningarnar og kallaði Kópavogsbrú. Elfur Logadóttir segir að ekki sé heil brú í þessu kosningaloforði. Það var ærlega sagt alveg eins og Samfylkingunni væri ókunnugt um það, að Húsnæðisnefnd Kópavogs, sem á og rekur nærri 400 slíkar íbúðir, hefur ekki getað nema safnað skuldum á slíkum rekstri og þarf hundruðir miljóna úr bæjarsjóði ár hvert. En uppbygging félagslega húsnæðiskerfisins var mikil og jöfn alla samstarfstíð fyrri meirihluta í 20 ár.
Elfur segir oddvita sinn og varaoddvita hafa vitandi vits lagt upp með þetta kosningaplagg og vitað að það væri óframkvæmanlegt nema með stórtapi. Þau afgreiddu aðfinnslu Elfar með því, að það væri þá hægastur vandinn að svíkja þetta loforð eftir kosningar. Ekki var Elfur Logasóttir dús við svona yfirlýsingar kennaranna Guðríðar Arnardóttur og Hafsteins Karlssonar, sem eiga víst að innræta börnum okkar Guðsótta og góða siði,- þar með talið væntanlega að segja ávallt satt.
Menn hafa kannski heyrt söguna af unga nýkjörna breska þingmanninum, sem fékk eldri þingmann til að sýna sér bresku málstofuna áður en þinghald hæfist.
"Hérna megin við ganginn sitjum við og hinu megin við ganginn sitja andstæðingarnir, " sagði eldri þingmaðurinn við unga manninn.
" Mikið hlakka ég til að sitja hérna í fremstu röð og takast á við óvinina hinu megin við ganginn " sagði þá ungi þingmaðurinn.
" Óvinina ? Nei sonur sæll, þetta er ekki rétt hjá þér"sagði þá eldri þingmaðurinn, " Andstæðingarnir sitja þarna. Óvinirnir sitja hérna fyrir aftan þig."
Innanflokksátök eru það sem stjórnmálaforingjar allstaðar verða að búa við. Sá einn er foringi sem getur sett niður deilur í eigin flokki og haldið lokinu á suðupottinum. Bjarni Benediktsson sagði eitt sinn eitthvað á þessa leið: "Það er kannski erfitt að vera forsætisráðherra og berjast við erfiðleikana. En það er miskunnarlaust starf að vera formaður í Sjálfstæðisflokknum."
Gallinn við íslenska jafnaðarmenn er sá, að þeir eru svo miklir ójafnaðarmenn í sér. Saga vinstrihreyfingarinnar á Íslandi ber þessu órækt vitni við hlutlausa athugun. Hvergi hafa pólitískar innanflokksdeilur risið hærra en þar. Man einhver Alþýðuflokkinn, Kommúnistaflokkinn, Sameiningarflokk Alþýðu-Sósíalistaflokkinn, Alþýðubandalagið, Bandalag Jafnaðarmanna, Á rauðu ljósi, Þjóðvaka, Samfylkinguna og svo vinstri VG ?
Því miður eru vinstri menn oft ekki sammála um neitt annað en að vera á móti Sjálfstæðisflokknum. Það kom berlega fram við myndun meirihlutans í Kópavogi, að engin skynsemi komst að ofar þeirri hugsun, að koma Sjálfstæðisflokknum frá, hvað sem það kostaði. Nú eru verðmiðarnir að fara að koma í ljós.
Vonandi ná þeir Samfylkingarmenn saman aftur svo að þeir geti farið að sinna bæjarmálunum með Guðrúnu Pálsdóttur, sem tryggir þó daglegan rekstur meðan kratarnir í Kópavogi karpa innbyrðis.
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 0
- Sl. sólarhring: 4
- Sl. viku: 37
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 31
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- Maí 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Ágúst 2021
- Júlí 2021
- Júní 2021
- Maí 2021
- Apríl 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Júlí 2020
- Júní 2020
- Maí 2020
- Apríl 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2020
- Janúar 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Ágúst 2017
- Júlí 2017
- Júní 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
Bloggvinir
- ghe13
- sigurjonth
- andrigeir
- annabjorghjartardottir
- ansigu
- agbjarn
- armannkr
- asdisol
- baldher
- h2o
- bjarnihardar
- dullur
- bjarnimax
- zippo
- westurfari
- gattin
- bryndisharalds
- davpal
- eggman
- greindur
- bjartsynisflokkurinn
- elfarlogi
- eeelle
- sunna2
- ea
- fuf
- fhg
- vidhorf
- gerdurpalma112
- gilsneggerz
- gudni-is
- lucas
- zumann
- gp
- gun
- topplistinn
- tilveran-i-esb
- skulablogg
- gustafskulason
- gustaf
- heimssyn
- diva73
- helgi-sigmunds
- hjaltisig
- minos
- hordurhalldorsson
- astromix
- fun
- jennystefania
- johanneliasson
- johannvegas
- jonatlikristjansson
- fiski
- jonl
- jonmagnusson
- jonlindal
- bassinn
- jonvalurjensson
- jvj
- thjodarskutan
- juliusbearsson
- katagunn
- kje
- ksh
- kristinn-karl
- kristinnp
- kristjan9
- loftslag
- altice
- ludvikjuliusson
- maggij
- magnusthor
- mathieu
- nielsfinsen
- omarbjarki
- huldumenn
- svarthamar
- pallvil
- peturmikli
- valdimarg
- ragnarb
- samstada-thjodar
- fullveldi
- siggus10
- sisi
- siggisig
- ziggi
- siggith
- stjornlagathing
- pandora
- spurs
- kleppari
- saethorhelgi
- tibsen
- ubk
- valdimarjohannesson
- skolli
- valurstef
- vilhjalmurarnason
- vey
- postdoc
- thjodarheidur
- icerock
- steinig
- thorsteinnhelgi
- icekeiko
Athugasemdir
Hvers vegna var bloggfærslunni "Ritskoðun á blogginu" eytt??? Ég sá að þú hafðir svarað mér Halldór en ég sá aldrei svarið. Geturðu sett það inn aftur?
Grefillinn Sjálfur - Koma svo! (IP-tala skráð) 17.6.2010 kl. 00:45
Nei, málinu er lokið. En við þig ætlaði ég að segja að vil ekki ræða við menn undir dulnefni. Komdu fram og vertu eins og uppréttur maður.
Halldór Jónsson, 17.6.2010 kl. 09:12
Fullt nafn mitt er á bloggsíðunni minni þótt ég noti höfundarnafnið Grefill. Til að stytta þér leið þá heiti ég Guðbergur Ísleifsson.
Hvað meinar þú með að "málinu sé lokið"? Hvernig lauk því?
Grefillinn Sjálfur - Koma svo! (IP-tala skráð) 17.6.2010 kl. 10:27
Sæll Guðbergur
mogginn opnaði síðuna aftur og þarmeð hljóta aðilar að hafa samið um eitthvað sem ég veit ekkert um.
Hver var aftur spurningin ?
Halldór Jónsson, 17.6.2010 kl. 12:19
Okey, skil. Spurningin snerist bara um áhuga minn á að vita meira um þessa ritstjórnarstefnu blog.is sem ég hef dálítið furðað mig á. Sjá hér.
Þakka þér fyrir.
Grefillinn Sjálfur - Koma svo! (IP-tala skráð) 17.6.2010 kl. 15:06
Halldór ... Mogginn hefur ekki opnað síðuna hans Vilhjálms aftur. Hvaðan hafðir þú það?
Grefillinn Sjálfur - Koma svo! (IP-tala skráð) 17.6.2010 kl. 19:40
Hún er opin hjá mér. Kannski er hún bönnuð fyrir börn þannig að þú færð ekki að sjá hana.
Halldór Jónsson, 17.6.2010 kl. 21:03
Vissulega er ég ungur í anda, en of gamall þó til að teljast til barna. Samt er ég langt frá því að vera orðinn jafn hrumur og þú.
Grefillinn Sjálfur - Koma svo! (IP-tala skráð) 18.6.2010 kl. 01:08
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.