Leita í fréttum mbl.is

Fasistarnir á ferðinni !

Nú raða þeir sér upp þrír í röð umhverfisfasistarnir í Baugstíðindunum sem vilja rífa upp lúpínuna og kerfilinn, þau Svandís, Sveinn og Jón . Hugsanlega þora þeir tveir ekki annað en skrifa undir vitleysuna úr Svandísi af ótta við að verða annars reknir því maður þekkir þá tvo annars af öðru en heimsku og ofstopa.

Ég hef verið með erlendum ferðamönnum undanfarið í rútubílum. Þeir hafa óspart látið í ljósi aðdáun sína á lúpínunni sem nú hefur skartað sínu fegursta og sögunni af henni,  hvernig öll þessi dýrð spratt af einu umslagi í farteski Hákonar Bjarnason þegar hann kom frá Alaska, Og þegar Sitkagrenið gnæfir uppúr lúpínubreiðunum þá vita þeir að Ísland ól einn slíkan framsýnismann, sem vildi bæta Fjallkonunni það tjón sem skammsýnismenn og neyðarbrauð aldanna hafði valdið henni. Lupina nootkatensis er hyllt sem einn besti innflytjandi sem þetta land hefur eignast. Þegar maður segir þeim svo söguna af Svandísi þá standa þeir agndofa.

Ég hvet fólk til að fara inná síðuna hans Ágústar H. Bjarnason frænda míns, www.agbjarn.blog.is krækja hér á síðunni og bera saman myndir núna frá Haukadalsheiði og frá 1960. Ekkert af þessu hefði orðið ef umhverfisfasistinn Svandís Svavarsdóttir hefði fengið einhverju ráðið.

Það er mín einlæg von að meinvætturin Svandís Svavarsdóttir hverfi sem fyrst úr ráðuneytinu áður en hún veldur þessari þjóð meiri skaða. Sem er þó orðinn ærinn þegar ef allt skyldi telja sem hún er búin að vinna þjóðinni með heimskupörum sínum. 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurður Grétar Guðmundsson

Halldór, það er æði sjaldan að ég er sammála þér en nú er ég það svo sannarlega. Ég veit ekki undir hvað á að flokka eyðileggingu harðgerðustu og duglegustu landgræðslujurt Íslands sem ásamt melgresinu hefur grætt upp land með undraverðum árangri, þarna er á ferðinni heimska ásamt fordómum. Þessi virleysaer líklega runnin undan rifjum Hjörleifs Guttormssonar en það skiptir ekki höfuðmáli hvaðan vitleysan kemur; það verður að stöðva þess bévítis heimsku sem er álíka vitlaus og hvalveiðibannið sem harðjaxlinn Kristján Loftsson hefur nú brotið á bak aftur.

En þessi áróur gegn lúpínunni er því miður búinn að ná tökum á ótrúlega mörgum landsmönnum og þó nokkur sveitarfélög, í svipinn man ég eftir Ísafirði, eru farin í stríð gegn þessari duglegu landgræðslujurt. Ekki veit ég hvers vegna þessir tveir embættismen, Sveinn og Jón, láta draga sig inn í þessa vitleysu. Ég hef spurnir af því að skógræktarmen hafi fordæmt þessa heimsku og vonnandi getum við sett traust okkar á Jón Loftsson skógræktarstjóra, þessa vitleysu, stríðið gegn lúpínuni, verður að stöðva.

Tek undir með þér Halldór að sem flestir ættu að kíkja inn til Ágústar H. Bjarnasonar, í hans kolli virðist skynsemin jafnan ráða ríkjum, farið inn á www.agbjarn.blog.is

Sigurður Grétar Guðmundsson, 2.7.2010 kl. 09:20

2 Smámynd: Lárus Baldursson

Má ekki setja niður bleikar lúpínur, það er kanski liturinn sem fer í taugarnar á þessu fólki.

Lárus Baldursson, 2.7.2010 kl. 09:43

3 Smámynd: Halldór Jónsson

Þakka þér Lárus ábendinguna með litinn. mannýg naut eru sögð renna á rautt. En blóðrauðir bolsar á blátt. En það síðarnefnda  afsannar höfuðsnillingurinn hann Sigurður Grétar hér að ofan, sem þolir ekki bláu höndina þó hann dái lúpínuna. Það er ekki ónýtt fyrir okkur lúpínuvini að fá slíka liðveislu.

Takk fyrir báðir.

Halldór Jónsson, 2.7.2010 kl. 11:19

4 Smámynd: Finnur Bárðarson

Meira en sammála þér Halldór !! Halldór styð þig að fullu í þessu máli og vil jafnvel stofna verndarsamtök sem gjarnan mega vera í öfgakannti því annað irðist ekki duga. Frábært innlegg og myndirnar tala sínu máli. Gott mál.

Finnur Bárðarson, 2.7.2010 kl. 18:19

5 Smámynd: Sigurður Alfreð Herlufsen

Lúpínan á allann minn stuðning og ég er feginn að eiga slíkan baráttumann eins og þig til að fylgja málinu eftir.

Væri ekki ráð að leggja til að lúpínan verði gerð að þjóðarblómi Íslands sem mikilvirkasta og fallegasta landnámsblómið ?

Er þá ekki upplagt að umhverfisráðherra yrði verndari átaksins !!

Sigurður Alfreð Herlufsen, 2.7.2010 kl. 19:16

6 Smámynd: Halldór Jónsson

Takk fyrir Finnur og Sigurður,

Mér finnst tillaga Sigurðar um þjóðarblómið ná til okkar Finns sem viljum báðir ganga í samtök Lúpínuvina.

Halldór Jónsson, 5.7.2010 kl. 10:56

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (4.5.): 6
  • Sl. sólarhring: 7
  • Sl. viku: 68
  • Frá upphafi: 3418293

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 65
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband