12.7.2010 | 08:25
Lúpínan enn
Ég veit ekki hvort Guðmundur Andri þekkir til á Haukadalsheiði þar sem voru kölluð Skerslin. En þar hefur ekki verið beit í hálfa öld. Þar hélt áfram að fjúka af 2 metra þykkur jarðvegur og eftir var grjótmelur þar sem ekki myndaðist nein fínleg gróðurþekja að marki. Jón bóndi á Laug sem var náttúrugreindur maður taldi að landið myndi gróa upp með tímanum þegar allt væri af því fokið. Ekki gerðum okkur neina grein fyrir þeim tíma sem þetta tæki og ekki sáum við það gerast á þeim 60 árum sem okkar augu hafa séð og muna.
Það var farið að reyna að stinga niður börðin og setja heyrúllur í sárin og virtist það gefa góðan árangur við að stöðva fokið. Síðan fór lúpína að vaxa á grjótinu og nú er þarna víða grænt. Þetta má sjá á www.agbjarn.blog.isÉg hef nú í áratugi stundað berjatínslu þarna neðar í sömu sveit , mest bláber, á svæði utan í grýttum holtum. Þar eru þykkar lyngbreiður að mosanum sem klæðir svo grjótin. Í næsta nágrenni er lúpína búin að vera í 40 ár í gróðurlausum flögum og urð. Hún hefur haldið sig þar og síðan hefur sprottið upp birki og víðir. Berjalandið hefur ekki orðið fyrir ágangi lúpínunnar á þessum stað. Enda myndi ég ekki læra mig um slíkt. Mér sýnist lúpínan heldur ekki læra sig neitt um að leggja gróið land undir sig og víða er komið graslendi þar sem lúpínan var einráð áður.Eigum við ekki að leggja af svona ofsatrú á þetta eða hitt. Þetta getur allt farið saman án þess að umhverfisráðherra eða rithöfundar þurfi að fá harðlífi vegna þessa.
Lúpínan og lyngið mun lifa okkur öll hvað sem við segjum í dag.Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 0
- Sl. sólarhring: 4
- Sl. viku: 37
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 31
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- Maí 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Ágúst 2021
- Júlí 2021
- Júní 2021
- Maí 2021
- Apríl 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Júlí 2020
- Júní 2020
- Maí 2020
- Apríl 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2020
- Janúar 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Ágúst 2017
- Júlí 2017
- Júní 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
Bloggvinir
- ghe13
- sigurjonth
- andrigeir
- annabjorghjartardottir
- ansigu
- agbjarn
- armannkr
- asdisol
- baldher
- h2o
- bjarnihardar
- dullur
- bjarnimax
- zippo
- westurfari
- gattin
- bryndisharalds
- davpal
- eggman
- greindur
- bjartsynisflokkurinn
- elfarlogi
- eeelle
- sunna2
- ea
- fuf
- fhg
- vidhorf
- gerdurpalma112
- gilsneggerz
- gudni-is
- lucas
- zumann
- gp
- gun
- topplistinn
- tilveran-i-esb
- skulablogg
- gustafskulason
- gustaf
- heimssyn
- diva73
- helgi-sigmunds
- hjaltisig
- minos
- hordurhalldorsson
- astromix
- fun
- jennystefania
- johanneliasson
- johannvegas
- jonatlikristjansson
- fiski
- jonl
- jonmagnusson
- jonlindal
- bassinn
- jonvalurjensson
- jvj
- thjodarskutan
- juliusbearsson
- katagunn
- kje
- ksh
- kristinn-karl
- kristinnp
- kristjan9
- loftslag
- altice
- ludvikjuliusson
- maggij
- magnusthor
- mathieu
- nielsfinsen
- omarbjarki
- huldumenn
- svarthamar
- pallvil
- peturmikli
- valdimarg
- ragnarb
- samstada-thjodar
- fullveldi
- siggus10
- sisi
- siggisig
- ziggi
- siggith
- stjornlagathing
- pandora
- spurs
- kleppari
- saethorhelgi
- tibsen
- ubk
- valdimarjohannesson
- skolli
- valurstef
- vilhjalmurarnason
- vey
- postdoc
- thjodarheidur
- icerock
- steinig
- thorsteinnhelgi
- icekeiko
Athugasemdir
Lúpínan á sinn sess í náttúru landsins og er ekki skaðvaldur. Það er að sjálfsögðu réttur þeirra sem ráða yfir sínu landi að hemja hana eða breiða út eftir eigin ósk. Mér finnst átak á vegum ríksins vera óæskilegt og líklegt til að valda tjóni frekar en hitt.
Eftir 50 ára reynslu af lúpínu er hægt að draga ályktanir aðrar en að þessi duglega jurt sé réttdræp með öllu í almenningi. Það er beinlínis stríðsyfirlýsing gegn heilbrigðri skynsemi.
Gísli Ingvarsson, 12.7.2010 kl. 11:11
Ég minni á síðuna Vinir lúpínunnar þar sem fram fara skynsamlegar umræður um þessa fallegu og nytsamlegu plöntu.
http://www.facebook.com/group.php?gid=117724394910732
Ágúst H Bjarnason, 12.7.2010 kl. 12:21
Lúpínan riður brautina. Útgangs-hross mun nú líka vera duglega við að útrýma gróðri.
Júlíus Björnsson, 12.7.2010 kl. 19:34
Nokkur ár eru síðan ég kom síðast á Haukadalsheiðina og get ég því ekki tjáð mig um viðgang lúpínunnar þar.
Ég þekki hins vegar nokkur önnur svæði á landinu þar sem lúpínan hefur valdið stórkostlegu umhverfisslysi, svo ekki sé fastar að orði kveðið.
Nægir þar að nefna útbreiðslu lúpínunnar á Hafnarmelum fyrir neðan Ölver í Hvalfjarðarsveit. Það er ekki nema rúmlega hálftíma akstur þangað frá Reykjavík og ráðlegg ég öllum þeim sem vilja styðja lúpínuræktun að fara og skoða það svæði.
Þarna var fyrir um einum áratug plantað nokkrum lúpínum, skemmst er frá því að segja að hún hefur lagt undir sig stórt svæði og eyrir engu, jafnvel birkiskógur sem var á torfum á þessu svæði er að láta undan ágangi lúpínunnar. Það er því alger fjarstæða að halda því fram að lúpínan drepi ekki annan gróður, jafnvel gróður sem talinn er sterkur og mun hærri en lúpínan á í vök að verjast þarna. Áður en lúpínu var sáð þarna var birkið farið að skríða út af torfonum og út á melinn og farinn að mynda sprota þar. Lúpínan hefur drepið þá alla!
Enn er hægt að sjá þarna mela sem lúpínan hefur ekki náð til. Þar hefur sprottið upp lággróður síðustu árin, sennilega vegna minni beitar en ekki síður vegna hlýrra loftlags. Þegar betur er að gáð hefur mosi og annar smágróður þó ekki vikið fyrir þessum lággróðri, öfugt við það svæði sem lúpínan hefur lagt undir sig. Þar finnst enginn annar gróður við jörð. Væntanlega verður lúpínan búin að ná öllu svæðinu áður en annar áratugur hefur liðið.
Þarna hefur því orðið umhverfisslys, þessi melur var engum til ama og gróðureyðing löngu hætt, reyndar var á þeim tíma sem lúpínunni var plantað þarna, farinn að myndast töluverður gróður og flest öll börð orðin gróin. Því virðist sem fagurfræðilegt sjónarmið hafi ráðið um þessa aðgerð, einhverjir skammast sín fyrir melinn!! Það þarf enginn Íslendingur að skammast sín fyrir sitt fagra land!!
Innan ekki svo langs tíma má því búast við að á þessu svæði verði einsleitur gróður í stað fjölbreyttara gróðurfars.
Lúpínan getur hugsanlega átt rétt á sér til að stöðva landeyðingu, en einungis þar sem engum öðrum ráðum verður við komið. Öll plöntun hennar á öðrum svæðum á að banna samstundis. Vissulega verður henni ekki útrímt, það er orðið of seint. Hugsanlega er hægt að halda henni í skefjum en þó aðeins ef stöðvuð verður útplöntun hennar. Þetta mun þó kosta mikla fjármuni og ekki víst að þeir séu til. Undantekningar er hægt að hugsa sér þar sem engum öðrum ráðum verður fyrir komið og þá undir ströngu eftirliti landgræðslunnar.
Varðandi berjalyngið þitt á Haukadalsheiðinni Halldór, er í raun ekki spurning hvort þú hafir það til afnota, heldur hversu lengi.
Gísli, lúpínan ER skaðvaldur, 50 ára reynsla sýnir það svo ekki verður um deilt.
Ágúst, á síðu Vina lúpínunnar er ákaflega einsleit umræða og varla nokkur sem þorir að mótmæla lúpínunni, enda eru það í flestum tilfellum vinir lúpínunnar sem tjá sig þar. Um fagurfræði lúpínunnar er hægt að deila endalaust en hún kemur málinu ekkert við. Nytsemin getur verið við sérstakar ástæður en alls ekki almennt.
Júlíus, útigangur hrossa á Íslandi er orðinn mjög lítill, nánast enginn. Sauðfjárbeit hefur ennig minnkað mikið. Stæðsta breytingin er þó veðurfarið, hlýnandi loftslag hefur orðið til þess að svæði sem fyrir einum til tveimur áratugum var nánast bert, hefur tekið miklum breytingum og gróðurfar um allt land aukist stórkostlega. Það er ekki lúpínu að þakka.
Fyrir nokkrum áratugum var ég einlægur aðdáandi lúpínunnar, enda var hún kynnt sem planta sem einungis lifir í örfokalandi og viki undan öllum öðrum gróðri, að lokum átti hún að drepast og annar gróður að taka við. 50 ára reynnsla sýnir að þetta er ekki rétt, lúpínan lifir nánast hvar sem er, drepur annan gróður og drepst ekki jafnvel þó hún sé orðin áratuga gömul! Eftir að hafa fylgst með framgangi hennar á Hafnarmelum og víðar hef ég algerlega snúist við. Ég hef séð með eigin augum eiðileggingarmátt og yfirgang þessarar plöntu.
Ég endurtek því að þeir sem eru einlægir aðdáendur lúpínunnar ættu að taka sér sunnudagsrúnt að Hafnarmelum og skoða verksummerki plöntunnar þar. Þar er enn hægt, á einum stað, að sjá muninn á svæði sem lúpínan hefur lagt undir sig og svæði sem hún hefur ekki enn náð til. Ekki er víst að hægt verði að gera slíkan samanburð þar eftir nokkur ár.
Gunnar Heiðarsson, 12.7.2010 kl. 20:46
Góð grein um þarft málefni, búfé og gróður Íslands.
Nú þegar komið er á 21. öldina þá verður að horfast í augu við þá staðreynd að bændur geta ekki endalaust vaðið áfram með sinn búpening og haldið að þjóðin sé skaðabótaskyld þegar búfénaður verður fyrir áföllum og eða þegar búfénaður verður þjóðarhagsmunum að skaða. Skemmdir þess vegna á gróðri landsins og slys vegna búfénaðar er á ábyrgð eigenda þess fjár sem slysum og skaða valda. Er ekki komið nóg?
Njáll Harðarson, 12.7.2010 kl. 20:57
Hver er aðferðinn til að hefta vöxt Lúpínu? Svarið við því leysir vandan. Lúpína er ekki allstaðar af einhverjum ástæðum. Getur verið að rækta þurfi trjágróður ofan í hana?
Júlíus Björnsson, 12.7.2010 kl. 21:11
Júlíus, þú getur skroppið upp í Skorradal til að sjá hvernig gengur að rækta trjágróður ofní lúpínuna!
Gunnar Heiðarsson, 12.7.2010 kl. 23:17
Eg verð nú að tjá mig m þetta hitamál, þ.e. lupínumálið.
Nú að vísu er mitt sjónarhorn dregið ag því sem eg hef séð hingað og þangað um landið - og þar vekur athygli mína einkum tvennt:
1. Lúpína virðist freofa sér alveg ótrúlega sumsstaðar og virðist fátt standa í vegi fyrir henni. Þ.e. fólk er að sá kannski einhverju og heldur að verði smá blettur - hún dreifir sér um heilu breiðurnar og hlíðarnar, jafnvel þar sem fyrir er einhver gróður.
2. Mér finnst oft helv. löng bið eftir því ,,að annar gróður myndist í kjölfar lúpínu" eins og maður heyrir oft sagt. Verð að segja það.
Helst á því að hún sé ofmetin þessi lúpína. Jú jú, vissulega getur hún verið réttlætanleg víða - en annarsstaðar á hún ekkert við.
Td. tel ég varasamt að sá henni í hlíðum fyrir ofan byggðarlög. Henni er sáð í mela og sona sumsstaðar. Berar fjallshlíðar. Held þetta auki skriðuhættu. Jarðvegurinn drekkur í sig meira vatn og verður þyngri = Aukin skriðuhætta.
Ómar Bjarki Kristjánsson, 12.7.2010 kl. 23:48
Edit: ,,Lúpína virðist dreifa sér"
Ómar Bjarki Kristjánsson, 12.7.2010 kl. 23:50
Gunnar Heiðarsson
Það er fengur í því að fá skoðanir glöggs manns sem horfir á hlutina.
Nú man ég ekki annað en að við Ölver hafi verið auðnin ein og landrof við Ölver áður en Lúpínan kom.
Þetta tal um lúpínu eða annan gróður er mest tal um lúpínu eða engan gróður, því miður.
Ég þekki engin dæmi þess að trjágróður í vexti drepist af lúpínu og horfi ég þó nokkuð. Hinsvegar er sumstaðar trjágróður að reyna þar sem hann á óblíða ævi vegna skilyrða. Hann reynir þá aftur í skjóli lúpínunnar.
Ómar Bjarki, ég held að gróðurbinding minnki skriðhættu með því að stöðva vatnsrennslið ofan í moldina þanngi að thixotropíu eiginleikar eigi erfiðara meðað myndast.
Halldór Jónsson, 13.7.2010 kl. 07:14
En Gunnar, ég ætla að fara að Hafnarmelum aftur og skoða við tækifæri.
Halldór Jónsson, 13.7.2010 kl. 07:15
Og Gunnar, berjalyng er ekki á Haukadalsheiðinni, það er allt farið fyrir löngu, þetta er annarsstaðar.
Halldór Jónsson, 13.7.2010 kl. 07:16
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.