31.7.2010 | 16:27
Sameinum alla ríkisbankana !
Ríkisbankarnir 4, BYR ,Landsbankinn, Arion og Íslandsbanki eru staddir í miðju verðsamsæri gegn almenningi. Þetta eru fyrirtæki í eigu sama aðila, sem er íslenska ríkið, hverju öðru sem logið er að almenningi. Þessir blankar stunda auðvitað grímulaust verðsamráð sín á milli til að féfletta almenning með milligöngu Seðlabankans sem líka er í eigu ríkisins. Enda eru hagnaðartölurnar af ávöxtun peninga þeirra í Seðlabankanum þvílíkar, að það hálfa væri nóg á sama tíma og þeir bjóða almenningi neikvæða vexti. Þessar stofnanir eru ekki að gera neitt fyrir atvinnulíf landsmanna nema að senda út gíróseðla og millifæra greiðslur. Allt of dýrt kerfi utan um lítið verkefni.
Þessu verður að linna með því að reka skilanefndirnar heim og láta þær hætta sjálftöku sinni á fjármunum. Láta Alþingi skipa nýjar stjórn í sameinaðan banka eftir opið framboðsferli fólks með óflekkað mannorð og hreina ferilskrá.
Ríkisbankarnir 4 eru óvinir almennings þar sem þeir eru samhæft einokunarverkfæri í hendi stjórnvalda, sem gera út á varnarlausan almenning undir grímulausri verkstjórn Seðlabankans sem ákveður vaxtastigið og gengisfölsunina í þágu útgerðarinnar. Samkeppni er nánast engin í fjármálastarfsemi landsins, þar sem MP-banki hefur ekki náð trúnaðartrausti almennings vegna spillingarumræðu sem honum tengist. En eins og er er hann samt geðfelldastur af hinum ógeðfelldustu.
Bankakerfið íslenska er mörgum sinnum ofmannað og útibú alltof mörg. Hér eru 3 menn að vinna hvert bankastarf í USA miðað við fólksfjölda.
Eflum einkarekna banka. Stofnum nýja sparisjóði. Burt með spillinguna.Byrjum á því að sameina alla ríkisbankana í einn svo fólk sé ekki blekkt til þess að trúa því að samkeppni ríki á fjármálamarkaði.
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.12.): 1
- Sl. sólarhring: 8
- Sl. viku: 29
- Frá upphafi: 3419866
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 26
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- Maí 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Ágúst 2021
- Júlí 2021
- Júní 2021
- Maí 2021
- Apríl 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Júlí 2020
- Júní 2020
- Maí 2020
- Apríl 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2020
- Janúar 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Ágúst 2017
- Júlí 2017
- Júní 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
Bloggvinir
- ghe13
- sigurjonth
- andrigeir
- annabjorghjartardottir
- ansigu
- agbjarn
- armannkr
- asdisol
- baldher
- h2o
- bjarnihardar
- dullur
- bjarnimax
- zippo
- westurfari
- gattin
- bryndisharalds
- davpal
- eggman
- greindur
- bjartsynisflokkurinn
- elfarlogi
- eeelle
- sunna2
- ea
- fuf
- fhg
- vidhorf
- gerdurpalma112
- gilsneggerz
- gudni-is
- lucas
- zumann
- gp
- gun
- topplistinn
- tilveran-i-esb
- skulablogg
- gustafskulason
- gustaf
- heimssyn
- diva73
- helgi-sigmunds
- hjaltisig
- minos
- hordurhalldorsson
- astromix
- fun
- jennystefania
- johanneliasson
- johannvegas
- jonatlikristjansson
- fiski
- jonl
- jonmagnusson
- jonlindal
- bassinn
- jonvalurjensson
- jvj
- thjodarskutan
- juliusbearsson
- katagunn
- kje
- ksh
- kristinn-karl
- kristinnp
- kristjan9
- loftslag
- altice
- ludvikjuliusson
- maggij
- magnusthor
- mathieu
- nielsfinsen
- omarbjarki
- huldumenn
- svarthamar
- pallvil
- peturmikli
- valdimarg
- ragnarb
- samstada-thjodar
- fullveldi
- siggus10
- sisi
- siggisig
- ziggi
- siggith
- stjornlagathing
- pandora
- spurs
- kleppari
- saethorhelgi
- tibsen
- ubk
- valdimarjohannesson
- skolli
- valurstef
- vilhjalmurarnason
- vey
- postdoc
- thjodarheidur
- icerock
- steinig
- thorsteinnhelgi
- icekeiko
Athugasemdir
Tek mjög undir þetta með þér Halldór, þessu dæmalausa okri hér á Íslandi verður einhvertíma að linna.
Hversvegna kostar 1. lítri af vodka frá Finnlandi í grend við 1500kr í Pólandi en á sjöunda þúsund á Íslandi.
Hversvegna erum við að hafa viðskipti við þessa banka sem framleiða ekkert en sína allt öðruvísi hagnaðartölur en fyrir tækin sem þó eru að framleiða vöru til gjaldeyrisöflunar.
Hversvegna skyldi fólk sem vinnur við arðrán fá meira kaup en fólk sem vinnur við gjaldeyris öflun?
Hversvegna skyldi eingin taka mark á lukkudýri Samfó, nema Samfó?
Hversvegna skyldi Steingrímur vera hættur að öskra?
Hrólfur Þ Hraundal, 1.8.2010 kl. 06:24
Takk fyrir þetta Hrólfur
Það er einmitt þetta. Hversvegna erum við í viðskiptum við óvini okkar. Af hverju stofnum við ekki sparisjóði aftur á grundvelli þeirrar hugsjónar. Það væri svarið sem þeir verðskulda. Hvað gætu þeir ef þeir hefðu ekki okkur heimskingjana til að flá og okra á?
Steingrímur má öskra áfram eins og hann vill En fólkið sér í gegnum hávaðann núna. Maðurinn sem vildi borga 1000 milljarðana vegna Icesave og vextina til viðbótar og hótaði okkur öllu illu ef við værum með múður, er ekki lengur trúverðugur í sínu landi frekar en Þjóðverjar sem nenna ekki einusinni að ræða um Hitler. Steingrímur er þátíð eins og hann.
Vodkaverðið er víst til þess ætlað að við drekkum sem minnst af því. Það er hin opinbera skýring á tilvist ÁTVR að hafa vit fyrir mér og þér Hrólfur minn.
Halldór Jónsson, 1.8.2010 kl. 09:06
Stórfínt að þú skulir koma inn á þetta Halldór. Hef stöku sinnum ýjað að þessu í athugasemdum, en allt annað að fá alvöru grein um þetta frá manni sem flestir lesa. Ég er á því að Glitni og KB átti aldrei að endurfjármagna og skil ekki hversvegna það var gert. Þessir bankar áttu að fara gjaldþrota í gjaldþrot. Og glæsilegt hefði það verið að hafa vit til þess þegar Bretar frystu Landsbankann og settu terror-lögin, að segja FLOTT þessi banki er nú ykkar með eignum og skuldum.
En við eigum ekki tímavél svo það liðna kemur aldrei til baka, en verra er að heilög helvítis Jóhanna og Umskiptingurinn gera ekkert sem vit er í og svona rótækar lausnir sem þú boðar hræða hjúin.
Dingli, 1.8.2010 kl. 13:19
"Já, miklir menn erum við Hrólfur minn!"
Og ég ætla að vera sammála ykkur.
Árni Gunnarsson, 1.8.2010 kl. 13:43
Ekki virðast nú svo margir lesa þessi skrif mín ef marka má aðsóknartölurnar á síðunni. En ég þakka þér fyrir undirtektirnar Dingli.
Og Árni minn Gunnarsson, ég fagna þeim tíðindum að þú takir undir með okkur.
Halldór Jónsson, 1.8.2010 kl. 14:11
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.