Leita í fréttum mbl.is

Við viljum verðbólgu !

Innanfótar í Baugstíðindum í dag er tilkynning um samræmdar aðgerðir orkufyrirtækjanna um verðhækkanir. Á miðopnu skrifar Franz Árnason hugleiðingar um hvernig eigi að halda á Magmamálinu. Allir eru minna skynsamir en hann sem talsmaður Samorku.

 

Hvað er Samorka? Það er samtök orkufyrirtækja, þeirra sömu og nú eru að hækka rafmagnið samræmt um nær 10 %. Landsvirkjun fyrst og hinir á eftir. Samtaka nú, sameiginleg orka, samorka. Man einhver eftir samtarfsnefnd  olíufélaga? Samtökum fjármálafyrirtækja? Kennarasambandi Íslands? Félagi eldri borgara og Öryrkjabandalaginu?

 

Skyldi almenningi nokkuð koma þetta við? Á hann einhverja kirkjusókn upp í kjaftinn á þessum samtökum eins og Samorku?  Skyldu orkuhækkanirnar nokkuð valda heimilunum útgjaldaaukningu? Geta þau ekki bara hækkað hjá sér tekjurnar eins og Flugumferðarstjórar og slökkviliðsmenn?

 

Þegar ég skrifaði pistil um nauðsyn þess að orkufyrirtækin hagræði frekar en að hækka, þá hefur ekki nokkur maður áhuga á því. Nema einn sem segir að ég sé með gamaldags Framsóknarhugmyndir. Já,  já ég man algera verðstöðvun hjá Óla Jóh, herta verðstöðvun og þar fram eftir götunum. Ég man líka eftir þjóðarsáttinni.

 

Ekkert heyrist frá ríkisstjórninni um þessi mál. Steingrímur steinþegir enda hugsar hann líklega bara um hvað hann sé búinn að spara í vöxtum fyrir að hafa ekki fengið að skrifa undir Icesave. Það má nú gera eitthvað fyrir 60 milljarða. Og Svavar getur þá sallað á Sjálfstæðisflokkinn fyrir að gera ekki upp við frjálshyggjuna? Það má gera stáss að ýmsu.

Ég hlýt að draga þá ályktun að fólkið sé orðið leitt á kyrrstöðunni, vilji  verkföll og verðbólgu. Þá kemur líka fjör í athafnalífið.

 Við viljum verðbólgu !

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Árni Gunnarsson

Að eiga kirkjusókn upp í kjaftinn á einhverjum..... Hvaðan í fjandanum dregurðu þetta upp?

Játa að ég hef aldrei heyrt eða séð þetta fyrr en þetta er bráðsnjallt.

En þessi geldstaða ríkisstjórnarinnar er orðin undarleg og erfið þjáning.

Iðnaðarráðherra hefur nóg að gera við að skoða kröfur AGS um meiri orku.

Og svo fer að koma að drykkjarvatninu. 

Árni Gunnarsson, 4.8.2010 kl. 12:30

2 Smámynd: Halldór Jónsson

Sæll Árni

Þetta er gömul saga held ég úr íslenskri fyndni um mann sem fékk á hann og þurfti að útskýra hversvegna hann þurfti að lumbra á hinum.

Ég hélt að þú værir stjórnarsinni Árni og hefðir trú á að Etjólfur hressist einhverntíman?

Halldór Jónsson, 4.8.2010 kl. 12:47

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (4.5.): 1
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 63
  • Frá upphafi: 3418288

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 63
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband