Leita í fréttum mbl.is

Heyrði einhver afsökunarbeiðni?

Forsætisráðherrann, æðsti yfirmaður efnahagsmál á landinu, heldur ræðu á Alþingi. Þar tilkynnir hún landslýð, að kreppunni sé lokið og hagvöxtur haf haldið innreið sína.

Daginn eftir tilkynnir Hagstofan um að samdráttur hafi orðið í landsframleiðslu bæði árið 2009 og fyrstu tvo ársfjórðunga ársins 2010.

Heyrði einhver ráðherrann biðjast afsökunar á að hafa farið með lygar á Alþingi Íslendinga? Spurði einhver fjölmiðill ráðherrann hversvegna hann ljúgi svona?  Nei, fæstir gera ráð fyrir slíku þegar þetta fólk á í hlut. Fyrr verður Hagstofustjórinn líklega rekinn.

Steingrímur J.Sigfússon skrifar framhaldsþátt í Baugstíðindin. Landið er að rísa. Hann fer með sömu lygina og forsætisráðherrann þegar hann segir landið vera að rísa. Spyr einhver fjölmiðill út í þetta? Ekki heyrðu menn það.

Heyrði einhver afsökunarbeiðni ? Ekki ég.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ómar Bjarki Smárason

Í jarðfræðilegu tilliti hefur verið talið að sumir hlutar landsins séu að rísa, þó höfuðborgarsvæðið sé vissulega á niðurleið. En þar sem fjármálaráðherra er hvort tveggja í senn landsbyggðamaður og jarðfræðingur er þá nokkuð eðlilegra en að hann horfi á málið út frá sínum sjónarhornum.....? Betra en að hafa allt á hornum sér, Halldór...!!!

Ómar Bjarki Smárason, 6.9.2010 kl. 22:04

2 Smámynd: Halldór Jónsson

Ertu ekki örlátur á titlana. ég hélt að BS menn væru fremur lærlingar en fræðingar.

Halldór Jónsson, 6.9.2010 kl. 23:06

3 Smámynd: Júlíus Björnsson

Ein þekkt jafnaðarmanna áróður aðferð er að segja 80% almennings það sem hentar þeim því að 20% vinna ekki meirihluta í kosningum. Hugsjónir eru góðar ef þær eru pragmatiskar að mínu mati annars rökleysur og bull.   Samdráttur af neyslu sem fer í ruslið er sannanlega 40% frá 2007, bílaneysla er einungis vegna útlendinga sem leiga sér bíl.  Það er hægt að hækka 60% neyslurnar um 30% til að sýna meiri einkaneyslu miðað við rúmmál seðlanna í umferð.

Svo mun halla á EU í vöruviðskiptum við Íslandi, sem er slæmt frá EU séð í eðlilegu árferði.

Ég mæli með t.d. Kínverskri, Pakistönskri, Indverskri neysluvöru sem er markaðsett á USA, þar eru gæðin mikið meiri en þeirri sem fer á EU markaði. 

Júlíus Björnsson, 7.9.2010 kl. 03:04

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.5.): 4
  • Sl. sólarhring: 15
  • Sl. viku: 67
  • Frá upphafi: 3418441

Annað

  • Innlit í dag: 4
  • Innlit sl. viku: 64
  • Gestir í dag: 4
  • IP-tölur í dag: 4

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband