Leita í fréttum mbl.is

Forsetinn frábær!

í Silfri Egils, sem ég er nú mest hættur að nenna að horfa á vegna einhæfni viðmælendanna, sem eru oftar en ekki einhverjir vinstri blesar, sem maður er búinn að hlusta alveg nóg á. Sífelldir álitsgjafar ofan úr Háskóla sem eiga það yfirleitt sammerkt að hafa vitlaust fyrir sér í öllum spásögnum.

Þarna kvað aftur við nýjan tón. Dr. Ólafur er mörgum klössum fyrir ofan flesta þingmenn okkar að yfirsýn og reisn. Þingkurfarnir eru margir eins og lúðar til fara, slifsislausir eins og slátrarar, og svo óupplýstir eftir því, að manni verkjar í hausinn að hlusta á þá suma.

Ólafur talaði eins og sannur leiðtogi og heimsborgari sem talar kjark í sveit sína. Ekki sífellt múður og þunglyndi heldur kjarkur og þor. Ísland á alla möguleika ef menn ná að standa saman en ekki sífellt sundraðir. Þjóðir heims bíða eftir að eiga við okkur orð.

En það er tómt mál að tala um þegar maður hugsar til þess endemis liðs sem situr í stjórnarráðinu og skreytir sali Alþingis. Flest af því kemst ekki upp úr baunadisknum og sér ekkert nema böl og þraut. Vonandi koma bráðum kosningar og sem allra mest af þessu núverandi liði kveður og kemur aldrei aftur.

Ég ætla að kjósa Dr. Ólaf ef hann býður sig fram aftur. Og ekki spillir hún Dorrit dæminu fyrir mér!


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

   Hann var flottur í settinu hjá Agli.  Hann er yfirburðarmaður.

Helga Kristjánsdóttir, 14.2.2011 kl. 22:03

2 Smámynd: Júlíus Björnsson

Sérstaklega í Asíu og Norðurpólssamstarf við löndi sem því tengjast landfræðilega og sagnfræðilega.

EU gæti vel mútað nokkrun Íslendingum til að krækja sér í formúgu í framtíðinni.  Slíkt hefur gerst í sögunni og gerist enn.

Júlíus Björnsson, 15.2.2011 kl. 11:16

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (1.5.): 3
  • Sl. sólarhring: 11
  • Sl. viku: 44
  • Frá upphafi: 3418255

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 42
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband