Leita í fréttum mbl.is

Komi Helvíti og Heitt Vatn

áður en ég hætti að vera hissa á því að þingmennirnir mínir kalla mig á fundi til að skýra út fyrir mér hvað þeir séu búnir að gera.! Maður heyrir i Sjónvarpinu að Kristján Þór sé að mæla fyrir 2.minnihlutaáliti í fjárlaganefnd um að samþykkja Icesave lll án þess að hafa fengið að ræða það við hann. Ég fæ að mæta í Valhöll og klappa fyrir formanni mínum þegar hann segir að þingflokkurinn hafi ákveðið að samþykkja Icesave lll.

Tryggvi Þór var búinn að koma á fund með okkur og segja að hann teldi að samþykkja ætti Icesave úrfá sjónarhóli sínum sem bísnessmaður. Hann sagði líka að hann væri þingmaður þjóðarinnar og hann myndi gera það sem þjóðin segði honum. Nú virðist hann ekki þurfa á neinni þjóð að halda þegar hann samþykkir samninginn á Alþingi án þess að nokkurt þjóðaratkvæði fylgi með.

Hvað er að þessu liði yfirleitt? Af herju þarf þennan gusugang? Af hverju spyr Pétur Blöndal hvað liggi á? Af hverju þurfti að trufla Sigmund Davíð við fiskátið með því að taka málið úr nefnd og til afgreiðslu án þess að hann hefði grænan grun?

Fólkið spyr að því hvað við sjálfstæðismenn höfum fengið borgað fyrir að ganga í Icesaveliðið með Icesave-kölska sjálfum í mynd Steingríms J. Sigfússonar? Mér finnst það hreint ekki merkilegt að einhverjir spyrji svo.

Ég bara skil ekki neitt sjálfur. Þessir þingmenn mínir virðast ekki þurfa kjósendur eins og flokkurinn þurfti í gamla daga og Ólafur Thors heillaði atkvæðin uppúr skónum með því að míga með þeim á planinu.

Ég held ég nenni varla að mæta á fleiri fund með þessu liði til að heyra hvað þeir séu búnir að gera. Ég vildi einu sinni ræða hvað þeir legðu til að gera. Fá leiðsögn og útskýringar. Nú má ég bara stýra fortíðinni eins og Sigmundur Davíð sem svelgdist á stirtlunni við stórtíðindin. Og ég sem hélt að við sjálfstæðismenn værum í politik og eindregið á móti ríkisstjórninni!

Nú held ég að mér sama hvað þeir gera. Ég bíð heldur eftir því hvað Óli Forseti gerir þegar hann fær allar þessar unirskriftir.

Og nú er ég orðinn grjótharður í minni sannfæringu. Komi Helvíti og Heitt Vatn áður en ég samþykki þessa samninga! Eða yfirleitt nokkra samninga. Við borgum bara ekki neitt sem okkur ekki ber.

www.kjosum.is


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Júlíus Björnsson

Norðan kaldinn á oss blés,

Buisnessmaður í anda Jóns Á.  Þetta lið er búið að sanna sig, framkölluðu mestu veðbólgu í heimi. 

Jón Þorláksson var fínn og Bjarni í Vogi. Það voru engir tossar í framboði og það tryggði að sósílistar náðu aldrei hættulegu fylgi. 

Júlíus Björnsson, 16.2.2011 kl. 03:13

2 Smámynd: Jón Baldur Lorange

Þetta þótti mér vænt um að lesa félagi. Íhaldsmenn eins þú Halldór bregðast ekki þegar á hólminn er komið. Aldrei!

Jón Baldur Lorange, 16.2.2011 kl. 10:36

3 Smámynd: Friðrik Hansen Guðmundsson

Sammála.

Friðrik Hansen Guðmundsson, 16.2.2011 kl. 11:41

4 Smámynd: Anna Sigríður Guðmundsdóttir

Halldór. Tími uppgjörsins af útrásinni er runninn upp. Neyðarlögin voru kannski lögleg en með öllu siðlaus gagnvart almenningi í öðrum ríkjum og það er óumflýjanleg staðreynd.

 Siðmenning óskast!

 það er engum einum að kenna hvernig fór, heldur langvarandi undiröldu valda-afla í heiminum. það er því miður minnst satt, af því sem við fáum að vita.

 Allt er tekið úr samhengi til að það passi inn í þröngsýnan og alheims-stýrðan ramma heimsmafíunnar, sem viljandi kom okkur í þessa ömurlegu stöðu.

 Við höfum allaf fiskinn til að borga með. Og betra að nota hann en verðlausa krónu. það er eina vitið að mínu mati, og verður gerthvað sem Hafró (Evró) og LÍÚ reyna að segja.

 Ég vil ekki Helvítið sem þú ákallar. En ég vil að Almættið alvitra og réttláta komi okkur misvitrum til hjálpar núna. Sumt er ekki í mannlegu valdi einu saman í þessum heimi.

 En inn í ESB förum við ekki við þær aðstæður sem Ísland er í núna, það er 100% rugl og stenst ekki rök og réttlæti, hvorki fyrir okkur né Evrópu. það er ekki ókeypis að ganga í ESB.

 M.b.kv.  

Anna Sigríður Guðmundsdóttir, 16.2.2011 kl. 13:36

5 Smámynd: Júlíus Björnsson

Evrópska Samneytið [EC] var lýst sem efnahagslegt og stjórnmálastefnulegt samband. Þetta var svo kynnt hér sem efnahagsbandalag Evrópu.

Réttara hefði verið að þýða þessa UK skýringu Evrópska efnahagsbandalagið og réttast að þýða þetta Evrópska efnahags og stjórnarhátta bandalagið.  

Stjórnarhættir í EU er mjög and-Íslenskir fyrirfólks foræðishyggja yfir þjóðarlíkama.

Efnahagsbandalagið byggir á sameiginlegum takmörkuðu grunni um útvegum og framlagi aðfanga til fullvinnslu í  Meðlima-Ríkjunum.  

Á þessum lokaða grunni gagnvart stóra Alþjóðasamfélögum keppast svo Meðilma-Ríkin um að auka sína fullvinnslu og þar með innri virðisauka: rauntekjur.

Ríki sem bráðvantar tækni og fullvinnslu geta gengið inn ef þau leggja til með sér tilsvarandi framlag í grunninn, og þá eru þau líka tryggð um að losna við allt á einu bretti.

Á tímabili voru ríki líka eftir sótt vegna neytenda fjölda  því EU  setti dæmið upp gagnvart Kína við getum keypt mikið af þér fyrir þín hráefni aðallega: þetta gekk upp því USA gerði betri samning til langframa.  

Malta leppríki UK hefur ekkert val og kemur inn og fær Lúxus heilsu geira. Lúxemborg voru sveitadurgar bláfátækir og þeir fengu varsjóði Frakka og  Þjóðverja: Fjárfestingarbanka EU  sem UK vill ekki eiga hlut í vegna þess að það telur sig geta fjármagnað sig ennþá á sínum eigin mörkuðum. Fjárfestar hirða arð sinna fjárfestinga eða éta brauðið.  

Betra er að fjárfesta lítið en fjárfestast. Hægri menn vilja fá tækifæri til að fjárfesta. Venjulegir launamenn vilja bara fá einhvern fjárfesta sem tryggir þeim vinnu.

Í hermenningar þjóðfélgum gildir stéttskipting kúgaður verður það elífiðar.  Þetta er allt spurning um virðingu yfirtéttanna.

Júlíus Björnsson, 16.2.2011 kl. 17:19

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (1.5.): 0
  • Sl. sólarhring: 11
  • Sl. viku: 41
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 39
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband