Leita í fréttum mbl.is

Þöggun Hæstaréttardómanna

af hálfu ríkisstjórnarinnar og fjármálkerfisins  um gengislánin vekja furðu.

Kannski er skýringanna að leita í upplýsingum um útlán Arion-banka fyrir 2009. Þá á bankinn útistandandi lán uupá 667 milljarða. Af þeim eru 411 milljarðar með gengistryggingu. Er afskriftahættan þarna meiri en alþýðuvininum Steingrími J. er þóknanleg? 

Athugum hvað lesa má út úr dómum Hæstaréttar  153/2010:(tölur innan sviga eru innskot höfundar þessa pistils)

"... Talið var að samningur aðila bæri skýrlega með sér að hann væri um

 (1) lán í íslenskum krónum.

(2)Kaupverð bifreiðarinnar og

(3)mánaðarlegar greiðslur voru tilgreind í íslenskum krónum. Þá kom berum orðum fram að íslensk fjárhæð hverrar afborgunar ætti að breytast eftir gengi á þeim erlendu myntum, sem mið var tekið af. Af þessum sökum var talið ótvírætt að samningur aðilanna væri um skuldbindingu í íslenskum krónum og félli hann því undir reglur VI. kafla laga nr. 38/2001"   

 (  (4 )4. skilyrðið hlýtur að vera að  erlendur  gjaldmiðill sé afhentur lántaka vegna einhverra l kaupa sem þurfi gjaldeyri til. Sem sést af (2) að svo var ekki gert í þessu tilviki heldur keypt bifreið í íslenskum krónum.) 

 

 

Sé þessu snúið við  til þess að athuga skilyrði fyrir því að  lán  teljist vera veitt í erlendri mynt, þá  hlýtur að vera að sú krafa sé  gerð     sami skilyrðafjöldi  sé uppfylltur: Það er:

 Samningurinn sé  í

  (1)erlendri mynt,  

(2)lánsfjárhæðin sé greidd út í erlendri mynt,  

(3)afborgun   af láninu í erlendri mynt og 

(4) eitthvað sé keypt  fyrir lánsfjárhæðina  í erlendri mynt  

Er þetta rangur skilningur ?

 

Nú eru bankarnir í óða önn að fá fólk sem skuldar erelnd lán til að skrifa undir allskyns breytingar og réttindaafsal. Menn gleyma því gjarnan að Banki er einskis manns vinur eða bakhjarl eins og þeir auglýsa. Þeir eru gróðafyrirtæki sem hugsa um eigin hag en ekki þinn. Lán frá þeim er yfirleitt þitt ólán. Faðmlag Bankans er þér banvænt. Þú greiðir fyrir alla vináttuna sjálfur.

Bankarnir  vita þetta best sjálfir og eyða því gríðarlegri orku í að sannfæra þig um allt annað. Hugsaðu andartak um það sem bankinn gerir fyrir þig áður en þú trúir auglýsingaglamrinu og siðferðisyfirlýsingunum.

Íslendingar eru líklega trúgjarnasta þjóð í heimi. Þetta lýsir sér meðal annars í ofvexti íslenska bankakerfisins. Það er 22/7 sinnum mannfrekara en bandaríska bankakerfið og útbúin eru 22/7 sinnum fleiri hér en í Bandaríkjunum. Með miklu minni veltu.

Það er skiljanlegt að reynt sé að þagga niður Hæstaréttardómana sem hafa fallið um gengistryggðu lánin. Þau voru bönnuð með lögum nr.38/2001.

Það ætti engin  þöggun að umlykja þetta.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Arinbjörn Kúld

Það er margt sem vekur furðu í þessu landi okkar. Þöggunin í kringum bankakerfið og pólítíkina er eiginlega hætt að vekja nokkra furðu enda hagsmunir hvoru tveggja samtvinnaðir sem felst í óbreyttu ástandi og völdum. Hins vegar finnst mér furðulegt að við íslendingar erum farnir að rífa hvern annan á hol þessi dægrin. Náum ekki samstöðu um eitt né neitt. Hverjir skyldur græða á því.

Kveðja að norðan.

Arinbjörn Kúld, 18.2.2011 kl. 21:29

2 Smámynd: Júlíus Björnsson

Einmitt veikileikin sem erlendir fjármálakeppendur hafa alltaf vitað.

Þess vegna var ekki lengi verið að því að yfirtaka Ísland efnahagslega. Innflutningur hefur dregist saman um 30% -50%  og hækkað í verði vegna 40% lækkunar þjóðartekna = lækkunar krónu miða við evru: hér til að blekkja er gjaldeyrir sennilega seldur með tapi : sérstakt gengi AGS . Til að viðhalda þeim sem greinlega hafa mútað sem flestum lykil aðilum í stjórnsýslunni frá um 1994. Hér átt strax að skera niður fjármálgeirann áhættu hlutann[því miður 100%] og skipta út subprime lánum  hjá almenningi. Má lesa út úr orðum AGS að tvær ríkistjórnir hafi þvertekið fyrir: Þá þarfa skera allt niður um það sem endurreisn sem kostar; endurreisn á sama grunni  með Icesave skuldir, til að tryggja góð lán og lánshæfi bulla sér í lagi þingmenn SAmFo.

Hér eru skilgreiningar á lánshæfi með með myndrænum skýringu:

Sem sannar hér eru bara fífl í fjármálum.  

http://www.moodys.com/researchdocumentcontentpage.aspx?docid=PBC_79004

þetta er ekkert líkt Íslenska bullinu. Ég væri löngu búin að reka þetta lið ef ég væri Forstjóri yfir 300.000 fyrirtæki einhæfar framleiðslu.

Leið og AGS fer og Icesave er í höfn, þá hrynur þessi gullkálfur sjálfkrafa. Erlendir bankar hér græða miklu meira á sama grunni í sama regluverki.

Júlíus Björnsson, 19.2.2011 kl. 01:11

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (26.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 49
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 47
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband