Leita í fréttum mbl.is

Í fyrstu klausu

 

 í Icesave 3 samningnum við Breta(Icesave3.files.wordpress.com) er þýðingarmikið atriði. Á eftir þessu grunnatriði, sem svo er skautað algerlega yfir á þeim 30 blaðsíðna hryllingi sem fylgir  um þær aðfararhæfu píslir og viðurlög sem á Ísland skuli leggjast til þess að endurgreiða fjárhirslu krúnunnar þá milljarða sterlingspunda sem hún hafi lagt út vegna innistæðutrygginga sem nú sé samþykkt með þessum samningi  að íslenska ríkinu beri að greiða, fylgir svo samningurinn sjálfur.

 

 

Í fyrstu málsgreininni segir;..." THE DEPOSITORS´ AND INVESTORS’ GUARANTEE FUND OF ICELAND(Tryggingasjóður Innistæðueigenda og Fjárfesta), a private foundation,incorporated under the laws of Iceland(the “Guarantee Fund”),, ICELAND...…"

 

Þarna stendur að Tryggingasjóðurinn sé einkastofnun. En samningurinn gerir hann að Ríkisstofnun.Í stað þess að geta ekki tengist íslenska ríkinu á nokkurn hátt, þá er allt í einu allt Island orðið aðili að málinu.

 

Það er grunnatriðið í þessu Icesave máli að það er engin ríkisábyrgð á starfsemi ábyrgðarsjóðs innistæðueigenda á Íslandi. Er ekki í neinu ríki á evrópska efnahagssvæðinu heldur. Það er verið að setja upp allsherjar tryggingasjóð á svæðinu sem á að tryggja að innistæðueigendur verði ekki fyrir tjóni þó að einstakir bankar falli. Allir munu taka  þátt í þessu þannig að þetta verði gerlegt. Það er grunnhugsunin í samstarfi þjóðanna.

 Nema núna  í tilviki Íslands.  Núna á Ísland að borga eitt allra ríkja erlendar skuldir óreiðumanna sinna. 

Þetta er þvílíkt ósanngjarnt að brýnt er að þjóðin standi nú saman sem einn maður og segi við þessi voldugu fyrrum  nýlenduveldi:  Hingað og ekki lengra .

Við Íslendingar munum þola eld og brennistein heldur en að gefast upp fyrir ykkur .Leitið fullnustu eignum Landsbankans í útlöndum og stefnið hinum seku  fyrir ykkar dómstóla. En við  minnum ykkur á að þið rýrðuð eignirnar verulega sjálfir með beitingu breskra hryðjuverkalaga.Það verður ykkar eigið tjón. Að öðru leyti eigið þið alla samúð okkar og við viljum vera vinir ykkar eftir sem áður. En gerið okkur vinsamlega ekki að óvinum ykkar með því að beita okkur þeirri nauðung sem í þessum samningum felast. 

 

Íslendingar munu að öllum líkindum fella samningana hinn 9.apríl næstkomandi. Þá verðum við að taka því sem að höndum ber. En við veðsetjum ekki Ísland né framtíð ófæddra barna okkar vegna glæpaverka einstakra eldri borgara okkar. Það er fyrsta klausan í okkar heitstrengingu sem Íslendingar.

 

 

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Baldur Fjölnisson

Algjörlega sammála.

Sjálfsagt þurfa erlendar eignir við stjórn hér amk. 4-5 atkvæðagreiðslur til að ljúga málið í gegn, ef það dugar þá.

Baldur Fjölnisson, 2.3.2011 kl. 20:07

2 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

  Gott að vita af þér sem bandamanni Baldur í þessu "stríði".

Helga Kristjánsdóttir, 3.3.2011 kl. 01:58

3 Smámynd: Ómar Geirsson

Blessaður Halldór.

Þjóðin mun fella samninginn ef margt gott íhaldsfólk les þessa grein þína, sem og aðrar góðar sem taka á kjarna ICEsave deilunnar.

Því eins og staðan er í dag, þá bendir allt til að stuðningur Sjálfstæðisflokksins muni skera úr um hvernig þessi þjóðaratkvæðagreiðsla fer.  

Þó einbeittir vinstrimenn séu tilbúnir að selja þjóð sína fyrir völd, þá skortir þá þann fjölda sem til þarf.

Vafinn liggur því í atkvæðum flokksbundinna sjálfstæðismanna.  

Og það er mikill vafi.

Kveðja að austan.

Ómar Geirsson, 3.3.2011 kl. 09:28

4 Smámynd: Halldór Jónsson

Ég er handviss um það Ómar, að þingliðið í Sjálfstæðisflokknum mun ekki ráða afstöðu flokksmanna.Þeir sýndu það á landsfundinum að þeir eru alveg færir um að hugsa sjálfir.

Takk fyrir baldur og Helga

Halldór Jónsson, 3.3.2011 kl. 12:28

5 Smámynd: Ómar Geirsson

Vona innilega að þú hafir rétt fyrir þér.

Efinn hjá mér liggur í efa margra hér á Moggablogginu. 

Og þeiri staðreynd að þeir einu sem kynna þenna samning hafa tengsl við Sjálfstæðisflokkinn.

Það er eitthvað óeðlilegt við að stjórnarliðar tjá sig ekki, allir sem einn.  

En það breytir því ekki, að harðasta andstaðan er líka innan raða Sjálfstæðisflokksins.  Grein Reimars í Morgunblaðinu i morgun var mikið áfall fyrir hið ískalda hagsmunamat, og leiðari Davíðs var tær snilld.

Fólk hlýtur að þekkja alvöru málflutning þegar það les hann.  

Eða ég vona það.

Kveðja að austan.

Ómar Geirsson, 3.3.2011 kl. 13:01

6 Smámynd: Halldór Jónsson

Stjórnarliðið hefur kannski enga sérstaka sannfæringu í neinum málum sem ekki lúta að inngöngunni í ESB og svo hugsanlega á því að vera á ráðherrakaupi.

Ingvi Hrafn mun hafa lent í vandræðum með að fá einhvern í þátt hjá séer til að verja samningana. Það vísaði vísaði víst hver á annan en enginn vildi taka vörnina að sér.

Halldór Jónsson, 3.3.2011 kl. 13:16

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (7.5.): 4
  • Sl. sólarhring: 7
  • Sl. viku: 69
  • Frá upphafi: 3418321

Annað

  • Innlit í dag: 4
  • Innlit sl. viku: 65
  • Gestir í dag: 4
  • IP-tölur í dag: 4

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband