Leita í fréttum mbl.is

24.000 EVRUSKULD

er búið að leggja á hvern Íra vegna bankanna eftir því sem mér heyrðist í BBC í morgun.

Ef við gerum ráð fyrir að álíka fífl stjórni bönkum á Írlandi eins og stjórnuðu okkar bönkum inní hrunið,og hafi stundað álíka starfsemi í vinargreiðum og vitleysu og okkar bankastrákar, þá sjá allir að bankastarfsemi er sú hættulegasta starfsemi  í heimi.  Að leggja ábyrgð á fjárglæfrum fífla og fanta á herðar ómálga og ófæddra barna með ríkisábyrgð á bönkum  er algerlega út úr kortinu.

Munið þið eftir honum Nick Leeson eða  eitthvað svoleiðis, sem setti Barings-Banka á hausinn með einföldum tölvufærslum? Ég man ekki tölurnar en þær voru ævintýralegar. Einn gaur hjá okkur setti Sparisjóðabankann á hausinn með einhverri heimildarlausri ábyrgðaryfirlýsingu. Bjargaði ekki gjaldþrot bankans honum frá ábyrgðinni í því tilviki?  Einstakir starfsmenn geta greinilega valdið svo stóru tjóni hjá banka, að óbætanlegt sé. Að lýsa yfir bakábyrgð skattgreiðenda í öllum slíkum tilvikum finnst mér því vera út í Hróa. Getur nokkur samþykkt slík vinnubrögð? 

Það er engin von að Írar muni nokkru sinni borga þær skuldir sem einhverjir þingmenn samþykktu  að leggja á þjóðina. Fékk þjóðin nokkuð um það að segja eins og við gerum núna með IcesavelV? Ættu Írar ekki að greiða um það þjóðaratkvæði hér og nú hvort þeir ætli að láta stjónmálamenn sína komast upp með annað eins og þetta?

24.000 EVRUR á mann á Írlandi ofan á hæstu húsnæðisskuldir í heimi? Sömu vitleysur og hérna voru gerðar.Nema við gátum fellt krónuna og bankana. Úrvinnslan í höndum Steingríms er svo sú versta sem hægt er að hugsa sér og hefur valdi gríðarlegu tjóni þá þegar og stefnir í verra. Fyrr en hann verðu hrakinn frá og skipt um ríkisstjórn og stjórn í Seðlabankanum, verður hér dýpkandi kreppa.

24.000 Evruskuld ofan á allt annað er eitthvað sem okkur vantar ekki.

NEI við Icesave, hvað sem RUV og Fréttablaðið segja.!

 

 

 

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ómar Bjarki Smárason

Sammála - við segju NEI NEI NEI NEI við IceSave og viljum við réttkjörið Stjórnlagaþing en ekki Jóhönnuskipað StjórnlagaÞving.....!

Ómar Bjarki Smárason, 2.4.2011 kl. 01:44

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (5.5.): 11
  • Sl. sólarhring: 18
  • Sl. viku: 73
  • Frá upphafi: 3418305

Annað

  • Innlit í dag: 11
  • Innlit sl. viku: 70
  • Gestir í dag: 11
  • IP-tölur í dag: 7

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband