23.4.2011 | 12:56
Nýjir vendir
óskast þegar í stað, skildist manni á máli rithöfundanna sem voru í útvarpinu áðan. Allt traust fólks á Alþingismönnum væri farið því að miðjan í þjóðfélaginu hefði skaddast. Ein konan í hópnum lýsti því að þetta væri eins og með manninn sem héldi framhjá konunni sinni. Ef hún fyrirgæfi honum og hann lofaði að hætta framhjáhaldinu væri samt allt í ólagi, konan væri sífellt tortryggin og hann fyndi það greinilega og gæti því hrasað aftur. Sama væri með drykkjumanninn sem lofaði að hætta en dytti samt í það.
Okkur vantaði því fólk sögðu rithöfundarnir sem við gætum treyst því allir og einhveer nýfrjálshyggja hefðu brugðist okkur. Við yrðum að fá svoleiðis fólk á þing sem við gætum treyst að héldi ekki framhjá og væri ekki sífellt á einhverju fylleríi. Ekkert hefði breyst í þjóðfélaginu síðan í hruni , þeir ríku væru enn ríkir en þeir fátæku fátækari og öryrkjar hefðu það líka verra. Þetta fólk yrði að fá meiri peninga svo það gæti keypt sér bók og helst miða í Hörpuna líka.
Þarna er þá kominn uppskrift að þingmanni sem hægt er að uppfylla. Ef maður er orðinn svo gamall að maður er orðin jafnfótkaldur og óbrúklegur til kvenna og Egill Skallagrímsson lýsti sjálfum sér í kvæði sínu, orðinn til viðbótar svo leiðinlegur að enginn vill hvort sem er drekka með manni, er maður þá ekki kominn áleiðis með að standast væntingar rithöfundanna ? Er slíku fólki ekki best treystandi?
Rithöfundarnir sögðust vissir um að Jóhanna og Steingrímur vildu gera vel fyrir þjóðina. Þau bara gætu það ekki. Allt hefði mistekist hjá þeim. Það yrði því að fá þetta nýja fullkomna fólk sem væri ekki með þessa svika-eiginleika eins og allir þessir Alþingismenn. Þjóðin væri gersamlega búin að fá nóg af þessu liði og tapa öllu trausti sínu á því. Við yrðum að velja nýtt fólk til forystu.
Bingó, þá vitum við hvernig á að velja Alþingismenn. Helst náttúrulausir bindindismenn koma til greina. Þeim geta rithöfundarnir treyst. Þeir verða ekki með þessi sífelldu svik og framhjáhöld eða vera fullir í vinnunni. "Því flestir eru bara venjuleg svín" eins og Nóbelsskáldið sagði í kvæðinu.
Góður vinur minn Sveinn K. í Völundi sagði eitt sinn þegar upp komst um fjárdrátt hjá þekktum bindindismanni, að menn gættu ekki að því að summa lastanna væri alltaf konstant. Jón vinur minn sagði líka að maður ætti alltaf að gjalda varhug við að trúa bindindismönnum fyrir peningum, því þeir treystu ekki sjálfum sér fyrir brennivíni. Ég man nú ekki hvort hann gaf kvennamönnum sérstaka peningaeinkunn, né heldur að ég muni hvaða álit hann hafði á fyllibyttum og flögurum þegar þeir eiginleikar mættust í sama manninum. En eru slíkir menn oftar en ekki í hávegum hafðir með íslenskri þjóð, sérlega ef þeir eru svo skáld eða stjórnmálamenn til viðbótar?
Guðbrandur Jónsson stakk uppá því að sérstöku salti yrði blandað í fæðu manna sem gerði þá heiðarlega, góðviljaða og vitra. Aðspurður um þetta salt sagði hann að það væri að vísu ekki til ennþá en menn hlytu að geta fundið það upp úr því að menn vissu til hvers ætti að nota það. Líklega verður það seint sem menn fái pottþétt betri pólitíkusa en þá sem maður eru búinn að missa. Kristinn í Björgun sagðist ekki hafa rekið vélstjórann sem tók negluna úr skipinu hans svo það sökk næstum því,- Hann gerir það pottþétt ekki aftur" sagði Kiddi.
Hugsanlega gætu rithöfundarnir skoðað skoðanakönnunina til hægri hérna á síðunni. Eru þeir vissir um að einhverjir nýir frambjóðendur verði endilega betri en þeir sem flest atkvæðin fá þar?
Trúum við ekki á nýja leiðtoga þar til að þeir bregðast? Trúum við ekki alltaf á nýju fötin keisarans?
Sópa ekki nýir vendir alltaf best?
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 0
- Sl. sólarhring: 4
- Sl. viku: 37
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 31
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- Maí 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Ágúst 2021
- Júlí 2021
- Júní 2021
- Maí 2021
- Apríl 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Júlí 2020
- Júní 2020
- Maí 2020
- Apríl 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2020
- Janúar 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Ágúst 2017
- Júlí 2017
- Júní 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
Bloggvinir
- ghe13
- sigurjonth
- andrigeir
- annabjorghjartardottir
- ansigu
- agbjarn
- armannkr
- asdisol
- baldher
- h2o
- bjarnihardar
- dullur
- bjarnimax
- zippo
- westurfari
- gattin
- bryndisharalds
- davpal
- eggman
- greindur
- bjartsynisflokkurinn
- elfarlogi
- eeelle
- sunna2
- ea
- fuf
- fhg
- vidhorf
- gerdurpalma112
- gilsneggerz
- gudni-is
- lucas
- zumann
- gp
- gun
- topplistinn
- tilveran-i-esb
- skulablogg
- gustafskulason
- gustaf
- heimssyn
- diva73
- helgi-sigmunds
- hjaltisig
- minos
- hordurhalldorsson
- astromix
- fun
- jennystefania
- johanneliasson
- johannvegas
- jonatlikristjansson
- fiski
- jonl
- jonmagnusson
- jonlindal
- bassinn
- jonvalurjensson
- jvj
- thjodarskutan
- juliusbearsson
- katagunn
- kje
- ksh
- kristinn-karl
- kristinnp
- kristjan9
- loftslag
- altice
- ludvikjuliusson
- maggij
- magnusthor
- mathieu
- nielsfinsen
- omarbjarki
- huldumenn
- svarthamar
- pallvil
- peturmikli
- valdimarg
- ragnarb
- samstada-thjodar
- fullveldi
- siggus10
- sisi
- siggisig
- ziggi
- siggith
- stjornlagathing
- pandora
- spurs
- kleppari
- saethorhelgi
- tibsen
- ubk
- valdimarjohannesson
- skolli
- valurstef
- vilhjalmurarnason
- vey
- postdoc
- thjodarheidur
- icerock
- steinig
- thorsteinnhelgi
- icekeiko
Athugasemdir
Jú, en má ég panta gamla vendi sem flengja best!!!
Helga Kristjánsdóttir, 23.4.2011 kl. 15:07
Líklega hefur Helga nokkuð til síns máls... Hér áður fyrr voru almennilegir pólitíkusar breyskir og klerkarnir bæði drykkfelldir og kvensamir.... Nú til dags virðast þetta óttaleg viðrini á flestum sviðum og það þykir fréttnæmt ef einhver mætir drukkinn í ræðustól í þinginu.... Er ekki mál að fá inn á þing dugandi fólk sem kann að njóta lífsins til fulls og drekkur sínar Bermúdaskálar og daðrar og duflar og sýnir að það sé með lífsmarki... Annars verður þetta fljótlega steingelt þjóðfélag og duglaust...
Ómar Bjarki Smárason, 23.4.2011 kl. 21:54
Hallelúja og amen í okkar eigin innri guðs nafni Halldór, og ekki nokkur leið að komma skikk á þetta stjórnarlið?
því falda valdið er víðs fjarri flestum Íslendingum! Íslendingar eru bara fjarstýrðar strengjabrúður í svikulum flokkum sem aldrei hafa haft leyfi til að hafa skoðun, hvað þá meir? Þannig lítur þetta út í mínum augum?
Það þarf samstöðu almennings þjóðarinnar til að breyta þessu! Hvernig sameinum við sundraða þjóð frá öfga-hægri og öfga-vinstri og fjölmiðla-svikurum?
M.b.kv.
Anna Sigríður Guðmundsdóttir, 24.4.2011 kl. 03:07
Já Helga,
Það eru ýmsir enn óflengdir sem ekki ættu að vera það að okkur finnst.
Ómar
Það er vandlifað. Nóg af vandlæturum þegar menn koma sætfullir í ræðustól Alþingis. Menn verða þá að hafa húmor til að taka því, ekki fara í einhverja fýlu og hóta að farfa í AA og svoleiðis. menn verða að rísa undir sjálfum sér og kjósa sér félagsskap við hæfi.
Ég man að ónefndur maður fór í ræðustól skömmu eftir Bermúdaskálina og bauð gestum að gjöra sér gott af því sem fram væri borið, bæði mat og drykk. Að vísu fyndist einhverjum að hann ætti sjálfur líkllega ekki að vera að hvetja menn til drykkju. En hinsvegar hefði hann heyrt það haft eftir Dean Martin, að eiginlega væri enginn fullur sem gæti legið óstuddur í gólfinu ! Og enginn sá þennan mann neinstaðar fullan opinberlega síðan þó hann sæist talsvert, en hann skipti líka fljótlega um félagsskap hvort sem það hafði áhrif .
Anna Sigríður,
enn ertu með sömu fýluna útí Sjálfstæðisflokkinn. Heldur að að einhverjir fjarstýri honum með strengjum en nennir ekki að mæta sjálf til að gá og rífa þá kjaft. Það er flokksfólkið sem velur þetta lið og þú getur tekið þann þátt í því sem þú vilt.
Halldór Jónsson, 24.4.2011 kl. 09:47
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.