21.5.2011 | 15:08
Guðlaugur Þór
var góður á fundi Sjálfstæðismanna í Kópavogi í morgun.
Guðlaugur fór yfir endurreikningsaðferðir bankanna á hinum ýmsu lánaformum. Hann hefur látið gera reiknivél sem fólk getur nálgast og notað á heimasíðu sinni. Það getur munað verulegum fjárhæðum á því hvernig bankar eru að reikna upp lán. Komu ýmsar furðulegar sögur upp á fundinum frá fólkinu, sem staðfestu mál Guðlaugs. Er með ólíkindum hversu svívirðilega bankarnir koma fram gagnvart fólkinu í landinu þannig að munað getur tugum prósenta á útkomunni eftir því hvað á í hlut. Til dæmis taka bankar afborganir ekki inn í reikninga sem greiðslu inná höfuðstól láns heldur bara sem vaxtagreiðslur. Síðan nota þeir vexti til að hækka höfuðstólinn og reikna síðan vaxtavexti ofan á allt saman. Reiknivél Guðlaugs gæti hjálpað fólki til að verjast ofsóknum bankanna og er fólk hvatt til að fara á heimasíðu Guðlaugs Þórs og notfæra sér hana.
Guðlaugur Þór sagði það með ólíkindum, að tvær fullkomnustu skurðstofur landsins stæðu nú ónotaðar suður á Keflavíkurflugvelli vegna þess að Ögmundur Jónasson ráðherra kom persónulega í veg fyrir það, að þær yrðu notaðar af íslenskum læknum til gjaldeyrisskapandi verkefna við útlendinga. Svo þykist sami maður hafa áhyggjur af atvinnumálum á Suðurnesjum. Flest viðleitni ríkisstjórnarinnar beinist að því að koma í veg fyrir að eitthvað sé gert, sam hvert litið er.
Guðlaugur benti líka á, hvernig ríkisstjórninni tekst með dyggri aðstoð fjölmiðlaveldis síns, að láta stjórnmálaumræðuna stöðugt snúast um aukaatriði til að draga athyglina frá hinum aðkallandi málum. Nú blaðraði hún um kvótann og sjávarútveginn sem fæstir í stjórnarflokkunum botnuðu nokkuð í meðan bankarnir væru að eyðileggja heimilin og fyrirtækin á skipulagðan hátt. Hættan væri hinsvegar sú að þeim tækist þess vegna að vinna vanhugsað tjón á undirstöðuatvinnuvegi þjóðarinnar og því yrðu menn að halda vöku sinni á Alþingi og berjast gegn breytingunum í sjávarútvegi sem miðast við að færa vald frá útgerðarmönnum til stjórnmálamanna. Ekki var Baldur Halldórsson sammála þessu og lét óspart í ljósi sem engann undrar.
Guðlaugur Þór fór vítt og breitt yfir hið pólitíska landslag eftir skæðadrífu spurninga frá fjölmörgum fundargestum. Guðlaugur sýndi það að hann er vel heima í öllum málum og bæði vígfimur og skemmtilegur, (allt að því "davíðskur" sic!) í ræðustól. Hann vildi að stefnumál framtíðarinnar yrðu þau að skapa eign hjá fólki en ekki skuldir eins og allt kerfið snérist núna um. Aðeins skuldir færðu mönnum vaxtabætur og fleiri félagsmálapakka. En eignir væru minna metnar og stundum gerðar refsiverðar en ekki verðlaunaðar.
Guðlaugur ræddi skaðsemi gjaldeyrishaftanna og hvernig Árni Páll verði þau núna sem algera nauðsyn. Í hvert sinn sem þú drægir upp kreditkort erlendis þá væri maður niður í Seðlabanka að fylgjast með því hvað þú værir að kaupa. Gjaldeyrir væri skammtaður til ferðalaga eins og allir vissu. En ekki hefði verið bannað að greiða fyrir vöru og þjónustu með kosrtum. En samt hvefði sést til Steingríms J. Sigfússonar vera að taka út gjaldeyrir í hraðbanka erlendis. En auðvitað er ekki sama að vera Jón eða séra Jón.
Halldór Ingólfsson verkfræðingur og verktaki lýsti því á fundinum hvernig bankarnir og skattkerfið virtust vinna saman að því að skipta um eignarhald á eignum félaga og fjölskyldna. Það væri stöðugt verið að útrýma öllu einkaeignarhaldi í landinu. Hann sagði frá 400 manna fundi skuldara nú nýverið þar sem þessi vandamál hefðu verið krufin. Var það mál manna að Sjálfstæðisflokkurinn hefði sinnt þessum málum alltof lítið og var skorað á Guðlaug að láta flokkinn bretta upp ermar og láta sig þessi mál meira varða.
Þetta leiddi í huga áheyrandans þá hugsun að fólk ætti að fara að minnast þess oftar að banki er einskis vinur hvað sem hann auglýsir fallega og liríkt. Faðmlag bankans er oftar banvænt fyrir þann sem í það fer. Lán er nefnilega oftast ólán þess sem það tekur . Bankinn á sér engan annan tilgang en að ná af þér fé, til að græða sjálfur. Nema þú sért nógu stór og tengdur til að fá þín lán afskrifuð eins og útrásarvíkingunum mörgum hlotnaðist og geta því búið í vellystingum erlendis í friði fyrir hálfónýtu réttarkerfi Íslands.
Steingrímur J. fjármálaráðherra skýtur sér svo á bak við það, að bankarnir séu í eigu erlendra kröfuhafa þegar hann er spurður út í hvernig á þessum vanda standi. Bankarnir rukki þess vegna allt af hörku upp í topp þó þeir hafi fengið lánin á spottprís þegar þau voru yfirtekin útúr þrotabúum gömlu bankanna. Þess vegna hafi Steingrímur og Jóhanna ekkert getað gert í skjaldborginni sem þau lofuðu að reisa um heimilin og fyrirtækin. Sem margir telja núorðið að sé auðvitað lygi eins og flest annað sem fram kemur úr þeirri átt.
Eftir því sem ég hef fregnað best í gegnum leyndarþokuna sem yfir grúfir, þá hefur ekki eitt einasta hlutabréf í bönkunum skipt um eigendur. Eftir því veru þeir allir í eigu og umsjá Steingríms J. Sigfússonar sem umboðsmanns fólksins en ekki erlendra kröfuhafa. Allar misgerðir bankanna gagnvart fólkinu eru því beint á ábyrgð ríkisstjórnarinnar sem sannar með þessu framferði að hún hefur tekið stöðu með "auðvaldinu" gegn hagsmunum" fólksins", eins og venjan var í kommúnistaríkjunum gömlu. Hún hefur gefið bönkunum veiðileyfi á almenning þessa lands. og því er þessi ríkisstjórn óvinur fólksins númer eitt.
Það þekkja margir, að kommúnistar og fylgifiskar þeirra hafa ausið Guðlaug Þór miklum auri fyrir það, hversu duglegur hann var að afla fjár í kosningasjóði sína. Þeir reyna að kalla þetta mútur og þaðan af verra til að sverta persónu Guðlaugs Þórs. Þetta hefur náð langt inn í raðir sjálfstæðismanna sem því eru óduglegir að verja sitt fólk. Ekkert af þessum ásökunum stenst samt neina skoðun eða vekja spurningar um einhvern óheiðarleika. Það var aðeins meiri dugnaður Guðlaugs Þórs sem færði honum meiri árangur á þeim sömu fjármálamiðum sem aðrir stjórnmálamenn réru líka á. Það var ekkert bannað að taka við styrkjum til stjórnmálastarfs og á heldur ekki að vera það nema ríkið taki alfarið að sér að kosta stjórnmálabaráttu. Yrði það betra? Og hvar myndi slíkt enda?
Mér finnst persónulega að stjórnmálaflokkar og stjórnmálamenn eigi að kosta sig sjálfir og fjármál þeirra komi engum við, allra síst andstæðingaflokkunum eða öfundarkommum. En fjölmiðlarnir vilja bara tala um Guðlaug Þór af því hann er sjálfstæðismaður og meðal duglegustu þingmanna meðan hinir eru vinstrimenn. Hræsnin og tvöfeldnin eru purkunarlaust notuð af fjölmiðlum landsins sem eru allir vinstra megin í pólitíkinni nema Morgunblaðið eitt og svo auðvitað sjónvarpsstöðin ÍNN, þar sem Guðlaugur Þór er reglulegur gestur.
Að lokum upplýsti Guðlaugur Þór að miðstjórn Sjálfstæðisflokksins myndi taka ákvörðun um landsfund flokksins á fundi sínum á næsta miðvikudag.
Ég færi Guðlaugi Þór þakkir mínar fyrir góðan fund í Kópavogi í morgun.
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 15:43 | Facebook
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 0
- Sl. sólarhring: 4
- Sl. viku: 37
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 31
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- Maí 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Ágúst 2021
- Júlí 2021
- Júní 2021
- Maí 2021
- Apríl 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Júlí 2020
- Júní 2020
- Maí 2020
- Apríl 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2020
- Janúar 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Ágúst 2017
- Júlí 2017
- Júní 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
Bloggvinir
- ghe13
- sigurjonth
- andrigeir
- annabjorghjartardottir
- ansigu
- agbjarn
- armannkr
- asdisol
- baldher
- h2o
- bjarnihardar
- dullur
- bjarnimax
- zippo
- westurfari
- gattin
- bryndisharalds
- davpal
- eggman
- greindur
- bjartsynisflokkurinn
- elfarlogi
- eeelle
- sunna2
- ea
- fuf
- fhg
- vidhorf
- gerdurpalma112
- gilsneggerz
- gudni-is
- lucas
- zumann
- gp
- gun
- topplistinn
- tilveran-i-esb
- skulablogg
- gustafskulason
- gustaf
- heimssyn
- diva73
- helgi-sigmunds
- hjaltisig
- minos
- hordurhalldorsson
- astromix
- fun
- jennystefania
- johanneliasson
- johannvegas
- jonatlikristjansson
- fiski
- jonl
- jonmagnusson
- jonlindal
- bassinn
- jonvalurjensson
- jvj
- thjodarskutan
- juliusbearsson
- katagunn
- kje
- ksh
- kristinn-karl
- kristinnp
- kristjan9
- loftslag
- altice
- ludvikjuliusson
- maggij
- magnusthor
- mathieu
- nielsfinsen
- omarbjarki
- huldumenn
- svarthamar
- pallvil
- peturmikli
- valdimarg
- ragnarb
- samstada-thjodar
- fullveldi
- siggus10
- sisi
- siggisig
- ziggi
- siggith
- stjornlagathing
- pandora
- spurs
- kleppari
- saethorhelgi
- tibsen
- ubk
- valdimarjohannesson
- skolli
- valurstef
- vilhjalmurarnason
- vey
- postdoc
- thjodarheidur
- icerock
- steinig
- thorsteinnhelgi
- icekeiko
Athugasemdir
Ekki getum við í Eyjum þakkað Bjarna Ben og Ólöfu Nordal fyrir góðan fund á dögonum. Fyrir hverja vinna þau fyrir í dag? þau eru máttlaus sem Formenn Flokksins,við eigum betra skylið en hafa þau í foristu. Að endingu er það rétt hjá þér það er óþarfi að henda aur og skít í Guðlaug þór, og þeir þingmenn Sjálfstæðisflokksins sem það hafa gert eru ekki á vetur ásetjandi.
Vilhjálmur Stefánsson, 21.5.2011 kl. 17:00
Ómar Bjarki Smárason, 22.5.2011 kl. 02:28
Þakka þér þessa samantekt. - VS árásirnar á Guðlaug eru þeim til skammar sem þær fremja - Ómar - þetta og fleira eru smánarblettir sem Guðlaugur hefur reynt að fá ráðamenn til að afmá og það strax - Ögmundur - Álfheiður - Guðbjartur - hlusta ekki - skilja ekki - heyra ekki - sjá ekki -
Ólafur Ingi Hrólfsson, 22.5.2011 kl. 02:45
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.