Leita í fréttum mbl.is

Til móts við fortíðina

Ég datt inná gamalt blogg frá einhverjum gaur sem ég varla þekki lengur. En mér fannst þetta ekki alvitlaust og mér dettur í hug að setja það inn hér.

"Það er oft gaman að hlusta á Jón Baldvin Hannibalsson. Á laugardagsmorgun var hann í útvarpinu ásamt fleirum í Krossgötum. Þar lýsti hann því að Reykjavík væri amerísk borg, urban sprawl,með engar almenningssamgöngur og 3 bíla á hvert heimili. En hann vildi ganga í Evrópusambandið og finnst hann vera Evrópumaður, enda var Lenin Rússi og maður gleymir ekki pólitískum uppruna sínum.

Mér fannst þetta athyglisvert og leiddi hugann að mörgu sem ég skil í raun ekki.
Það er alltaf verið að tala um að við séum Evrópuþjóð, sem eigi að ganga í Evrópusambandið og taka upp Evru. Við erum líka alltaf að taka upp Evrópustaðla og reglugerðir og lepjum allt upp hrátt sem þaðan kemur. Frjálst flæði innflytjenda og hver veit hvað.

Hvað er Evrópusambandið ? Það er tollabandalag gegn Bandaríkjunum sérstaklega og svo öllum utan bandalagsins. Það er innbyrðis hagsmunasamband sem hefur gert margt gott fyrir bandalagsþjóðirnar og haldið friðinn milli Þjóðverja og Frakka-, enn sem komið er.

Jón Baldvin kemst hinsvegar að þeirri niðurstöðu að við séum Evrópuþjóð, sem eigi að hanga aftan í Norðurlandaþjóðunum. Við séum hinsvegar varnarlaust rekald, sem er rétt..

Er þetta Evróputal ekki þráhyggja sem við erum hætt að efast um ? Erum við ekki miklu bandarískari að allri menningu og lífsstíl heldur en við tökum eftir. Væri okkur ekki hollara að taka meira mið af bandarískum stöðlum og reglugerðum heldur en að hanga svona í Evrópu.

Tölvan og netið eru fædd í Bandaríkjunum. Bandarískir staðlar voru langt á undan evrópskum stöðlum, sem eru í rauninni oft léleg stæling á bandarískum stöðlum, og auðvitað til muna ógreinilegri og þvælukenndari eftir að þýzkir grillufángarar hafa dritað í þá ótal breytum sem takmarkaða þýðingu hafa. Öll bestu burðarþolsforrit heimsins eru bandarísk og þau nota íslenzkir verkfræðingar . Þar þvælast bara evrópustaðlarnir fyrir þó að forritin verði sífellt betri og geti stillt sig á evrópskar kenjar sum hver. Allt þetta evrópukjaftæði bara stórspillir fyrir á flestum sviðum, til dæmis Rarik og Orkusalan, tveir reikningar fyrir einn og áfram má telja. Tveir einokunaraðilar í eigu sama aðila í stað eins með tvöföldum kostnaði er það sem Íslendingar hafa uppúr þessum eltingaleik við þessa Evrópuhugmynd.. En einkafyrirtækið Frumherji hefur svo einkaleyfi á öllum orkusölumælum ! Hvaða evrópuformúla skyldi það vera. ?

Þetta er ekki bandarísk nálgun að rekstri. Bandaríkin eru svo langt á undan Evrópu tæknilega, að þar skilur himin og haf. En okkur er innrætt að líta niður á þau af því að Bush sé bjáni og þeir eigi ekki neinar fornsögur eins og við. Þessvegna megum við ekki nota hér bandaríska staðla samhliða evrópustöðlum, ekki reikna í þeirra einingum ef við viljum og svo framvegis.
Flugið er líka fætt í Bandaríkjunum og flugeiningar eru bandarískar, fet, hnútar, mílur etc. Samt lepjum við upp allt frá Evróusambandinu, gott eða illt gagnrýnislaust , en blásum á allt bandarískt, bæði próf, menntun osfrv.. Sem eru þó mesta flugþjóð í heimi.

Mér finnst ég ekkert vera neinn sérstakur Evrópumaður. Mér finnst við Íslendingar séum ekki nein sérstök Evrópuþjóð. Við erum frjáls þ.jóð sem liggur á krossgötum sem getur nýtt það besta úr báðum heimum. Við lifum í amerískum stíl, við hugsum eins og bandarískur kapítalisti þó við séum enn sannfærð um nauðsyn öryggisnets þjóðfélagsins.

Við erum bílaþjóð sem vill ekki keyra í strætó, lifa í þröngum miðbæjum með fylleríi og sukki á götunum. Við viljum vinna og græða peninga og búa í úthverfum. Urban sprawl er það sem við viljum. Við viljum geta ferðast að vild en við viljum ekki yfirfylla hér allt með gagnkvæmni í innflytjendafjölda.

Evrópusambandið getur enga ákvörðun tekið ef kemur að hernaði.Sjáið þið hvað það gat gert í Bosníu . Það var bara Kaninn sem gat leyst það mál þó að það stæði Evrópusambandinu nær.

Það er ekkert gagn í norskri orustuþotu, því það er ekkert á bak við hana sem einhver hræðist. Bandaríska flaggið þýðir bisness. Á bak við það er ein þjóð með eina stjórn, vitlausa stjórn eða ekki, það er stjórn sem getur tekið ákvörðun og framfylgt henni. Í Evrópusambandinu er öllu skotið í nefnd, sem auðvitað getur aldrei afgreitt neitt. Því er ekkert gagn í varnarsambandi við Evrópu öðru vísi en hægt væri að gera hernaðarbandalag við einstakt ríki, Frakka eða Þjóðverja. Það er bara ekki hægt. Því verðum við að treysta á Bandaríkin okkur til hjálpar ef til stykkisins kemur auk þess sem við ættum að treysta á okkur sjálf í ríkari mæli.

Eigum við ekki að velta þessu Evróputali aðeins betur fyrir okkur? Evrópa hefur aldrei getað leyst sín mál sjálf. Hún hefur alltaf orðið að treysta á Kanann sér til bjargar þegar í harðbakkan slær. Og auðvitað hreytt skít í hann í þakklætisskyni þegar ógnin er afstaðin. Blair reyndi þó að vera vinur vinar síns í Irak og þeir Dabbi og Dóri líka En af því að allt gengur ekki eftir plani, þá stöndum við og görgum gegn Bandaríkjunum. Ekki finnst mér okkur alltaf farast stórmannlega."

Þetta er sjálfsagt raus úr fortíðinni og á ekkert erindi í nútímann eftir bankahrun og fleiri sviptingar. En þetta er skrifað í júni 2007, löngu fyrir Icesave, og helgina með Quaracchi á Gaddstaðaflötum um síðusu helgi.Skrifarinn orðinn meira elliær og vitlausari, ef ekki vonlausari en þá.

Koma og fara frægðarmenn, fara útí buskann senn. Eitt er víst að ég, ég er hér. Því ég er maðurinn hennar Jónínu hans Jóns.....

Bush er farinn, og við flest komin á hausinn. Trúum samt á Jón Baldvin og aðildarviðræðurnar. Stjórnlagagaráð Þorvaldar Gylfasonar, visku Seingríms og nauðsyn hærri "skatta á öll lífsins gæði".

Sumt breytist ekki, sumt breytist eitthvað.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Vilhjálmur Stefánsson

Hvenær urðum við Evropuþjóð???

Vilhjálmur Stefánsson, 16.7.2011 kl. 21:18

2 Smámynd: Halldór Jónsson

Ef ég vissi það nú?

Halldór Jónsson, 16.7.2011 kl. 23:55

3 Smámynd: Halldór Jónsson

Hinsvegar man ég að Þóroddur "Skinna" sem kallaður var, flaug í Hindenburg yfir Ísland á leið til USA og sendi loftskeyti svohljóðandi:"Heimurinn er minn akur!"

Svona voru til menn þá eins og núna sem gátu hugsað út fyrir hinn þrönga hring.

Halldór Jónsson, 16.7.2011 kl. 23:58

4 Smámynd: Halldór Jónsson

það er að segja að ég man að mér var sagt þetta, Hindeburg loftskipið var löngu fyrir mína tíða að sjálfsögðu.

Halldór Jónsson, 16.7.2011 kl. 23:59

5 identicon

Ég ætla ekki að leggja að jöfnu almenningssamgöngur hér eða í Bandaríkjunum, en ég var í Boston ekki alls fyrir löngu og í stað þess að húka úti í roki og rigningu með sultardropa á nefinu eftir strætó sem kemur bara eftir dúk og disk, fór maður bara niður í jörðina og hoppaði upp í næstu lest í hita og skjóli, en lest sem kom manni á undraverðum tíma á áfangastað.

Einu sinni var ég í Salt Lake City þar sem ég fór með lest í úthverfin, en þegar maður kom þangað, þá voru á lestastöðvunum risastór bílastæði full af bílum. En svo virtist sem að fólkið sem býr í úthverfunum keyri á lestarstððina, leggi bílnum þar og taki lestina niður í bæ. Var einhver að tala um engar almenningssamgöngur í Bandaríkjunum?

Rafn Haraldur Sigurðsson (IP-tala skráð) 17.7.2011 kl. 09:52

6 Smámynd: Halldór Jónsson

Eafn,

er það ekki þetta sem máli skiptir? Kaninn leysir hlutina á skynsamlegan hátt. Ef þörf og grundvöllur er fyrir neðanjarðarlest þá er hún byggð. En ekki gerð ókeypis Héðinsfjarðargöng af framsóknarsjónarmiðum úr öllum flokkum.

Halldór Jónsson, 17.7.2011 kl. 10:27

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (4.5.): 0
  • Sl. sólarhring: 10
  • Sl. viku: 62
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 62
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband