Leita í fréttum mbl.is

Bravó VG !

með frábæran árangur. Álver á Bakka er slegið útaf borðinu og heimsbyggðin fær mengun frá álveri með óendurnýjanlegum orkugjöfum í staðinn. Vissulega gott veganesti fyrir Svandísi Svavarsdóttur inná landsfund flokksins í lok mánaðarins.

Og Steingrímur J. Sigfússon hefur bætt enn einum steini í sigurboga sinn sem hann hleður nætur og daga. Þarna verður hægt að tala langt mál um það happ að losna við álverið og nota orkuna í "eitthvað annað", hvað sem það nú verður. Heimamenn eru að vonum himinlifandi yfir framgöngu þingmannsins sem kemur bráðum með "eitthvað annað".

Svo kemur í ljós að bankarnir fengu húsnæðislán heimilanna með jafnvel þriðjungs afslætti. Það er því auðskilið að hægt hafi gengið að reisa skjaldborgina um heimilin þar sem varla neitt borð er fyrir báru fyrir skuldaaðlögun hjá bönkunum þegar búið er að leiðréta fyrir gengislánunum sem Hæstiréttur dæmdi ólögleg.

Hversu lengi enn mega landsmenn enn njóta siguröngu Steingríms og Svandísar? Bravóin yfir árangrinum á Bakka og bankasnilldinni munu sjá um að botnfrysta buldrið í Hjörleif Guttormssyni yfir Bandalagsaðlöguninni á allsherjar baráttufundi Vinstri Hreyfingarinnar-Græns Framboðs fyrir bættum hag þjóðarinnar.Bravó fyrir VG!


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Skeggi Skaftason

Er forstjóri Landsvirkjunar strengjabrúða VG-ráðherra?

Skeggi Skaftason, 18.10.2011 kl. 10:09

2 Smámynd: Árni Gunnarsson

Af því engu máli skiptir auðvitað hvort næg orka er fyrir hendi þegar stjórnvöld eiga að skapa störf.

Engum heilvita manni dettur í hug að vel upplýst og menntað heimafólk geti skapað sér lífsviðurværi af sjálfsdáðum.

Árni Gunnarsson, 18.10.2011 kl. 10:29

3 Smámynd: Gústaf Níelsson

Stálgrind Norðuráls í Helguvík er líka talandi dæmi um svik Vg við land og lýð. Kommúnistaskríllinn í Vg  og Samfylkingu ætlar að verða þjóðinni dýr - rándýr.

Gústaf Níelsson, 18.10.2011 kl. 15:57

4 Smámynd: Halldór Jónsson

Skeggi

Forstjórinn sagði að orkan ætti að fara annað en í þetta álver. Það er VG sem skipar honum fyrir

Halldór Jónsson, 18.10.2011 kl. 16:55

5 Smámynd: Halldór Jónsson

Gústaf

Það er ömurlegt að horfa upp á það minnismerki Vinstri Hreyfingarinnar-Græns Framboðs. Sérstaklega held ég að Suðurnesjamönnum þyki það við hæfi yfir þann flokk og þingmenn hans.

Halldór Jónsson, 18.10.2011 kl. 16:57

6 Smámynd: Halldór Jónsson

Netop árni, þessvegna sátu Eskfirðingar með hendur í skauti í gamla daga og gátur ekker annað en étið útsæðið og söðið það við eldin í griðingarstaurunum, en þetta hafði Eysteinn sent  þeim að sunnan. Eða þannig var sagan einhvernvegin. Nú geta þeir á Húsavík fallið fram og kysst tærnar af myndastyttum þeira Svandísar og Steingríms.

Halldór Jónsson, 18.10.2011 kl. 17:00

7 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Tek undir með Árna.  Nú eiga heimamenn að snúa sér að því að byggja upp eitthvað sjálfir í stað þess að bíða eftir að stjórnvöld og OR færi þeim eitt stykki álver upp á arminn, eins og ungar í hreiðri.

Þeir eiga rétt á þessari orku og eiga auðvitað að fá að byggja upp fyrirtæki og framtíð þar með. 

Mér persónulega finnst vera alveg komið nóg af álverum, og tel okkur sé betur borgið með að snúa okkur að einhverju bitastæðara.  Það sem stjórnvöld gera rangt er að setja ekki ramma utan um ný fyrirtæki og aflétta endalausum rukkunum og sköttum.  Það hefur verið gert áður og mæltist vel fyrir.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 18.10.2011 kl. 17:02

8 Smámynd: Skeggi Skaftason

Forstjórinn sagði að orkan ætti að fara annað en í þetta álver. Það er VG sem skipar honum fyrir

Ég heyrði ekki forstjórann segja þetta. Hann sagði að LV gæti ekki lofað 400 MW, að orka ú jarðvarma sem yrði framleidd fyrir norðan yrði dýrari en sú orka sem hefur verið seld á liðnum árum og að samningaviðræður við aðra aðila væru lengur komnar en þær viðræður sem verið höfðu við Alcoa.

Skeggi Skaftason, 18.10.2011 kl. 20:11

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (4.5.): 0
  • Sl. sólarhring: 10
  • Sl. viku: 62
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 62
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband